Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 26
Vikublað 21.–23. mars 20176 Bestu pizzur bæjarins - Kynningarblað Rjúkandi eldbaka hljómar vel F rá því ARA-Restaurant & Bar var opnaður í hverfinu hefur viðskiptavinahópurinn sí- fellt farið stækkandi. „Við höf- um ekki auglýst okkur neitt fyrr en nú. Maturinn er einfaldlega fyrsta flokks, matsalurinn notalegur og andrúmsloftið huggulegt. Það er það sem selur og gæðin spyrjast út. Hingað geturðu komið með góðum vinum eða allri fjölskyldunni, fengið góðan mat og dvalið í þægilegu um- hverfi. Matseðillinn er fjölbreyttur og meðal annars er hægt að fá góm- sætar eldbakaðar pizzur, klassíska hamborgara, quesadillas og brauð- stangir,“ segir Ghani Zogaj, eigandi ARA-Restaurant & Bar í Búðakór 1 í Kópavogi. Góður vinur, rjúkandi eldbaka og kaldur á krana Einkennisorð ARA-Restaurant & Bar eru: „Það er fátt betra en góður vin- ur, nema það sé góður vinur með gómsætan mat frá ARA-Restaurant & Bar“ og eru þau engar ýkjur. Enda fer fátt betur með góðri vináttu en góður matur. Veitingasalurinn ilmar af ómótsæðilegum eldbökuðum flat- bökum sem eru bakaðar ferskar með ýmiss konar girnilegu áleggi. Einnig er hægt að taka matinn með heim fyrir þá sem vilja snæða í heimahúsi eða gleðja góðan vin með ilmandi heimsókn frá ARA-Restaurant & Bar. „Við erum svo með stóran skjá inni í salnum þar sem við sýnum helstu íþróttaviðburði og erum líka með ís- kaldan á krana,“ segir Ghani. Hópapantanir „Síðan við opnuðum höfum við séð um nokkra stóra hópa sem koma hingað til þess að borða saman kvöldmat eða hádegismat í skemmti- legu og notalegu andrúmslofti. Hóp- arnir í hverfinu velja að koma hingað vegna þess að hér fæst fyrsta flokks matur á góðu verði og salurinn er líka ótrúlega fallegur, þó að ég segi sjálfur frá. Við höfum lagt mikið upp úr því að hafa matsalinn notalegan enda skiptir það ótrúlega miklu máli fyrir gestina að umhverfið sé aðlað- andi,“ segir Ghani. n ARA-Restaurant & Bar er stað- settur að Búðakór 1, 203 Kópavogi. Sími: 554-3050 Opnunartími virka daga er kl. 11.00–23.00. Föstudaga og laugardaga er opið frá 11.00–01.00. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu veitingastaðarins. ARA-Restaurant & Bar: Veitingastaður fyrir alla fjölskylduna Rjúkandi eldbakaðar flatbökur Glæsilegur matsalur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.