Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 47
Phil Collins var í eina tíð hataðasti maður poppsins en á undanförnum árum
hefur hann fengið uppreist æru og það fyrir tilstuðlan ólíklegustu aðila.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@gmail.com
Þetta er auðvitað sérstakt mál, og
Phil Collins er bara eitt dæmi af
mörgum í raun. Sviptivindar tísku
og samþykkis, einn áratuginn ertu
inni, svo úti, og svo inni aftur.
Dægurtónlistin er einstaklega við-
kvæm fyrir þessum hlutum og oft
erfitt að rýna í hvað það er ná-
kvæmlega sem stuðlar að svona
endurskilgreiningum. Tökum
Rumors með Fleetwood Mac sem
dæmi, lengi vel táknmynd ofhleðslu
og smekkleysu áttunda áratugarins
hvað popp varðar en í dag hampað
sem meistaraverki, og þá helst af
fólki sem álítur sig sæmilega „hipp
og kúl“. Phil Collins, af öllum
mönnum, er að upplifa svipaða yf-
irhalningu og er fólk tekið að stíga
fram úr ólíklegustu hornum, aus-
andi hann lofi. Ólafur Örn Josephs-
son, kenndur við indísveitina Staf-
rænan Hákon, hefur t.d. hlaðið í
eitt stykki heiðrunarplötu sem
nálgast má á Soundcloud. Svo eitt
lítið dæmi, nærri okkur, sé tekið.
Sjálfur myndi ég teljast til
aðdáenda og vel það. Einkum er ég
hrifinn af sveit hans, Genesis, en
sólólistamaðurinn, og bara mað-
urinn og allur pakkinn sem honum
fylgir, hefur heillað mig æ meir á
undanförnum árum.
Nú hefur eitt laga hans, „Aga-
inst All Odds (Take a Look at Me
Now)“ heltekið mig. Lengi vel var
þetta bara „eitt af þessum lögum“
en að undanförnu hefur það gal-
opnast fyrir mér og ég heyri nú og
sé hluti sem voru mér duldir áður.
Lagið er einfaldlega snilld.
Hverjar voru líkurnar?
Í góðum gír Poppstjarnan Phil Collins er hann var hvað vinsælastur og á hátindi ferils síns á níunda áratugnum.
Fyrir utan snotra melódíu og þessa
sígildu „hækkunar“-taktík sem ein-
kennir áhrifarík popplög liggur
styrkurinn, galdurinn fyrst og síð-
ast í söngnum, sem er síðan vel
undirbyggður með einföldum en
einlægum texta, byggðum á skiln-
aði Collins við fyrstu konu sína
(sem hann fór rækilega yfir í
nokkrum lögum frá þessum tíma).
Collins var löngu búinn að sanna
sig sem frábær söngvari, meira að
segja á meðan hann var enn á bak
við settið í Genesis (sjá t.d. sérdeil-
is góðar bakraddir í „Carpet
Crawlers“ á Lamb) en svo auðvitað
líka er hann gerðist forsöngvari
sveitarinnar. Sýndi að hann gat
sungið undurljúfar ballöður sem og
jaðarbundnara efni eins og að
drekka vatn.
Það sem „gerir“ þetta lag sem
ég ætla nú að djúpgreina er mjög
svo sannfærandi örvænting og
skiptir í raun engu hvort það er
leikið eða ekki. Maður trúir Collins
einfaldlega. Fyrsta gæsahúðin,
magastingurinn, er á mínútu 1.20-
1.30. Hvernig hann syngur línuna
„is against the odds…“, hvernig
hann brotnar nánast klaufalega í
laglínunni, eiginlega hallærislega í
endanum, er magnað. Þetta er eig-
inlega misheppnað hjá honum og
það er það sem gerir þetta svo
flott. Gerir mann spenntan yfir
framhaldinu. Það er barnalegt um-
komuleysi þarna sem maður tengir
sterkt við. Strax á eftir syngur
hann, nánast feimnislega: „and
that’s what I got to face…“. Það
eykur áhrifin enn frekar.
Næsta andartak sem hnykkir
á heildaráhrifum lagsins kemur ör-
skömmu síðar, á 1.43-1.46, þegar
sagt er tvíraddað: „turn around
and see me cry“. Ásamt trommu-
slögunum sem nú koma inn er lag-
inu lyft upp og þessi spenna sem er
yfir um og allt í kring magnast.
Að endingu er farið í ákveðna
speglun við fyrstu gæsahúðina, en
nú er hlaðið í enn meiri dramatík
en áður. En samt, án þess að missa
sig út í melódramatík. Þetta er
mjög mikilvægt. Collins, þó að
hann sé farinn að garga þarna, nær
á einhvern ótrúlegan hátt að halda
sig innan marka og það gerir lagið
svo magnþrungið. Hann gefur í
jafnt og þétt og á 2.45-2.50 spring-
ur hann, endurtekur upphaflegu,
áhrifaríku línuna en segir núna
„against all odds“ en ekki „against
the odds“. Aftur snýr hann röddina
niður á þennan umkomulausa hátt
og svo er lagið leitt út með fallegu
„coda“.
