Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2017, Side 42
Helgarblað 31. mars–3. apríl 201734 Lífsstíll
Svona er matseðill
afreksíþróttamanna
n Usain Bolt kann vel að meta kjúklinganagga n Conor McGregor drekkur ekki orkudrykki
A
lgeng orkuþörf fullorðinna
karlmanna sem vinna kyrr-
setustörf er um 2.700 hita-
einingar á dag á meðan
orkuþörf kvenna er öllu
minni, eða 2.200 hitaeiningar.
Afreks íþróttamenn þurfa að borða
talsvert meira en að sama skapi gæta
þess að fá öll nauðsynleg næringar-
efni. Hér að neðan má sjá stutta sam-
antekt á því hvernig afreksíþrótta-
menn haga dæmigerðum degi. n
Ronda
Rousey
Hitaeiningar: 2.700
Klukkustundir á dag
við æfingar: 6 tímar
n Ronda Rousey er
skærasta stjarnan í
MMA-heimi kvenna.
Rousey fylgir hinu
svokallaða Dolce-
mataræði en í stuttu
máli felur það í sér
neyslu á heilnæmum
og næringarríkum mat
sem borðaður er á 2–4
tíma fresti yfir daginn.
Rousey segist sjálf ekki
telja hitaeiningarnar
sem hún innbyrðir. Í
viðtali við Cosmopolit-
an sagðist Rousey
þó einna helst borða
skál af chia-graut á
morgnana og drekka
kaffi með, í hádegismat
borðar hún eggjahræru
á brauði og í kvöldmat
borðar hún oftar en ekki
kalkún í kvöldmat og
gríska jógúrt í eftirrétt.
Venus Williams
Hitaeiningar: 3.489 Klukkustundir á dag við æfingar: 4,5 tímar
n Venus Williams er ein sigursælasta tenniskona sögunnar. Þessi 36 ára Bandaríkja-
maður byrjar dæmigerðan dag á því að fá sér hreinan grænan safa, prótínþeyting, ávexti,
eggjahvítuomelettu eða granóla. Í hádeginu leggur hún áherslu á að borða heilnæmt
fæði, til dæmis á veitingastöðum sem selja vegan-fæði. Að öðrum kosti borðar hún hrís-
grjón, baunir og grillaðar rækjur. Sem millimál borðar hún til dæmis hnetur eða döðlur.
Kvöldverður samanstendur oftar en ekki af salati með kjúklingi. Auk þess að æfa tennis
af kappi dansar Venus til að halda sér í formi.
Usain Bolt
Hitaeiningar: 5.500 Klukkustundir á dag við æfingar: 3,5
n Það er ekki til fótfrárri einstaklingur í heiminum en Usain
Bolt. Þessi Jamaíkumaður er frjálslyndari en margir þegar
kemur að mataræði. Í umfjöllun Huffington Post ekki
alls fyrir löngu kom fram að Bolt vilji helst af öllu borða
kjúklinganagga og kjúklingavængi áður en hann fer að
hlaupa. Í þessari sömu grein kom fram að Bolt hefði borðað
um þúsund kjúklinganagga meðan á Ólympíuleikunum í
Peking stóð árið 2012. Kjúklingur er prótínríkur og um 60
prósent af þeim hitaeiningum sem Bolt innbyrðir koma úr
prótínum, 30 prósent úr kolvetnum og 10 prósent úr fitu.
Bolt borðar einnig stundum saltfisk með sætum kartöflum
og grilluðum banana í morgunmat. Í hádegismat borðar
hann oft kjúklingapasta en í kvöldmat borðar hann jafnan
svínakjöt með hrísgrjónum og baunum.
Andy Murray
Hitaeiningar: 5.500 Klukkustundir á
dag við æfingar: 5,5 tímar
n Tenniskappinn Andy Murray er
í hópi þeirra allra bestu í heimi. Á
dæmigerðum degi samanstend-
ur morgunmatur þessa 29 ára
Englendings af hafragraut eða
múslí sem hann borðar svo með eggi,
beikoni og baunum. Í hádegismat
borðar Murray oftar en ekki þeyting
með ávöxtum og prótínum. Og dæmigerður
kvöldmatur samanstendur af súpu, sjávarmeti eða salati í forrétt en
kjúklingi, kartöflum og grænmeti í aðalrétt. Auk þess að æfa mikið
stundar Murray hugleiðslu.
Jessica
Ennis-Hill
Hitaeiningar: 1.749 Klukkustundir
á dag við æfingar: 6 tímar
n Frjálsíþróttakonan Jessica Ennis-
Hill, ein öflugasta sjöþrautarkona
sögunnar, tilkynnti í haust að hún væri
hætt. Þegar hún var upp á sitt besta
æfði hún allt að því tvöfalt meira en
Usain Bolt á dag en borðaði talsvert
minna. Dæmigerður morgunmatur
samanstóð af ristuðu brauði, jógúrt
með höfrum eða granóla og ávöxtum.
Í hádegismat borðaði hún jafnan
pasta, salat eða súpur og í kvöldmat
lax, risotto eða lasagna svo dæmi séu
tekin. Þá sagði Jessica eitt sinn í viðtali
við Women‘s Health að hún fengi sér
oft eins og eitt rauðvínsglas á kvöldin.
Conor McGregor
Hitaeiningar: 3.186 Klukkustundir á dag við
æfingar: 8 tímar
n Þótt það standi hér að framan að UFC-
kappinn og góðvinur Gunnars Nelson æfi í átta
tíma á dag, er ekki svo að skilja að hann sé á
fullu þessa átta tíma. „Ég vakna, fæ mér vatn,
teygi og liðka mig til og er á hreyfingu allan
daginn. Ég fer svo í ræktina þegar mig langar,
fer í taekwondo, jiu-jitsu eða jóga. Stundum
boxa ég. Fjölbreytni hefur alltaf virkað best
fyrir mig,“ sagði McGregor við Bodybuilding.
com. Hann sagðist enn fremur borða hollan og
fjölbreyttan mat. „Ég elska vatn og kókosvatn
en drekk aldrei orkudrykki – aldrei. Ég borða
góðan gæðamat og passa upp á að vökva mig.“