Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 6
Vikublað 21.–23. mars 20176 Fréttir
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á
góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin!
Sportgleraugu
Red Bull sólgleraugu
kr. 14.950,-
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Kröfu Ólafs
vísað frá
Hæstiréttur vísaði á fimmtudag
frá kröfu Ólafs Ólafssonar fjár-
festis um endurupptöku á Al-
Thani málinu svokallaða. Ólaf-
ur fór fram á að viðurkennt yrði
að skilyrði fyrir endurupptök-
unni væru uppfyllt. Héraðsdóm-
ur Reykjavíkur vísaði kröfunni
frá þann 25. janúar síðastliðinn
og staðfesti Hæstiréttur þann
úrskurð. Ólafur var dæmdur í
fjögurra og hálfs árs fangelsi í Al-
Thani málinu í Hæstarétti. Taldi
Ólafur að dómur Hæstaréttar
hefði byggt á sönnunargögnum
sem hefðu verið ranglega metin.
L
andsmenn voru 338.349 þann
1. janúar síðastliðinn og hafði
þeim þá fjölgað um 5.820 frá
sama tíma árið áður, eða um
1,8 prósent.
Þetta kom fram í tölum sem Hag-
stofan birti á mánudag. Þar kemur
fram að konum og körlum hafi fjölg-
að nokkuð jafnt en karlar eru eigi að
síður 3.717 fleiri en konur.
Mikil fólksfjölgun var á höfuð-
borgarsvæðinu, en íbúum þar fjölg-
aði um 3.259 í fyrra eða um 1,5 pró-
sent. Hlutfallslega varð þó mest
fólksfjölgun á Suðurnesjum, 6,6 pró-
sent. Einnig fjölgaði íbúum á Suður-
landi (2,1%), Norðurlandi eystra
(1,1%) og Vesturlandi (1%), en
minna á Norðurlandi vestra (0,4%)
og Austurlandi (0,4%). Fólksfækkun
var á Vestfjörðum, en þaðan fluttust
13 manns (0,2%) í fyrra.
Alls voru 74 sveitarfélög á
landinu á áramótum, en það er
óbreyttur fjöldi frá því í fyrra.
Sveitarfélögin eru misstór. Alls var
íbúatala sex sveitarfélaga undir 100
en undir 1.000 í 40 sveitarfélögum.
Einungis níu sveitarfélög höfðu yfir
5.000 íbúa.
Hinn 1. janúar síðastliðinn voru
60 þéttbýlisstaðir á landinu með 200
íbúa eða fleiri og fækkaði um einn
milli ára. Auk þeirra voru 36 smærri
staðir með 50–199 íbúa sem er fjölg-
un um einn frá fyrra ári. Í þétt-
býli bjuggu 316.904 og fjölgaði um
5.054 milli ára. Í dreifbýli og smærri
byggðakjörnum bjuggu 21.455
manns 1. janúar síðastliðinn. n
Landsmönnum fjölgar
Nýjar tölur Hagstofunnar um fólksfjölda
91 prósent
skráð hjá heim-
ilistannlækni
Um 91 prósent þeirra barna sem
eiga rétt á gjaldfrjálsum tann-
læknum er nú skráð hjá heimil-
istannlækni. Þetta kemur fram
í eftirfylgniskýrslu Ríkisendur-
skoðunar um átaksverkefni um
tannlækningar fyrir börn tekju-
lágra forráðamanna.
Ríkisendurskoðun beindi því til
velferðarráðuneytisins árið 2014
að það léti rannsaka tannheilsu
barna og að ráðuneytið beitti sér
fyrir því að fleiri börn yrðu skráð
hjá heimilistannlæknum. Ríkis-
endurskoðun telur að mikill ár-
angur hafi náðst í skráningu barna
og ungmenna hjá heimilistann-
læknum, en til marks um það voru
64 prósent barna og ungmenna
skráð hjá heimilistannlæknum
árið 2014. Sem fyrr segir hefur það
hlutfall hækkað í 91 prósent.
„Þetta eru óásættanleg
vinnubrögð“
Fegruðu leiguhækkanir með innistæðulausum loforðum um húsnæðisbætur
F
ramkvæmdastjóri Félags-
bústaða hf. hefur staðfest að
þjónustuíbúðir í Seljahlíð
uppfylli ekki skilyrði í lögum
um húsnæðisbætur. Þrátt fyrir
það var fyrirhuguð 80–125 prósenta
hækkun á húsaleigu til aldraðra leig-
utaka kynnt þannig að íbúar ættu
rétt á slíkum bótum. „Félags bústaðir
ganga út frá því að hægt verði að
koma íbúðunum í það ástand að
þær hljóti sjálfstæða skráningu hjá
fasteignamati og íbúar eigi rétt á
húsaleigubótum. Það kann að þurfa
að gera á þeim einhverjar endurbæt-
ur til að svo megi vera,“ segir Auðunn
Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri
Félagsbústaða hf., í skriflegu svari til
DV. Þegar fleiri spurningar bárust frá
blaðamanni vegna málsins barst til-
kynning um að spurningunum yrði
svarað í sérstakri kynningu til fjöl-
miðla „innan skamms“.
