Morgunblaðið - 16.02.2017, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.02.2017, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 alvöru grillaður kjúklingur Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585 Opið alla daga kl. 11-22 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Hlíðarfjalls og væntanlega verður skoðaður sá möguleiki að nýta lyft- urnar í tengslum við hjólabrautirnar og leggja þá slíkar brautir enn ofar í fjallið en nú er,“ segir Sigmundur.    Stjórn Hverfisnefndar Oddeyrar gerir alvarlegar athugsemdir við áform Hafnarsamlags Norðurlands um að festa gámasvæði í sessi í fiski- höfninni á Akureyri.    Hverfisnefndin „leggst alfarið gegn því að deiluskipulagi sé breytt á þessum stað meðan ekki er hægt að breyta á öðrum stöðum á Oddeyri vegna vinnu við fyrirhugað ramma- skipulag. Þá virðast vinnubrögðin vera þannig að þarna sé landnotkun breytt í bága við gildandi skipulag (gámastæðum raðað á athafnasvæði fiskihafnar) og skipulaginu breytt eftir á. Nauðsynlegt er að taka afger- andi afstöðu til starfsemi á hafnar- svæðum. Gámasvæði við Hjalteyrar- götu er þannig úr öllum takti við íbúðasvæði í grenndinni og það verð- ur að fara annað,“ segir í athugasemd ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Langt er síðan sú hugmynd var fyrst rædd í akureyrska bæjarkerf- inu að fá fjárfesta til að sjá um rekst- ur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli og vinna að frekari uppbyggingu á svæðinu. Nú hefur verið ákveðið að stíga skrefið og auglýsa eftir áhuga- sömum fjárfestum til þess arna.    Frístundaráð Akureyrar hefur falið Atvinnuþróunarfélagi Eyja- fjarðar (AFE) að auglýsa eftir fjár- festum. Markmiðið er að auka að- sókn og efla þjónustu við bæjarbúa, íþróttaiðkendur og ferðamenn, að sögn Sigmundur E. Ófeigssonar, framkvæmdastjóra AFE.    „Þetta verður ekki boðið út held- ur auglýsum við eftir áhugasömum rekstraraðilum með góðar hug- myndir. Undirbúningsvinna er í gangi, við erum að meta umfangið,“ segir Sigmundur við Morgunblaðið.    Sigmundur segir að án efa séu margir með mjög mismunandi hug- myndir hvað framtíð Hlíðarfjalls varðar. Auglýst verður á heima- markaði til að byrja með.    „Nokkrir aðilar hafa nálgast okkur og við vitum að einhverjir eru með erlenda aðila með sér,“ segir Sigmundur. „Það sem við viljum er að auka og bæta þjónustuna og byggja upp góða aðstöðu til langs tíma.“    Horft er til þess að í Hlíðarfjalli verði góð heilsársaðstaða fyrir úti- vistarfólk. Hjólastígar eru í fjallinu og stefnt er að því að aðstaða hjóla- og göngufólks verði sem best. „Rætt hefur verið um að setja upp nýja lyftu í Hlíðarfjalli í samstarfi við Vini nefndarinnar vegna fyrirhugaðra breytinga á umræddu svæði.    Leikfélag Akureyrar frumsýnir á laugardaginn nýtt íslenskt leikrit, Núnó og Júnía, sem sagt er vera fyr- ir fjölskyldur og ungt fólk. Sýnt er í Hamraborg, stóra salnum í Hofi.    Núnó og Júnía er 322. sviðsetn- ing Leikfélags Akureyrar, sem brátt verður 100 ára; félagið var stofnað 19. apríl 1917.    Verkið gerist í fjarlægri framtíð í landinu Kaldóníu. „Hinn ungi Núnó er mesta afreksmanneskjan í Kald- óníu og fyrirmynd allra íbúa landsins í hreysti og dugnaði. Mottó Núnós er að gera betur, gera enn betur og toppa það svo,“ segir í tilkynningu.    Leikritið er úr smiðju Sigrúnar Huldar Skúladóttur og Söru Martí Guðmundsdóttur. Þær eru einnig höfundar leikgerðar Pílu Pínu, sem vakti mikla lukku á síðasta leikári í sviðsetningu leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands í Hamraborg.    Sara Martí leikstýrði jafnframt uppsetningunni á Pílu Pínu og hefur fengið til liðs við sig stóran hluta þess listræna teymis sem skapaði undraheim Pílu. Núnó og Júnía er mikið sjónarspil hlaðið leikhús- töfrum og sjónhverfingum, skv. til- kynningu.    Í verkinu leika þrír leikarar ásamt stórum hópi aukaleikara. Aðalleikararnir eru Alexander Dantes Erlendsson, Bjarni Snæ- björnsson og Dominique Gyða Sig- rúnardóttir. Alexander og Dom- inique Gyða sem leika titilhlutverkin eru að stíga sín fyrstu skref; Núnó og Júnía eru fyrsta verkefni þeirra í atvinnuleikhúsi.    Hljómsveitin Todmobile verður með tvenna tónleika á Græna hattin- um á laugardagskvöldið. Annað kvöld koma þar fram Dali og Thingtak. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Snorrabúð stekkur Svæðið þar sem á árum áður var fótboltavöllur kenndur við Sana, er nú nýtt undir gáma skipa- félaganna. Hverfisnefnd Oddeyrar leggst alfarið gegn því að þeir verði þar til frambúðar, nálægt íbúðarsvæði. Leita fjárfesta til að byggja upp og reka skíðasvæðið í Hlíðarfjalli „Því miður hafa öryggishorfur í Evr- ópu versnað á umliðnum árum og Atl- antshafsbandalagið brugðist við með því að auka varnarviðbúnað sinn,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra eftir fund sem hann átti í Brussel með Jens Stoltenberg, fram- kvæmdastjóra Atlantshafsbandalags- ins. ,,Hér verða öll ríki að leggja sitt að mörkum og það kom skýrt fram í máli framkvæmdastjóra að framlag Íslands á síðustu árum og áratugum skiptir máli og er mikils metið,“ sagði hann að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá utanríkisráðuneytinu. Þróun öryggismála í Evrópu og tengslin vestur um haf voru meðal umræðuefna á fundinum, sem fram fór í tengslum við fund varnarmála- ráðherra bandalagsins í Brussel sem haldinn er í gær og dag. Á fundinum var enn fremur rætt um aukinn varnarviðbúnað banda- lagsins og gerði utanríkisráðherra grein fyrir stefnu stjórnvalda í ör- yggis- og varnarmálum og auknum framlögum og virkari þátttöku í störfum Atlantshafsbandalagsins. Einnig var rætt um viðbúnað og eftirlit á Norður-Atlantshafi. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Viðræður Guðlaugur Þór og Jens Stoltenberg ræddust við á fundi í Brussel. Öryggishorfur í Evrópu hafa versnað Tveir skipverjar á bátnum Hjör- dísi HU voru hætt komnir norðaustan Ólafsvíkur í gær þegar báturinn tók að leka. Björg, björg- unarskip Lands- bjargar, var kall- að út eftir að skip í grenndinni svöruðu ekki neyðarkalli skipverjanna. Skipverjarnir skáru á veiðarfæri bátsins og rétti hann sig þá af. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF- GNA var send til aðstoðar og ákveðið var að skipverjarnir færu um borð í Björgu, en Hjördís var dregin að landi að Rifi. Skipverjar á Hjördísi HU hætt komnir Björg Hjördís var dregin að Rifi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.