Fréttablaðið - 30.10.2017, Side 53
Stjarna í
nærmynd
Millie
Bobby
Brown
Fullt nafn Millie Bobby Brown
Fædd 19. febrúar 2004
Foreldrar Kelly og Robert Brown
Leikkonan og fyrirsætan Millie
Bobby Brown skaust upp á
stjörnuhimininn eftir frammi-
stöðu sína í þáttaröðinni Stranger
Things. Millie er fædd í febrúar
árið 2004, og er því aðeins 13 ára.
Millie byrjaði leiklistar-
ferilinn árið 2013 þegar hún lék í
þáttunum Once Upon a Time in
Wonderland. Eftir það landaði
hún nokkrum litlum hlutverkum
í ýmsum þáttum en ferillinn fór á
flug árið 2016 þegar hún fékk eitt
aðalhlutverkið í Stranger Things.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
hún stimplað sig inn í leiklistar-
heiminn og tískubransann. Millie
þykir smart með eindæmum
og slær ávallt í gegn á rauða
dreglinum. Eins hefur hún birst á
forsíðum tímarita, svo sem Inter-
view Magazine og Teen Vogue, og
í ótal tískuþáttum.
Millie fæddist á Spáni en flutti
til Englands ásamt foreldrum
sínum og systkinum þegar hún
var fjögurra ára. Síðan hefur hún
búið í London og Los Angeles.
FRÍSK hefur látið reikna út að tap iðnaðarins af sjón-varps- og kvikmynda-stuldi eingöngu er 1,1 milljarður á ári sem er mikið í okkar litla sam-
félagi,“ segir Jóhanna Margrét Gísla-
dóttir, dagskrárstjóri Stöðvar 2, en
fjölmargir þættir stöðvarinnar eru
gríðarlega vinsælir á niðurhalssíðum
og er niðurhalað án endurgjalds.
Þáttaraðirnar Leitin að upprunanum
og Fósturbörn eru þar í efstu sætum.
Raunheimar og internetheimar
lúta sömu lagareglum en lögreglan
hefur ekki mannafla til að rannsaka
og taka til meðferðar kærur sem ber-
ast henni um ólöglegt niðurhal. Sam-
kvæmt höfundarlögum varðar það
sektum eða fangelsi í tvö ár að brjóta
þau.
Jóhanna segir að einstaklingar
verði áfram kærðir fyrir að setja höf-
undarréttarvarið efni inn á ólöglegar
síður. „Lögreglan þarf að taka til rann-
sóknar kærur sem hefur verið beint
gegn þeim sem talið er að reki síð-
urnar og þá stærstu sem eru í því að
setja þar inn íslenskt efni.
Kærur þess efnis hafa verið
sendar til lögreglu bæði af FRÍSK
og okkur hjá 365 miðlum og hald-
ið verður áfram að kæra helstu
aðila sem setja inn íslenskt efni.
Rétthafar hafa fengið lögbann sett
á fjarskiptasíðurnar til að lágmarka
aðgang að þeim sem hefur haft tölu-
verð áhrif en betur má ef duga skal og
þar þurfum við lögregluna með okkur
í lið,“ segir hún.
Í könnun frá 2016, sem Capacent
gerði, kom í ljós að 37 prósent þátt-
takenda stunda ólöglegt niðurhal
á efni. „Það er mjög alvarlegt mál
hversu léttvægt Íslendingum finnst að
stela efni á netinu. Í nágrannalöndum
okkar eru mun harðari viðurlög og
fylgst grannt með því af netveitum og
lögreglu. Því er fólk meira meðvitað
um að það er glæpur að ná í efni án
greiðslu.
Mér finnst mjög sorglegt að sjá
fólk deila slóðum á efni eins og ekk-
ert sé eðlilegra á netinu, sérstaklega á
íslenskt efni, þegar hægt er að nálgast
það á löglegan máta á auðveldan hátt.
Löglegum leiðum til að nálgast
efni hefur fjölgað gríðarlega síðustu
ár með tilkomu fjölda streymisveita
eins og okkar þjónustu, Stöð 2 Mara-
þon NOW, þar sem er hægt fyrir
undir 4.000 kr. á mánuði að styðja
við íslenska framleiðslu og fá mikið
af bæði íslensku og erlendu gæðaefni
á löglegan máta,“ segir Jóhanna.
benediktboas@365.is
Stolið fyrir
milljarð á
hverju ári
„Íslenskt efni verður ekki sett á hakann en það heftir vöxt á framleiðslu að
stór hluti áhorfenda horfir með ólögmætum hætti sem skilar sér ekki til
þeirra sem framleiddu efnið,“ segir Jóhanna.
Jóhanna
Margrét
Gísladóttir,
dagskrár-
stjóri
Stöðvar 2.
Tveir sem vekja aðdáun
Fylgdu okkur á Facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi.
Hvor hentar þér betur?
Kia cee'd bíður þín í Öskju. Komdu og prófaðu.
cee’d og cee'd Sportswagon eru öflugir meðlimir Kia fjölskyldunnar. Sportswagon er sérlega rúmgóður og hentar
því vel fyrir meiri farangur. Báðir eru þeir einstaklega sparneytnir og eyða frá 4,2 l/100 km í dísilútgáfu, hvort
sem þú velur fágaða 6 gíra beinskiptingu eða 7 þrepa DCT sjálfskiptingu — sem felur í sér enn hraðari skiptingu.
Þá eru þeir hlaðnir nýjustu gerð tæknibúnaðar. Öllum nýjum Kia bílum fylgir sjö ára ábyrgð.
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum
*Mánaðarleg afborgun miðast við 8,15% vexti og 50% bílalán
til 84 mánaða. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 9,43%.
Bílalánstölur eru viðmiðunarverð og geta breyst án fyrirvara.
Verð frá 2.990.777 kr.
Kia cee’d SW LX — 1,0 Kappa, bensín,
100 hö, 6 gíra, 5 dyra, beinskiptur
23.777 kr. á mánuði*
Útborgun 1.495.388 kr.
*Mánaðarleg afborgun miðast við 8,15% vexti og 50% bílalán
til 84 mánaða. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 9,43%.
Bílalánstölur eru viðmiðunarverð og geta breyst án fyrirvara.
Verð frá 2.790.777 kr.
Kia cee’d LX — 1,0 Kappa, bensín,
100 hö, 6 gíra, 5 dyra, beinskiptur
22.777 kr. á mánuði*
Útborgun 1.395.388 kr.
Íslendingar hala niður
stolnu efni fyrir meira
en milljarð króna
samkvæmt útreikn-
ingum FRÍSK, félags
rétthafa í sjónvarps-
og kvikmyndaiðnaði.
Þættir Stöðvar 2
gríðarlega vinsælir
en sekt eða tveggja
ára fangelsi liggur
við því að stela kvik-
myndum og þáttum.
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 25M Á N U D A G U R 3 0 . o k T ó B e R 2 0 1 7
3
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
8
-2
E
C
C
1
E
1
8
-2
D
9
0
1
E
1
8
-2
C
5
4
1
E
1
8
-2
B
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K