Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017
✝ Guðrún ÓlínaValdimarsdótt-
ir Thorarensen
fæddist á Akureyri
17. september
1938. Hún lést á
dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 21. janúar
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Valdimar
Thorarensen, f.
1910, d. 1974, og Lára Hall-
grímsdóttir, f. 1917, d. 1973.
Fósturforeldrar Guðrúnar voru
Jónas Þorleifsson, f. 1897, d.
1972, og Halldóra Hannesdóttir,
f. 1886, d. 1968. Systkini Guð-
rúnar voru: Jakob, f. 1937, d.
2012, Júlíus, f. 1940, Soffía, f.
1942, d. 2008, Valdimar, f. 1944,
Leifur, f. 1945, Miriam, f. 1950,
Lára, f. 1952, Margrét, f. 1953,
Halla, f. 1958. Fóstursystir var
rún upp hjá fósturforeldrum
sínum að Bitru í Kræklingahlíð
og tók virkan þátt í bústörfum á
bernsku- og æskuárum. Eftir að
hún fluttist til Akureyrar og
giftist Hólmsteini stundaði hún
húsmóðurstörf meðan börnin
voru að vaxa úr grasi. Hún
hjúkraði einnig öldruðum
tengdaforeldrum sínum af mik-
illi nærgætni og umhyggju. Þeg-
ar börnin voru komin á ung-
lingsár hóf hún störf á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri og
síðar á Dvalarheimilinu Hlíð.
Hún starfaði í Hlíð í 18 ár. Árið
2006 fluttist Guðrún til Hvera-
gerðis og átti þar heima í sjö ár.
Þegar heilsan fór að bila fór hún
á dvalarheimilið Ás í Hvera-
gerði og síðar á Grund í Reykja-
vík. Hún var á Grund þrjú síð-
ustu æviár sín. Útför Guðrúnar
fór fram í kyrrþey 2. febrúar
2017.
Júlía Jónasdóttir, f.
1927, d. 2008. Eig-
inmaður Guðrúnar
var Hólmsteinn
Hreiðar Aðalgeirs-
son, f. 1924, d.
1997, giftu þau sig
27. desember 1970
og bjuggu alla tíð á
Akureyri. Börn
þeirra eru þrjú: 1)
Aðalgeir, f. 1970,
maki Steinunn
Thorarensen. Börn þeirra eru
Stefanía, Silja og Jóhanna Guð-
rún. 2) Hólmsteinn Eiður, f.
1972, maki Una Margrét Jóns-
dóttir. 3) Alma Lára, f. 1979,
maki Leó Örn Þorleifsson. Börn
þeirra eru Rósa og Katla Anný.
Fyrir átti Alma dótturina Anítu
Hrund með Hjalta Jónssyni og
Leó soninn Hákon Frey með
Evu Bragadóttur.
Frá fimm ára aldri ólst Guð-
Stundum hefjast draumarnir
á gulu fati. Það eru góðir
draumar. Þá er ég með mömmu
að baka. Núna er mamma dáin
en minningar lifa. Í endaskápn-
um við eldhúsvaskinn á
bernskuheimilinu var gult fat.
Gula fatið var fullt af bökunar-
formum og ég mátti velja hring-
form, aflangt form eða form fyr-
ir svamptertubotn. Við mamma
vorum afskaplega lík og miklir
sálufélagar og stundum vorum
við sammála um að baka brún-
köku. Öryggi bernskunnar var
tryggt í sætum kryddilmi kök-
unnar og mamma horfði út um
eldhúsgluggann.
Æskuminningar vakna í
draumunum og mamma alltaf
heima. Við bjuggum við fjöruna
í innbænum á Akureyri og það
var gróinn stígur, sem tengdi
brekkuna við innbæinn. Lítill
drengur kom hlaupandi niður
stíginn eftir skóla og mamma
alltaf heima. Núna er gott að
sofna með áhyggjur á herðun-
um, þá kemur litli drengurinn
hlaupandi. Og mamma í eldhús-
glugganum. Öryggið rammað
inn í brúnkökuilm og heitt
súkkulaði á köldum dögum.
Ég man brúnkökuna, ég man
mömmu í eldhúsglugganum. Og
þetta er allt saman horfið. En
minningin lifir. Og minningin
bjargar mér í gegnum einmana-
kennd fullorðinsáranna. Fersk-
ur ilmur af nýþvegnum þvotti
og við mamma að taka inn af
þvottasnúrunni. Mamma tekur
þvottinn af snúrunni og ég brýt
hann saman ofan í balann. Það
er alveg að koma rigning, en
það er allt í lagi, því mamma er
hjá mér.
