Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 36

Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 ✝ Árni Þorvalds-son fæddist 27. mars 1956 á Ak- ureyri. Hann lést 25. janúar 2017 á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri. Hann var sonur hjónanna Þorvald- ar Nikulássonar, f. 26. mars 1927, d. 7. ágúst 2004, og Kol- brúnar Kristjáns- dóttur, f. 3. október 1932. Systk- ini Árna eru: 1) Anna Sigríður Berg, f. 24. desember 1952, gift Stefan Berg, búa þau í Svíþjóð og eiga tvö börn. 2) Kristján Ás- geir, f. 30. júlí 1951, giftur Ast- rid Stöm, þau búa í Noregi, hann á þrjár dætur. 3) Smári, f. 9. júlí 1954, giftur Marianne Berg, þau búa í Noregi og eiga tvær dæt- ur. 3) Margrét, f. 11. janúar 1958, gift Kristján Kristjáns- syni, þau búa á Akranesi og eiga þrjá syni. 4) Magnús Már, f. 11. Gámaþjónustu Norðurlands, sambýliskona hans er Dísa Rún Jóhannsdóttir, f. 8. febrúar 1994, móttökustjóri hjá Hótel KEA. Þau búa á Akureyri. 3) Kristjana Íris, f. 18. október 1996, á milli starfa, unnusti hennar er Daníel Freyr Sig- marsson, f. 2. desember 1994, vinnur í Becromal. Þau búa á Akureyri. Árni gekk í Barna- skóla Akureyrar, hann byrjaði ungar að vinna hjá Pósti og Síma þar sem faðir hans „Valdi Nikk“ var verkstjóri. Síðar fór hann til Vegagerðarinnar þar sem hann vann stærstan hluta ævi sinnar sem veghefilsstjóri. Vélar og tæki og voru hans aðal- áhugamál og reyndi hann fyrir sér með eigin rekstur slíkra tækja um tíma. Árni var trún- aðarmaður Vegagerðarinnar í mörg ár, hann var mikið fyrir útivist og gekk á mörg fjöll hér á land. Hann fór til Noregs til dóttur sinnar eins oft og hann gat svo hann gæti notið sam- vista við litlu afastrákana sína. Útför Árna var gerð frá Ak- ureyrarkirkju 2. febrúar 2017. janúar 1958, giftur Dagnýju Sigríði Sigurjónsdóttur, þau búa á Vopna- firði og eiga sex börn. 5) Helga Gunnur, f. 18. júní 1968, gift Þorleifi Eggertssyni, þau búa í Reykjavík og eiga tvö börn. Hinn 18. apríl 1981 gift- ist Árni Ingunni Kristínu Baldursdóttur, f. 28. maí 1962, dóttir hjónanna á Hlíðarenda, Baldurs Halldórs- sonar og Jóhönnu Lárusdóttur. Þau slitu samvistum 2002. Börn Árna og Ingunnar eru: 1) Jó- hanna Steinunn, kennari f. 2. desember 1983, sambýlismaður hennar er Björn Helgason raf- virki, f. 11. ágúst 1978, saman eiga þau synina Ingvar Helga, f. 2006, og Hákon Árna, f. 2010. Þau búa í Noregi. 2) Baldur Helgi, f. 4. apríl 1991, vinnur hjá Elsku besti pabbi minn. Ég er ennþá að reyna að átta mig á því að þú sért farinn frá okkur. Mér finnst þetta svo ósanngjarnt, að hrausti pabbi minn, sem labbaði upp á fjöll og sem hafði svo gaman af lífinu, þurfti að tapa eftir frekar stutta baráttu við vægðarlausan sjúk- dóm. Ég er svo sorgmædd, en svo reyni ég að vera þakklát fyrir tímann sem þú áttir, 59 hraust ár áður en krabbameinið kom. Ég er þakklát fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, þú hafðir alltaf tíma fyrir mig, og með ár- unum vorum við ekki bara feðgin, heldur svo miklir vinir. Þú hafðir svo þægilega nærveru, þú varst aldrei að flýta þér, og varst yf- irleitt til í að brasast með mér. Þú varst ekki bara skemmti- legur pabbi, Þú varst líka skemmtilegur afi , stundum kall- aður „litli afi“ , og mér finnst svo leiðinlegt að strákarnir fái ekki að hafa afa sinn lengur hjá sér. Einnig er sárt að hugsa til þess að það sé alveg að koma nýtt barnabarn sem fær aldrei að hitta afa sinn. En ég er viss um að Balli mun vera duglegur að tala um þig og leyfa barninu að kynnast þér í gegnum allar skemmtilegu sög- urnar og minningarnar. Okkar bestu stundir voru þeg- ar þú komst út að heimsækja okkur, og þú varst svo duglegur að koma, ég á eftir að sakna heimsókna þinna óbærilega mik- ið. Og ég kvíði fyrir jólunum, við áttum okkur svo ótrúlega margar jólahefðir, og hver á nú að keyra út jólakortin með mér, og nöldra