Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands og Rex Tillerson, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, munu
hittast í dag í fyrsta sinn. Fundur
þeirra verður í Bonn, þar sem báðir
eru staddir vegna ráðherraviðræðna
G20-ríkjanna svonefndu. Þá mun
Lavrov einnig funda með Sigmari
Gabríel, nýjum utanríkisráðherra
Þýskalands.
Talið er að viðræður Tillersons og
Lavrovs muni spanna vítt svið, en
fulltrúi rússneska utanríkisráðu-
neytisins sagði að Lavrov vildi ræða
samskipti ríkjanna, sem „fyrri ríkis-
stjórn Bandaríkjanna hefði siglt í
strand“. Þá yrði einnig farið yfir hin
ýmsu alþjóðamál og það hvernig
Rússland og Bandaríkin geti stuðlað
að farsælli lausn þeirra.
Óvissa ríkir þó meðal Rússa um
það hvernig hin nýja ríkisstjórn
Bandaríkjanna muni taka á málum,
en þaðan hafa borist ýmsar yfirlýs-
ingar, sem þykja hörkulegar gagn-
vart Rússum. Sean Spicer, fjölmiðla-
fulltrúi Bandaríkjaforseta, sagði til
dæmis á blaðamannafundi á þriðju-
daginn að Trump ætlaðist til þess að
Rússar myndu hafa hemil á upp-
reisnarmönnum í austurhluta Úkra-
ínu, jafnframt sem þeir ættu að skila
Krímskaganum. Fulltrúi rússneska
utanríkisráðuneytisins svaraði því
einu til að Rússar „skiluðu ekki eig-
um sínum“.
Lavrov og Tiller-
son funda í dag
Fyrsti fundur utanríkisráðherranna
Sergei
Lavrov
Rex
Tillerson
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandarískir embættismenn gáfu til
kynna í gær að Bandaríkin myndu
ekki lengur reyna að ýta á um það að
gera Ísrael og Palestínu að tveimur
sérstökum ríkjum, en Donald Trump
Bandaríkjaforseti tók á móti Benja-
mín Netanyahu, forsætisráðherra
Ísraels, í gær.
Kom fram í máli háttsetts emb-
ættismanns innan Hvíta hússins að
Bandaríkin myndu styðja þær lausn-
ir sem deiluaðilar kæmu sér saman
um. „Tveggja ríkja lausn sem færir
ekki frið er ekki markmið sem nokk-
ur vill ná,“ sagði embættismaðurinn
sem vildi ekki láta nafns síns getið.
Það væri því undir Ísraelsmönnum
og Palestínumönnum sjálfum komið
hvaða lausn myndi færa þeim var-
anlegan frið.
Þessi afstaða er á skjön við þá,
sem Bandaríkin hafa haft í nálega
hálfa öld, og hafa báðir flokkar vest-
anhafs verið sammála um tveggja
ríkja lausnina. Talið er að þessi um-
skipti séu viðleitni Trumps til þess
að sýna skýran stuðning sinn við Ísr-
aelsríki.
Palestínumenn ósáttir
Fulltrúar palestínsku heima-
stjórnarinnar brugðust ókvæða við
yfirlýsingunni. Sagði einn þeirra við
AFP-fréttastofuna að það væri „ekk-
ert vit“ í stefnubreytingunni og að
hún myndi ekki leiða til friðar. „Þeir
geta ekki gert þetta án þess að bera
upp annan valkost,“ sagði hann.
Trump hefur ekki haft samband við
palestínsku heimastjórnina frá því
að hann tók við embætti 20. janúar
síðastliðinn.
Gert var ráð fyrir að Trump myndi
segja Netanyahu að hann vildi reyna
að hjálpa til við lausn deilunnar fyrir
botni Miðjarðarhafs, en hann hefur
þegar skipað tengdason sinn, Jared
Kushner ásamt lögfræðingnum Jas-
on Greenblatt í sérstakt friðarvið-
ræðuteymi.
Netanyahu aftur á móti vonast til
þess að heimsókn sín muni marka
tímamót í samskiptum Ísraels og
Bandaríkjanna, sem voru orðin
nokkuð stirð eftir því sem leið á kjör-
tímabil Baracks Obama, fyrirrenn-
ara Trumps í embætti. Voru það
einkum kjarnorkumál Írana og
gagnrýni Bandaríkjanna á land-
nemabyggðir sem skyggðu á.
AFP
Söguleg heimsókn Trump og Netanyahu ræddu samskipti Bandaríkjanna og Ísraels í gær. Kom fram fyrir fund
þeirra að Bandaríkin hygðust ekki lengur þrýsta á tveggja ríkja lausn í deilu Ísraels og Palestínu.
Krefst ekki tveggja
ríkja lausnar
Trump og Netanyahu hittust í Hvíta húsinu í gær
Fjórir sjálfvígssprengjumenn gerðu
árásir í Pakistan í gær og féllu sex
manns í þeim. Talíbanar hafa lýst yf-
ir ábyrgð sinni á árásunum, en þær
koma í kjölfar sjálfsvígsárásar í
borginni Lahore, höfuðborg Punjab-
héraðs, á landamærum Pakistans og
Afganistans á mánudaginn var, en
þrettán manns létust og fjölmargir
særðust þar.
Árásirnar beindust einkum að op-
inberum stofnunum Pakistans, en í
einni árásinni var mótorhjóli keyrt á
flutningabíl í borginni Peshawar, þar
sem dómarar voru innanborðs. Öku-
maður bílsins lést, en farþegarnir
særðust illa.
Mannskæðasta árásin átti sér stað
fyrr um daginn, en þar réðust tveir
sjálfsvígssprengjumenn á opinbert
skrifstofuhúsnæði og felldu fimm
manns. Lögreglunni tókst að yfir-
buga annan manninn áður en hinn
sprengdi sjálfan sig í loft upp.
Talsmenn talíbana í Pakistan
tjáðu AFP-fréttastofunni að þeir
hygðust halda árásum sínum áfram
næstu daga, á meðan Nawaz Sharif,
forsætisráðherra Pakistans, kallaði
saman herforingja og háttsetta emb-
ættismenn til þess að ræða viðbrögð
við hryðjuverkahrinunni. Sagði í til-
kynningu frá forsætisráðuneytinu að
þjóðarstyrkur Pakistana myndi að
lokum „útrýma hryðjuverkum og
öfgastefnum.“
Hryðjuverkahrinan nú er hin
mesta frá árinu 2014, en þá féllu
rúmlega 150 manns í árás á skóla í
Peshawar. Leiddi sú árás til þess að
pakistanski herinn fór í mikilvirkar
gagnaðgerðir gegn talíbönum.
Fjórar árásir
á einum degi
Hrina hryðjuverka skekur Pakistan
AFP
Hryðjuverk Mikil sorg ríkti í Pak-
istan í gær eftir fjórar árásir.
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
DIMMALIMM
Nýjar vörur
Vor/Sumar
2017
Lokadagar útsöluslár
70% afsl.
AFMÆLISGJAFIR
SÆNGURGJAFIR
SKÍRNAGJAFIR
Kjóll kr 5.795
DimmalimmReykjavik.is
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Líkaminn tapar vökva og mikilvægum
söltum við niðurgang, uppköst eða
mikla svitauppgufun.
Resorb er vökvauppbót sem fæst
án lyfseðils og kemur jafnvægi
á vökva- og saltbirgðir líkamans
og flýtir þannig fyrir bata.
RESORB ORIGINAL
ENDURSTILLIR
VÖKVABÚSKAPINN
Fæst án lyfseðils í flestum apótekum
Nýjar
umbú
ðir!