Mamma gat ekki dáið frá litla
stráknum sínum svöngum. Ófær
um að geta talað lá hún fárveik í
rúminu sínu á dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund og fullur
af fallegum minningum gekk ég
inn í eldhús dvalarheimilisins.
Dánardagurinn var laugardagur
og því hrundu tárin ofan í salt-
fisk og grjónagraut. Laugar-
dagsmaturinn hjá mömmu.
„Takk fyrir mig, mamma,“ sagði
ég um leið og ég lagði diskana
ofan í eldhúsvaskinn. Og mér til
mikillar gleði kraup lítill dreng-
ur við endaskápinn og var að
undirbúa bakstur á brúnköku.
Hann var með hendurnar á kafi
ofan í gulu fati.
Þinn sonur,
Eiður.
Elsku mamma. Þá ert þú far-
in og eins og þín var von og
vísa bar kveðjustundina brátt
að. Ég vil þakka þér fyrir að
hafa ávallt verið til staðar fyrir
okkur fólkið þitt. Takk fyrir allt
góða veganestið sem þú settir í
bakpokann minn þegar ég hélt
út í lífið. Takk fyrir það sem þú
kenndir mér varðandi umburð-
arlyndi, æðruleysi og mennsku.
Í huganum hverf ég á
bernskuslóðir norður til Akur-
eyrar og finn ilminn af nýsteikt-
um kleinum úr eldhúsinu þínu.
Í hugskotið sæki ég minningar
frá árunum á æskuheimilinu við
Hafnarstrætið. Einmitt þar
smíðuðum við saman þá um-
gjörð sem síðar gerði mér kleift
að setja sjálfum mér raunhæf
markmið og vinna að þeim
hægt og rólega. Takk fyrir allt,
mamma, og einhvern tíma á
öðrum stað, sjáumst við
kannski aftur.
Aðalgeir Hólmsteinsson.
Elsku mamma, það er óraun-
verulegt að sitja og skrifa
minningarorð um þig.
Orð eru fátækleg á svona
stundu en mig langar með þess-
um fáu orðum að minnast þín.
Minningarnar eru margar, þær
ylja og þær hugga.
Efst í huga mér er mikið
þakklæti fyrir að hafa átt þig að
og djúpur söknuður.
Þú varst einstök og mér svo
mikils virði, ég á ekki nógu
sterk orð til að lýsa því.
Góðmennska, hlýja og fórn-
fýsi var það sem einkenndi þig
svo mikið. Þú vildir allt fyrir
fólkið þitt gera og þú stóðst
þétt við bakið á þeim sem þér
þótti vænt um.
Ég var ekki auðvelt barn og
unglingur og því fékkst þú
sannarlega að finna fyrir, elsku
mamma mín. Alltaf gat ég samt
treyst því að þú værir til stað-
ar. Þú dæmdir mig ekki, heldur
sýndir mér skilyrðislausa ást
þegar ég átti það hvað síst skil-
ið.
Takk fyrir það, elsku mamma
mín.
Ég elska þig og söknuðurinn
er sár en ég veit að þú ert á
góðum stað núna, laus við þján-
ingar. Fallegu minningarnar
um þig munu lifa með mér alla
ævi.
Takk fyrir allt, elsku
mamma.
Ég veit að þú verður alltaf
hjá mér. Við sjáumst þegar
mínu ferðalagi í þessari jarðvist
lýkur.
Þín dóttir,
Alma Lára.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Inntak þessarar fallegu lag-
línu Braga Valdimars Skúlason-
ar ætti að vera eitt helsta leið-
arstefið í lífinu.
Í dag kveð ég tengdamóður
mína Guðrúnu Ólínu Valdimars-
dóttur, eða Diddu eins og hún
var oftast kölluð. Diddu kynnt-
ist ég fyrst á vormánuðum árs-
ins 2003. Á þeim tíma var ég að
byrja að slá mér upp með Ölmu
Láru, dóttur hennar, sem þótti
það bráðsnjallt, svona á fyrstu
metrum tilhugalífsins, að kynna
mig fyrir mömmu sinni sem tók
mér strax opnum örmum. Ég
man að Didda var þá stödd á
sínu gamla heimili, Hafnar-
stræti 17 á Akureyri, og var að
brasa eitthvað í eldhúsinu á efri
hæðinni. Ég þurfti ekki langan
tíma til að sjá að þar færi kona
sem væri mér að skapi. Eftir á
að hyggja var bráðsnjallt hjá
Ölmu Láru að tvínóna ekki við
hlutina heldur leiða okkur
Diddu sem fyrst saman, það
varð mitt lán sem ég fæ seint
fullþakkað.