allan tímann yfir því af hverju við sendum ekki bara jólakortin. Þegar ég hugsa um þig sé ég þig fyrir mér að segja sögur og hlæja þínum skemmtilega hlátri. Þú ert með kaffibollann fyrir framan þig, að sjálfsögðu uppá- hellt kaffi, því annað var náttúr- lega viðbjóður, og enginn hellti upp á jafn gott kaffi og þú. Svo ertu líka pínu að stríða, því þú varst ótrúlega skemmtilega stríðinn. Síðustu nóttina sem þú varst á þessari jörðu þá var ég hjá þér, eins undarlegt og það er að skrifa það þá fórstu á ótrúlega fallegan hátt, við héldumst í hendur, og þú kvaddir. Okkar lokaorð voru líka yndisleg, og þau mun ég varð- veita í hjarta mínu að eilífu. Takk fyrir alla gleðina, takk fyrir alla athyglina, og takk fyrir allar kaffihúsaferðirnar. Takk fyrir að hafa verið pabbi minn í 33 ár og að eilífu í hjarta mínu. Ég vona að þú vitir hversu ómetan- legur þú ert mér. Ég veit að Valdi afi, Hanna amma og Baldur afi hafa tekið vel á móti þér. Hvíldu í friði, elsku pabbi minn, og við sjáumst seinna. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð- leg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. (Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Þín Jóhanna (litli nabbi). Elsku vinur og tengdapabbi. Ég vildi bara þakka þér fyrir samfylgdina síðastliðnu 16 ár. Árni var góður maður, sem kvaddi allt of snemma. Árni vildi öllum vel, og það endurspeglaðist í veikindum Árna hversu ótrú- lega marga góða vini sem og ætt- ingja hann átti. Ég og Árni urðum strax vinir enda ótrúlega þægilegur og glað- lyndur maður, sem gott var að vera í kringum. Ég mun sakna allra Steven Seagal-myndakvöldanna okkar. Takk fyrir allt, kæri vinur, sjáumst hinum megin og hver veit nema að ég kunni að blístra betur en þú þá. Þinn Björn Helgason. Elsku afi minn. Þú varst besti afi í heimi, það var gaman að leika með legó með þér, þú varst svo flinkur að byggja hús, ég á ennþá húsið sem þú kubbaðir fyrir löngu. Það var svo gaman að fá að koma með þér í vinnuna og svo var alltaf rosa gaman þegar við horfðum á mynd með nammi og popp. Ég vildi óska að þú gætir horft meira með okkur á mynd. Þú varst góður afi. Ég mun sakna þín mikið, elsku afi. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Þinn Ingvar Helgi Björnsson. Árni Þorvaldsson Ransý og Bob áttu fjögur börn, Jónínu Maríu (Nínu), f. 1950, Marlow, f. 1953, John, f. Rannveig Jóns- dóttir Sommer ✝ Rannveig,Ransý, Jóns- dóttir Sommer fæddist 15. ágúst 1928. Hún andaðist 7. janúar 2017. Útför Ransýjar fór fram 15. janúar 2017 og jarðsett var í Hillcrest Me- morial Gardens- kirkjugarðinum í Leesburg, Flórída. 1956, og Róbert, f. 1961 d. 1984. Fjöl- skyldan bjó að Hólagötu 33 í Njarðvíkum. Ransý mín varð 88 ára gömul. Hún var 35 ára árið 1963 þegar fjöl- skyldan flutti bú- ferlum frá Njarð- víkum til Kúbu. Bob hafði fengið yfirmannsstöðu við slökkvilið Bandaríkjamanna í Guant- anamo-herstöðinni á Kúbu. Þau voru öll mjög spennt fyrir nýja lífinu sem biði þeirra í sól og hita en ég stóð sorgmædd hjá. Við Nína vorum óaðskiljanleg- ar, hvernig átti ég að lifa lífinu án hennar og án fjölskyldunnar þar sem ég hafði átt mitt annað heimili í mörg ár. Ég var 14 ára og Nína árinu yngri. En lífið heldur áfram og við áttum okkur smám saman á því að það er eðlilegt að gráta þá sem við elskum, fólkið sem hef- ur auðgað líf okkar, umvafið okkur elsku sinni og gert okkur að þeim einstaklingum sem við erum. Ransý var ein þeirra í mínu lífi. Hún var einstaklega góð manneskja. Ef Nína fékk dúkku eða dót, þá fékk ég alveg eins, þegar fjölskyldan gerði sér glaðan dag var ég alltaf tekin með. Ég á ótæmandi minningar um ævintýraferðir með þeim innan vallargirðingar varnar- liðsins og lautarferðir á Reykja- nesskaganum. Ransý og Bob voru ávallt samtaka í þessari elsku sinni til mín. Bob átti alls konar áhugamál og á ferming- ardegi mínum færði hann