Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 34
Vikublað 21.–23. mars 201726 Heilsa Fíknin að þurfa að fylgjast með - og einelti á netinu Afleiðingarnar geta verið skelfilegar varðandi sjálfsmynd og andlega líðan Þ að hefur orðið bylting í sam- skiptum fólks á undanförn- um árum, mjög svo hefur bæst í hóp þeirra forrita sem fólk getur notað til að hafa samskipti sín í milli. Það getur jafn- vel reynst erfitt fyrir þann sem reyn- ir að fylgjast með þróuninni að halda í við hana. Hér áður fyrr var síminn aðalmálið, svo kom farsíminn sem gjörbylti meira og minna öllum sam- skiptum sem gátu þá farið fram hvar sem er og hvenær sem er svo fremi sem menn höfðu samband. Internetið hefur bætt um betur og samskipti í gegnum tölvupóst voru einnig bylting á sínum tíma, en hann er eiginlega úreltur fyrir ungu kynslóðina með alla þá samfélags- miðla sem til eru og sú kynslóð not- ar í staðinn. Þá má ekki gleyma þeirri „ eitruðu“ blöndu að vera með allt í senn, síma, textaskilaboð, internet og smáforrit í einu litlu tæki sem í dag er kallaður snjallsími. ROFL og GN Þeir sem eiga svona tæki, sá sem þetta skrifar þar á meðal, vita hvers þau eru megnug og líka að það er auðvelt að finna fyrir þörfinni að vera „tengd- ur“. Sem fullorðnir einstaklingar, haf- andi gengið í gegnum þessa breyttu tíma sjáum við líka að samskipti hafa breyst til muna. Það er skemmtilegt að velta fyrir sér samhengi hlutanna og hvernig tæknin hefur að vissu leyti haft áhrif á hegðunar- og samskipta- mynstur okkar. Það var í upphafi dýrt að hringja úr farsíma, það var svona spari. Þeir sem voru séðir sendu sms þegar þau urðu möguleg en þá var rukkað fyrir textabil og komu alls kyns afbökuð orð út úr því sem var eiginlega nýtt tungumál og kennarar í íslenskufræðum þurftu allt í einu að kynna sér. Orð eins og „gegt“ sem þýðir geðveikt varð til á grundvelli tíma- sparnaðar og kostnaðarvitundar neytenda. Mörg fleiri skemmtileg litu dagsins ljós oftsinnis tekin úr ensku eins og „CU“ = see you, „GN“ = góða nótt, „ROFL“ = rolling on the floor laughing. Það er augljóst að með þessari tækni neytenda dróg- ust saman tekjur símafyrirtækjanna og tungumálið breyttist. Breytinga var þörf. Að þurfa að fylgjast með Með aukinni netnotkun í símum hefur gagnamagn orðið allsráðandi faktor í greiðslufyrirkomulagi, mörg símafyrirtækin buðu ókeypis sím- hringingar, sms-skilaboð innan þeirra kerfis, nú er þetta orðið opið fyrir alla, meira að segja úr heimasímum hjá mörgum þessara fyrirtækja. Ástæðan er afar einföld, meira og minna öll samskipti stórs hluta snjallsímanotenda fara í gegn- um internetið og einhvers konar samskiptaforrit. Við erum að miklu leyti orðin háð netinu. Það má meira að segja greina fíkn í notkun og umgengni við þessi tæki í dag. Fíknin byggir á því að þurfa að fylgjast með, missa ekki af neinu, það myndar spennu og streituástand. Samanburður við aðra, sem er mjög skaðlegur, líkt og hversu mörg „like“ þessi eða hinn fær getur haft veruleg áhrif á sjálfsmynd viðkomandi. Sum for- rit byggja á því að þú hafir fylgjend- ur eða „followers“ og safna börnin þeim nánast án þess að vita hverj- ir standa á bak við slíkt og verða berskjölduð fyrir þeim sem nýta sér það. Eitt versta formið af því að skilja útundan á netinu í dag hjá börnum og unglingum er að stofna lokaðar grúppur þar sem samskipt- in fara fram án þess að hinn upplýs- ingaþyrsti krakki komist að þeim. Það er snjallt og almennt ekkert við prívat samskipti að athuga, en verra ef þau eru notuð til útilokunar annarra og þeim strítt á því. Símafíkn er óásættanleg Flest forritin byggja á því að send eru myndskilaboð, texti eða „icon“ og er á velflestum þeirra hægt að fylgj- ast með því sem gert hefur verið. Önnur eru þannig uppbyggð að texti og myndefni eyðist fljótlega eftir að hafa verið séð. Það þarf engan snill- ing til að átta sig á því hversu skað- legt slíkt getur verið ef myndefnið er óviðeigandi eða særandi, hvað þá ef það er ítrekað. Umræðan um einelti á netinu hefur verið vaxandi og nýleg könnun SAFT sýndi að 10 prósent barna á unglingastigi viðurkenndu meið- andi hegðun í gegnum miðilinn. Áhugavert er að einungis 1 prósent foreldra telur að slíkt eigi sér stað gagnvart sínu barni eða að undirlagi þess. Hver kannast ekki við að börn- in séu límd við tækin, erfiðar gangi en áður að halda uppi samræðum og þannig mætti lengi telja. Síma- fíkn er óásættan leg, enn fremur er óásættanlegt að einelti og stríðni sé viðhöfð á þessu oft lokaða og hulda samskiptaformi. Afleiðingarnar geta verið skelfilegar varðandi sjálfsmynd og andlega líðan þeirra sem sæta því og getur slíkt jafnvel leitt til sjálfsvígs. Frekari vitundarvakningar er þörf! n Teitur Guðmundsson læknir „Umræðan um einelti á netinu hefur verið vaxandi og nýleg könnun SAFT sýndi að 10 prósent barna á unglingastigi viðurkenndu meiðandi hegðun í gegn- um miðilinn. Síminn á lofti Einelti getur tekið á sig ýmsar myndir. MyNd 123RF.cOM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.