Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2017, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2017, Blaðsíða 42
Helgarblað 31. mars–3. apríl 201734 Lífsstíll Svona er matseðill afreksíþróttamanna n Usain Bolt kann vel að meta kjúklinganagga n Conor McGregor drekkur ekki orkudrykki A lgeng orkuþörf fullorðinna karlmanna sem vinna kyrr- setustörf er um 2.700 hita- einingar á dag á meðan orkuþörf kvenna er öllu minni, eða 2.200 hitaeiningar. Afreks íþróttamenn þurfa að borða talsvert meira en að sama skapi gæta þess að fá öll nauðsynleg næringar- efni. Hér að neðan má sjá stutta sam- antekt á því hvernig afreksíþrótta- menn haga dæmigerðum degi. n Ronda Rousey Hitaeiningar: 2.700 Klukkustundir á dag við æfingar: 6 tímar n Ronda Rousey er skærasta stjarnan í MMA-heimi kvenna. Rousey fylgir hinu svokallaða Dolce- mataræði en í stuttu máli felur það í sér neyslu á heilnæmum og næringarríkum mat sem borðaður er á 2–4 tíma fresti yfir daginn. Rousey segist sjálf ekki telja hitaeiningarnar sem hún innbyrðir. Í viðtali við Cosmopolit- an sagðist Rousey þó einna helst borða skál af chia-graut á morgnana og drekka kaffi með, í hádegismat borðar hún eggjahræru á brauði og í kvöldmat borðar hún oftar en ekki kalkún í kvöldmat og gríska jógúrt í eftirrétt. Venus Williams Hitaeiningar: 3.489 Klukkustundir á dag við æfingar: 4,5 tímar n Venus Williams er ein sigursælasta tenniskona sögunnar. Þessi 36 ára Bandaríkja- maður byrjar dæmigerðan dag á því að fá sér hreinan grænan safa, prótínþeyting, ávexti, eggjahvítuomelettu eða granóla. Í hádeginu leggur hún áherslu á að borða heilnæmt fæði, til dæmis á veitingastöðum sem selja vegan-fæði. Að öðrum kosti borðar hún hrís- grjón, baunir og grillaðar rækjur. Sem millimál borðar hún til dæmis hnetur eða döðlur. Kvöldverður samanstendur oftar en ekki af salati með kjúklingi. Auk þess að æfa tennis af kappi dansar Venus til að halda sér í formi. Usain Bolt Hitaeiningar: 5.500 Klukkustundir á dag við æfingar: 3,5 n Það er ekki til fótfrárri einstaklingur í heiminum en Usain Bolt. Þessi Jamaíkumaður er frjálslyndari en margir þegar kemur að mataræði. Í umfjöllun Huffington Post ekki alls fyrir löngu kom fram að Bolt vilji helst af öllu borða kjúklinganagga og kjúklingavængi áður en hann fer að hlaupa. Í þessari sömu grein kom fram að Bolt hefði borðað um þúsund kjúklinganagga meðan á Ólympíuleikunum í Peking stóð árið 2012. Kjúklingur er prótínríkur og um 60 prósent af þeim hitaeiningum sem Bolt innbyrðir koma úr prótínum, 30 prósent úr kolvetnum og 10 prósent úr fitu. Bolt borðar einnig stundum saltfisk með sætum kartöflum og grilluðum banana í morgunmat. Í hádegismat borðar hann oft kjúklingapasta en í kvöldmat borðar hann jafnan svínakjöt með hrísgrjónum og baunum. Andy Murray Hitaeiningar: 5.500 Klukkustundir á dag við æfingar: 5,5 tímar n Tenniskappinn Andy Murray er í hópi þeirra allra bestu í heimi. Á dæmigerðum degi samanstend- ur morgunmatur þessa 29 ára Englendings af hafragraut eða múslí sem hann borðar svo með eggi, beikoni og baunum. Í hádegismat borðar Murray oftar en ekki þeyting með ávöxtum og prótínum. Og dæmigerður kvöldmatur samanstendur af súpu, sjávarmeti eða salati í forrétt en kjúklingi, kartöflum og grænmeti í aðalrétt. Auk þess að æfa mikið stundar Murray hugleiðslu. Jessica Ennis-Hill Hitaeiningar: 1.749 Klukkustundir á dag við æfingar: 6 tímar n Frjálsíþróttakonan Jessica Ennis- Hill, ein öflugasta sjöþrautarkona sögunnar, tilkynnti í haust að hún væri hætt. Þegar hún var upp á sitt besta æfði hún allt að því tvöfalt meira en Usain Bolt á dag en borðaði talsvert minna. Dæmigerður morgunmatur samanstóð af ristuðu brauði, jógúrt með höfrum eða granóla og ávöxtum. Í hádegismat borðaði hún jafnan pasta, salat eða súpur og í kvöldmat lax, risotto eða lasagna svo dæmi séu tekin. Þá sagði Jessica eitt sinn í viðtali við Women‘s Health að hún fengi sér oft eins og eitt rauðvínsglas á kvöldin. Conor McGregor Hitaeiningar: 3.186 Klukkustundir á dag við æfingar: 8 tímar n Þótt það standi hér að framan að UFC- kappinn og góðvinur Gunnars Nelson æfi í átta tíma á dag, er ekki svo að skilja að hann sé á fullu þessa átta tíma. „Ég vakna, fæ mér vatn, teygi og liðka mig til og er á hreyfingu allan daginn. Ég fer svo í ræktina þegar mig langar, fer í taekwondo, jiu-jitsu eða jóga. Stundum boxa ég. Fjölbreytni hefur alltaf virkað best fyrir mig,“ sagði McGregor við Bodybuilding. com. Hann sagðist enn fremur borða hollan og fjölbreyttan mat. „Ég elska vatn og kókosvatn en drekk aldrei orkudrykki – aldrei. Ég borða góðan gæðamat og passa upp á að vökva mig.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.