Morgunblaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
Stykkishólmur| Menningarlegur blær
svífur yfir Hólminum um helgina. Þá
verður haldin menningarvaka í
fimmta sinn undir heitinu Júlíana –
hátíð sögu og bóka. Fjórar vinkonur;
þær Þórunn Sigþórsdóttir, Dagbjört
Höskuldsdóttir, Gréta Sigurðar-
dóttir og Sigríður Erla Guðmunds-
dóttir, hafa tekið saman höndum og
skipulagt viðburði er tengjast bók-
um. Að þessu sinni er yfirskriftin
„Þorpið mitt, þorpið þitt“.
Einn þáttur hátíðarinnar er sam-
starf við grunnskólann til að vekja
áhuga nemenda á sögum og ljóðum.
Þar eru nemendur hvattir til sköp-
unar og flytja efni sem þau sjálf
semja. Að þessu sinni var rapparinn
Kött Grá Pje, sem heitir Atli Sig-
þórsson réttu nafni, fenginn til að
vinna með nemendum í nokkra daga.
Árangurinn verður sýndur á hátíð-
inni. Í tengslum við hátíðina hefur
verið starfandi leshópur í vetur. Les-
in var bókin Englaryk eftir Guðrúnu
Evu Mínervudóttur, en sögusviðið
tengist Hólminum.
Dagskráin er mjög fjölbreytt alla
helgina og hefst hún í kvöld í Vatna-
safninu kl. 20. Þar mun m.a. Har-
aldur Sigurðsson eldfjallafræðingur
segja frá lífi drengs í Hólminum og
veitt viðurkenning fyrir framlag til
menningarmála. Á föstudegi mun
Haraldur flytja erindi um Listasögu
Snæfellsjökuls kl. 17 í Eldfjallasafn-
inu. Um kvöldið verður gestum boð-
ið í heimahús þar sem flutt verða
minningabrot frá uppvexti nokkurra
einstaklinga í Hólminum.
Á laugardaginn verður dagskrá í
gömlu kirkjunni. Þar flytja erindi og
ræða við gesti þau Guðrún Eva
Mínervudóttir, Kristín Marja Bald-
ursdóttir og Jón Yngvi Jóhannsson.
Erindi þeirra tengjast Hólminum og
fleiri þorpum á landsbyggðinni.
Þða er óhætt að segja að Júlíönu-
hátíð lífgar upp á menningarlífið á
miðjum vetri og því kærkomin. Til-
valin afþreying fyrir gesti að
skreppa í Hólminn en frítt er inn á
alla viðburði hátíðarinnar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Júlíönuhátíð Fjórar vinkonur sem
standa að hátíðinni í Hólminum.
Þorpið mitt, þorpið þitt
Júlíana, hátíð sögu og bóka, haldin í
Stykkishólmi um helgina í fimmta sinn
BAKSVIÐ
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Mig langar að ná fram þessum
gamla góða anda sem fylgir lands-
mótum hestamanna þar sem fólk
kemur saman bæði til að horfa á
hross og til að hittast,“ segir Áskell
Heiðar Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Landsmóts hestamanna í
Reykjavík 2018
sem fer fram
1.-8. júlí. Heiðar
er nýtekinn við
starfinu og
skipulagning
mótsins er að
hefjast. Hann er
enginn nýgræð-
ingur þegar kem-
ur að því að
skipuleggja við-
burði, en hann
var einnig framkvæmdastjóri síð-
asta landsmóts, sem fram fór á Hól-
um í Hjaltadal síðasta sumar.
Tímamót í rekstri landsmóta
Mótið í Reykjavík mun marka
ákveðin tímamót í rekstri lands-
móta, en þetta verður í fyrsta sinn
sem Landssamband hestamanna-
félaga mun ekki sjá um mótið held-
ur mun hestamannafélagið Fákur
sjá alfarið um mótshaldið. Fákur
hefur stofnað sérstakt félag sem
nefnist LM 2018 ehf. og skipað sér-
staka stjórn sem stýrir skipulagn-
ingu mótsins. Á meðfylgjandi mynd
má sjá stjórnarmennina.
Fákur nýtur dyggs stuðnings
Reykjavíkurborgar líkt og á síðustu
landsmótum sem haldin hafa verið í
Reykjavík. Höfuðborgarstofa tekur
einnig virkan þátt í undirbún-
ingnum. Kynning á Landsmótinu
2018 er þegar hafin og meðal ann-
ars tóku félagsmenn Fáks þátt í
opnunarhátíð vetrarhátíðar í
Reykjavík í byrjun febrúar þegar
þeir riðu niður Skólavörðuholtið á
hestum.
