Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Side 34
Vikublað 21.–23. mars 201726 Heilsa
Fíknin að þurfa að fylgjast
með - og einelti á netinu
Afleiðingarnar geta verið skelfilegar varðandi sjálfsmynd og andlega líðan
Þ
að hefur orðið bylting í sam-
skiptum fólks á undanförn-
um árum, mjög svo hefur
bæst í hóp þeirra forrita sem
fólk getur notað til að hafa
samskipti sín í milli. Það getur jafn-
vel reynst erfitt fyrir þann sem reyn-
ir að fylgjast með þróuninni að halda
í við hana. Hér áður fyrr var síminn
aðalmálið, svo kom farsíminn sem
gjörbylti meira og minna öllum sam-
skiptum sem gátu þá farið fram hvar
sem er og hvenær sem er svo fremi
sem menn höfðu samband.
Internetið hefur bætt um betur
og samskipti í gegnum tölvupóst
voru einnig bylting á sínum tíma, en
hann er eiginlega úreltur fyrir ungu
kynslóðina með alla þá samfélags-
miðla sem til eru og sú kynslóð not-
ar í staðinn. Þá má ekki gleyma þeirri
„ eitruðu“ blöndu að vera með allt í
senn, síma, textaskilaboð, internet
og smáforrit í einu litlu tæki sem í
dag er kallaður snjallsími.
ROFL og GN
Þeir sem eiga svona tæki, sá sem þetta
skrifar þar á meðal, vita hvers þau eru
megnug og líka að það er auðvelt að
finna fyrir þörfinni að vera „tengd-
ur“. Sem fullorðnir einstaklingar, haf-
andi gengið í gegnum þessa breyttu
tíma sjáum við líka að samskipti hafa
breyst til muna. Það er skemmtilegt
að velta fyrir sér samhengi hlutanna
og hvernig tæknin hefur að vissu leyti
haft áhrif á hegðunar- og samskipta-
mynstur okkar. Það var í upphafi dýrt
að hringja úr farsíma, það var svona
spari. Þeir sem voru séðir sendu sms
þegar þau urðu möguleg en þá var
rukkað fyrir textabil og komu alls
kyns afbökuð orð út úr því sem var
eiginlega nýtt tungumál og kennarar
í íslenskufræðum þurftu allt í einu að
kynna sér.
Orð eins og „gegt“ sem þýðir
geðveikt varð til á grundvelli tíma-
sparnaðar og kostnaðarvitundar
neytenda. Mörg fleiri skemmtileg
litu dagsins ljós oftsinnis tekin úr
ensku eins og „CU“ = see you, „GN“
= góða nótt, „ROFL“ = rolling on the
floor laughing. Það er augljóst að
með þessari tækni neytenda dróg-
ust saman tekjur símafyrirtækjanna
og tungumálið breyttist. Breytinga
var þörf.
Að þurfa að fylgjast með
Með aukinni netnotkun í símum
hefur gagnamagn orðið allsráðandi
faktor í greiðslufyrirkomulagi, mörg
símafyrirtækin buðu ókeypis sím-
hringingar, sms-skilaboð innan
þeirra kerfis, nú er þetta orðið
opið fyrir alla, meira að segja úr
heimasímum hjá mörgum þessara
fyrirtækja. Ástæðan er afar einföld,
meira og minna öll samskipti stórs
hluta snjallsímanotenda fara í gegn-
um internetið og einhvers konar
samskiptaforrit. Við erum að miklu
leyti orðin háð netinu.
Það má meira að segja greina
fíkn í notkun og umgengni við þessi
tæki í dag. Fíknin byggir á því að
þurfa að fylgjast með, missa ekki
af neinu, það myndar spennu og
streituástand. Samanburður við
aðra, sem er mjög skaðlegur, líkt
og hversu mörg „like“ þessi eða
hinn fær getur haft veruleg áhrif á
sjálfsmynd viðkomandi. Sum for-
rit byggja á því að þú hafir fylgjend-
ur eða „followers“ og safna börnin
þeim nánast án þess að vita hverj-
ir standa á bak við slíkt og verða
berskjölduð fyrir þeim sem nýta
sér það. Eitt versta formið af því að
skilja útundan á netinu í dag hjá
börnum og unglingum er að stofna
lokaðar grúppur þar sem samskipt-
in fara fram án þess að hinn upplýs-
ingaþyrsti krakki komist að þeim.
Það er snjallt og almennt ekkert
við prívat samskipti að athuga, en
verra ef þau eru notuð til útilokunar
annarra og þeim strítt á því.
Símafíkn er óásættanleg
Flest forritin byggja á því að send eru
myndskilaboð, texti eða „icon“ og
er á velflestum þeirra hægt að fylgj-
ast með því sem gert hefur verið.
Önnur eru þannig uppbyggð að texti
og myndefni eyðist fljótlega eftir að
hafa verið séð. Það þarf engan snill-
ing til að átta sig á því hversu skað-
legt slíkt getur verið ef myndefnið er
óviðeigandi eða særandi, hvað þá ef
það er ítrekað.
Umræðan um einelti á netinu
hefur verið vaxandi og nýleg könnun
SAFT sýndi að 10 prósent barna á
unglingastigi viðurkenndu meið-
andi hegðun í gegnum miðilinn.
Áhugavert er að einungis 1 prósent
foreldra telur að slíkt eigi sér stað
gagnvart sínu barni eða að undirlagi
þess. Hver kannast ekki við að börn-
in séu límd við tækin, erfiðar gangi
en áður að halda uppi samræðum
og þannig mætti lengi telja. Síma-
fíkn er óásættan leg, enn fremur er
óásættanlegt að einelti og stríðni sé
viðhöfð á þessu oft lokaða og hulda
samskiptaformi. Afleiðingarnar geta
verið skelfilegar varðandi sjálfsmynd
og andlega líðan þeirra sem sæta því
og getur slíkt jafnvel leitt til sjálfsvígs.
Frekari vitundarvakningar er þörf! n
Teitur Guðmundsson
læknir
„Umræðan um
einelti á netinu
hefur verið vaxandi og
nýleg könnun SAFT sýndi
að 10 prósent barna á
unglingastigi viðurkenndu
meiðandi hegðun í gegn-
um miðilinn.
Síminn á lofti Einelti
getur tekið á sig ýmsar
myndir. MyNd 123RF.cOM