Fréttablaðið - 30.10.2017, Side 22
Nemendahópurinn
er þéttur enda færri
nemendur en við aðra
háskóla, þannig að við
kynntumst vel og það var
góð stemning í hópnum.
Helena Sævarsdóttir
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Ég stóð á tímamótum og mér fannst tilvalið að flytja norður og búa í grennd við börn og
barnabörn. Í raun þekkti ég ekki til
á Akureyri en tvö af mínum þremur
börnum búa hér, ásamt sínum fjöl-
skyldum með tvö af mínum þremur
barnabörnum, og jafnframt var ég
komin nær Austurlandinu þar sem
ég ólst upp. Ég hafði fulla trú á að fá
starf þó það væri ekki fundið þegar
ég flutti,“ segir Sólveig Eiríksdóttir
sem áður bjó í Reykjavík.
Fegurð, gróðursæld og stutt-
ar vegalengdir er á meðal
þess sem Sólveigu líkar
einna best við Akureyri.
„Ég næ að útrétta mikið á
einum klukkutíma, öfugt
við Reykjavík þar sem mér
finnst orðið of mikið um
umferðarteppur. Það kom
mér mest á óvart hvað það er
mikill munur á mannlífinu hér
miðað við Reykjavík. Hér er minna
stress og mjög áþreifanlegt að fólk er
í öðrum takti.“
Spurð hvað hægt sé að gera sér
til dægrastyttingar á Akureyri
nefnir Sólveig að gaman sé að rölta í
miðbæinn eða í Lystigarðinn, fara á
listasýningar, kaffihús eða bókakaffi.
„Ég er sífellt að uppgötva eitthvað
nýtt og skemmtilegt.
Stundum eru viðburðir
í Hlöðunni í Litla-Garði en
þangað er upplifun að koma. Svo er
hægt að rúnta inn í Eyjafjörð eða út
með firðinum og fara í gönguferðir
um svæðið í kring, til að eitthvað sé
nefnt.“
Velvild og vinátta
Sólveig segir Akureyringa hafa tekið
mjög vel á móti sér og hefur fundið
mikla velvild í sinn garð. „Stuttu
eftir að ég flutti hingað var ég svo
heppin að vera boðin í félagsskap
Zonta kvenna og hlakka ég mikið
til að vinna með þeim að málefnum
sem styðja konur. Þá skráði ég mig
fyrir matjurtagarði sem hægt er að
leigja af bænum. Að koma á það
svæði er eins og að fara inn í annan
heim eða annað land. Því miður
var skikinn minn einn af þeim verst
hirtu í sumar en ég er staðráðin í að
gera betur að ári og aðrir ræktendur
upplýsa mann fúslega ef spurt er,
auk umsjónarfólks sem leiðbeinir
manni líka.“
Stórkostlega náttúra
á Norðurlandi
Sólveig var að byrja í nýrri vinnu
hjá Akureyrarbæ og er að setja sig
inn í starfið eins og stendur. Hún
hlakkar til að sinna nýju starfi og
kynnast nýju samstarfsfólki og
verkefnum. „Í sumar var ég hins
vegar svo ljónheppin að vinna sem
leiðsögumaður hjá SBA og fara með
fólk af skemmtiferðaskipum í dags-
ferðir í rútum. Það eru forréttindi
að kynna fyrir erlendum gestum
þessa fallegu staði á Norðurlandi
og fólk var hrifið af þeirri stórkost-
legu náttúru sem við höfum hér allt
í kring. Jarðfræðin hér er heillandi
og hefur kveikt áhuga minn og ég
geri mitt besta til að útskýra hana
frekar. Mývatnssvæðið, Dimmu-
borgir, Hveraröndin við Náma-
skarð og Jarðböðin, svo eitthvað
sé nefnt. Goðafoss og torfbærinn
í Laufási, þetta eru allt staðir með
aðdráttarafl. Skemmtilegast þótti
mér að fara með hópa í gönguferð á
Hverfjall og þaðan niður í Dimmu-
borgir. Ferð á Siglufjörð þar sem við
sáum meðal annars síldarsýningu
var ógleymanleg en á Siglufirði
hefur verið uppbygging og ferðir
þangað aukist í kjölfar ganganna
sem opnuðu 2010. Lystigarðurinn
á Akureyri er undur sem flestir
hrífast af, enda þykir merkilegt að
allur sá gróður sem þar er þrífist
svona norðarlega. Gamli bærinn
á Akureyri vekur athygli og einnig
sú staðreynd að hér er flugvöllur,“
upplýsir hún glöð í bragði.
Kindin sló í gegn
Sólveig segir að sér sé minnisstætt
hversu mikla hrifningu það vakti
á meðal ferðamanna þegar rútan
þurfti að stoppa vegna þess að kind
var á veginum sem tók sinn tíma til
að víkja út af. „Þá var mikið klappað
og hlegið og gerðist oftar en einu
sinni í sumar. Gestirnir elska líka
rauðu hjörtun í umferðarljósunum
á Akureyri. Það er jú mikið betra að
rautt hjarta stöðvi umferð en rautt
umferðarljós. Það get ég vitnað
um af eigin raun. Ég breyttist í
aprílbyrjun í fjarnema við Endur-
menntun Háskóla Íslands en þar er
ég í leiðsögunámi sem er krefjandi
en afar skemmtilegt nám. Ég hef
kynnst góðu fólki sem er þar með
mér í námi og hópurinn stendur
þétt saman. Ég á því af og til leið
suður en finnst alltaf gott að koma
aftur heim á Akureyri.
