Fréttablaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 32
Graskersútskurður þarf ekki að vera flókinn.
Útskorið grasker er eitt sterkasta
tákn hrekkjavökunnar. Uppruni
hefðarinnar að skera skelfileg andlit
í grasker á rætur sínar á Írlandi þar
sem rófur gegndu sama hlutverki,
nefnilega því að vekja ótta og hryll-
ing hjá gestum og gangandi. Stutt
er síðan Íslendingar tóku upp þann
sið að skera grasker og setja við úti-
dyrnar svo það vefst fyrir mörgum
hvernig á að bera sig að.
Bókasafn Garðabæjar stendur á
morgun, laugardag, fyrir hrekkja-
vökusmiðju þar sem þátttakendum
gefst kostur á að skera út grasker og
búa til eigin graskerslukt. Það þarf
að taka með sér grasker og beittan
hníf. Einnig er nauðsynlegt að hafa
góða skeið til að skafa innan úr og
ílát undir graskersmaukið.
Frekari upplýsingar eru á
bókasafninu, Garðatorgi. Gott að
tilkynna þátttöku á netfangið boka-
safn@gardabaer.is eða í síma 525
8550 til að tryggja sér pláss. Nauð-
synlegt er að foreldrar mæti með
börnum sínum.
Bókasafnið er staðsett á Garða-
torgi 7 og hrekkjavökusmiðjan
stendur á milli kl. 11 og 14.
Grasker skorin í Garðabæ
Draugasögur, skrímslasögur,
hrollvekjur og annað ógnvænlegt
er nauðsynlegur undirbúningur
hrekkjavökunnar. Borgarbóka-
safnið, Menningarhús í Grófinni,
býður á sunnudaginn upp á
hrekkjavökuritsmiðjuna Hroll
fyrir börn svo þau geti hrætt líf-
tóruna úr fjölskyldu, vinum og
nágrönnum á hrekkjavökunni.
Markús Már Efraím verður
leiðbeinandi í smiðjunni en hann
hefur undanfarin ár leiðbeint
börnum í skapandi skrifum við
frístundaheimili, skóla og söfn
borgarinnar. Markús er líka mikill
aðdáandi hrollvekja og árið 2015
ritstýrði hann og gaf út hrollvekju-
safnið Eitthvað illt á leiðinni er,
sem skrifað var af 8-9 ára nemend-
um hans og hlaut meðal annars
tvær tilnefningar til Barnabóka-
verðlauna Reykjavíkur.
Hrekkjavökuritsmiðjan Hrollur
stendur yfir frá klukkan 14 til 16,
sunnudaginn 29. október.
Hrekkjavöku-
ritsmiðja fyrir
börn
Sjóðheitur og dökkur kakóbolli
með sterku kaffi er það besta til að
rífa sig í gang á vetrarmorgnum.
Eftirfarandi uppskrift er vinsæl
víða í Evrópu, sérstaklega á Spáni.
⅔ bolli sjóðandi vatn
60 g 70% dökkt súkkulaði
1 ⅓ bolli léttmjólk
1 bolli espresso kaffi
¼ bolli kakóduft
¼ bolli dökkur púðursykur
Sneið af appelsínuberki eða
appelsínubátur
Rjómaís
Blandið sjóðandi vatni og súkku-
laði í pott og bræðið yfir miðl-
ungshita. Bætið mjólk, espresso,
kakói og púðursykri út í og hrærið
saman. Hitið í 5 mínútur þar til
loftbólur fara að myndast við
jaðrana á pottinum, hrærið öðru
hvoru í. Látið ekki sjóða. Hellið í
fjóra bolla og mokið einni skeið
af rjómaís út í ef vill eða þeyttum
rjóma.
www.myrecipes.com
Súkkulaði
espresso frá
Barcelona
GIACOMO PUCCINI
#islenskaoperan
H
Ö
N
N
U
N
:
H
G
M
FRUMSÝND 21. OKTÓBER 2017
Í ELDBORG – HÖRPU
HLJÓMSVEITARSTJÓRI BJARNI FRÍMANN BJARNASON · LEIKSTJÓRI GREG ELDRIDGE
TOSCA CLAIRE RUTTER · CAVARADOSSI KRISTJÁN JÓHANNSSON · SCARPIA ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON
ANGELOTTI ÁGÚST ÓLAFSSON · SAGRESTANO BERGÞÓR PÁLSSON
SPOLETTA ÞORSTEINN FREYR SIGURÐSSON · SCIARRONE FJÖLNIR ÓLAFSSON
KÓR OG HLJÓMSVEIT ÍSLENSKU ÓPERUNNAR · DRENGJAKÓR REYKJAVÍKUR
LEIKMYND ALYSON CUMMINS · BÚNINGAR NATALIA STEWART
LJÓSAHÖNNUN ÞÓRÐUR ORRI PÉTURSSON · SVIÐSHREYFINGAR JO MEREDITH
MIÐASALA Á OPERA.IS
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . o K tÓ B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
1
5
-5
A
3
8
1
E
1
5
-5
8
F
C
1
E
1
5
-5
7
C
0
1
E
1
5
-5
6
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K