Fréttablaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 10
rsk@rsk.is
Nánari upplýsingar á rsk.is
Álagningu opinberra gjalda
á lögaðila árið 2017 er lokið
Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef
ríkisskattstjóra á rsk.is og skattur.is.
Álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á
viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega
auglýstum stöðum dagana 30. október til 13. nóvember 2017
að báðum dögum meðtöldum.
Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem
álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 29. desember 2017.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt 98. gr. laga nr. 90/2003.
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:0
442 1000
Það getur vel verið. Ég stend engu að síður með þeirri ákvörðun,“ segir Björt Ólafs-
dóttir, þegar hún er spurð hvort
kjósendur hafi verið að refsa Bjartri
framtíð fyrir að fara í stjórn með
Sjálfstæðisflokknum. „Það skipti
okkur mestu máli að ná fram þeim
stefnumálum sem fólk kaus okkur
út á. Til þess erum við í stjórn-
málum,“ segir Björt og bætir við:
„Við getum verið stolt af því að hafa
snúið stóriðjustefnunni við á punkt-
inum og friðlýst Þjórsárver. Þrátt
fyrir að hafa verið í stjórn með Sjálf-
stæðisflokknum tókst okkur það nú
samt.“
Björt segir að Björta framtíð sé
ekki endilega búin að vera. „En við
þurfum náttúrulega að fara í ein-
hverja naflaskoðun, það er alveg
ljóst.“ – aá
Naflaskoðun
fram undan
Mér sýnist að við höfum ekki bætt við okkur atkvæðum frá því síðast. Það eru svo
sem ýmsar ástæður fyrir því. Við
bjuggumst kannski ekki við miklu
strandhöggi í þingmannafjölda
í þessum kosningum. Hins vegar
höfum við náð talsverðum árangri,“
segir Þorvaldur Þorvaldsson, for-
maður Alþýðufylkingarinnar, en
flokkurinn fékk 0,2 prósent atkvæða
og engan mann kjörinn.
Þorvaldur segir flokkinn hafa
fengið talsvert af nýjum félögum og
að sjónarmið hans hafi fengið meiri
athygli. Þá hafi hann heyrt í mörg-
um sem hafi til dæmis mælst næst
Krakkakosningar
góður fyrirboði
Við erum í miklu stuði. Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson,
oddviti Miðflokksins í Suðvestur-
kjördæmi, en flokkurinn fékk
10,8 prósent atkvæða og sjö menn
kjörna í sínum fyrstu kosningum.
„Við vissum eiginlega ekki við
hverju við áttum að búast í ljósi
þess að við vorum að gera þetta allt
á einhverjum þremur vikum. Fyrsti
sigurinn var að ná að bjóða fram,
annar sigurinn var að sjá að við
myndum ná yfir fimm prósentin og
allt umfram það var bara frábært,“
segir Gunnar Bragi.
Gunnar Bragi bætir því við að
flokksmenn séu í hæstu hæðum.
Aðspurður um nýtt þing segir hann:
„Mér líst alltaf vel á Alþingi, ég held
að menn muni reyna að tala saman
um sterka ríkisstjórn og einhenda
sér í verkefni fyrir samfélagið. Við
erum að sjálfsögðu tilbúin í ríkis-
stjórn.“ – þea
Miðflokksmenn
í hæstu hæðum
Gunnar Bragi
Sveinsson
10,8%
Þetta var svo sem fyrirséð. Ég hefði viljað sjá meira afgerandi niður-stöðu því það stefnir sýnist mér
í stjórnarkreppu. Það er ekki gott,“
segir Pálmey Gísladóttir, formaður
Dögunar. Flokkur hennar fékk 0,36
prósent atkvæða í Suðurkjördæmi og
bauð fram í því eina kjördæmi. Fékk
flokkurinn því engan mann kjörinn
á þing en þetta var í þriðja sinn sem
Dögun býður fram til Alþingis.
