Morgunblaðið - 16.02.2017, Page 23

Morgunblaðið - 16.02.2017, Page 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Fyrir skömmu kom fram hjá Borgþóri Arn- grímssyni, í pistli frá Danmörku, að þarlend stjórnvöld væru búin að heimila verslunar- eigendum með kvöld- og nætursölu að hafna því að taka við pen- ingum á tímabilinu frá kl. 10 að kvöldi til kl. 6 að morgni. Þetta er gert til þess að draga úr líkunum á því að viðkomandi verslanir séu rændar til þess að hirða peningana úr kass- anum, þ.e. eftir engu að slægjast. Í Kastljósinu fyrir skemmstu þar sem fjallað var um aflandsfélög og Panamaskjöl kom fram hjá fjár- mála- og efnahagsmálaráðherra, Benedikt Jóhannessyni, að pen- ingamagn í umferð um þessar mundir svaraði til þess að hvert mannsbarn væri með undir kodd- anum um 180 þús. kr. í reiðufé. Hér er um ótrúlega háa fjárhæð að ræða og spyrja má hvaðan allir þessir peningar komi á sama tíma og kortanotkun almennings vex frá ári til árs, sem ætti nú að minnka peningamagn í umferð. Minnka peninga í umferð Til þess að draga úr peninga- magni í umferð nefndi hann að hann hefði í hyggju að setja lög sem bönnuðu vinnuveitendum að greiða út laun í reiðufé og til þess að draga úr möguleikunum til þess að koma svörtum peningum í um- ferð mætti hugsa sér að bannað yrði að greiða fyrir stærri hluti með reiðufé. Hann tók sem dæmi að hann hefði heyrt dæmi þess að menn væru farnir að greiða dýra bíla með reiðufé. Sjálfur heyrði ég fyrir nokkru að íbúðarkaupandi hefði komið með 10 milljónir í 10.000 kr. seðlum í plastpoka á fast- eignasölu til þess að greiða hluta í íbúð sem hann hafði fest sér. Að mínu mati kemur mikið af þessum peningum frá blessuðum ferðamönnunum sem heimsækja okkur sífellt fleiri og fleiri. Þeirra fyrsta verk þegar þeir koma til landsins er trúlega það sama og þegar við förum til útlanda, þ.e. að fara í hraðbanka og taka út peninga í viðkomandi mynt. Einhverra hluta vegna erum við mörg þeirrar gerðar að nota kortið sem minnst er- lendis og alls ekki í þetta dagsdaglega, þ.e. veitingar, leigu- bíla og smærri inn- kaup. Til þess að draga úr peningum í umferð má hugsa sér að gera ferða- þjónustuaðilum, a.m.k. þeim sem selja veitingar og gistingu, skylt að öll sala þeirra á þjónustu fari um greiðslukort. Það er einfalt þar sem þessi þjónusta er leyfisskyld hvað ég best veit og því einfalt að setja það sem skilyrði fyrir leyfinu. Eftirlitinu yrði þannig háttað að skýrt kæmi fram á áberandi stað að greiðsla með reiðufé væri óheimil og ef út af brygði væri heimilt að beita viðurlögum. Ábyrgðin er beggja Ábyrgðin á því að rétt væri haft við væri beggja, þ.e. kaupanda og seljanda. Þetta þyrfti síðan að kynna skilmerkilega fyrir erlendum ferðamönnum við komuna til lands- ins. Sannfærður er ég um að er- lendir ferðamenn mundu hlíta þessu og ekki vera tilbúnir til þess að taka þá áhættu sem fylgja mundi greiðslu með reiðufé. Að mínu mati á að banna við- skipti með reiðufé, en þar til það kemst á er hægt að ná verulegum árangri með því að taka úr umferð bæði 10 og 5 þúsund kr. seðla og jafnvel líka þúsundkallinn en halda í umferð verðminni myntunum sem ætti að nægja þeim sem ekki vilja greiða lágar fjárhæðir með korti, svo sem í stöðumæla o.s.frv. Sé ekki fyrir mér að vinnuveit- endur yrðu viljugir að greiða mörg- um út laun í reiðufé, einhver hundr- uð þúsund pr. mann í 500 kr. seðlum eða að bílar upp á milljónir og aðrir dýrir hlutir á mælikvarða hins svokallaða venjulega manns yrðu þannig greiddir. Jafnvel þótt þúsundkallinn yrði áfram í umferð. Með aðgerðum af þessu tagi yrðu tæpast öll skattsvik úr sögunni og það eru örugglega fleiri en erlendir ferðamenn sem koma reiðufé í um- ferð þótt þeir séu trúlega nokkuð mikilvirkir á því sviði. Einföld aðgerð Hér er um frekar einfaldar að- gerðir að ræða sem ekki ættu að kalla á skipun margmennrar nefnd- ar sérfræðinga sem mundi skila sverum innbundnum skýrslum með fjöldanum öllum af rándýrum stimpluðum sérálitum „svokallaðra sérfræðinga“ eftir missera stíf fundahöld. Hér er það fyrst og fremst spurningin hvort aðgerðir af þessu tagi rúmist innan gildandi laga sem ætti nú ekki að flækjast fyrir öllum lögmönnunum sem starfa hjá hinu opinbera. Síðan er það hinn hópurinn sem orðinn er þróaðri á þessu sviði, bú- inn að stofna aflandsfélög til þess að halda utan um ljósfælna peninga sem gnægð virðist af. Í mínum huga skiptir ekki máli hvort eig- endur þessara félaga hafi sagst hafa greitt öll tilskilin gjöld af pen- ingum eða að það hafi engin starf- semi farið fram í nafni þeirra. Það eitt að stofna þau segir allt sem