Morgunblaðið - 11.02.2017, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 1 1. F E B R Ú A R 2 0 1 7
Stofnað 1913 36. tölublað 105. árgangur
N1 kortið
færir þér
bæði afslátt
og punkta
LJÓSMYNDIR
FRÁ NA-HORNI
LANDSINS
SAMSTAÐA
GEGN
OFBELDI
UN W0MEN 12CHRISTOPHER TAYLOR 46
Frá Kópavogshæli Talsverð umræða hef-
ur verið undanfarið um aðbúnað fólks þar.
Þó að margt hafi áunnist í mál-
efnum fatlaðs fólks síðan Kópa-
vogshæli var starfrækt, er enn
margt ógert. Þó að stórum stofn-
unum fyrir fatlað fólk hafi nú verið
lokað er ekki þar með sagt að stofn-
anamenning hafi lagst af. Þetta
segja tveir þroskaþjálfar sem hafa
starfað með fötluðu fólki í áratugi,
þeir Magnús Helgi Björgvinsson og
Þóroddur Þórarinsson.
Báðir störfuðu þeir á Kópavogs-
hæli á 9. og 10. áratug síðustu aldar
og segja að þá hafi vistfólkið verið
beitt ýmsum refsingum. Algengt
hafi t.d. verið að neita fólki um það
sem því þótti gott, eins og t.d. kaffi.
Þá var vatni sprautað á fólk til að fá
það ofan af hegðun sem þótti óæski-
leg. »2 og 10
Margt ógert í mál-
efnum fatlaðs fólks
Agnes Bragadóttir
Jón Birgir Eiríksson
Tap vegna verkfalls sjómanna er
metið fleiri milljarðar króna og
standi verkfallið lengur er áætlað að
tapið geti numið um það bil milljarði
á dag. Þetta kemur fram í skýrslu
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra um áhrif verkfallsins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, segir skýrsluna ekki leysa
kjaradeiluna en hún varpi þó ljósi á
þjóðfélagslegt tap deilunnar og gæti
nýst í framtíðinni.
Þorgerður Katrín ítrekaði í gær
ákvörðun sína um að mæla ekki fyrir
lögbanni á sjómannaverkfallið.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi, efast um að
skýrslan sé liður í lausn deilunnar og
segir fátt koma á óvart við lestur
hennar. Hún segir ólíklegt að tapið
megi vinna upp síðar. Ef það verði
gefinn út aukinn loðnukvóti gæti það
haft mikil áhrif ef verkfallið stendur
þá enn. Loðnuvertíðin stendur yfir
frá miðjum febrúar og fram í mars.
Samfélagið í Eyjum í lægð
Valmundur Valmundsson, for-
maður samninganefndar sjómanna,
sagði einnig fátt stinga í augu við
lesturinn. Vitað hefði verið að það
ætti eftir að veiða upp kvótann og
mögulega tækist ekki að vinna upp
missinn. Sjómenn mundu kanna
stöðuna í baklandi sínu um helgina.
Áhrifin á sveitarfélög þar sem
sjávarútvegur er undirstaða tekna
eru mikil. Tap vegna lægra útsvars,
lægri hafnargjalda og greiðslna úr
félagslegum sjóðum hefur haft mikil
áhrif á rekstur sveitarfélaga.
Arnar Hjaltalín, formaður stétt-
arfélagsins Drífanda í Vestmanna-
eyjum, segir stöðnun í bæjarlífinu
öllu vegna verkfallsins. Fáir sjáist á
götum úti og starfsemi fyrirtækja
hafi raskast, ekki aðeins þeirra sem
sinni sjávarútvegi með beinum
hætti.
Um helmingur íbúa í Vestmanna-
eyjum starfar á sjó eða í fiskvinnslu.
Að sögn Arnars eru félagsmenn
Drífanda flestir á bótum vegna at-
vinnuleysis. Hann segir þá óþreyju-
fulla eftir því að hefja störf að nýju
og halda áfram sínu daglega lífi.
Lamandi áhrif verkfalls
Skýrsla ráðherra varpar ljósi á áhrif verkfalls sjómanna Tapið milljarður á
dag, verði ekki samið Sjávarpláss finna fyrir talsverðri stöðnun og atvinnuleysi
Tekjutap vegna verkfalls
- 14. des. 2016 til 10. feb. 2017
2.
55
7
3.
57
3
1.
0
0
8
81
8
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
Milljónir
* áætlun
Ríkissjóður
SveitarfélögFiskverkafólk
Sjómenn Útgerðin
3.
50
0
-5
.0
0
0
*
MTapið fleiri milljarðar »4
Landhelgisgæslan, sérsveit Ríkislögreglustjóra
og Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu efndu á
dögunum til sameiginlegrar köfunaræfingar í
Helguvíkurhöfn. Æfingin var lokahnykkurinn á
námskeiði sem veitir réttindi til atvinnuköfunar.
Kafararnir voru látnir síga í sæ í körfu af þil-
fari varðskipsins Týs en það mun vera öruggara
en að þeir varpi sér sjálfir fyrir borð. „Kaf-
ararnir okkar verða að vera klárir í hvað sem er
og við þurfum menn sem bæði geta unnið með
höfðinu og höndunum,“ segir Sigurður Ásgríms-
son, yfirmaður séraðgerða- og sprengjueyðing-
arsveitar Landhelgisgæslunnar, en kafarar
Gæslunnar heyra undir hann.
Einn kafaranna, Sverrir Harðarson, segir köf-
unina afar spennandi. „Það er allt annar heimur
þarna niðri. Umhverfið og öll vinnan er spenn-
andi og krefjandi, auk þess að vera grunnur að
öllu starfi í séraðgerða- og sprengjueyðing-
arsveitinni.“ Nánar er fjallað um æfinguna í máli
og myndum í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Golli
Í öðrum heimi í undirdjúpunum
Fylgst með sameiginlegri köfunaræfingu í Helguvíkurhöfn
Dregið hefur
úr kannabis-
neyslu pilta í
framhalds-
skólum en neysla
stúlkna stendur í
stað. Þetta er
meðal nið-
urstaðna rann-
sóknarinnar
Ungt fólk 2016.
Rannsóknin
sýnir ennfremur að ungmenni, sem
neyta kannabisefna, meta sjálf sig á
neikvæðari hátt en þau sem ekki
neyta slíkra efna. T.d. meta þau lík-
amlega og andlega heilsu sína lak-
ari og eiga síður von á að ljúka
námi á tilteknum tíma. »16
Kannabisneysla hef-
ur áhrif á sjálfsmat
Kannabis Áhrifin
eru margvísleg.