„Þetta breytir ekki miklu í okkar
málum. Við höldum áfram að vinna
með okkar málefni,“ segir Pálmey og
bætir því við að það hafi verið mjög
ánægjulegt að flestir flokkar hafi tekið
upp málefni Dögunar og komi til með
að fara inn á þing með þau í fartesk-
inu. – þea
Halda áfram
sinni vinnu
Pálmey
Gísladóttir
0,36%
Við unnum ákveðinn varnar-sigur. Þetta eru engu að síður vonbrigði. Við höfðum vænt-
ingar til þess að ná meiri árangri miðað
við kannanir í vikunni fyrir kosningar
þannig að þetta var heldur lakari
niður staða en við vorum að vonast
eftir,“ segir Þorsteinn Víglundsson,
oddviti Viðreisnar í Reykjavík norð-
ur, en flokkurinn fékk 6,7 prósent
atkvæða og fjóra þingmenn.
Þorsteinn segir að tekist hafi að snúa
þungri stöðu við. „Við fórum frá því að
vera að þurrkast út af þingi og í það að
ná inn fjórum þingmönnum. Það er
auðvitað ánægjuefni. Nú er bara verk-
efnið að byggja ofan á það.“ – þea
Niðurstöðurnar
varnarsigur
Þorsteinn
Víglundsson
6,7%
Björt
Ólafsdóttir
1,2%
Þorvaldur
Þorvaldsson
0,2%
Niðurstaðan er sú að vinstri atlögunni er hrundið. Skoð-anakannanir sem sýndu
stórsigur vinstri aflanna gengu ekki
eftir. Það var hart sótt að okkur
Sjálfstæðismönnum, og þá sérstak-
lega að formanninum, en það tókst
að bægja því frá,“ segir Guðlaugur
Þór Þórðarson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík norður. Flokk-
urinn fékk 25,2 prósent atkvæða og
sextán þingmenn.
„Ég er sérstaklega þakklátur
öllum þeim hundruðum sjálfboða-
liða sem lögðu hönd á plóg í Reykja-
vík og gerðu það að verkum að við
erum enn forystuflokkur í báðum
kjördæmum og afskaplega þakk-
látur fyrir þann stuðning sem ég
fékk í Reykjavík norður. Þar héldum
við þremur mönnum,“ segir Guð-
laugur. – þea
Segir vinstri
atlögunni
hrundið
Guðlaugur
Þór Þórðarson
25,2%
Ég er ofsalega stoltur af okkar frammistöðu í þessu. Við höfum kallað þetta varnar-
sigur sem hann sannarlega er.
Við lögðum upp með leikgleði og
baráttu og það skein í gegn allan
tímann. Í sögulegu samhengi er
auðvitað erfitt að mæta svona
klofningsframboði. Það tekur á,“
segir Willum Þór Þórsson, oddviti
Framsóknarflokksins í Suðvestur-
kjördæmi, en flokkurinn fékk 10,7
prósent atkvæða og átta þingmenn.
Willum segist mjög ánægður með
að koma aftur inn á þing en hann
datt út í síðustu kosningum. „Það
var vígi að verja og Eygló Harðar-
dóttir hætti eins og ljóst er. Margt
gott fólk fór frá okkur til Miðflokks-
ins og það var við ramman reip að
draga. En við náðum upp góðri
samstöðu og náðum að verja þetta
vígi.“ – þea
Var við ramman
reip að draga
Willum
Þór Þórsson
10,7%
flokknum í kosningaprófum en ekki
kosið flokkinn af einhverri ástæðu.
Til að mynda þeirri að flokkurinn
hafi ekki mælst nærri fimm pró-
senta þröskuldinum.
„Hluti af þessu er að bæði fjöl-
miðlar og ýmsir aðilar hafa að því
er virðist tekið höndum saman við
að gefa bjagaða mynd af okkur og
okkar tilvist og þátttöku í kosning-
unum. Þar ber hæst þessa fáheyrðu
ákvörðun RÚV að útiloka okkur
frá lokaumræðunni í sjónvarpinu,“
segir Þorvaldur. Hann bætir því við
að flokkurinn hafi komið vel út úr
krakkakosningunum og það sé
góður fyrirboði. – þea
Ég er auðmjúk og ofsalega þakklát fyrir þann mikla stuðning og það traust sem kjósendur hafa sýnt
okkur. Það er gríðarleg ábyrgð sem
við erum sannarlega tilbúin að axla.
Við erum tilbúin til verksins, það er
ekkert flóknara en það,“ segir Inga
Sæland, formaður Flokks fólksins.