Með okkur Diddu tókst strax
mikill og góður vinskapur sem
mér þótti vænt um frá fyrsta
degi. Hún var hrein og bein, hlý
og saklaus en gat sagt hlutina
eins og þeir voru ef því var að
skipta og aldrei þóttist hún
vera annað en hún var. Í mín-
um huga var hún gædd mörg-
um af þeim fallegu gildum sem
einkennt hafa íslensku ömmuna
í gegnum tíðina og margir
kannast við. Kannski fann ég
ömmu í Diddu? Það var gott að
tala við Diddu, hún sýndi manni
áhuga, hlustaði og spurði og var
annt um heilsu og velferð fjöl-
skyldunnar. Hún spurði t.d.
alltaf fregna af foreldrum mín-
um og systkinum og tók syni
mínum sem sínum eigin.
Hjartalag hennar var fagurt.
Ég minnist þess þegar Didda
fluttist til Hveragerðis frá Ak-
ureyri, þá orðin nokkuð full-
orðin, hvað ég óttaðist að það
yrðu ekki góð vistaskipti fyrir
konu á hennar aldri komin fast
að sjötugu. En sem betur fer
var sá ótti ástæðulaus. Það var
eins og Didda fyndi nýtt upp-
haf í Hveragerði. Henni leið vel
og eignaðist fljótt marga vini.
Hún blómstraði. Það var gam-
an að heimsækja Diddu í
Hveragerði og ekki skorti veit-
ingarnar. Það færðist alltaf yfir
mig svo mikil ró og værð í
heimsóknunum til hennar. Hjá
henni var gott að hlaða batt-
eríin. Því miður tók skrokk-
urinn á Diddu að gefa eftir í
Hveragerði eftir lífsins strit,
sem varð til þess að hún fluttist
á dvalar- og hjúkrunarheimilið
Grund í Reykjavík. Þar var
henni sinnt af ástúð fjölskyldu
og starfsfólks allt þar til yfir
lauk.
Ekki hefði mig grunað þegar
fregnir bárust af veikindum
Diddu á miðvikudegi að hún
myndi kveðja okkur strax
næsta laugardag. En mikið
rosalega er ég þakklátur fyrir
að hafa náð suður í tæka tíð og
að hafa átt með henni mik-
ilvægan fund áður en hún hóf
ferðalagið í Sumarlandið.
Elsku Didda, að leiðarlokum
vil ég þakka fyrir allar stund-
irnar og samtölin sem við átt-
um saman. Þú skilur eftir þig
falleg spor og góðar minningar.
Við munum taka upp þráðinn
þar sem frá var horfið í Sum-
arlandinu þegar mitt sólarlag
kemur.
Leó Örn Þorleifsson.
Við Didda vorum þremenn-
ingar, en mikill aldursmunur á
okkur og ég kynntist henni
ekki fyrr en samband hafði tek-
ist með mér og Eiði syni henn-
ar sem nú er maðurinn minn.
Hún bjó á Akureyri og ég hitti
hana sem snöggvast sumarið
1997 þegar við Eiður vorum
„bara vinir“. Skömmu síðar
ákváðum við Eiður hins vegar
að gera það opinbert að við
værum „saman“. Svo vildi til að
um haustið lést pabbi Eiðs og
það var því við jarðarför hans
sem ég hitti fyrst móður hans
og systkini sem kærasta Eiðs.
Ég var hálfóörugg með mig í
þessu nýja hlutverki. Hvað ef
allt færi nú út um þúfur hjá
okkur Eiði og við þyrftum svo
að láta fjölskylduna vita eftir
stuttan tíma að við værum alls
ekki „saman“? En Didda var
ekki með neinar efasemdir.
