Morgunblaðið - 16.02.2017, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
lÍs en ku
ALPARNIR
s
alparnir.is
VETRARFRÍDAGAR
ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727
20% - 40%
afsláttur
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Lögreglan í Mal-
asíu handtók í
gær konu fyrir
að hafa myrt
Kim Jong-Nam,
hálfbróður Kims
Jong-Un, einræð-
isherra Norður-
Kóreu. Konan
var með víet-
namskt vegabréf á sér, en hún er
talin vera útsendari frá Norður-
Kóreu. Annarrar konu er enn leitað
vegna morðsins.
Kim Jong-Nam var á ferð um al-
þjóðaflugvöllinn í Kúala Lúmpur,
höfuðborg Malasíu, þegar tvær
konur komu aftan að honum, gripu
Kim og sprautuðu eiturefni í andlit
hans. Kim náði að koma sér að upp-
lýsingaborði þar sem hann sagði
frá árásinni áður en hann hné nið-
ur. Kim lést á leiðinni á sjúkrahús
stuttu síðar. Lögreglan segist enn
vera að kanna hvaða efni það var
sem leiddi til andláts Kims.
MALASÍA
Kona handtekin
fyrir morðið
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Loka þurfti Eyrarsundsbrúnni í gærmorgun í báðar
áttir eftir að allt að tólf bílar skullu saman í árekstri á
brúnni. Samkvæmt upplýsingum frá sænsku lög-
reglunni þurfti að flytja 14 manns á sjúkrahús í bæði
Danmörku og Svíþjóð eftir óhappið. Ekki var á
hreinu hversu alvarlegir áverkar hinna slösuðu voru.
Óhappið varð um kl. 7:46 að staðartíma og varð
Svíþjóðarmegin á brúnni, en björgunarlið kom frá
bæði Svíþjóð og Danmörku til þess að hlynna að hin-
um slösuðu.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá rekstraraðila
brúarinnar er þetta versta umferðarslys sem orðið
hefur á brúnni eftir að hún var opnuð árið 2000. Í
þeirri tilkynningu kom fram að árið 2005 hefði orðið
rútuslys á brúnni, þar sem átta manns hlutu minni-
háttar áverka.
Brúin var opnuð á ný um ellefuleytið að staðar-
tíma, en tafir voru á umferð langt fram eftir degi
vegna slyssins.
Brúnni lokað í báðar áttir
AFP
Brúin Slysið er hið versta sem orðið hefur síðan Eyrarsundsbrúin var opnuð árið 2000.
14 manns fluttir á sjúkrahús eftir alvarlegan árekstur á Eyrarsundsbrúnni
Versta umferðarslys á brúnni frá því að hún var opnuð árið 2000
Fjöldi fólks kom saman til þess að fylgjast með því, þegar Indverjar skutu á
loft eldflaug frá Sriharikota í gær. Skotið var merkilegt fyrir þær sakir að
með í för voru 104 gervihnettir, sem eldflaugin gat sett á sporbaug, og mun
það vera heimsmet. Vísindamenn indversku geimferðastofnunarinnar
glöddust mjög þegar þeir gátu staðfest að skotið hefði heppnast.
AFP
104 gervihnettir setja met
Indverjar skjóta eldflaug á loft
Evrópuþingið í Strassborg sam-
þykkti í gær umdeildan fríversl-
unarsamning milli Evrópusambands-
ins og Kanada. Greiddu 408
Evrópuþingmenn atkvæði með samn-
ingnum, en 254 á móti. 33 sátu hjá.
Samþykki þingsins þýðir að hægt
verður til bráðabirgða að fara eftir
honum þegar í næsta mánuði. Samn-
ingurinn var undirritaður í október
síðastliðnum, en sjö ára viðræður
lágu þá að baki. Um tíma leit út fyrir
að ekkert yrði af samningnum, þar
sem eitt hérað í Belgíu lagðist gegn
því að ríkisstjórnin þar myndi sam-
þykkja hann.
Mótmælt var fyrir framan þing-
húsið á meðan þingmenn greiddu at-
kvæði, en um 700 manns héldu á
skiltum til þess að sýna andstöðu sína
við samninginn. Var afstaða þeirra
einkum byggð á andstöðu við hnatt-
væðingu og reyndu sumir mótmæl-
enda að loka inngangi þinghússins
áður en óeirðalögreglan greip í taum-
ana.
Samþykkja
fríverslun