Morgunblaðið - 16.02.2017, Page 16

Morgunblaðið - 16.02.2017, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Stykkishólmur| Menningarlegur blær svífur yfir Hólminum um helgina. Þá verður haldin menningarvaka í fimmta sinn undir heitinu Júlíana – hátíð sögu og bóka. Fjórar vinkonur; þær Þórunn Sigþórsdóttir, Dagbjört Höskuldsdóttir, Gréta Sigurðar- dóttir og Sigríður Erla Guðmunds- dóttir, hafa tekið saman höndum og skipulagt viðburði er tengjast bók- um. Að þessu sinni er yfirskriftin „Þorpið mitt, þorpið þitt“. Einn þáttur hátíðarinnar er sam- starf við grunnskólann til að vekja áhuga nemenda á sögum og ljóðum. Þar eru nemendur hvattir til sköp- unar og flytja efni sem þau sjálf semja. Að þessu sinni var rapparinn Kött Grá Pje, sem heitir Atli Sig- þórsson réttu nafni, fenginn til að vinna með nemendum í nokkra daga. Árangurinn verður sýndur á hátíð- inni. Í tengslum við hátíðina hefur verið starfandi leshópur í vetur. Les- in var bókin Englaryk eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, en sögusviðið tengist Hólminum. Dagskráin er mjög fjölbreytt alla helgina og hefst hún í kvöld í Vatna- safninu kl. 20. Þar mun m.a. Har- aldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segja frá lífi drengs í Hólminum og veitt viðurkenning fyrir framlag til menningarmála. Á föstudegi mun Haraldur flytja erindi um Listasögu Snæfellsjökuls kl. 17 í Eldfjallasafn- inu. Um kvöldið verður gestum boð- ið í heimahús þar sem flutt verða minningabrot frá uppvexti nokkurra einstaklinga í Hólminum. Á laugardaginn verður dagskrá í gömlu kirkjunni. Þar flytja erindi og ræða við gesti þau Guðrún Eva Mínervudóttir, Kristín Marja Bald- ursdóttir og Jón Yngvi Jóhannsson. Erindi þeirra tengjast Hólminum og fleiri þorpum á landsbyggðinni. Þða er óhætt að segja að Júlíönu- hátíð lífgar upp á menningarlífið á miðjum vetri og því kærkomin. Til- valin afþreying fyrir gesti að skreppa í Hólminn en frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Júlíönuhátíð Fjórar vinkonur sem standa að hátíðinni í Hólminum. Þorpið mitt, þorpið þitt  Júlíana, hátíð sögu og bóka, haldin í Stykkishólmi um helgina í fimmta sinn BAKSVIÐ Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Mig langar að ná fram þessum gamla góða anda sem fylgir lands- mótum hestamanna þar sem fólk kemur saman bæði til að horfa á hross og til að hittast,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmda- stjóri Landsmóts hestamanna í Reykjavík 2018 sem fer fram 1.-8. júlí. Heiðar er nýtekinn við starfinu og skipulagning mótsins er að hefjast. Hann er enginn nýgræð- ingur þegar kem- ur að því að skipuleggja við- burði, en hann var einnig framkvæmdastjóri síð- asta landsmóts, sem fram fór á Hól- um í Hjaltadal síðasta sumar. Tímamót í rekstri landsmóta Mótið í Reykjavík mun marka ákveðin tímamót í rekstri lands- móta, en þetta verður í fyrsta sinn sem Landssamband hestamanna- félaga mun ekki sjá um mótið held- ur mun hestamannafélagið Fákur sjá alfarið um mótshaldið. Fákur hefur stofnað sérstakt félag sem nefnist LM 2018 ehf. og skipað sér- staka stjórn sem stýrir skipulagn- ingu mótsins. Á meðfylgjandi mynd má sjá stjórnarmennina. Fákur nýtur dyggs stuðnings Reykjavíkurborgar líkt og á síðustu landsmótum sem haldin hafa verið í Reykjavík. Höfuðborgarstofa tekur einnig virkan þátt í undirbún- ingnum. Kynning á Landsmótinu 2018 er þegar hafin og meðal ann- ars tóku félagsmenn Fáks þátt í opnunarhátíð vetrarhátíðar í Reykjavík í byrjun febrúar þegar þeir riðu niður Skólavörðuholtið á hestum. Búist er við talsverðum fjölda gesta á landsmótið og eru