Fréttablaðið - 27.10.2017, Síða 18

Fréttablaðið - 27.10.2017, Síða 18
Um á ra m ó t i n 2 0 1 6 o g 2017 tóku gildi ný lög um almannatryggingar sem fólu í sér umtalsverðar kerfisbreytingar og umtalsverðar hækkanir bóta til 9.463 einstaklinga sem bjuggu einir, en 24.875 einstaklingar sem voru í sambúð fengu aðeins 5 pró- sent hækkun. Jafnframt var frítekju- mark vegna atvinnutekna lækkað úr 109.000 krónum á mánuði í 25.000 krónur og frítekjumark látið gilda fyrir allar tekjur, þar með fjármagns- tekjur og lífeyrissjóðstekjur sem var af hinu góða en þetta var smánarleg upphæð og ekki þeim til sóma sem að henni stóðu. Undanfarið hefir mikið verið fundað og rætt um frítekjumark atvinnutekna og að það verði 100.000 krónur á mánuði og virðast allir frambjóðendur til Alþingis vera tilbúnir að samþykkja það eins og kom fram á fundi sem haldinn var í Háskólabíói 14. október sl. Hins vegar hefir lítið verið rætt um að þetta frítekjumark eigi einnig að gilda fyrir aðrar tekjur eins og fjármagnstekjur og lífeyris- sjóðstekjur sem ætti þó að vera meginhagsmunamál meirihluta lífeyrisþega. Samkvæmt skrá TR (Tryggingastofnun) eru í janúar 2017 34.338 sem fá bætur frá TR, þar af 9.463 sem búa einir og fá fjöl- skylduuppbót, en aðeins 4.621 sem hefur atvinnutekjur. Þannig að þetta frítekjumark vegna atvinnutekna myndi aðeins gagnast þrettán pró- sentum lífeyrisþega. Á hverju ári fjölgar ellilífeyrisþeg- um þannig að ef frítekjumark vegna atvinnutekna hækkar fer þeim fjölg- andi sem nýta sér að halda áfram að vinna sem er ekki fýsilegur kostur í dag. Það deyja líka margir ellilífeyr- isþegar á ári hverju sem hafa þurft að lifa við kröpp kjör undanfarin ár. Þjóðfélaginu ber skylda til að bæta kjör ellilífeyrisþega og það fljótt, þannig að gamalt fólk geti lifað mannsæmandi lífi síðustu árin. Það hlýtur að verða krafa ellilífeyrisþega að þetta 100.000 króna frítekjumark gildi fyrir allar tekjur, atvinnutekjur, fjármagnstekjur og lífeyrissjóðs- tekjur. Ef vel ætti að vera þarf þetta frítekjumark að vera 150.000, þá myndu ráðstöfunartekjur eftir skatt hækka um 94.300 krónur. Á framboðsfundum hafa þing- menn sagt að það kosti tvo til 2,5 milljarða að hækka frítekjumark atvinnutekna úr 25.000 upp í 100.000 krónur. Þessi kostnaður er eflaust reikn- aður út frá tapaðri skerðingu sem er kr. 33.750 á mánuði fyrir hvern lífeyrisþega sem hefir atvinnu- tekjur. Þessir 2-2,5 milljarðar eru með skatti, þannig að ef við drögum skatttekjur frá þá er raunkostnaður aðeins hálfur til einn milljarður. Við þessa hækkun frítekjumarks atvinnutekna fara eflaust fleiri að stunda vinnu, en við það verður kostnaður ríkisins enginn þar sem engar skerðingar aukast, en ríkið fær auknar skatttekjur. Sennilega fjölgar þeim lífeyrisþegum um 5-7 þúsund sem fara á vinnumarkað við hækkum frítekjumarks þannig að þá fengi ríkið aukna skatta sem nemur 1,5- 2,5 milljörðum. Gæta þarf jafnræðis Ef frítekjumark verður aðeins hækkað vegna atvinnutekna sitja þeir eftir sem ekki hafa tök á að nýta sér þetta frítekjumark en hafa einhverjar lífeyrissjóðstekjur og/eða fjármagnstekjur. Ef við gefum okkur þær forsendur að þeir sem nýta sér frítekjumark atvinnutekna séu um 11 þúsund, þá eru um 23 þúsund sem myndu geta nýtt sér frítekjumark lífeyrissjóðs- og fjármagnstekna. Tapaðar skerð- ingar TR yrðu um 9,3 milljarðar ef þetta frítekjumark nýtist að fullu sem er ólíklegt. Það væri fróðlegt að fá útreikning TR á þessu. Við hækkun frítekjumarks um 75.000 krónur munu ráðstöfunar- tekjur lífeyrisþega hækka um 47.000 krónur á mánuði. Ofangreindur útreikningur er aðeins gerður til að átta sig á kostn- aðartölum og rauntölum. Tölur um fjölda