Gott mannlíf og mýkri taktur
Sólveig Eiríksdóttir flutti til Akureyrar síðastliðið vor og kann mjög vel við sig í bænum. Hún vann
við að sýna ferðamönnum Norðurland í sumar en hefur nýlega hafið störf hjá Akureyrarbæ.
Sólveig stóð á tíma-
mótum og fannst
tilvalið að flytja til
Akureyrar til að vera
nær börnum og
barnabörnum. MYND/
HELENA STEFÁNSDÓTTIR
Fegurð, gróðursæld og stuttar vegalengdir er á meðal þess sem Sólveigu líkar
einna best við Akureyri. Stressið sé mun minna en í höfuðborginni.
Bærinn er þekktur fyrir gróðursæld.
Ég var í sömu sporum og margir framhaldsskólanemar þegar ég útskrifaðist frá
Verzlunarskóla Íslands árið 2014.
Ég vissi ekki hvað tæki við eftir
stúdentspróf en fann að áhugasvið
mitt lá klárlega innan raunvís-
indanna. Ég flutti til Akureyrar og
ákvað því að kanna námsframboð
við Háskólann á Akureyri. Nám
í líftækni við auðlindadeildina
vakti strax áhuga minn. Ég vissi
ekkert um þetta nám, sem reyndist
vera heil ný grein innan raunvís-
indanna, en fannst samt eitthvað
heillandi við það og ákvað að slá til
án þess að vita nákvæmlega hvað
ég væri að fara út í,“ segir Helena
Sævarsdóttir.
Þegar hún er spurð um hvað
líftækni snúist segir Helena að
skilgreina megi fagið á ótal marga
vegu sem orsakist af því hversu víð-
tæk greinin er. „Hin hefðbundna
skilgreining er að líftækni felist í
notkun lifandi frumna eða annarra
líffræðilegra kerfa, meðal annars
í iðnaði eða umhverfismálum
eða til rannsókna. Sem dæmi er
líftækniiðnaður orðinn gríðarlega
stór grein og ein af undirgreinum
hennar er lyfjaframleiðsla. Í dag
eru til dæmis átta af tíu söluhæstu
lyfjum heims líftæknilyf svo þetta
er stórt fag á alþjóðlegan mæli-
kvarða.“
Helena segir námið í líftækni
við HA hafa komið sér ánægju-
lega á óvart. „Helstu kostirnir eru
hversu þverfaglegt líftækninámið
er og ég fékk innsýn í mörg önnur
skemmtileg fög. Ég var í staðar-
námi og það hentaði mér mjög vel.
Aðgengi að kennurum er mjög gott
og öll aðstaða til náms til fyrir-
myndar, ekki síst hvað varðar verk-
lega kennslu. Rannsóknarstofur
HA eru mjög flottar og vel tækjum
búnar. Við fengum að prófa öll
tæki og vélar, sem kom sér mjög
vel í öllum verklegum tímum og
lokaverkefninu. Það er líka hægt
að vera fjarnemi í líftækni við
HA, sem hefur þann kost að fólk
getur stundað nám hvar sem er á
landinu eða jafnvel í útlöndum en
komið í háskólann stöku sinnum
í lotur.“
Félagslífið við skólann er mjög
fjölbreytt og líflegt og segist
Helena vel hafa fundið að hún var
hluti af öflugu háskólasamfélagi.
„Nemendahópurinn er þéttur,
enda færri nemendur en við aðra
háskóla, þannig að við kynntumst
vel og það var góð stemning í
hópnum.“
Að loknu námi fékk Helena strax
vinnu hjá Alvotech, sem stefnir
að því að framleiða líftæknilyf.
„Það er ótrúlega margt í boði fyrir
líftæknifræðinga og sá markaður
fer stækkandi með hverju árinu. Ég
mæli heilshugar með þessu námi,“
segir hún.
Líftæknin kom
ánægjulega á óvart
Helena Sævarsdóttir lauk BS-námi í líftækni frá Háskólanum á Akureyri fyrir stuttu og starfar nú
við sitt fag hjá lyfjafyrirtækinu Alvotech. Námið veitti henni innsýn í fleiri skemmtileg fög.
„Helstu kostirnir eru hversu þvergfaglegt líftækninámið er og ég fékk innsýn í mörg önnur skemmtileg fög. Ég var í
staðarnámi og það hentaði mér mjög vel og öll aðstaða til náms er til fyrirmyndar,“ segir Helena. MYND/ANTON BRINK
4 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U RNORÐuRLAND
3
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
8
-6
0
2
C
1
E
1
8
-5
E
F
0
1
E
1
8
-5
D
B
4
1
E
1
8
-5
C
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K