erlendir gestir um 20% mótsgesta. Þegar er búið er að taka frá um 300 hótelher- bergi sem eru ætluð fyrir þá og skipulagning hafin á sérstökum pakkaferðum á mótið. „Við ætlum að þjónusta þetta fólk vel,“ segir Heiðar og bendir á að miklu muni um samvinnu við Reykjavíkurborg, þar sem meðal annars verður hægt að tvinna saman aðra afþreyingu eins og t.d. heimsóknir á söfn, sundlaugar og strætóferðir. Síðast var haldið landsmót í Reykjavík árið 2012 og því verður nú hægt að byggja á góðum grunni að sögn Heiðars. Hann bendir á að í grunninn snúist öll landsmót um það sama, eins og allir aðrir við- burðir, að láta öllum gestum líða vel hvort sem það eru keppendur, starfsmenn eða ferfætlingarnir. Stórt hópverkefni „Þetta er stórt hópverkefni þar sem allir leggjast á eitt að skapa stórt og flott mót. Ég hlakka til að virkja þennan góða anda og fá fólk til liðs við okkur,“ segir Heiðar. Hann segir helsta verkefni sitt vera að stilla saman hópinn og finna sér- fróða einstaklinga um hina ýmsu þætti sem snúa að mótshaldi. Hann tekur fram að margir þeirra komi úr hestamannafélögunum, en þar býr mikill mannauður. „Það skemmtilegasta við starfið er að kynnast öllu þessu góða fólki,“ seg- ir Heiðar. Þrátt fyrir að landsmótið verði haldið í höfuðborginni getur fólk nýtt sér tjaldsvæðið í Víðidalnum. Heiðar tekur fram að hvert móts- svæði hafi sína kosti og galla. „Það sem við þurfum að horfa sér- staklega til er að mótið er á höfuðborgarsvæðinu og fólk á auð- velt með að fara af svæðinu. Við þurfum því að huga að því að skapa rétta stemningu til að halda utan um hópinn.“ Vill ánægða gesti Spurður um væntanlegan fjölda gesta vill hann ekki nefna neina tölu. Hann bendir á að sá fasti kjarni sem fari alltaf á lands- mótin sama hvar þau eru haldin sé í kringum sex til átta þúsund manns. Við þennan fjölda bætist hinir sem kjósi að fara á landsmót frekar en aðra skemmtun því nægt sé fram- boðið af viðburðum. „Ég vil frekar senda frá mér glaða níu þúsund en hálfóánægða 12 þúsund manns,“ segir hann en tekur þó fram að allt- af þurfi að selja ákveðið marga miða til að mótið standi undir sér. Sú hafi ekki verið raunin á síðasta landsmóti á Hólum og því þurfi að ná inn meiri tekjum í gegnum miða- sölu. Í mars næstkomandi hefst for- sala aðgöngumiða á mótið, en aldrei hafa selst jafn margir miðar í for- sölu eins og fyrir það síðasta. Landsmót í Reykjavík 2018 verður það 23. í röðinni, en það hef- ur verið haldið tvisvar áður í Reykjavík frá því að það var fyrst haldið á Þingvöllum árið 1950. Gott landsmót samvinnuverkefni  Hestamannafélagið Fákur í Víðidal sér um rekstur landsmóts hestamanna í fyrsta skipti  Áskell Heiðar Ásgeirsson skipaður framkvæmdastjóri  Pakkaferðir fyrir erlenda mótsgesti Stjórn LM2018 og framkvæmdastjóri Frá vinstri: Áskell Heiðar Ásgeirsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sigurbjörn Magnússon, Hjörtur Bergstað, Áshildur Bragadóttir, Hrólfur Jónsson og Sigurbjörn Bárðarson. Á myndina vantar Katrínu Pétursdóttur og Hauk Baldvinsson. Áskell Heiðar Ásgeirsson Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Ljósadýrð Ungmenni í Fáki létu ljós sitt skína á Vetrarhátíð í Reykjavík. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Louisa Matthíasdóttir Ásgrímur Jónsson Uppboð í 20 ár mánudaginn 20. febrúar, kl. 18 Reykjavíkurmyndir og aldarafmæli Louisu Matthíasdóttur Listmunauppboð nr. 103 í Gallerí Fold Forsýning á verkunum alla helgina fimmtudag kl. 10–18, föstudagur kl.10 –18, laugardagur kl. 11–16, sunnudagur kl. 12 –16, mánudagur kl. 10 –17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.