Þegar ég kvaddi hana eftir
jarðarförina til þess að fljúga
aftur heim faðmaði hún mig að
sér og hvíslaði að mér: „Þú ert
elskuleg tengdadóttir.“
Ég var undrandi að hún
skyldi segja þetta við stelpu
sem hún þekkti sama og ekk-
ert. En þessar hlýlegu mót-
tökur gáfu tóninn fyrir fram-
komu Diddu í minn garð æ
síðan. Hún vildi allt fyrir mig
gera. Við Eiður gistum nokkr-
um sinnum hjá henni meðan
hún bjó á Akureyri. Hún hafði
komið til okkar í Reykjavík og
vissi hvað mér fannst best að
borða í morgunmat og það
brást ekki að hún var búin að
kaupa það allt þegar við komum
til Akureyrar. Eftir að hún
fluttist til Hveragerðis fórum
við stundum í rútu til að heim-
sækja hana. Þá beið veisluborð
eftir okkur, tertur af ýmsum
gerðum, en fátt fannst Diddu
skemmtilegra en að baka, enda
var hún snillingur í því. Og á
borðinu stóð jafnan flaska með
þeim gosdrykk sem Didda vissi
að mér þótti bestur.
Didda hafði unnið húsmóð-
urstörf árum saman og hjá
henni var allt í röð og reglu,
þvegið upp um leið og búið var
að borða. Þannig var hún líka
alltaf í góðum tíma með allt.
Einu sinni stóð til að hún kæmi
í heimsókn frá Akureyri til
Reykjavíkur. Ég talaði við hana
í síma tveimur dögum áður og
sagði: „Jæja, nú ferð þú líklega
bráðum að setja niður í
töskuna.“ Nei, þar skjátlaðist
mér. Didda var löngu búin að
því.
Síðustu æviár sín bjó Didda á
hjúkrunarheimilinu Grund og
við gátum þá heimsótt hana oft
þar sem við áttum heima rétt
hjá. Nú var Didda komin í
hjólastól og gat ekki lengur
boðið okkur upp á nýbakaðar
kökur. En hún vildi endilega
gefa okkur eitthvað svo hún
keypti fyrir hverja heimsókn
sælgæti í búðinni á Grund og
sagði okkur að lítill fugl hefði
komið með þessa sendingu til
okkar. Hún var glaðleg í við-
móti og átti auðvelt með að
kynnast fólkinu á Grund. Þann-
ig hafði það líka verið í Hvera-
gerði, hún hafði eignast þar
marga vini á stuttum tíma.
Mér brá þegar við fengum
þau skilaboð frá lækninum á
Grund að Didda væri komin
með vatn í lungun og mikla
hjartabilun og ætti líklega stutt
eftir ólifað. Ég var þá nýbúin að
heimsækja hana og hafði ekki
séð að neitt amaði að. En
skömmu síðar veiktist Didda og
ekki leið nema vika þar til hún
fékk hægt andlát í faðmi fjöl-
skyldunnar. Nú faðma ég hana
að mér í huganum og segi: „Þú
varst elskuleg tengdamóðir.“
Una Margrét Jónsdóttir.
Mig langar með nokkrum
orðum að kveðja Guðrúnu
Ólínu, eða Diddu systur, eins og
við kölluðum hana alltaf. Didda
var stóra systir mín, 15 árum
eldri en ég, en hún var næstelst
okkar 10 systkinanna. Fyrst
þegar ég man eftir mér var hún
í fóstri hjá frændfólki okkar í
Bitru í Kræklingahlíð.
Þegar fjölskyldan eignaðist
fyrst bíl var það oft sunnudags-
bíltúrinn að fara í Bitru til að
heimsækja Diddu. Þegar hún
gaf mér gamla hjólið sitt hjólaði
ég stundum frá Akureyri til
hennar. Það voru skemmtilegar
ferðir og gaman að hittast.
Síðar þegar Didda fluttist til
okkar á Akureyri urðum við
enn nánari og áttum trúnað og
vináttu alla tíð síðan. Hún var
eldri og reyndari og gat kennt
mér margt gagnlegt og
skemmtilegt.
Skömmu eftir komuna til Ak-
ureyrar tók við nýr kafli í lífi
Diddu, hún kynntist Steina sín-
um og hóf búskap með honum á
Hafnarstrætinu á Akureyri.
Það voru ófáar ferðirnar sem
ég fór að heimsækja hana, alltaf
var boðið upp á kræsingar enda
var Didda listakokkur og eng-
inn fór svangur frá henni.
