Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2017, Blaðsíða 31
Helgarblað 31. mars–3. apríl 2017 Kynningarblað - Viðhald húsa 7
Nær allt sem lýtur að
smíði og garðvinnu
Matti smiður
M
atthías Pétursson hús-
gagnasmiður er með þrjá-
tíu ára reynslu af smíði
og vinnur með Matthíasi
syni sínum, sem er að
ljúka námi í húsasmíði, og mun taka
við rekstri föður síns þegar fram líða
stundir. Þeir feðgar taka að sér flest
það sem lýtur að smíði, nýsmíði og
lagfæringum. Matthías segist lengi
vel hafa unnið við sérsmíði á inn-
réttingum: „Undanfarin ár hefur sér-
svið mitt hins vegar verið garðar og
hellulögn. Ég tek að mér fjölbreytt
verkefni eins og sumarhús, einka-
lóðir, lóðir undir nýbyggingar og eins
eldra húsnæði. Að auki sé ég um nýja
garða og endurgerð eldri garða.“
Sólpallar, skjólveggir og
hellulögn
„Nú þegar loks er farið að líða að vori
eru margir að huga að sólpöllum
enda eru þeir ekki bara til þess að
njóta sólarinnar heldur nýtast
einnig sem frábær fram-
lenging á sjálfri stof-
unni,“ segir Matti.
„Nú er líka anna-
tími í hellulögn og
girðingum. Skjól-
veggir, bekkir,
kofar og geymslur
spretta upp eins og
gorkúlur í görðum
landsmanna þessa
dagana,“ bætir hann
við og nefnir að fátt sé
skemmtilegra en vorverkin.
Heitir pottar – framlenging á
stofunni
„Fjölmargir hafa fengið sér heitan
pott í garðinn á undanförnum árum.
Það skiptir meginmáli að pallurinn
við pottinn sé vel úthugsaður og huga
þarf vel að staðsetningu og umhverfi
pottsins. Best er að pallurinn sé á
tveimur hæðum og smíða tröppur á
snyrtilegan hátt upp á efri pallinn til
þess að auka rýmið umhverfis pott-
inn. Tröppurnar geta svo einnig nýst
fyrir blómapotta og luktir sem gera
umhverfið mun hlýlegra við pottinn.
Á efri pallinum myndast þá líka rými
fyrir borð og stóla. Þegar sólpallar eru
ekki stórir eins og í þessu tilfelli er
mikið atriði að fella pottinn inn í um-
hverfið til þess að skapa rými. Rým-
ið umhverfis pottinn er t.d. hægt að
nota fyrir glös og diska þegar hann er
í notkun.“
Finna einnig
fallegar lausnir fyrir
landsbyggðina
„Við Mattarnir smíðum líka
utan um sorptunnur á faglegan
hátt og búum til falleg blómabeð til
skrauts og ofan á hleðslur. Við notum
ýmsar viðartegundir við smíðina eins
og t.d. lerki, eik, furu og jafnvel tekk.
Við tökum glaðir við verkum á lands-
byggðinni og höfum sinnt verkefnum
um land allt, eins og t.d. á Flúðum,
Þingvöllum, Snæfellsnesi og í Skorra-
dal. Við Mattarnir smíðum í raun allt
sem hugsast getur – innandyra sem
utan. Við getum séð um parketlögn,
parketslípun, milliveggjasmíði, upp-
setningu innréttinga, uppsetningu
hurða, þakviðgerðir og fleira,“ segir
Matti sem er kominn í verulegt vor-
skap. n
Matti smiður,
netfang: mattismidur@
mattismidur.is,
sími: 893-3300 og 691-0621
www.mattismidur.is
Þúsundþjalasmiður
Matti er með yfir 30 ára
reynslu í faginu og hefur í
gegnum árin smíðað nokkur
hundruð sólpalla með öllu
tilheyrandi.