Fréttablaðið - 27.10.2017, Page 42
Ég greini manninn í
dálítið frjálsu
falli í þessum verkum en
uppistaðan er heimspekileg.
Ég kalla hana þróunarvíð-
róf.
SÓLEY RÓS
RÆSTITÆKNIR
Leikrit ársins 2017
Menningarverðlaun
DV
Leikkona ársins
í aðalhlutverkiSíðustu sýningar:
Sun. 28.okt.
kl. 20.30
Mið. 8.nóv.
kl. 20.30
ÍSLENSKU SVIÐSLISTAVERÐLAUNINR.E. Pressan.is
S.J. Fréttablaðið
Bækur
Skrímsli í vanda
HHHH Áslaug Jónsdóttir, kalle Güttler og
rakel Helmsdal
Myndir: Áslaug Jónsdóttir
Útgefandi: Mál og menning
Prentun: Almarose, Slóveníu
Kápuhönnun og umbrot: Áslaug
Jónsdóttir
Í upphafi níundu skrímslabókar-
innar, Skrímsli í vanda, mætir stóra
skrímslið glaðbeitt til þess litla en
bregður í brún þegar í ljós kemur
að loðna skrímslið er komið í heim-
sókn og minnist ugglaust þess þegar
hið loðna kom upp á milli vinanna í
bókinni Skrímsli í heimsókn. Loðna
skrímslið er hins vegar ekki eins
sjálfsöruggt og vanalega með umbúð-
ir vafðar um aðra hönd og plástur yfir
auga. Þegar skrímslin stinga upp á
því að það haldi heim á leið hvíslar
loðna skrímslið ofurlágt að það geti
hreinlega ekki farið heim, því það eigi
hvergi heima. Skrímslunum tveimur
bregður við þessar fréttir en leita svo
lausna á vandamálinu, stinga til að
mynda upp á því að það fari í Katt-
holt því þá „getur einhver tekið það
með heim, eins og kettling“, en enda
á því að byggja heilt hús fyrir heim-
ilisleysingjann.
Lesendur læra heilmikið við lestur
bókarinnar, til að mynda að ekki er
allt sem sýnist og að margt smátt gerir
eitt stórt – með samstilltu átaki allra
tekur nefnilega „ekki langan tíma að
byggja heilt skrímslahús“. Vandamál
loðna skrímslisins er auðvitað ekki
einskorðað við það eitt. Óvissa og efi
varðandi húsnæðis mál er nokkuð
sem margir kannast við og
ekki þarf að leita lengra en
á íslenskan leigumarkað
til að finna dæmi. En hvað
gæti hafa orsakað heim-
ilisleysi loðna skrímslisins
og af hverju er það svona
illa farið? Litla og stóra
skrímslið velta þessu
fyrir sér í átakanlegri
opnu þar sem gefur
líta myndir af húsum
sem benda til þess að
kannski lenti heimili
þess í hvirfilbyl, eld-
gosi, flóði, eldi eða
jafnvel stríði. Þessi
ímynduðu dæmi eru
hins vegar veruleiki
svo alltof margra í
heiminum sem virki-
lega þurfa á stóru og litlu skrímsli að
halda til að hjálpa sér. Áslaugu, Kalle
og Rakel tekst vel að koma þessum
skilaboðum á framfæri án þess að
drekkja frásagnargleðinni og húmor-
inn fær að njóta sín, sérstaklega í per-
sónu stóra skrímslisins sem er ekkert
alltof hrifið af því loðna.
Umbrot, myndir og liti kannast
lesendur fyrri skrímslabóka við og
Áslaug heldur áfram að nýta sér
letur til að koma áherslum og til-
finningum sögupersóna á framfæri.
Þannig vitum við að stóra skrímslinu
bregður í brún þegar það sér loðna
skrímslið heima hjá því litla þar
sem orðin „Æ nei!“ eru prentuð með
stórkallalegum og feitum stöfum og
orð loðna skrímslisins eru táknuð
með grönnu letri og smáu, enda er
það lítið í sér og á bágt.
Áberandi í þessari
bók er einfalt ytra
form húss. Framan
á kápunni eru hús
í gulum, rauðum
og appelsínugulum
lit og og halda svo
áfram bókina út í gegn
og einkum er rauði
liturinn áberandi. Hver
opna bókarinnar mynd-
ar eina heild og bókin
helst vel opin þegar hún
er lögð á borð – en það
hentar litlum höndum
einmitt mög vel.