þeirra sem fá ellilífeyri frá TR og fleira eru fengnar af heimasíðu TR sem er mjög aðgengileg og vinnu- brögð starfsfólks TR til fyrirmyndar. Tilgangurinn með þessum skrif- um er að vekja athygli á að til að gæta jafnræðis milli lífeyrisþega þarf frítekjumark að ná til allra tekna enda þá í samræmi við núverandi greiðslukerfi TR. Með von um að gott samstarf megi takist meðal þingmanna um þessi mál þegar þing kemur saman eftir kosningar. Frítekjumark ellilífeyrisþega Mikið skelfing er hægt að gera pólitískar umræður á Íslandi leiðinlegar. Það sem fréttamenn virðast hafa mestan áhuga á er hvernig eigi að fjármagna þetta eða hitt og hvort það eigi að lækka eða hækka skatta. Lífið snýst ekki bara um peninga, sem betur fer. Hvar eru hugsjónirnar? Hvar eru stóru spurningar um það hvernig stjórnmálafólk vill þróa íslenskt þjóðfélag? Á að stefna að sjálfbæru samfélagi, meiri jöfnuði og jafnrétti eða svona 2007 samfélagi þar sem sumir græða og grilla? Eða kannski gjörbreyttu jafnréttissamfélagi þar sem umönnun og velferð eru lykil- hugtök sem allt annað þjónar, þar með talið atvinnulífið? Vandi jarðarinnar og ofbeldismálin Hvernig ætla stjórnmálaflokkarnir að bregðast við loftslagsvandan- um? Samkvæmt nýjustu fréttum erum við að auka útblástur gróður- húsalofttegunda í stað þess að minnka hann. Loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra eru mesti vandinn sem mannkynið á við að glíma og í raun ætti umræðan að snúast langmest um hann. En nei, það er varla minnst á vanda jarðarinnar og gjörðir mannanna í þeim efnum, hvað þá ábyrgð okkar Íslendinga sem mengum og sóum hrikalega. Hvernig ætla flokkarnir að kveða niður kynbundið ofbeldi? Stjórnin sprakk út af ærumálum barna- níðinga og nauðgara. Fáum við markvissa aðgerðaáætlun gegn ofbeldi strax eftir kosningar (drög að henni er að finna í skúffum vel- ferðarráðuneytisins) og verður strax gengið í að fullgilda Istan- búlsamning Evrópuráðsins? Hann snýst um skyldur stjórnvalda við að kveða niður ofbeldi gegn konum og heimilis ofbeldi. Ísland á eitt Norðurlandanna eftir að fullgilda samninginn. Hvað um börnin? Hvað um launamisréttið sem við vorum minnt á enn og aftur 24.  október? Verður jafnlauna- vottuninni fylgt eftir og gengið í að endurmeta störf mikilvægra stétta eins og kennara, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða án þess að allt fari á annan endann? Það sárvantar bæði kennara og hjúkrunarfræðinga og það verður að grípa til aðgerða. Hvað um vanda þúsunda barna sem búa við vanrækslu? Verða skattalækkanir til að leysa mál þeirra? Ég held ekki. Það þarf heild- stæða stefnu hvað varðar aðstæður barna, kjör þeirra og líðan. Hvað er mikilvægara í einu samfélagi en að búa vel að börnum? Það kostar auðvitað peninga en það er hægt að forgangsraða. Mannréttindi og stjórnarskrá Hvað um mannréttindi minni- hlutahópa? Það hefur dregist árum saman að samþykkja tvær tilskip- anir EU sem kveða á um jafnan rétt minnihlutahópa á vinnumarkaði. Ísland er eina landið innan EES sem ekki tryggir slík réttindi og það er til skammar. Ég gæti nefnt ýmislegt fleira eins og stefnuleysið í ferðamálum að ekki sé nú minnst á nýja stjórnar- skrá. Sú sem við eigum frá 1944 var bráðabirgðasmíð en síðustu ríkis- stjórnir hafa svikið okkur um að ljúka því verki, þrátt fyrir þjóðar- atkvæði um tillögur Stjórnlagaráðs. Ótrúleg vinnubrögð þar á ferð. Nei, ræðum inntak þess sem við viljum gera á næstu árum ekki bara hvað aðgerðirnar kosta og hvaðan á að taka peningana. Ræðum siðferði og spillingu, lýðræði, mannrétt- indi, menningu og menntun en þó fyrst og fremst þá ábyrgð okkar að byggja upp sjálfbært, réttlátt þjóð- félag jöfnuðar, jafnréttis og friðar. Hvar eru stóru spurningarnar? Haukur Haraldsson áhugamaður um velferð aldraðra 2017 Ef frítekjumark verður að- eins hækkað vegna atvinnu- tekna sitja þeir eftir sem ekki hafa tök á að nýta sér þetta frítekjumark en hafa ein- hverjar lífeyrissjóðstekjur og/eða fjármagnsstekjur. 