Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 12
FÖGNUM SAMAN 100 ÁRA FULLVELDI Áður auglýstur umsóknarfrestur um tillögur að verkefnum á dagskrá aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands hefur verið framlengdur til 1. nóvember kl. 16.00. Nánari upplýsingar á www.fullveldi1918.is. Ert þú með hugmynd að vönduðu verkefni á dagskrá afmælisársins? www.fullveldi1918.is Pipar\TBW A \ SÍA Írak Yfirvöld í Írak höfnuðu í gær tilboði yfirstjórnar írakska Kúr- distans um að „frysta“ niðurstöður kosninga á svæðinu um sjálfstæði þess í því skyni að hægt væri að ræða málin í sameiningu. „Við sam- þykkjum ekkert annað en ógildingu kosninganna og fulla virðingu fyrir íröksku stjórnarskránni,“ sagði Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, í gær. Meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði vildi að sjálfstæði yrði lýst yfir. Yfirvöld í Írak hafa hins vegar ítrekað lýst því yfir að kosningarnar hafi verið ólöglegar og því ætti að ógilda þær. Tilboð Kúrda var lagt fram á þriðjudagskvöld í kjölfar þess að írakski herinn, að skipun al-Abadi, hertók svæði sem Kúrdar og Íraks- stjórn hafa deilt um. Lögregla, sér- sveitir og hersveitir sjía-múslima studdu Íraksher í aðgerðunum sem kostuðu tugi lífið. Kúrdar buðust til þess að frysta niðurstöðurnar í von um að „koma í veg fyrir frek- ara blóðbað“ og vildu eins og áður segir fá Íraka til viðræðna við sig um framhaldið. Bandaríkjamenn, sem líkt og flest ríki heims voru mótfallin kosning- unum, litu þetta tilboð jákvæðum augum og hvöttu Íraksstjórn til þess að taka því. BBC greinir frá því að þingmaður sem stendur al- Abadi nærri, Ali al-Alaq, hafi í gær varað við því að svokölluð frysting niðurstaðanna myndi skapa „tíma- sprengju sem Kúrdar gætu varpað á ríkisstjórnina hvenær sem þeir vildu“. – þea Írakar krefjast enn ógildingar kosninganna og hafna tilboði Kúrda Haider al-Abadi, forsætisráð- herra Íraks. FréttAblAðið/EPA Spánn Til stendur að öldungadeild spænska þingsins komi saman í dag til þess að kjósa um hvort virkja skuli 155. grein spænsku stjórnar- skrárinnar og þar af leiðandi svipta Katalóníu sjálfsstjórnarvöldum. Þannig gætu yfirvöld í Madríd tekið yfir katalónskar stofnanir, lögreglu og stýrt fjármálum héraðsins. Yfirvöld á Spáni hafa hótað þessum aðgerðum allt frá því kosið var um sjálfstæði í Katalóníu þann 1. október síðastliðinn. Carles Puigdemont, forseti héraðs- stjórnar Katalóníu, hefur ekki orðið við kröfum Spánverja og hefur ekki dregið sjálfstæðisyfirlýsingu héraðs- ins til baka þótt hann hafi að vísu frestað gildistöku hennar. Spænskir fjölmiðlar hafa sagt líklegt að Puigde- mont dragi yfirlýsinguna til baka og boði til héraðsþingkosninga til að koma í veg fyrir sviptingu sjálfs- stjórnar en í gær tilkynnti forsetinn að það myndi ekki gerast. Það væri undir héraðsþinginu komið hvernig bregðast ætti við virkjun 155. grein- arinnar. Gærdagurinn var afar óljós hjá Puigdemont. Hann boðaði í gær- morgun til fundar, hætti síðan við fundinn og boðaði loks til hans á ný. Í ræðu sinni var forsetinn harðorður í garð ríkisstjórnar Mariano Rajoy for- sætisráðherra og sagði hana stjórna með harðri hendi. Puigdemont endurnýjaði hins vegar ekki kröfuna um sjálfstæði í ræðu sinni og þykir það benda til þess að hann reyni að koma í veg fyrir að Rajoy ákveði að virkja 155. greinina. Katalónskir miðlar héldu því í kjöl- farið fram að breiðfylking aðskiln- aðarsinna á þinginu, undir forystu Puigdemont, hafi ekki viljað að boðað yrði til kosninga. Talsmaður ERC, flokks eindreginna aðskilnaðar- sinna, sagði flokkinn hafa hótað því að draga stuðning sinn við Puigde- mont til baka ef hann boðaði til kosninga. Undanfarnar vikur hafa verið afar erfiðar fyrir héraðsforsetann. Á meðan Spánverjar hafa krafist þess að sjálfstæði verði ekki lýst yfir, og að hin frestaða yfirlýsing verði dreg- in til baka, hafa aðskilnaðarsinnar úthrópað Puigdemont sem föður- landssvikara. thorgnyr@frettabladid.is Spánverjar kjósa