Fréttablaðið - 27.10.2017, Page 26
Samkvæmt grænmetisdagatali Sölufélags garðyrkjumanna lýkur uppskerutíma á blóm-
káli og spergilkáli í lok október.
Það er því ekki seinna vænna að
nýta næstu daga í að elda eitthvað
gómsætt úr þessu ljúffenga og holla
grænmeti sem elda má á mismun-
andi vegu, t.d. sjóða, grilla, steikja,
baka og borða hrátt.
Ein þeirra, sem eru dugleg að
nýta blómkál og spergilkál í mat-
reiðslu, eins og raunar flest annað
íslenskt grænmeti, er Nanna Rögn-
valdardóttir, ritstjóri hjá Forlaginu,
matgæðingur og höfundur fjölda
matreiðslubóka. „Blómkálið hefur
verið dálítið í tísku síðustu árin,
ekki síst hjá þeim sem vilja sneiða
hjá kolvetnum og matreiða t.d.
blómkálsgrjón, blómkálspítsu-
botna og heilmargt annað.“
Það er hægt að elda bæði blóm-
kál og spergilkál á ótal vegu segir
hún. „Blómkál er hægt að ofn-
steikja, bæði heila hausa og í kvist-
um, skera hausana í sneiðar, steikja
á pönnu og bera fram eins og hverja
aðra steik og jafnvel grilla það. Það
má hægelda blómkálið í ofni í sósu
eða kryddolíu, eða léttbaka það og
setja svo í matvinnsluvél og nota
grjónin í eins konar kúskús eða
tabbouleh og aðra grjóna- og korn-
rétti og svo framvegis. Sama má
segja um spergilkálið, það er hægt
að baka það, steikja á pönnu, nota
í wok-rétti, gera úr því eins konar
pestó og nota út á pasta, djúpsteikja
það, nota í eggjakökur og bökur –
eða bara hvað sem er.“
Gerir tilraunir
Sjálf segist hún nota bæði hrá-
efnin oft heima fyrir. „Núna er ég
til dæmis að gera tilraunir með
ofnbakaða spergilkálskvisti með
krydduðu pankoraspi. Ég sker oft
alla stöngla af spergilkálinu, nota
þá í tiltekna rétti og kvistina í
eitthvað allt annað því þeir þurfa
styttri tíma. Ég er líka hrifin af
blómkáls-„poppkorni“, þar sem
maður skiptir því niður í litla
kvisti, veltir þeim upp úr kryddolíu
Síðustu dagar veislunnar
Blómkál og spergilkál er hægt að elda á ótal vegu, t.d. sjóða það, grilla, steikja á pönnu, baka
í ofni eða borða kalt. Nú lýkur senn uppskerutíma á íslensku blómkáli og spergilkáli.
og bakar við háan hita og notar
sem snakk. Og svo er alltaf gaman
að finna blómkál í öðrum litum en
þessum hefðbundna, t.d. fjólublátt
eða gult, því það er hægt að gera
svo margt skemmtilegt með það.“
Nanna er nýlega búin að senda
frá sér matreiðslubókina Pottur,
panna og Nanna auk þess sem
verið er að endurútgefa fyrstu
bók hennar, Matarást, um þessar
mundir. „Svo að ég er í smápásu
núna en auðvitað er ég í stöðugum
tilraunum í eldhúsinu. Hvort eitt-
hvað sem ég geri þar um þessar
mundir ratar einhvern tíma í bók
verður tíminn að leiða í ljós.“
Hér gefur hún lesendum upp-
skrift að ilmandi sveppasúpu
sem inniheldur bæði blómkál og
spergilkál.
Sveppasúpa með
blómkáli og spergilkáli
250 g sveppir
Nokkrir þurrkaðir sveppir
100 g blómkál
100 g spergilkál
2 msk. smjör
1 msk. grænmetis- eða kjúklinga-
kraftur
1 hvítlauksgeiri
1 timjangrein
Pipar, salt, klípa af chili-flögum
1 l vatn
Smjörið er brætt á lítilli pönnu.
Sveppir skornir til helminga eða
fjórðunga. Hvítlaukur saxaður og
allt steikt við meðalhita, þar til
sveppirnir hafa tekið góðan lit.
Hrærið oft í þeim á meðan.
Á meðan eru þurrkuðu
sveppirnir settir í pott
með 1 l af vatni,
timjankvistinum
og grænmetis-
kraftinum. Hitið að
suðu og látið malla
smástund. Hellið
svo sveppunum
og hvítlauknum í
pottinn, kryddið og
látið þetta sjóða í 6-8
mínútur. Skiptið blómkálinu og
spergilkálinu í litla kvisti og bætið
út í, hitið aftur að suðu og látið
malla í 6-8 mínútur eða þar til
kálið verður meyrt. Smakkið
súpuna og bætið við örlitlum
pipar og hellið henni svo í skál.
Ef þið viljið mildari, rjóma-
lagaða súpu má líka hella um
250 ml af rjóma eða matreiðslu-
rjóma í pottinn og láta malla
aðeins með. En krassandi þunn
súpa er líka góð.
Nanna Rögnvaldardóttir, ritstjóri hjá Forlaginu og matgæðingur. MYND/ERNIR
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Ilmandi sveppasúpan inniheldur m.a. blómkál og spergilkál.
MYND/NANNA RÖGNVALDARDÓTTIR
Fjölbreytt hráefni er undirstaðan í þessari ljúffengu súpu.
MYND/NANNA RÖGNVALDARDÓTTIR
Ath! Eingöngu afgreitt fyrir hópa
Nánari upplýsingar á sjavarbarinn.is
fyrir hópa
Aðeins 3.900 kr. á mann!
Öðruvísi Jólahlaðborð
Grandagarði 9 - Sími 517 3131 - sjavarbarinn.is
Rjómalöguð sjávarréttasúpa
Karrísíld
Rússnesk rauðrófusíld
Grafinn lax og karfi
Tvíreykt sauðahangikjöt
Forréttir
Jólalambakótilettur í raspi
Grillsteikt lambalæri bernaise
Dönsk purusteik
Allt góða og hefðbundna meðlætið
Aðalréttir
Hjónabandssæla
Ís og ávextir
Eftirréttir
MARAÞON
NOW OG 11GB
Á 3.990 KR.*
*á mánuði
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . o K TÓ B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
5
-5
5
4
8
1
E
1
5
-5
4
0
C
1
E
1
5
-5
2
D
0
1
E
1
5
-5
1
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K