Flokkurinn fékk 6,9 prósent atkvæða
og fjóra menn kjörna í sínum öðru
kosningum.
„Þetta eru átta flokkar sem er sögu-
legt í okkar stjórnmálasögu. Auðvitað
verður eilítið snúnara að ná saman
en ég held samt sem áður, miðað við
það sem kom fram í kosningabarátt-
unni, að það ætti að vera greinilegur
vilji til þess að fara að vinna og gera
góða hluti. Ég held við munum fá góða
stjórn sem stendur sig og verður traust
í heilt kjörtímabil,“ segir Inga. – þea
Inga auðmjúk
og þakklát
Inga
Sæland
6,9%
Við bjuggumst
kannski ekki við
miklu strandhöggi í þing-
mannafjölda.
Þorvaldur Þorvaldsson, formaður
Alþýðufylkingarinnar
Við lögðum upp
með leikgleði og
baráttu og það skein í gegn
allan tímann.
Willum Þór Þórsson, oddviti Fram-
sóknarflokksins í Kraganum
Í fyrsta lagi gladdi mig mjög að Andrés Ingi var inni þegar ég vaknaði,“ segir Svandís Svavars-
dóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Svandís segir stöðuna eftir kosn-
ingarnar ekki einfalda til stjórnar-
myndunar. „En sú stjórnarand-
staða sem veitti fráfarandi stjórn
öflugt aðhald hefur meirihluta í
nýju þingi þannig að það hlýtur að
vera okkar fyrsta verk að reyna að
ná þeim hópi saman,“ segir Svandís
og bætir við:
„Svo er náttúrulega rosalegt að
sjá þessa miklu karlaslagsíðu hjá
þessum nýju flokkum og það er
mjög mikið bakslag. Þarna eru að
koma inn flokkar sem bera með
sér mikinn anda fortíðar og það
eru vonbrigði og þeim mun meiri
ástæða til að halda anda kvenfrelsis
til haga.“ – aá
Stjórnarmyndun
ekki einföld
16,9%
Svandís
Svavarsdóttir
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Logi Már
Einarsson
9,2% 12,1%
Ég er nú bara frekar sáttur, þrátt fyrir allt. Píratar hafa alltaf tapað fylgi í kosningum
frá því sem kannanir hafa gefið til
kynna þannig að við getum ekki
verið annað en sátt,“ segir Helgi
Hrafn Gunnarsson, þingmaður
Pírata.
Hann segir þó stöðuna í stjórn-
málunum snúna. „Þetta er ógeðs-
lega flókin staða og ber þess merki
að það er mikill óstöðugleiki í
stjórnmálum,“ segir Helgi Hrafn
og bætir við: „Það sem skiptir
mestu máli núna er að stjórnmála-
menn geti fundið ábyrga lausn á
því hvernig menn myndi stjórn,
án þess að fara í sama gamla farið
og trukka bara málum í gegn í risa-
stórum meirihluta. Þessar aðstæð-
ur bara neyða alla stjórnmálamenn
til að sýna ábyrgð,“ segir Helgi. – aá
Ógeðslega
flókin staða
Við erum auðvitað mjög ánægð með að hafa rúm-lega tvöfaldað fylgið og
vera komin aftur í stöðu sem gerir
okkur kleift að byggja betur undir
þetta áfram,“ segir Logi Már Einars-
son, formaður Samfylkingarinnar,
en flokkurinn fékk 12,1 prósent
atkvæða og sjö menn kjörna.
„Okkur finnst auðvitað sorglegt
að þrátt fyrir að vera sá flokkur sem
er með þriðja mesta fylgið í pró-
sentum fáum við færri þingmenn
en sá flokkur sem er með tæplega
tveimur prósentum minna fylgi,“
segir Logi og bætir við:
„Við missum einn mann þarna
til Framsóknar. Þetta er sérkenni-
legt kerfi.“ Logi segir enn fremur
að flokkurinn muni beita sér fyrir
nýrri stjórnarskrá sem taki á þessum
vanda. – þea
Ánægð með
tvöföldunina
3 0 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
3
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
8
-5
1
5
C
1
E
1
8
-5
0
2
0
1
E
1
8
-4
E
E
4
1
E
1
8
-4
D
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K