Síðan fæddust blessuð börnin
hennar og nóg var að gera í
Hafnarstrætinu við heimilishald
og barnauppeldi. Þar sýndi hún
sína góðu eiginleika sem ein-
kenndust af gleði, velvilja og
hjálpsemi. Hún var stoltust af
börnunum sínum þremur og
þakklát fyrir hversu vel þeim
gekk að fóta sig í lífinu.
Ég á Diddu margt að þakka
en þakklátust er ég henni fyrir
hversu góð og umhyggjusöm
hún var syni okkar þegar hann
stundaði nám á Akureyri langt í
burtu frá okkur foreldrunum.
Einar okkar var fastagestur hjá
Diddu á matmálstímum og naut
þar gestrisni og hlýju. Takk
fyrir það, kæra Didda.
Á sumrin var stefnan tekin á
Akureyri, fastur punktur í þeim
heimsóknum var að koma til
Diddu og Steina og njóta þar
gestrisni og vináttu þeirra
hjóna, það voru ánægjulegar
samverustundir.
Didda var barngóð kona og
naut samvista við börnin sín,
tengdabörn og ekki síst barna-
börnin og voru það hennar
bestu stundir þegar allir gátu
verið saman.
Didda bjó lengst af á Ak-
ureyri en fluttist til Hvera-
gerðis árið 2006 og bjó þar í
nokkur ár, á þessum árum voru
samverustundirnar okkar enn
fleiri og Halla systir sem býr í
Hveragerði bættist í hópinn og
reyndist hún Diddu mjög vel.
Frá Hveragerði fluttist Didda á
Hjúkrunarheimilið Grund í
Reykjavík og bjó þá nær börn-
unum sínum. Þá var heilsan far-
in að gefa sig en síðustu árin
naut hún góðrar aðhlynningar á
Grund og lést þar umvafin fjöl-
skyldu sinni 21. janúar síðast-
liðinn.
Ég vil þakka Diddu systir
fyrir öll árin okkar og sendi
börnum hennar og fjölskyld-
unni allri innilegar samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning
hennar.
Margrét.
Guðrún Ólína Valdimars-
dóttir Thorarensen
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
Elskulega vin-
kona og mágkona,
margs er að minn-
ast og margs er að
sakna.
Við kynntumst þegar við vor-
um unglingsstúlkur þegar þú
varst 14 ára gömul og ég 19 ára.
Þá var ég beðin um að koma inn
á heimilið til ykkar að Jafn-
askarði til að hjálpa ykkur um
stund með búskapinn og létta
undir heimilishaldið eftir fráfall
föður ykkar systra, en þið voruð
Jóhanna Birna
Þorsteinsdóttir
✝ Jóhanna BirnaÞorsteinsdóttir
fæddist 19. apríl
1933. Hún andaðist
21. janúar 2017.
Útförin fór fram
28. janúar 2017.
níu og þú þeirra
elst. Samband okk-
ar og vinátta var
strax sett sterkum
böndum sem héld-
ust alla tíð síðan.
Þú og bróðir minn,
Guðlaugur (Gulli),
fellduð hugi saman
er þú varst aðeins
15 ára gömul og
styrktist vinátta
okkar enn frekar
við það.
Við vorum svo lánsamar að
geta farið saman í Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur veturinn
1950-1951. Hannyrðir og sauma-
skapur lék í höndum þér alla tíð
af mikilli vandvirkni og fag-
mennsku. Allt var svo vel gert
af þinni hálfu. Við hjónin vorum
alla tíð dugleg að heimsækja
hvert annað og komum við hjón-
in oft til ykkar á Þorsteinsgöt-
una í Borgarnesi þar sem ávallt
var tekið á móti okkur með
kökuhlaðborði og heimsins bestu
pönnukökum. Eins komuð þið
hjónin oft í heimsókn til okkar
að Galtarlæk og voru það miklar
ánægjustundir. Árin liðu og við
hjónin ferðuðumst oft og mikið
saman um landið. Má þar minn-
ast á þegar við leigðum okkur
sumarhús saman í viku og viku í
senn, t.d. á Akureyri og að Hól-
um í Hjaltadal og keyrðum þar
um sveitirnar, okkur til
skemmtunar og yndisauka. Svo
ekki sé minnst á spilin sem allt-
af voru með í för. Ég gæti hald-
ið áfram að telja upp margar
góðar minningar en læt staðar
numið hér.
Ég vil að lokum segja: Ég
sakna þín. Takk fyrir allt. Allt.
Þín vinkona og mágkona,
Bogga,
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Galtarlæk.