Fréttablaðið - 27.10.2017, Page 2

Fréttablaðið - 27.10.2017, Page 2
Veður Allhvöss eða hvöss vestanátt með rigningu í dag, en stormur austur af Öræfajökli fram eftir degi. Talsverð úrkoma um tíma norðvestanlands. Hægari vindur og úrkomulítið síð- degis. sjá síðu 28 Baktus loksins gjaldgengur á Stofunni eftir áralangt bann Aðalspaði miðbæjarins, kötturinn Baktus, hefur verið leystur úr áralöngu banni sem heilbrigðisyfirvöld hnepptu hann í síðla árs 2013, þegar hann var gerður útlægur af Stofunni, uppáhaldskaffihúsinu sínu, vegna meintrar ógnar við heilsu annarra gesta kaffihússins. Með gildistöku breytingar á reglugerð getur Baktus notið sín aftur meðal gesta kaffihússins og þegið klapp og kjass eins og hann átti að venjast áður. Fréttablaðið/anton brink Rafvirkjar LED lampar Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 olafsson.is Mannlíf „Við Sigmundur höfum frá upphafi hans í pólitík alltaf verið samherjar,“ segir Jónas Guð- mundsson, bóndi á Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð sem hefur verið ein umtalaðasta jörð stjórnmálanna hin síðari ár. Ástæðan er sú að vorið 2013 flutti Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, þáverandi formaður Fram- sóknarflokksins, lögheimili sitt á bæinn Hrafnabjörg 3 og bauð sig fram í Norðausturkjördæmi. Jónas tók fagnandi á móti foringjanum þá enda ætíð verið mikill Framsóknar- maður. Þrátt fyrir að vera langt í frá eins- dæmi í íslenskum stjórnmálum þá vakti lögheimilisskráning Sigmund- ar Davíðs  mikla athygli á sínum tíma og töluvert um hana fjallað í fjölmiðlum enda heldur Sigmundur heimili í reisulegu húsi í Garðabæ. Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvort afstaða Framsóknarmannsins Jónasar á Hrafnabjörgum til lög- heimilisskráningar Sigmundar á bæ hans hefði eitthvað breyst í ljósi þess að hann hefur nú stofnað Miðflokk- inn og hoggið skarð í raðir Fram- sóknarflokksins og fylgi hans. Jónas hlær dátt þegar blaðamaður ber upp erindið. Segir hann Sigmund ávallt velkominn enda þeir ávallt verið samherjar, þó bóndinn hafi ekki gengið jafn langt og margir flokks- félagar hans og skráð sig úr Fram- sóknarflokknum. Römm er sú taug. „Ég hef nú ekkert gert í því að segja mig úr Framsókn og ganga í nýja flokkinn en við erum jafn miklir félagar fyrir því. Sigmundur er enn velkominn hér og er auð- vitað skráður á framboðslista hér í kjördæminu. Þetta hefur allt sinn Gestrisni bóndinn erfir ekki flótta Sigmundar Framsóknarbóndinn á Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð erfir það ekki við Sig- mund þó hann hafi sagt skilið við flokkinn og stofnað Miðflokkinn. Forsætis- ráðherranum fyrrverandi sé enn velkomið að skrá lögheimili sitt á bæ hans. Þótt Sigmundur Davíð hafi sagt skilið við Framsókn er hann enn velkominn á Hrafnabjörgum með lögheimilisskráningu sína. Fréttablaðið/Ernir Ég hef nú ekkert gert í því að segja mig úr Framsókn og ganga í nýja flokkinn en við erum jafn miklir félagar fyrir því. Jónas Guðmundsson, bóndi á Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð gang eins og gengur og þegar menn lenda svona illilega upp á kant þá getur komið upp erfið staða,“ segir Jónas um brotthvarf Sigmundar úr Framsókn. En hefur Sigmundur komið í heimsókn á lögheimili sitt nýlega? „Já, ég verð að segja frá því að það er svona hálfur mánuður síðan hann kíkti hérna við hjá mér.“ Aðspurður hvort hann sé nokkuð farinn að rukka foringjann um leigu nú þegar hann er horfinn úr Fram- sóknarflokknum hlær Jónas. „Nei, nei. Það er mér að meina- lausu þótt hann sé með lögheimili hjá mér,“ segir þekktasti lögheim- ilisgestgjafi landsins að lokum léttur í bragði. mikael@frettabladid.is stjórnsýsla „Mér þykir einboðið að þetta þurfi að laga. Ég hef skoðað hvort sé hægt að laga þetta með reglu- gerð en sýnist að ekki verði bætt úr nema með lagabreytingu,“ segir Sig- ríður Andersen dómsmálaráðherra. Fréttablaðið greindi frá því í dag að víetnömsk kona, Chuong Le Bui, sem býr á Íslandi og er í matreiðslunámi, hefur fengið bréf frá Útlendinga- stofnun þess eðlis að henni verði gert að yfirgefa landið. Ástæðan er sú að í nýjum Útlendingalögum, sem tóku gildi 1. janúar síðastliðinn, er iðnnám ekki skilgreint sem nám. Í eldri lögum var iðnnám hins vegar tilgreint. „Það er ljóst eftir því sem ég hef heyrt að sú skilgreining sem kemur fram á námi er of þröng og miklu þrengri en löggjafarviljinn stóð til. Það var aldrei rætt um það að þrengja þetta þannig að iðnnámið myndi ekki falla undir nám í skilningi útlendinga- laga.“ Sigríður segir að nýju útlendinga- lögunum hafi verið breytt eftir því sem reynsla hefur komið á þau. Meðal annars hafi lögunum verið breytt undir lok síðasta þings þegar kom í ljós að skiptinemar á mennta- skólastigi féllu milli skips og bryggju í lagatextanum. „Það er mikilvægt að menn geti stundað iðnnám til jafns við háskóla- nám. Það stendur ekki annað til, af minni hálfu í það minnsta, en að lög- gjafinn lagfæri þetta,“ segir Sigríður. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Chuong Le Bui úr landi hefur verið kærð til kærunefndar Útlendingastofnunar. Henni verður ekki vísað brott fyrr en niðurstaða fæst frá nefndinni. – jhh Ekki ætlunin að undanskilja iðnnema Sigríður andersen dómsmálaráð- herra ferðaþjónusta Markaðsstofa Norðurlands og flugklasinn AIR 66N segja enn vera hindranir í veginum fyrir beinu millilanda- flugi um Akureyrarflugvöll. Meðal annars sé eldsneyti fyrir flugvélar í millilandaflugi dýrara á Akureyri en í Keflavík. „Ástæðan er sú að kostnaði við flutning á eldsneytinu, sem er öllu skipað upp í Helguvík, er bætt ofan á grunnverð og þannig verður elds- neytið dýrara eftir því sem lengra dregur frá Helguvík,“ útskýra mark- aðsstofan og AIR 66N í bréfi til sveit- arfélagsins Skagafjarðar. Ná þurfi meiri dreifingu ferðamanna um landið. Til þess þurfi að byggja upp fleiri áfangastaði fyrir millilandaflug en Keflavík. „Nú í janúar og febrúar mun ferðaskrifstofan Super Break í Bretlandi fljúga tvisvar í viku frá Bretlandi til Akureyrar, samtals fjór- tán flug á sjö vikum.“ – gar Flugvélabensín dýrt á Akureyri 2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 f Ö s t u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 1 5 -2 8 D 8 1 E 1 5 -2 7 9 C 1 E 1 5 -2 6 6 0 1 E 1 5 -2 5 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.