Morgunblaðið - 16.02.2017, Page 13
Vetrarfegurð Þessa mynd tók Maja af Hótel Geirlandi; þar leið henni vel þegar hún vann hjá Erlu og Gísla.
er fulltrúi þessara samtaka á Ís-
landi, en samtökin ætla að prenta
myndir frá hverju landi. Það verða
líka myndir frá persónulegu lífi
fólks í heimalandinu, til að sýna
hvernig það er ólíkt því sem hér
þekkist. Einnig munum við spila
tónlist frá öllum þessum löndum,
jafnvel munu einhver bönd koma
fram. Þessi hátíð verður því fyrir
augu, eyru og bragðlauka.“
Áhuginn beinst að náttúr-
unni eftir flutning til Íslands
Maja er menntaður grafískur
hönnuður en í því námi lærði hún
einnig ljósmyndun, og hún starfaði
um tíma sem ljósmyndari heima í
Póllandi, tók myndir í brúð-
kaupum og öðrum viðburðum sem
og tískuljósmyndun. „Ég var alltaf
mjög upptekin af því að taka ljós-
myndir af fólki og andlitum, svo-
kölluð portrett, en
eftir að ég fluttist til
Íslands hefur ljós-
myndaáhuginn beinst
að náttúrunni, lands-
laginu. Mér finnst
gaman að takast á við
nýja hluti og ögr-
andi,“ segir Maja,
sem var með ljós-
myndasýningu í Pól-
landi í sumar þar sem hún sýndi
myndir sem hún hafði tekið á Ís-
landi.
„Þetta voru landslagsmyndir,
flestar teknar á Suðurlandi og
margar frá Klaustri og nánasta
nágrenninu hér, svæðinu sem mér
þykir vænst um.“ Maja hefur líka
verið með ljósmyndasýningar hér
á Íslandi, til dæmis
sýnir hún um hverja
páska á Klaustri, og á
ólíkustu stöðum, í
kirkju og á hótelum.
Á síðustu
uppskeruhátíð á
Klaustri, sem var í
október, var hún með
sýningu á olíu-
málverkum, en hún
fæst einnig við málun.
„Um næstu páska verð ég
með stóra málverkasýningu á Hót-
el Laka,“ segir Maja sem hefur í
nægu að snúast, enda fram-
takssöm og orkumikil.
Listakona Maja í bol frá NCLAVA, alþjóðlegum samtökum listamanna.
Koss Maja kyssir íslenskan hest, hún mælir með kynnum við slíkar skepnur.
Íslendingarnir
sem búa hér eru
mjög áhuga-
samir að fá að
kynnast menn-
ingu okkar.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
Sjónmælingar eru okkar fag
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500