Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég kom fyrst til Íslandsí þriggja mánaðasumarvinnu hjá Há-skóla Íslands og sneri að því loknu aftur heim til Pól- lands, þar sem ég lauk námi við Háskólann í Rzeszów. Eftir það vissi ég ekki alveg hvað ég vildi taka mér fyrir hendur svo ég skellti mér aftur til Íslands til að ferðast um landið og taka myndir. Ég ætlaði að vera í þrjá mánuði en ég varð ástfangin af Íslandi, og nú eru liðin sex ár síðan ég kom hingað í heimsókn,“ segir Ag- nieszka Majka Srocka, eða Maja eins og hún er oftast kölluð á Ís- landi. „Ég bý núna á Klaustri og kann virkilega vel við mig. Hér er alveg sérstakt andrúmsloft, það er mikil samkennd meðal íbúanna og yndislegt að búa hérna. Þegar mér er boðið í kaffi hérna líður mér eins og ég sé heima hjá mér.“ Við höfum öll gott af því að kynnast hvert öðru Maja hefur undanfarin þrjú ár starfað sem myndmenntakenn- ari í grunnskólanum á Klaustri, enda er hún menntaður mynd- menntakennari, og hún starfar líka í Arion banka. En hún hefur komið víða við; fyrstu þrjú árin á Íslandi var hún í hinum ólíkustu störfum. „Fyrst starfaði ég á Hótel Geirlandi, síðan á elliheimilinu Klausturhólum og þar á eftir hjá Icelandair. Ég kenndi líka ljós- myndun í grunnskólanum sem val fyrir nemendur. Ég hef eignast marga vini hér á Klaustri í gegn- um öll þessi störf, og að vinna í banka er einstaklega góð leið til að kynnast nánast öllum sem búa hér.“ Samfélagið á Klaustri er heppið að hafa Maju því hún er drífandi og framkvæmir hug- myndir sínar. „Ég er að skipuleggja alþjóð- legan dag hér á Klaustri sem verður í sumar, og sveitarfélagið hefur þegar samþykkt að vera með mér í þessu, sem og Rauði krossinn. Ég vil gera þetta að ár- legum viðburði, enda býr fólk af mörgum þjóðernum hérna, frá Litháen, Rúmeníu, Póllandi, Ítalíu, Portúgal, Frakklandi og fleiri löndum. Og Íslendingarnir sem búa hér eru mjög áhugasamir að fá að kynnast menningu okkar hinna, matargerðinni, sögunni og öðru sem við komum með okkur að heiman. Við höfum öll gott og gaman af því að koma saman og kynnast hvert öðru og því sem við höfum fram að færa.“ Maja er að safna að sér sjálf- boðaliðum til að hjálpa við und- irbúning alþjóðlega dagsins. „Ég er í samtökum alþjóð- legra listamanna, NCLAVA, og ég Varð ástfangin af Íslandi og settist að Henni finnst gaman að takast á við ögrandi verkefni og gera eitthvað sem hún hefur ekki áður gert. Hún vílar ekki fyrir sér að skipuleggja alþjóðlegan dag á Klaustri, þar sem hún býr, og hún tekur líka ljósmyndir og málar með olíu. Og svo heldur hún sýningar á verkum sínum bæði hér heima og í Póllandi, þaðan sem hún kemur. Maja kann vel við sig á Klaustri, þar sem samkennd er meðal íbúa. Stolt Maja á sýningu sinni í Háskólanum í Rzeszów í Póllandi nú í janúar. Zumba gold™ fyrir dömur og herra, spjaldtölvur/iPad, enskukennsla og ljóðaklúbbur eru á dagskrá hjá FEB, Félagi eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni, í dag, fimmtudag 16. febrúar, og alla jafna á fimmtudögum. Á morgun, og næstu föstudaga, fjallar Baldur Hafstað um Íslendingasögur og á sunnudagskvöldið verður dans- leikur að vanda. Fleira mætti tína til af alls konar fróðleik og skemmtileg- heitum sem eldri borgurum stendur til boða og nánar er greint frá á vef- síðu félagsins, www.feb.is. Hlutverk FEB er að gæta hags- muna eldri borgara í hvívetna. Allir sem náð hafa 60 ára aldri og makar þeirra geta orðið félagsmenn. Fé- lagsgjaldið er 4.000 kr.. Gegn fram- vísun félagsskírteinis fæst afsláttur hjá ýmsum verslunum og þjónustu- fyrirtækjum. Kl. 15.30 í dag verður haldinn aðal- fundur félagsins í Ásgarði við Stang- arhyl 4 og eru félagsmenn hvattir til að mæta og taka með sér félags- skírteini fyrir árið 2016. Vefsíðan www.feb.is Skák Á þriðjudögum er tefld skák undir leiðsögn Skákfélagsins Æsis. Engin lognmolla hjá eldra fólki Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU! Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi Nýtt Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. HUNANGS OG SÍTRÓNU- BRAGÐI APPELSÍNU- BRAGÐ SYKURLAUST Leikritið Ellý verður til umfjöllunar á þriðja og síðasta Leikhúskaffi Borgarbókasafnsins Kringlunni og Borgarleikhússins á þessu leikári. Kl. 17.30 í dag, fimmtudag 16. febr- úar, segja höfundar verksins, þeir Ólafur Egill Egilsson og Gísli Örn Garðarsson, frá uppsetningu Borgarleikhússins og Vesturports á leikritinu. Í kjölfarið verður svo rölt yfir í Borgarleikhúsið þar sem gestir fá stutta kynningu á leik- mynd og annarri umgjörð sýning- arinnar. Leikritið, sem frumsýnt verður 10. mars nk., varpar ljósi á líf og söngferil Ellýjar Vilhjálms sem á sínum tíma var ein vinsælasta söngkona þjóðarinnar. Söngurinn þótti fágaður, túlkunin hógvær og ígrunduð og röddin silkimjúk og hlý. Ellý bjó yfir óræðri dulúð og töfraði marga með söng sínum og leiftrandi persónuleika, en líf henn- ar varð stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti lítið um að svara. Úrvalslið leikara og tónlist- armanna tekur þátt í sýningunni. Gestum Leikhúskaffisins býðst 10% afsláttur af miðum á Ellý. Borgarbókasafnið – Menningarhús Kringlunni Leikrit um líf og list Ellýjar til umfjöllunar í Leikhúskaffi Vinsæl Ellý Vilhjálms var á sínum tíma ein vinsælasta söngkona þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.