Skrímsli í vanda stendur
algjörlega fyrir sínu sem
skemmtileg og vel gerð
myndabók en það eykur
óneitanlega lestraránægjuna að
þekkja fyrri bækur; vita til að mynda
að stóra skrímslið er ekki laust við
afbrýðisemi og sérstaklega að loðna
skrímslið hefur áður komið upp á
milli félaganna.
Helga Birgisdóttir
NiðurStaða: Dásamleg viðbót
við frábæran bókaflokk, fyndin og
sorgleg í senn með skírskotun til
vandamála sem heimurinn allur
glímir við og þarf að leysa.
Margt smátt gerir eitt stórt
Þau voru eitt sinn hjón og á þeim tíma voru þau meðal frumkvöðla sem stofnuðu Gallerí Suðurgötu 7 árið 1977. Nú, fjörutíu árum
seinna, taka þau Margrét Jóns-
dóttir og Bjarni H. Þórarinsson
höndum saman og opna sýningu
á nýjustu verkum sínum í Lista-
menn Gallerí að Skúlagötu 32, í dag
milli klukkan 17 og 19. „Þetta var
svo listrænt hjónaband,“ útskýrir
Bjarni sposkur, þar sem ég hitti þau
að kaffidrykkju, ásamt kolleganum
Helga Þorgils, baka til í sýningar-
rýminu.
„Já, mér fannst skemmtileg hug-
mynd að halda þessa sýningu því við
vorum samstarfsfólk,“ tekur Margrét
undir. „Hér er ég bara með ný verk en
þau eru unnin í sama anda og önnur
sem ég hef gert undir yfirskriftinni In
Memoriam. Ég vinn út frá mynstrum
fransks veggfóðurs og ég nota verk-
færi listiðnaðar- og iðnaðarmanna.
Svo læt ég náttúruöflin hjálpa mér
því ég nota vatnsliti þannig að við
sögu koma vatn, loft og pappír
og þá á eyðilegging líka auðvelt
með að vinna á myndfletinum og
minna okkur á forgengileikann. Það
er líka önnur ástæða fyrir því að ég
nota pappír, hann er nefnilega lítils
metinn eins og konan. Að sjálfsögðu
er ég að fordæma það í leiðinni.
Núna er ég með pappír í yfirstærð
og myndröðin er blóðug því með því
að eldast og hrörna áttar maður sig á
því að lífsstarfið var til einskis í þjóð-
félagi þar sem allt snýst um peninga
og græðgi – og öllum er sama.“
Nú er röðin komin að Bjarna. „Ég
er hér með nýjasta verkefni mitt
undir hatti Vísiakademíunnar sem
kallast mannróf. Á þessum dásam-
legu tímum sem við höfum upplifað
með gegndarlausri efnishyggju þá
fannst mér kominn tími til að greina
manninn. Þessi fimmtán verk sem ég
er með hér eru í verkefni sem ég kalla
mannróf. Þar er ég að taka manninn
fyrir í alls konar samhengi, sögulegu
samhengi, stjórnmálalegu samhengi
og síðast en ekki síst í því samhengi
hvað maðurinn er orðinn mikil og
margslungin neyslutegund.
Ég greini manninn í dálítið frjálsu
falli í þessum verkum en uppistaðan
er heimspekileg. Ég kalla hana þró-
unarvíðróf, það er samstæðiskenn-
ing, brúarsmíð milli raun- og hug-
vísinda.“
Samstarfsfólk að fornu og nýju sýnir við Skúlagötuna
gallerí suðurgata 7 var opnað fyrir 40 árum og myndlistarfólkið margrét jónsdóttir og Bjarni h. þórar-
insson halda minningu þess í heiðri með því að opna sýningu í listamenn gallerí að skúlagötu 32 í dag.
Margrét og Bjarni sýna afrakstur síðustu missera á listasviðinu og minnast með því fornra kynna og samstarfs. FréttaBlaðið/Ernir
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
2 7 . o k t ó B e r 2 0 1 7 F Ö S t u D a G u r30 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
menning
2
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
1
5
-2
D
C
8
1
E
1
5
-2
C
8
C
1
E
1
5
-2
B
5
0
1
E
1
5
-2
A
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K