Búist er við talsverðum fjölda
gesta á landsmótið og eru erlendir
gestir um 20% mótsgesta. Þegar er
búið er að taka frá um 300 hótelher-
bergi sem eru ætluð fyrir þá og
skipulagning hafin á sérstökum
pakkaferðum á mótið. „Við ætlum
að þjónusta þetta fólk vel,“ segir
Heiðar og bendir á að miklu muni
um samvinnu við Reykjavíkurborg,
þar sem meðal annars verður hægt
að tvinna saman aðra afþreyingu
eins og t.d. heimsóknir á söfn,
sundlaugar og strætóferðir.
Síðast var haldið landsmót í
Reykjavík árið 2012 og því verður
nú hægt að byggja á góðum grunni
að sögn Heiðars. Hann bendir á að í
grunninn snúist öll landsmót um
það sama, eins og allir aðrir við-
burðir, að láta öllum gestum líða vel
hvort sem það eru keppendur,
starfsmenn eða ferfætlingarnir.
Stórt hópverkefni
„Þetta er stórt hópverkefni þar
sem allir leggjast á eitt að skapa
stórt og flott mót. Ég hlakka til að
virkja þennan góða anda og fá fólk
til liðs við okkur,“ segir Heiðar.
Hann segir helsta verkefni sitt vera
að stilla saman hópinn og finna sér-
fróða einstaklinga um hina ýmsu
þætti sem snúa að mótshaldi. Hann
tekur fram að margir þeirra komi
úr hestamannafélögunum, en þar
býr mikill mannauður. „Það
skemmtilegasta við starfið er að
kynnast öllu þessu góða fólki,“ seg-
ir Heiðar.
Þrátt fyrir að landsmótið verði
haldið í höfuðborginni getur fólk
nýtt sér tjaldsvæðið í Víðidalnum.
Heiðar tekur fram að hvert móts-
svæði hafi sína kosti og galla. „Það
sem við þurfum að horfa sér-
staklega til er að mótið er á
höfuðborgarsvæðinu og fólk á auð-
velt með að fara af svæðinu. Við
þurfum því að huga að því að skapa
rétta stemningu til að halda utan
um hópinn.“
Vill ánægða gesti
Spurður um væntanlegan
fjölda gesta vill hann ekki nefna
neina tölu. Hann bendir á að sá
fasti kjarni sem fari alltaf á lands-
mótin sama hvar þau eru haldin sé í
kringum sex til átta þúsund manns.
Við þennan fjölda bætist hinir sem
kjósi að fara á landsmót frekar en
aðra skemmtun því nægt sé fram-
boðið af viðburðum. „Ég vil frekar
senda frá mér glaða níu þúsund en
hálfóánægða 12 þúsund manns,“
segir hann en tekur þó fram að allt-
af þurfi að selja ákveðið marga
miða til að mótið standi undir sér.
Sú hafi ekki verið raunin á síðasta
landsmóti á Hólum og því þurfi að
ná inn meiri tekjum í gegnum miða-
sölu. Í mars næstkomandi hefst for-
sala aðgöngumiða á mótið, en aldrei
hafa selst jafn margir miðar í for-
sölu eins og fyrir það síðasta.
Landsmót í Reykjavík 2018
verður það 23. í röðinni, en það hef-
ur verið haldið tvisvar áður í
Reykjavík frá því að það var fyrst
haldið á Þingvöllum árið 1950.
Gott landsmót samvinnuverkefni
Hestamannafélagið Fákur í Víðidal sér um rekstur landsmóts hestamanna í fyrsta skipti
Áskell Heiðar Ásgeirsson skipaður framkvæmdastjóri Pakkaferðir fyrir erlenda mótsgesti
Stjórn LM2018 og framkvæmdastjóri Frá vinstri: Áskell Heiðar
Ásgeirsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sigurbjörn Magnússon, Hjörtur
Bergstað, Áshildur Bragadóttir, Hrólfur Jónsson og Sigurbjörn Bárðarson.
Á myndina vantar Katrínu Pétursdóttur og Hauk Baldvinsson.
Áskell Heiðar
Ásgeirsson
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Ljósadýrð Ungmenni í Fáki létu ljós sitt skína á Vetrarhátíð í Reykjavík.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Louisa Matthíasdóttir Ásgrímur Jónsson
Uppboð í 20 ár
mánudaginn 20. febrúar, kl. 18
Reykjavíkurmyndir og
aldarafmæli Louisu Matthíasdóttur
Listmunauppboð nr. 103 í Gallerí Fold
Forsýning á verkunum alla helgina
fimmtudag kl. 10–18, föstudagur kl.10 –18,
laugardagur kl. 11–16, sunnudagur kl. 12 –16,
mánudagur kl. 10 –17