Fréttablaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 8
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
4
4
3
2
R
e
n
a
u
lt
T
ra
f
ic
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
o
k
t
RENAULT TRAFIC
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Renault atvinnubílar hafa slegið í gegn með hagstæðu verði, ríkulegum búnaði
og úrvali sparneytinna dísilvéla. Komdu og kynntu þér Renault Trafic og láttu
sölumenn okkar gera þér tilboð í nýjan atvinnubíl.
www.renault.is
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
lei
ða
nd
a
um
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
RENAULT TRAFIC STUTTUR
1,6 L. DÍSIL, 115 HESTÖFL
Verð: 2.943.548 kr. án vsk.
3.650.000 kr. m. vsk.
Eyðsla frá, 6,5 l/100 km*
Kosningar Áhugaverð staða er
nú komin upp í íslenskum stjórn-
málum eftir kosningar. Álitsgjafar
Fréttablaðsins, stjórnmálafræðing-
arnir Eva Heiða Önnudóttir nýdokt-
or og Eiríkur Bergmann prófessor
rýndu í stöðuna með blaðamanni.
Aldrei jafnmargir flokkar
„Við erum með gjörbreytt flokka-
kerfi frá því sem verið hefur. Það er
svona út frá stjórnmálafræðilegum
áhuga áhugaverðast. Þetta er bara
nýtt landslag í íslenskum stjórn-
málum, átta flokkar á Alþingi,“ segir
Eiríkur og bætir því við að þetta setji
jöfnunarsætakerfið í uppnám.
Eva Heiða segir það vissulega nýja
stöðu að hafa átta flokka á þingi. „Ég
myndi segja að þetta sé áframhald á
þeim breytingum sem hafa verið að
eiga sér stað eftir hrun. Ég veit ekki
hvort ég myndi segja að staðan sé
byltingakennd eða komi manni í
opna skjöldu en þetta er enn eitt
merkið um þær breytingar sem eru
að eiga sér stað á flokkakerfinu.“
Íhald og kynjahalli
Eiríkur segir stöðuna talsvert frá-
brugðna því sem sést hefur áður.
„Þetta er auðvitað íhaldssveifla.
Frjálslyndur flokkur á miðjunni
kveður og tveir mun íhaldssamari
flokkar koma til skjalanna, það er
ein línan í þessu.“
„Við erum að sjá niðurstöður sem
vísa í mjög ólíkar áttir. Það er engin
almennilega heildstæð lína sem þú
sérð í þessum kosningum önnur
en sú að það er íhaldssveifla. Frá
frjálslyndi til meiri íhaldssemi,“
bætir Eiríkur við.
Konum á þingi fækkaði talsvert
um helgina. Eva Heiða segir að það
megi skrifa það að hluta á þá tvo
nýju flokka sem komu inn. „Þar
eru kynjahlutföllin mjög körlum í
hag. Margir hinna flokkanna tapa
mönnum á móti og til dæmis hjá
Sjálfstæðisflokknum voru konur að
detta af þingi því þær voru ekki eins
ofarlega á lista og karlarnir.“
Sigrar og töp
Eva Heiða er á þeirri skoðun að í ár
sé enginn einn sigurvegari kosn-
inganna. „Það er enginn að vinna
rosalega á. Tveir nýir flokkar koma
inn sem hljóta að vera ánægðir með
sitt og svo er Samfylkingin að bæta
við sig.“ Undir þetta tekur Eiríkur
að nokkru leyti. Hann segir þó Mið-
flokkinn augljósasta sigurvegarann.
„Augljósustu tapararnir eru þeir
sem þurrkast út, Björt framtíð. Það
er lítil samkeppni um það. En svo
líka Píratar, þeir eru að missa fylgi.
Sjálfstæðisflokkurinn auðvitað
tapar, það er augljóst,“ segir Eiríkur.
Vinstri græn mældust stærst lengi
vel í október en fengu aðeins einum
þingmanni meira í ár en í fyrra sem
er mun minni sigur en kannanir
bentu til lengi vel. Eiríkur segir það
annars vegar skrifast á upprisu
Samfylkingarinnar og hins vegar
hafi Flokkur fólksins talað mikið
um útrýmingu fátæktar, það hafi
höfðað til vinstrimanna.
Hreyfing útskýrir frávik
Skoðanakannanir bentu allar til
þess að Flokkur fólksins næði ekki
inn á þing og flestar bentu til lakari
kosningar Framsóknarflokksins.
Eiríkur segir kannanirnar gerðar
nokkru fyrir kjördag. Þær hafi sýnt
að fylgið væri á fleygiferð. „Ég held
að það sé nærtækari skýring. Það
var áframhaldandi flæði á fylginu.“
Eiríkur og Eva Heiða eru þau sam-
mála um að vaskleg framganga Ingu
Sæland í leiðtogaumræðum Ríkisút-
varpsins kvöldið fyrir kjördag gæti
vel hafa skilað flokknum yfir fimm
prósenta þröskuldinn.
Viðræður í vændum
Evu Heiðu þykir líklegt að vanda-
samt verði að mynda ríkisstjórn.
Einu þriggja flokka stjórnirnar sem
eru í boði innihalda bæði Sjálfstæð-
isflokkinn og Vinstri græn og það sé
vandasamt sökum þess hve langt er
á milli flokkanna. Stjórnir fjögurra
eða fimm flokka séu vandasamar,
þá séu margir komnir að borðinu.
„Ég held hins vegar, öfugt við það
sem sumir hafa sagt, að það þurfi
ekki að vera svo erfitt að mynda
ríkisstjórn. Mér finnst nokkuð
greiðfærir möguleikar blasa við.
Líka vegna þess að þetta eru nýjar
aðstæður. Flokkarnir þurfa að setja
sig í aðrar stellingar en áður,“ segir
Eiríkur aftur á móti.
Hann bendir á þann kost að stjórn-
arandstaðan hafi tryggt sér nauman
meirihluta sem væri til dæmis hægt
að styrkja með innkomu Viðreisnar.
Einnig gæti gengið upp að mynda
fjögurra flokka stjórn til hægri. „En
maður sér ekki að það verði mynduð
ríkisstjórn án Framsóknar,“ segir
Eiríkur. thorgnyr@frettabladid.is
Íhaldssveifla eina lína kosninganna
Kosningar eru að baki og stjórnarmyndunarviðræður eru í vændum. Álitsgjafar Fréttablaðsins rýna í nýja stöðu í íslenskum stjórnmál-
um. Framsóknarflokkurinn er sagður í lykilstöðu og Miðflokkurinn stóri sigurvegari kosninganna. Konum fækkaði talsvert á þingi.
Nú taka stjórnarmyndunarviðræður við. fréttAblAðið/ANtoN briNk
Eiríkur
bergmann,
prófessor í
stjórnmálafræði.
Eva Heiða
Önnudóttir,
nýdoktor í
stjórnmálafræði.
3 0 . o K t ó b e r 2 0 1 7 M Á n U D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
3
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
8
-5
6
4
C
1
E
1
8
-5
5
1
0
1
E
1
8
-5
3
D
4
1
E
1
8
-5
2
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K