Fréttablaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 13
Í leiðara í Fréttablaðinu, 12. nóvember 2015, fullyrti aðal-ritstjóri 365 að fréttaflutningur Fréttablaðsins af Hlíðamálinu væri réttur og ekkert tilefni væri til að biðjast afsökunar. Þetta væri bara góð blaðamennska. Með dómi héraðsdóms tveimur árum síðar voru þrettán ummæli sem fjórir blaðamenn 365 höfðu viðhaft ómerkt auk þess sem umfjöllun Stöðvar 2 var talin brot á friðhelgi einkalífs. Af því tilefni skrifaði aðalritstjór- inn nýjan leiðara í Fréttablaðið, 27. október sl., þar sem hann stað- hæfði að með dómi héraðsdóms hafi verið þrengt svo að andrými fjölmiðla að það gæti vart talist annað en ritskoðun. Og í viðtali við Vísi sagði aðalrit- stjórinn: „Í dómnum er gengið alltof langt í að takmarka umfjöllun af rann- sóknum í kynferðisbrotamálum. Ég er ósammála því, að það megi ekki fjalla um kynferðisbrot, sem eru til rannsóknar.“ Þvert á það sem ritstjórinn segir er farið yfir hver og ein ummæli lið fyrir lið með rökstuddum hætti í dómnum og aðeins hluti þeirra ómerktur. Í rökstuðningi dómsins segir meðal annars: „Dómurinn tekur undir þau sjónarmið stefndu að mikilvægt sé að flytja fréttir af rannsókn lögreglu af kynferðisbrotamálum ... Þrátt fyrir að sterkt sé tekið til orða um að ætluð brota stefnefnda hafi verið hrottaleg þykir stefnda ekki hafa farið út fyrir mörk leyfi- legrar tjáningar.“ Héraðsdómur er því sammála aðal- ritstjóranum um mikilvægi þess að fluttar séu fréttir af kynferðisbrota- málum sem sæta rannsókn lögreglu. Af rökstuðningi dómsins er jafnframt ljóst að héraðsdómur veitir blaða- mönnum 365 verulegt svigrúm til þess að kveða fast að orði og jafnvel fara rangt með. Hvers vegna segir þá aðalritstjórinn að dómurinn takmarki umfjöllun um kynferðisbrot sem eru til rann- sóknar? Líklega telur aðalritstjór- inn heppilegra að veifa röngu tré en öngvu og freista þess þannig að beina athyglinni frá því augljósa í málinu. Sem er að aðalritstjóranum og blaðamönnunum fjórum varð alvar- lega á í messunni og lögðu þannig líf tveggja manna í rúst. Einhverjum kynni að þykja afsökunarbeiðni við hæfi. Sorry seems to be the hardest word Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlög- maður intellecta.is RÁÐNINGAR Hörður Arnarson Hlutverk Landsvirkjunar – fjárhagsleg staða – endurnýjanleg orka Úlfar Linnet Áhrif bráðnunar jökla á íslenska orkukerfið Ásbjörg Kristinsdóttir Bætt nýting auðlindar við Búrfell Ljósafossstöð – Endurnýjanleg orka í 80 ár Einar Mathiesen Hvernig tryggjum við endingu aflstöðva? Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir Samspil orku og ferðamála Kröflustöð – Vagga jarðvarma á Íslandi í 40 ár Valur Knútsson Sjálfbær nýting jarðvarma á Þeistareykjum Ragnheiður Ólafsdóttir Kolefnishlutlaus Landsvirkjun árið 2030 Fljótsdalsstöð – Orkuvinnsla og sjálfbærni í 10 ár Þórólfur Nielsen Endurnýjanleg raforka á heimsvísu Birna Ósk Einarsdóttir Markaðssetning endurnýjanlegrar raforku Ragna Árnadóttir Endurnýjanleg orka er verðmætari Verið öll velkomin Skráning á www.landsvirkjun.is #lvhaustfundur Landsvirkjun hefur frá upphafi unnið endurnýjanlega orku. Vitundarvakning um umhverfis- og loftslagsmál hefur aukið verulega verðmæti slíkrar raforku. Á haustfundinum fjalla sérfræðingar okkar um þessi verðmæti frá ýmsum hliðum. Greint verður frá því hver áhrif loftslagsbreytinga hafa verið á orku- vinnslu og nýtingu íslenska kerfisins, hvernig endurnýjanleg orka er orðin eftirsóttari og hvernig nýta má hana á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Endurnýjanleg orka er verðmætari HAUSTFUNDUR LANDSVIRKJUNAR Silfurberg í Hörpu Fimmtudagur 2. nóvember kl. 8.30–10.00 Morgunhressing í boði frá kl. 8.00 S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M Á n u D A G u R 3 0 . o k T ó B e R 2 0 1 7 3 0 -1 0 -2 0 1 7 0 5 :0 7 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 1 8 -2 E C C 1 E 1 8 -2 D 9 0 1 E 1 8 -2 C 5 4 1 E 1 8 -2 B 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.