Húsaleigubætur grundvöllur
nýrra leigusamninga
Eins og greint var frá í helgarblaði
DV þá keyptu Félagsbústaðir hf. fast-
eignina af eiganda sínum, Reykja-
víkurborg, um áramótin. Fyrsta verk
fyrirtækisins var að ákveða að leigu-
verð til hinna öldruðu íbúa væri of
lágt. „Félagsbústaðir fá Seljahlíð af-
henta 1. apríl og tekur frá þeim degi
við hlutverki leigusala samkvæmt
þeim leigusamningum sem þá eru
í gildi. Leigusamningunum verður
öllum sagt upp með eðlilegum fyrir-
vara og nýr boðinn á grundvelli þess
að íbúðareiningar eru sjálfstæð-
ar og leigutökum standa til boða
húsnæðis bætur og eftir atvikum sér-
stakur húsnæðisstuðningur,“ seg-
ir Auðunn Freyr. Leigan sem íbúar
þurfa að sætta sig við mun hækka
um 80–125 prósent og ríkir mikil ólga
meðal þeirra.
„Óásættanleg vinnubrögð“
Þann 3. mars síðastliðinn var haldinn
íbúafundur í Seljahlíð þar sem
fulltrúar Félagsbústaða hf. og vel-
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar héldu
kynningu vegna yfirvofandi hækkun-
ar á leigunni. Yfirskrift fundarins var
„Húsnæðisbætur og sérstakur hús-
næðisstuðningur“. Eins og nafnið
gefur til kynna þá var öllu púðri á
fundinum eytt í að réttlæta hækk-
unina með því að búa til sýnisdæmi
þar sem gert var ráð fyrir því að íbúar
gætu óskað eftir húsnæðisbótum.
Í kynningunni var ekki minnst
einu orði á þá staðreynd að íbúð-
irnar uppfylla ekki skilyrði laga um
húsnæðisbætur því í þeim er engin
eldunaraðstaða. „Það vorum við,
íbúarnir, sem þurftum að upplýsa
fulltrúana um þessi ákvæði í lögum
á fundinum og það virtist hreinlega
koma flatt upp á þá. Það eru óásættan-
leg vinnubrögð,“ segir Ingibjörg S.
Finnbogadóttir, íbúi í Seljahlíð. Að
hennar sögn eru íbúðirnar í raun og
veru eins og herbergi á dvalarheim-
ili. „Ég á erfitt með að sjá hvernig þeir
ætla að fara að því að koma eldunar-
aðstöðu fyrir, sérstaklega í einstak-
lingsíbúðunum. Ef það tekst þá er það
mikið afrek en það mun þýða mikið
rask fyrir íbúa. Að auki verður fróðlegt
að sjá hver þarf að borga kostnaðinn
við framkvæmdirnar,“ segir hún.
10,7 milljarða hagnaður
Félagsbústaðir eiga og reka 2.445
félagslegar leiguíbúðir í höfuð-
borginni. Hagnaður félagsins á
síðasta ári nam 10.777 milljónum
króna samanborið við 4.051 millj-
ónar króna hagnað árið 2015.
Gríðarlegar hækkanir á fasteigna-
verði höfðu þar nánast allt að segja
en matsbreyting fjárfestingaeigna
félagsins nam 10.942 milljónum
króna á árinu 2016 en var 4.080
milljónir króna árið 2015.
Þá námu heildareignir Félags-
bústaða hf. í árslok 2016 alls 67,8
milljörðum og jukust þær um 13,9
milljarða króna á árinu, eða um
28,4 prósent. Matsbreytingar fjár-
festingaeigna skýra eignaaukn-
inguna að langstærstum hluta. n
Seljahlíð Félagsbústaðir hf. héldu kynningu fyrir aldraða leigutaka í þjónustuíbúðun-
um þar sem yfirvofandi hækkun á húsaleigu, um 80–125 prósent, voru fegraðar með
loforðum um húsaleigubætur. Ekki var minnst einu orði á þá staðreynd að íbúðirnar
uppfylla ekki skilyrði um slíkar bætur. Mynd Sigtryggur Ari
ingibjörg S. Finnboga-
dóttir Íbúar í Seljahlíð eru
óhressir með vinnubrögð Fé-
lagsbústaða sem Ingibjörg
segir að séu „óásættanleg.“
Mynd Sigtryggur Ari
Kynning Yfirskrift kynningarinnar á
hækkun húsaleigu var: „Húsnæðisbætur og
sérstakur húsnæðisstuðningur“.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is