Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
Vertu upplýstur!
blattafram.is
ÞÚ ERT LÍKLEGRI
TIL AÐ GRÍPA INNÍ
EF ÞÚ HEFUR ÞEKKINGU
Á ÓÆSKILEGRI HEGÐUN
Laugavegi 52 | 101 Reykjavík
Sími 552 0620 | gullogsilfur.is
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
NÝ SENDING
Verið velkomin
Bolir Peysur
Túnikur Ponsjo
Töskur og Klútar
Vinsælu velúrgallarnir fyrir
konur á öllum aldri eru
alltaf til í mörgum litum
Stærðir S-XXXXL
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Nýjar
vörur
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ÚTSÖLULOK
LAGERSALA
60-70%AFSLÁTTUR
Vorum að bæta viðmiklu
magni af vörum á útsöluna!
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi
ráðherra og þingmaður Vinstri
grænna, er nú staddur í Tyrklandi
ásamt sendinefnd Evrópuþingsins,
en þar mun hópurinn kynna sér
stöðu mannréttinda í héruðum
Kúrda í Suðaustur-Tyrklandi.
Hópurinn hefur krafist þess að fá
að hitta Abdullah Öcalan, leiðtoga
Kúrda, sem setið
hefur í einangr-
unarfangelsi á
Imrali-eyju á
Marmarahafi frá
árinu 1999.
Nefndin er
skipuð stjórn-
málamönnum,
núverandi og
fyrrverandi,
blaðamönnum,
vísindamönnum og rithöfundum.
„Nú er ég staddur í Diyarbakir,
sem er höfuðborg Kúrdahéraðanna.
Þar höfum við hitt fjöldann allan af
fólki, fulltrúa stjórnmálaflokka,
mannréttindasamtaka og fjölmiðla,
sem sumir hverjir hafa reyndar ver-
ið bannaðir. Við erum að reyna að
gera okkur grein fyrir þeirri mynd
sem blasir við þeim sem vilja skilja
stöðu mannréttinda og það er mjög
ljót mynd,“ sagði Ögmundur í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi og
bætti við að flestir gerðu sér ekki
grein fyrir umfangi og fjölda mann-
réttindabrota á hendur Kúrdum, en
samskipti Tyrkja og Kúrda hafa
stirðnað mjög síðustu ár.
Púsl í hinni stóru mynd
Ögmundur sagði ólíklegt að beiðn-
in um heimsókn í fangelsið yrði sam-
þykkt, en henni hefur ekki verið
svarað. Beiðni um fund með dóms-
málaráðherra Tyrklands hefur held-
ur ekki verið svarað.
„Þetta er púsl í stærri mynd og við
erum að reyna að hreyfa við þessum
málum. Beiðnin er þó sett fram í
fullri alvöru. Hvort sem við henni
verður orðið eða ekki stendur eftir
að vilji okkar er alveg ljós og þá af-
staða tyrkneskra yfirvalda líka. Í
hinu stærra samhengi notum við
þetta til að varpa táknrænu ljósi á
stærri mynd,“ sagði Ögmundur.
Freista þess að ræða við leiðtoga Kúrda
Fyrrverandi ráðherra kannar mannréttindi Kúrda Óska samtals við dómsmálaráðherra Tyrklands
Ögmundur
Jónasson
mbl.is
alltaf - allstaðar