Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2017, Blaðsíða 20
Helgarblað 31. mars–3. apríl 201720 Fréttir Erlent
„Ef ég væri
Evrópumaður
væri ég búinn
að fá friðar-
verðlaun
Nóbels“
n Kúrdinn Abdul leitar að jarðsprengjum
n Missti báða fætur í tveimur slysum
Í
hvert einasta skipti sem ég geri
jarðsprengju óvirka líður mér
eins og ég sé að bjarga manns-
lífi,“ segir Kúrdinn Hoshyar Ali
Abdul. Abdul þessi hefur gert
það að ævistarfi sínu að gera jarð-
sprengjur í héruðum Kúrda í Írak
óvirkar.
Óhætt er að segja að vinnan
hafi tekið sinn toll; í tvígang hefur
sprengja sem Abdul vann við að
fjarlægja sprungið og voru af-
leiðingarnar þær að hann missti
báða fætur. Þrátt fyrir það hefur
Abdul heitið því að halda vinnu
sinni áfram á meðan hann getur.
Áföll
Abdul var hershöfðingi í her Kúrda,
Peshmerga, meðan ógnarstjórn
Saddams Hussein var við lýði í
Írak. Hussein beitti írakska hernum
miskunnarlaust gegn Kúrdum og
reyndi kerfisbundið að útrýma
þeim. Tugþúsundir Kúrda voru
myrtar og missti Abdul til dæmis
nána ættingja í stríðinu.
Í umfjöllun Mail Online í vikunni
sagði Abdul að hann hefði fyrst stig-
ið á jarðsprengju árið 1989. Lækn-
ar þurftu að fjarlægja annan fótlegg
hans í kjölfarið en slysið varð til þess
að hann þurfti að láta staðar numið
á vígvellinum og hætta í her Kúrda.
Í stað þess að setjast í helgan stein
ákvað Abdul að gera það að ævistarfi
sínu að gera jarðsprengjur í Kúrda-
héruðum Íraks óvirkar, en á meðan
berst Peshmerga-herinn meðal
annars gegn liðsmönnum ISIS.
Fimm árum eftir að hann hóf
þetta göfuga verkefni dundu ósköp-
in aftur yfir. Abdul var við leit að
jarðsprengjum þegar hann steig á
eina sem varð til þess að fjarlægja
þurfti hinn fótlegg hans. „Ég hélt
að þá væri mér öllum lokið. Japanir
voru svo góðir að gefa mér annan
gervifót svo ég geti þjónað löndum
mínum og fyrir það er ég þakklátur,“
segir hann. Flogið var með Abdul til
Japan þar sem hann fékk gervifót-
inn afhentan auk þess að gangast
undir endurhæfingu.
Fengi friðarverðlaun Nóbels
Abdul fékk gervifætur að gjöf frá
japönskum yfirvöldum og lætur
hann fötlun sína ekki stöðva sig við
leit að jarðsprengjum. Enn í dag
gengur Abdul um Kúrdahéruðin en
hann áætlar að á þeim tæpu 30 árum
sem hann hefur leitað að sprengj-
um hafi hann fundið og aftengt tvær
milljónir jarðsprengja. Abdul er vel
meðvitaður um mikilvægi starfsins
en segir að hann fái ekki alltaf það
hrós sem hann á skilið. „Ef ég væri
Evrópumaður væri ég búinn að fá
friðarverðlaun Nóbels.“
Getur ekki hætt
Eins og gefur að skilja hefur Abdul
gengið í gegnum ýmislegt á sínum
56 árum. Hann missti fimmtán
ára son sinn í umferðarslysi fyrir
nokkrum árum og var auk þess
skotinn af leyniskyttu stuttu eftir
að hann steig á seinni jarðsprengj-
una. Þá missti hann báða foreldra
sína og systur í efnavopnaárás hers
Saddams Hussein í Anfal, en nokkr-
ar þjóðir, þar á meðal Svíar, Norð-
menn og Bretar, segja að um þjóðar-
morð hafi verið að ræða.
„Mannslífin verða sífellt ódýrari
og ódýrari. Efnavopn eru enn þann
dag í notuð,“ segir Abdul og vísar í
upplýsingar þess efnis að liðsmenn
ISIS hafi beitt efnavopnum í bardög-
um sínum á undanförnum árum.
Sem fyrr segir hefur Abdul heitið
því að halda starfi sínu áfram með-
an hann hefur orku og þrek til. Hann
vilji láta gott af sér leiða svo aðrir
lendi ekki í sömu sporum og hann
þegar hann missti fótleggi sína vegna
jarðsprengja. „Ég geri þetta í nafni
mannúðar og í nafni Guðs. Ég get
ómögulega látið staðar numið.“ n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Herforingi
Abdul var
herforingi í her
Kúrda en þurfti
að hætta eftir að
hafa misst annan
fótlegginn.
Ekki hættur Abdul lætur fötlun sína ekki stöðva sig. „Ég geri þetta í
nafni mannúðar
og í nafni Guðs.
Hættuleg vinna Abdul er þraut-
þjálfaður í að aftengja jarðsprengjur.