Það er merkilegt að rýna í
textann. Það er einhver barnaleg
frekja þarna, sjálfsvorkunn en um
leið örvæntingarfull von um að ást-
konan komi aftur þó að sénsinn sé
enginn.
Ég er búinn að vera að segja
ykkur það. Dægurtónlistin er ekk-
ert froðusnakk. Þarna eru djúp-
lykluð örlög á epískum skala! Tök-
um Sting næst…
» Collins, þó að hannsé farinn að garga
þarna, nær á einhvern
ótrúlegan hátt að halda
sig innan marka og það
gerir lagið svo magn-
þrungið.
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017
Nemendaópera Söngskólans í
Reykjavík sýnir Töfraflautuna eft-
ir W.A. Mozart í Norðurljósum
Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 17.
Í einsöngshlutverkum eru 19 af
nemendum framhalds- og há-
skóladeilda skólans og til liðs við
þau koma tæplega 30 nemendur
unglingadeilda. Sibylle Köll leik-
stýrir verkinu og semur dansa,
Hrönn Þráinsdóttir er tónlistar-
stjóri og hefur stýrt undirbúningi,
sinfóníuhljómsveit, skipuð félögum
úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, leik-
ur með undir stjórn Garðars Cort-
es.
„Söguþráður óperunnar er um
baráttu góðs og ills, um ástina í
sinni fegurstu mynd, afbrýði og
hefnigirni,“ segir í tilkynningu frá
skólanum, en óperan er að vanda
flutt á íslensku.
Í helstu hlutverkum eru Harpa
Ósk Björnsdóttir sem Næturdrottn-
ingin, Einar Dagur Jónsson sem
Tamínó, Marta Kristín Friðriks-
dóttir sem Pamína, Birgir Stef-
ánsson sem Papagenó, Karlotta
Dögg Jónasdóttir sem Papagena,
Magnús Már Björnsson Sleight sem
Sarastró og Kristbjörg Lára Gunn-
arsdóttir sem Mónóstatos.
Töfraflautan sýnd í Hörpu
Ljósmynd/Jón Kristinn Cortez
Borinn Einar Dagur Jónsson syngur hlutverk Tamínó.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn.
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 11/2 kl. 20:00 151. s Fim 23/2 kl. 20:00 155. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s
Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s Mið 19/4 kl. 20:00 160. s
Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s
Sun 19/2 kl. 20:00 154. s Lau 8/4 kl. 20:00 158. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 11/2 kl. 13:00 32. s Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s
Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s
Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Fórn (Allt húsið)
Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Lau 11/2 kl. 13:00 3. sýn Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls.
Sun 12/2 kl. 13:00 4. sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Salka Valka (Stóra svið)
Sun 12/2 kl. 20:00 16.sýn Fim 16/2 kl. 20:00 17.sýn Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Þri 21/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 39.sýn Fös 24/2 kl. 19:30 40.sýn
Síðustu sýningar!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 11/2 kl. 19:30 39.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 41.sýn Fim 23/2 kl. 19:30 43.sýn
Fös 17/2 kl. 19:30 aukasýn Sun 19/2 kl. 19:30 42.sýn Fös 24/2 kl. 19:30 44.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fim 16/2 kl. 19:30 aukasýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Gott fólk (Kassinn)
Sun 12/2 kl. 19:30 10.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Síðustu sýningar!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 26/2 kl. 16:00 7.sýn Sun 19/3 kl. 13:00 aukasýn
Sun 12/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 5/3 kl. 13:00 10.sýn Sun 19/3 kl. 16:00 15.sýn
Sun 19/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 5/3 kl. 16:00 11.sýn Sun 26/3 kl. 13:00 aukasýn
Sun 19/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 12/3 kl. 13:00 12.sýn Sun 26/3 kl. 16:00 17.sýn
Sun 26/2 kl. 13:00 5.sýn Sun 12/3 kl. 16:00 13.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 11/2 kl. 17:00 Sun 12/2 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 11/2 kl. 20:00 24.sýn Sun 19/2 kl. 21:00 aukasýn Fös 3/3 kl. 20:00 37.sýn
Lau 11/2 kl. 22:30 25.sýn Fim 23/2 kl. 20:00 31.sýn Fös 3/3 kl. 22:30 38.sýn
Fim 16/2 kl. 20:00 26.sýn Fös 24/2 kl. 20:00 32.sýn Lau 4/3 kl. 20:00 39.sýn
Fös 17/2 kl. 20:00 27.sýn Fös 24/2 kl. 22:30 33.sýn Lau 4/3 kl. 22:30 40.sýn
Fös 17/2 kl. 22:30 28.sýn Lau 25/2 kl. 20:00 34.sýn Fim 9/3 kl. 20:00 41.sýn
Lau 18/2 kl. 20:00 29.sýn Lau 25/2 kl. 22:30 35.sýn
Lau 18/2 kl. 22:30 30.sýn Fim 2/3 kl. 20:00 36.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 15/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00
Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Aukasýningar - aðeins þessar sýningar