2017 Kristín Ástgeirsdóttir fyrrverandi þing- kona Kvenna- listans Ræðum siðferði og spill- ingu, lýðræði, mannréttindi, menningu og menntun en þó fyrst og fremst þá ábyrgð okkar að byggja upp sjálf- bært, réttlátt þjóðfélag jöfn- uðar, jafnréttis og friðar.Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hringhurðir, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. Fyrir rótgróna flokka er sjaldan tíminn til að breyta. Þegar reynir á raunverulegan vilja til að ná sátt um gjald fyrir sam- eiginlega fiskveiðiauðlind okkar er lagst í tæknilega útúrsnúninga og málið sagt of flókið. Ef breyta á land búnaðar kerfinu í þágu bænda og neytenda er svipuð afstaða tekin og spyrnt við fótum. Þetta er ósköp einfalt. Gamlir flokkar með augljósa sérhagsmuni í broddi fylkingar eru stundum sorglega fyrirsjáanlegir. Viðreisn er andhverfan. Ungur flokkur sem setur almannahags- muni í öndvegi og hefur kjark til að breyta í þágu framfara. Við viljum breyta úreltum kerfum og færa þau til nútímans. Við höfum allt að vinna – engu að tapa. Ekkert frekar en þorri almennings. Við höfum sett krónuna í for- grunn og bent á að hún er flestum okkar dýrt spaug og neyðir okkur til að vinna launalaust í sex vikur á ári. Við borgum húsnæðið okkar þrisvar vegna svimandi hás vaxta- kostnaðar á meðan vinir okkar í nágrannalöndum gera það einu sinni. Engu að síður eru enn til þeir stjórnmálamenn sem vilja verja áframhaldandi og óbreytta umgjörð þessarar örmyntar okkar þvert gegn hagsmunum íslenskra fjölskyldna, neytenda og atvinnulífs. Viðreisn er ekki þar. Við viljum festa krónu við Evru eða aðra erlenda mynt. Þannig snarlækkum við þá miklu vaxta(r)verki sem fylgja krónunni og gjörbreytum því óvissuástandi sem einkennir bæði efnahagsumhverfi heimilanna og atvinnulífsins í landinu. Við viljum halda öllum dyrum opnum fyrir áframhaldandi aðild að ESB og leyfa unga fólkinu að eiga atkvæðisrétt um framtíð sína. Það er kominn tími til að treysta þjóðinni í þessu máli. Við erum einlægur velferðar- flokkur sem lætur sér annt um þétt riðið öryggisnet og vandaða þjónustu í íslensku samfélagi. Við viljum hins vegar staðgreiða þann veruleika en ekki taka hann að láni eins og berlega hefur komið í ljós að flokkarnir á vinstri vængnum hyggjast gera. Við viljum sjálfbæra velferð sem grundvallast á öflugri verðmætasköpun atvinnulífsins. Velferð og vellíðan er hins vegar lítils virði ef við höfum ekki jafnan aðgang að henni. Þess vegna kapp- kostar Viðreisn að spegla alla sína pólitísku sýn út frá jafnrétti. Við höfum náð miklum árangri í launa- jafnrétti kynjanna og viljum fylgja honum eftir með því að efna til víð- tækrar þjóðarsáttar um bætt kjör kvennastétta. Kynbundið ofbeldi er jafnframt jafnréttismál, aðgengi barna að leikskólum er það líka og einnig réttur hinsegin fólks. Til þess að draumar okkar geti ræst þarf kjark til að breyta. Við- reisn hefur hann. Til að frjálslyndir vindar blási um Alþingi þarf öflugan stuðning frá þjóðinni. Þú ræður honum. Kjarkur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Við- reisnar 2017 2 7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r18 S k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 7 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 1 5 -4 6 7 8 1 E 1 5 -4 5 3 C 1 E 1 5 -4 4 0 0 1 E 1 5 -4 2 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.