Fréttablaðið - 30.10.2017, Síða 18
Eftir að fjöldi kvenna sakaði kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein um kyn-
ferðislega misnotkun og áreitni
hefur umræðan um kynferðis ofbeldi
opnast. Í framhaldi af því hófst
umræða um þá kynferðislegu áreitni
og misnotkun sem karlmenn í tísku-
heiminum beita fyrirsætur.
Skortir lagalega vernd
New York-borg er almennt talin ein
aðaltískuborg heims og á mánudag
lagði Nily Rozic, þingkona á lög-
gjafarþingi New York-ríkis, fram
lagafrumvarp sem snýst um að láta
umboðsskrifstofur fyrirsæta bera
ábyrgð á að vernda fyrirsætur sínar
gegn öllum tegundum af misnotkun
og áreitni.
Vegna tæknilegra samnings atriða
geta umboðsskrifstofur komist hjá
því að bera ábyrgð á velferð fyrir-
sæta svo þær njóta ekki verndar
gagnvart áreitni og mismunun á
sama hátt og annað vinnandi fólk.
Hugmyndin er að gera breytingu á
jafnréttislögunum sem er sérstak-
lega hönnuð til að vernda fyrirsætur.
Rozic vonast til að lagabreytingin
taki gildi á næsta ári.
Umkringdar rándýrum
Á síðustu vikum hafa margar
fyrirsætur birt frásagnir af kyn-
ferðislegri áreitni og misnotkun á
Instagram-síðu fyrirsætunnar og
aðgerðasinnans Cameron Russell.
Ofurfyrirsætan Christy Turlington
Burns ræddi líka þennan vanda
nýlega og sagði að tískuheimurinn
væri „umkringdur rándýrum sem
þrífast á þeirri stanslausu höfnun
og einmanaleika sem svo margar
okkar hafa upplifað einhvern tíma á
ferlinum“.
Í vikunni var svo þekktur tísku-
ljósmyndari, Terry Richardson,
sakaður um að hafa stundað
kynferðislega áreitni árum saman
og fyrir vikið ætla nokkur stór tísku-
fyrirtæki að hætta að vinna með
honum.
Þekktur breskur tískuálitsgjafi,
Lagabreyting til verndar
fyrirsætum í New York
Þingkona vill gera breytingu á jafnréttislögum í New York-ríki til að tryggja að fyrirsætur fái vernd
gegn kynferðislegri misnotkun og áreitni líkt og annað fólk á vinnumarkaði.
Það er margt spennandi að gerast í förðun ef marka má kynningu á nýjustu tísku. Gull-
, silfur- eða koparlituð augnlok. Litir
sem fara flestum vel og eru fínlegir
við sparifötin. Berjalitir á vörum
virðast sömuleiðis vinsælir. Litirnir
mega vera dökkir en einnig má sjá
skæra liti. Sólarpúður hefur lengi
verið vinsælt og svo verður áfram.
Flestir nota svartan maskara en
nú má gjarnan breyta um lit og hafa
hann bláan eða grænan. Þá er vin-
sælt að lita augnhárin með svörtum
lit en setja síðan gull- eða silfurlit
yfir.
Þá er kominn tími til að skipta
út pastellitum naglalökkum fyrir
dökka og glitrandi liti og þá frekar
í köldum tónum. Dökkblár litur á
neglur er vinsæll um þessar mundir
eftir því sem greint er frá í tíma-
ritinu Vogue.
Annars eru margir litir í tísku
þennan veturinn, sérstaklega
þykja alls kyns grænir litir eftir-
sóknarverðir. Svo má alveg setja á
sig fallegt rautt naglalakk í stíl við
varalitinn.
Hárið má vera frjálslegt. Snúðar
uppi á höfðinu hafa verið vinsælir
en nú skulu þeir liggja aftan á háls-
inum. Sömuleiðis má setja hárið í
tagl og binda um það með veglegu
silkibandi. Þegar Chanel sýndi
hausttískuna 2017 voru flestar fyrir-
sæturnar með tagl í hárinu.
Varirnar mega vera
áberandi í vetur
Dökkar áberandi varir, augnskuggar í málmlitum og lit-
aðar kinnar verða áberandi í vetur samkvæmt því sem nú
er sýnt á tískuvikum úti í heimi.
Varirnar mega vera rauðar við vetrar-
fötin.
Dökkir litir eru gjaldgengir í förðun,
jafnt á varir sem neglur.
Fyrirsætur á
sýningu Calvin
Klein í New
York.
MYND/NORDIC
PHOTOS/GETTY
,,Salurinn EMJAÐI
úr hlátri”
-Fjarðarpósturinn
Caryn Franklin, sem hefur varað við
hegðun Richardsons árum saman,
hélt því þó fram í viðtali við breska
miðilinn The Guardian að fyrirtækj-
unum væri fyrst og fremst umhugað
um að vernda vörumerki sín í
kjölfar allrar umræðunnar sem fór
af stað eftir ásakanirnar á hendur
Weinstein, en séu ekki að hugsa um
að vernda fyrirsætur.
Nýtti stöðuna til misnotkunar
Samkvæmt rannsókn Los Angeles
Times nýtti Harvey Weinstein sér
stöðu sína innan tískugeirans til að
áreita og misnota fyrirsætur á sama
hátt og hann gerði við leikkonur.
Weinstein fjárfesti ríkulega í tísku-
tengdum verkefnum og framleiddi
sjónvarpsþáttinn Project Runway,
þar sem keppt er í tískuhönnun.
Samkvæmt rannsókninni notaði
Weinstein tengslin við tískuheiminn
sem átyllu til að lokka fyrirsætur
til sín. Fjölmargar fyrirsætur segja
að þar hafi hann reynt að þvinga
þær inn í kynferðislegar aðstæður
gegn vilja þeirra. Weinstein segist
sjálfur muna atburði á mjög ólíkan
hátt og að ekkert sé hæft í þessum
ásökunum.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
3
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
8
-3
8
A
C
1
E
1
8
-3
7
7
0
1
E
1
8
-3
6
3
4
1
E
1
8
-3
4
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K