Fréttablaðið - 27.10.2017, Síða 8
Stjórnmál Átta möguleikar eru á
myndun þriggja flokka ríkisstjórna
miðað við niðurstöður skoðana
könnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2
og Vísis sem birt var í gær. Í öllum
tilfellum þyrfti Sjálfstæðisflokkurinn
að koma að myndun slíkrar stjórnar.
Sú þriggja flokka stjórn sem hefði
mestan þingstyrk væri stjórn Sjálf
stæðisflokksins með VG og Sam
fylkingunni. Hún myndi hafa 41
þingmann að baki sér.
Myndun slíkrar ríkisstjórnar
er þó ekki efst á óskalistanum hjá
forystumönnum Vinstri grænna
og Samfylkingarinnar. „Við viljum
mynda ríkisstjórn frá vinstri og inn á
miðjuna, segir Svandís Svavarsdóttir,
þingmaður VG.
Logi Már Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, hefur lýst svip
uðum skoðunum og Svandís.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki
gengist við eða talað um að hér hafi
orðið nokkur siðferðisbrestur eða rof
á trausti milli þjóðar og þings í mjög
stórum málum og hefur hrist hausinn
við stórum málum eins og stjórnar
skrá og þjóðaratkvæðagreiðslu um
ESB. Ofan í kaupið bætast svo efna
hagstillögur sem teikna upp framtíð
sem er algjörlega andstæð því sem
við stefnum að,“ sagði Logi í samtali
við Fréttablaðið í fyrradag.
Eiríkur Bergmann, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskólann á
Bifröst, segir líklegustu niðurstöðuna
eftir kosningar vera fjögurra flokka
samstarf til vinstri. „Þó svo að það
gæti auðvitað líka verið eitthvað
þvíumlíkt í spilunum hægra megin
þá held ég að það sé nú ólíklegra,“
sagði Eiríkur Bergmann í hádegis
fréttum Bylgjunnar í gær.
Þar benti Eiríkur á að fjögurra
flokka stjórn Sjálfstæðisflokksins,
Miðflokksins, Framsóknarflokksins
og Viðreisnar, sem hefði 33 þing
menn, gæti vel komist á.
Eiríkur sagði stefna í að Fram
sóknarflokkurinn og Viðreisn verði
í lykilstöðu eftir kosningar. „Það
verður erfitt að mynda ríkisstjórnir
að afloknum kosningum án þessara
flokka, sem geta farið í báðar áttir.“
jonhakon@frettabladid.is
Flókið að mynda stjórn
Það stefnir í fjölflokkastjórn að loknum kosningum. Prófessor í stjórnmála-
fræði segir stefna í að Framsóknarflokkurinn og Viðreisn geti orðið í lykilstöðu.
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
Gleraugu með FL-41 gleri geta
hjálpað þeim sem þjást af mígreni
Mígreniglerið er litað og síar burt u.þ.b. 80% af bláu
og grænu ljósi frá skjám og flúorsentljósum. Glerin
hafa reynst mörgum vel sem fá birtutengdan höfuð-
verk eins og mígreni. Prófaðu að fá mígrenigler
í umgjarðirnar þínar, með eða án styrkleika.
Við tökum vel á móti þér í Augastað.
MÍGRENIGLER
mögulegir þingmeirihlutar
MeirihlutasaMstarf þriggja flokka
Þriggja flokka meirihluti verður ekki myndaður án Sjálfstæðisflokksins, sem fengi
17 þingmenn. VG fengi 14 menn, Samfylkingin 10. Miðflokkurinn fengi 7 þingmenn,
Píratar 6, Viðreisn 5 og Framsóknarflokkurinn 4.
sjálfstæðisflokkurinn
sækir á
Sagnfræðiprófessorinn
Guðmundur Hálfdánar-
son segir mikið flökt á
fylgi flokka í könnunum
en það hefur vakið at-
hygli hans hversu mikið
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur unnið á í könnun-
um. Það fylgir auðvitað
mynstrinu frá síðustu
kosningum. „Á loka-
metrunum sígur fylgið
til Sjálfstæðisflokksins.
Þeir fengu miklu betri
kosningu síðast en allar
skoðanakannanir gerðu
ráð fyrir,“ sagði Guð-
mundur í samtali við
Vísi í gær.
Spurður hver ástæðan
geti verið fyrir þessu
svarar Guðmundur að
hann haldi nú að þessi
kosningabarátta í ár hafi
ekki sannfært marga
um eitt eða neitt. „Þetta
virðist vera þetta mengi
Sjálfstæðisflokksins
sem á mikið fylgi og
hefur verið stærsti
flokkurinn á Íslandi
svona gegnumgangandi
áratugum saman.“
„VG er enn í bestri
stöðu til að mynda
ríkisstjórn. Samfylking
kemur sterk inn. Hinir
flokkarnir þrír munu
hefja kapphlaupið um
leið og fyrstu tölur
verða birtar. Framsókn
gæti þó orðið það
löskuð eftir kosningar
að hún fari hægt af stað
en endaspretturinn
verður þeim mun
betri,“ segir Baldur
Þórhallsson, prófessor
við HÍ, í samtali við Vísi.
Kapphlaup geti orðið
milli Viðreisnar, Pírata
og Framsóknarflokksins
um að komast í stjórn
með VG og Samfylking-
unni.
fjögurra flokka stjórnir án sjálfstæðisflokksins
sjálfstæðisflokkurinn (17), samfylkingin
(10) og Miðflokkurinn (7)
Þingmenn: 34
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur ekki gengist við
eða talað um að hér hafi orðið
nokkur siðferðisbrestur eða rof á
trausti milli þjóðar og þings.
Logi Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar
Vinstri græn (14), samfylkingin (10),
Miðflokkurinn (7) og framsóknar-
flokkurinn (4)
Þingmenn: 35
Vinstri græn (14), samfylkingin (10),
Miðflokkurinn (7) og Viðreisn (5)
Þingmenn: 36
Vinstri græn (14), Miðflokkurinn (7)
Píratar (6) og Viðreisn (5)
Þingmenn: 32
Vinstri græn (14), samfylkingin (10),
Miðflokkurinn (7) og Píratar (6)
Þingmenn: 37
Píratar (6) í stað
Miðflokksins
Þingmenn: 33
Viðreisn (5) í stað
Miðflokksins
Þingmenn: 32
sjálfstæðisflokkurinn (17), Vinstri
græn (14) og samfylkingin (10)
Þingmenn: 41
Miðflokkurinn
(7) í stað Sam-
fylkingarinnar
Þingmenn: 38
Píratar (6) í stað
Samfylkingarinnar
Þingmenn: 37
Viðreisn (5) í stað
Samfylkingarinnar
Þingmenn: 36
framsóknarflokkurinn (4)
í stað Samfylkingarinnar
Þingmenn: 35
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sem gerð var 23. og 24. október 2017. Skipting þingsæta milli flokkanna er byggð á svokallaðri D’Hondt reiknireglu.
Vinstri græn (14), samfylkingin
(10) Píratar (6) og framsóknar-
flokkurinn (4)
Þingmenn: 34
Vinstri græn (14), samfylkingin (10),
Viðreisn (5) og framsóknarflokkur-
inn (4)
Þingmenn: 33
eiríkur Bergmann, prófessor, segir líklegustu niðurstöðuna eftir kosningar
vera fjögurra flokka samstarf til vinstri. fréttaBlaðið/hörður sVeinsson
2017
2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
2
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
5
-6
4
1
8
1
E
1
5
-6
2
D
C
1
E
1
5
-6
1
A
0
1
E
1
5
-6
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K