um sviptingu sjálfsstjórnar Kataloníu í dag Öldungadeild spænska þingsins kýs um hvort virkja skuli 155. grein stjórnarskrárinnar og svipta Katalóníu sjálfstæði. Forseti héraðsstjórnar Katalóníu var tvístígandi í gær, boðaði til fundar, aflýsti honum og boðaði til hans á ný. Dró óljósa sjálfstæðisyfirlýsingu Katalóníu ekki til baka en hefur frestað gildistöku hennar. Carles Puigdemont hélt ræðu í gær en dagurinn var erfiður fyrir héraðsforsetann. NordiCPHotos/AFP Hver eru sjálfsstjórnarvöld Katalóníu? Katalónía er það hérað Spánar sem hefur einna mesta sjálfs- stjórn. Þar má finna héraðsþing, héraðsstjórn, forseta, lögreglu og héraðsfjölmiðil. Hefur héraðið völd yfir menningarmálum, um- hverfismálum, samgöngumálum, efnahagsmálum og öryggis- málum. Hins vegar fer spænska ríkið með völdin þegar kemur að utanríkismálum, hernaði og stærri stefnumótun í efnahagsmálum. Carles Puigdemont er forseti héraðsstjórnarinnar en tólf ráð- herrar skipa stjórnina. Sex flokkar sitja á katalónska héraðsþinginu og eru þrír þeirra hlynntir að- skilnaði. 135 sæti eru á þinginu og stærsti þingflokkurinn er bandalag tveggja aðskilnaðarflokka. Fengu þeir 62 sæti í kosningum 2015. Alls eru opinberir starfsmenn héraðsins 28.677. Margir þeirra vinna fyrir katalónsku lögregluna, Mossos d’Esquadra, eða rúmlega 17.000. kenÍa Gengið var til forsetakosninga í Keníu í gær í annað sinn á árinu. Kosningarnar sem fóru fram fyrr á árinu voru ógildar vegna ógagnsæis og galla á framkvæmd þeirra. Var því boðað til nýrra kosninga. Síðast var kosið á milli Uhuru Kenyatta, sitjandi forseta, og stjórn- arandstöðuleiðtogans Raila Odinga. Búist var við því að slíkt hið sama myndi gerast núna en Odinga dró framboð sitt til baka á dögunum. Ástæðuna sagði Odinga vera þá að hann hafi viljað fresta kosningunum þar sem ekki hefði tekist að sýna fram á að vankantar á framkvæmd ólöglegu kosninganna hefðu verið lagaðir. Vegna þessa sniðgengu stuðn- ingsmenn Odinga kosningar gær- dagsins og mótmæltu harðlega. Í helstu vígjum stjórnarandstæðinga í landinu mættu stjórnarandstæð- ingar á kjörstað. Ekki til þess að kjósa heldur til þess að koma í veg fyrir að aðrir kysu. Í hafnarborginni Kisumu enduðu slík mótmæli með ósköpum. Lög- regla skaut unglingsdreng sem var að mótmæla og hann lést stuttu síðar af sárum sínum. Lögregla stóð vörð um kjörstaði víðs vegar um landið og greindi BBC frá því að tugir þúsunda lögreglumanna væru staddir víðs vegar um landið. – þea Keníukosningar kostuðu einn unglingsdreng lífið Kjördagur í Keníu einkenndist af ofbeldi. NordiCPHotos/AFP BandarÍkin Samfélagsmiðillinn Twitter tilkynnti í gær um blátt bann við auglýsingum rússnesku fréttamiðlanna RT og Sputnik á síðu sinni. „Ákvörðunin var tekin á grundvelli þeirrar endurskoðunar sem við höfum ráðist í eftir for- setakosningar síðasta árs og vegna niðurstöðu bandarískra leyniþjón- usta að bæði RT og Sputnik hafi á vegum rússneskra yfirvalda reynt að trufla kosningarnar,“ sagði í til- kynningunni. Sputnik hafði ekki tjáð sig um ákvörðunina í gær en á vefsíðu RT birtist grein þar sem sagði að miðillinn hefði aldrei brotið aug- lýsingareglur Twitter og þaðan af síður dreift röngum upplýsingum vísvitandi. Til stendur að fulltrúar Twitter mæti fyrir upplýsingamálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í næstu viku ásamt fulltrúum Facebo- ok og Google til að ræða hvernig Rússar notuðu miðla fyrirtækjanna til að dreifa áróðri fyrir forseta- kosningarnar. Fyrr í mánuðinum sagði varaformaður nefndarinnar, Mark Warner, að fyrsta viðtalið við  fulltrúa Twitter hefði valdið sér vonbrigðum og ekki verið full- nægjandi. – þea Ósætti við auglýsingabann Jack dorsey, forstjóri twitter. FréttA- blAðið/EPA 2 7 . o k t ó B e r 2 0 1 7 F Ö S t U d a G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð 2 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 1 5 -4 B 6 8 1 E 1 5 -4 A 2 C 1 E 1 5 -4 8 F 0 1 E 1 5 -4 7 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.