mér sérstaka gjöf frá sér sem tengd- ist einu slíku. Ransý átti yndislega móður, Jónínu Ólafsdóttur, sem lést 94 ára gömul árið 1993. Gamla konan vildi ekki fara til Am- eríku en ef fjallið kemur ekki til Múhameðs þá kemur bara Mú- hameð til fjallsins. Þannig var það, Ransý kom reglulega til Ís- lands og vék þá ekki frá móður sinni. Þær voru samrýndar mæðgur og þeir sem vildu sjá Ransý urðu að fara á Sólvalla- götuna þar sem Jónína bjó. Þangað var gott að koma, þar var ilmandi kaffi, kökur og gleði. Ransý elskaði móður sína og hún elskaði börnin sín. Hún hafði ríkar tilfinningar sem hún tjáði í orðum en ekki síður í verkum. Verkum sem höfðu það eitt að markmiði að hlúa að og gleðja okkur hin. Minningin um fyrstu ferð mína og fjölskyldu minnar til Ameríku eru dýrmætari en orð fá lýst. Silkisængurföt, dún- mjúk rúmin, jólakökur, pönnu- kökur, dásamlegur matur, endalaus ást og umhyggja. Ransý mín var atorkusöm og ósérhlífin. Hún sparaði aldrei krafta sína fyrir okkur sem ná- lægt henni vorum. Amerísku fjölskyldu minni leið vel á Kúbu en allt hefur sinn tíma. Þau fluttu sig yfir til Flórída þegar Bob fór á eft- irlaun. Í Flórída komst Ransý í meiri nálægð við Íslendinga. Það var henni dýrmætt því hún var mikill Íslendingur í sér. Hún talaði alltaf við dóttur sína á íslensku og ég er stolt af því, að þrátt fyrir að Nína mín hafi aðeins verið 13 ára gömul þegar hún yfirgaf ísland 1963, talar hún lýtalausa íslensku. Ransý vildi vera mamma mín í Ameríku og ég dóttir hennar á Íslandi. Með þeim orðum hófust bréfin ævinlega á milli okkar og þannig lauk þeim. Elsku Ransý mín, Guð geymi þig og varðveiti í ljósi sínu. Ég hlakka til að sjá þig aftur hjá Guði. Þín dóttir á Íslandi, Stella. FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is AF ÖLLUM LEGSTEINUM Í FEBRÚAR Verið velkomin AFSLÁTTUR áður kr. 245.000 kr. 220.000 Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, GUÐRÚN MATTHÍASDÓTTIR myndlistarmaður, Suðurlandsbraut 62, Reykjavík, lést sunnudaginn 5. febrúar á hjúkrunar- heimilinu Mörk. Útför hennar fer fram frá Kristskirkju Landakoti þriðjudaginn 14. febrúar klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Sigurður St. Helgason Matthías Sigurðarson Dalla Ólafsdóttir og barnabörn Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EMANUEL LINO CILIA framkvæmdastjóri, frá Möltu, lést á Möltu mánudaginn 6. febrúar. Útför hans fór þar fram fimmtudaginn 9. febrúar. Victoria Cassar Ivon Stefán Cilia Harpa Cilia Ingólfsdóttir Victor Guðmundur Cilia Solveig Óladóttir María Dís Cilia barnabörn og barnabarnabarn Okkar ástkæra JENNÝ JÓNSDÓTTIR, Markarvegi 17, lést á Sólteigi Hrafnistu laugardaginn 4. febrúar. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 14. febrúar klukkan 13. Grímur Ormsson Birna Grímsdóttir Benedikt Jóhannsson Inga Grímsdóttir Óðinn Grímsson Kristín Birgisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÖRNÓLFUR THORLACIUS, fyrrverandi rektor MH, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 15. febrúar klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Sigurður Thorlacius Sif Eiríksdóttir Arngrímur Thorlacius Elísabet Axelsdóttir Birgir Thorlacius Rósa Jónsdóttir Lárus Thorlacius Þóra Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍSABETAR EINARSDÓTTUR frá Reykjadal, Hrunamannahreppi, síðast til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vitatorgs á Hrafnistu, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Einar Bragason Bára Bragadóttir Baldur Þór Bragason Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, dóttir og systir okkar, INGIBJÖRG BRAGADÓTTIR, lést síðastliðinn sunnudag, 5. febrúar. Útför fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 15. febrúar klukkan 15. Fyrir hönd aðstandenda, Bragi Hinrik Magnússon Katrín Eyjólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.