segja þarf því tæpast hafa þrautp- índir íslenskir athafnamenn leitað til ráðgjafa á þessum útskerjum um stofnun félags bara að „gamni sínu“ af engu tilefni, nei slíkt gengur a.m.k. ekki í mig. Nei, athafnamenn í okkar ágæta samfélagi leggja tæpast upp í slíka för nema af einu tilefni: Að hafa af því ávinning. Eftir Helga Laxdal »Munu ekki greiða mörgum laun í reiðufé, einhver hundr- uð þúsund pr. mann í 1.000 kr. seðlum, eða annað uppá milljónir yrði þannig greitt. Helgi Laxdal Höfundur er vélfræðingur og fyrrverandi yfirvélstjóri. Af ljósfælnum peningum Það er margt í skýrslu vistheimila- nefndar um vistun barna á Kópavogshæli 1952-1993 sem fær mann til að hugsa – líka til framtíðar. Tíðarand- inn er nefnilega lúmsk- ur andskoti en hann er skilgreindur sem al- menn eða ríkjandi við- horf á tilteknu tíma- skeiði. Í umræðunni um skýrslu vistheimila- nefndar um vistun fatl- aðra barna og reyndar fullorðinna líka á Kópa- vogshælinu hafa sumir tekið sér þetta orð í munn. Tíðarandi. Töl- um aðeins meira um tíðarandann, hann get- ur falið í sér gæfu og gleði fyrir suma en harmleiki og hörm- ungar fyrir aðra. Um leið og ég votta börnum og fullorðnum sem þurftu að upplifa þennan tíðaranda samúð mína sem og aðstandendum, vil ég að við hugsum um tíðarand- ann bæði í dag og hvers konar tíð- aranda við stefnum á framtíðinni. Öryrkjar eru hópur af mann- eskjum sem á undir högg að sækja í samfélaginu, margir þeirra eru fatl- aðir eða búa við það mikinn heilsu- brest að þeir geta ekki stundað fulla vinnu. Það er læknisfræðilegt mat. Öryrkjar eru hins vegar ekki sam- kvæmishæfir í samfélaginu eins og það er í dag, hvað þá samkeppnis- hæfir og geta margir illilega lifað sjálfstæðu lífi. Og hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir eiga ekki pen- inga. Almannatryggingakerfið hefur og er að bregðast þeim. Öryrkjar er sá hópur í samfélaginu sem er við- kvæmastur fyrir afstæðri eða al- gildri fátækt. Og fordómarnir klingja sem og fáfræðin – alveg eins og flestir voru voðalega hissa á illri meðferð fatlaðra á Kópavogshælinu eða vissu af henni en svo virðist sem enginn hafi haft vald til að sporna við því sem fram fór. Mega öryrkjar ekki lifa mannsæmandi lífi? Við megum ekki gleyma því að stundum og reyndar oft verður læknisfræðilegt vandamál að félags- legum vanda, í þeirri lífsbaráttu sem heilsuvana manneskjur þurfa að takast á við. Þess vegna skiptir svo miklu máli að öryrkjar fái stuðning til að lifa sjálfstæðu lífi, ekki eins og hálfdrættingar upp á aðra komnir. Í könnun sem Ör- yrkjabandalag Íslands lét gera um fatlað fólk og öryrkja í sveitar- félögum árið 2013 kom í ljós að því betri sem fjárhagsstaða fatlaðra og öryrkja var því hamingjusamari voru þeir. Skiptir hamingjan ör- yrkja ekki líka máli? Það er því ekk- ert undarlegt að í undanfara Mann- réttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna árið 1948 voru talin upp á meðal annarra réttindi af efnahags- legum toga. Fatlað fólk og ör- yrkjar eru stolt fólk sem býr yfir marg- víslegri reynslu, getu og hæfileikum sem það vill nýta sér og öðrum til handa. En tíðarandinn er bara oftast ekki sammála því. „Við skulum setja öryrkjana í sérstakt hólf, viljum sem minnst af þeim vita. Þeir eru hvort sem er alltaf að kvarta, vilja meiri pening og munu setja bæði ríkissjóð og lífeyrissjóðina í þrot og heimta alltaf meiri og meiri þjón- ustu, fyrir utan nú það að þeir fjölga sér eins og rottur.“ Hvenær verður tíðarandinn öryrkjum í hag? Samtök atvinnulífs- ins virðast t.d. senda árlega frá sér fréttatilkynningu um meinta fjölgun öryrkja og hversu slæmt þetta er fyrir ofangreinda aðila og vinnumarkaðinn í heild. Ég hef hins vegar ekki séð neinar til- lögur frá þeim um hvernig sveigja mætti vinnumarkaðinn betur að þörfum öryrkja og bjóða upp á fleiri hlutastörf, því oftast fer fólk á ör- orku þar sem það getur ekki unnið fullt starf. Tilkynningar samtak- anna lykta af fordómum, vanþekk- ingu á aðstæðum öryrkja og hags- munagæslu. En samkvæmt yfirlýsingum þeirra hljóta fjölmörg fyrirtæki innan þeirra vébanda að vilja öryrkja í vinnu – eða hvað? Nýlega vísaði Hæstiréttur Ís- lands fjárkröfu öryrkja frá dómi en krafa hans var grundvölluð á þeim forsendum að örorkubætur dygðu ekki til að lifa mannsæmandi lífi (bara það að þetta skuli nefnt bæt- ur segir sitt um upphæðirnar). Ör- yrkinn fór því fram á mismuninn sem væri á örorkubótum hans og þess framfærsluviðmiðs sem Vel- ferðarráðuneytið setur, sem í tilfelli öryrkjans var 2,1 milljón kr. á árinu 2012. Hæstiréttur taldi hins vegar að það væri ekki dómstóla að taka ákvörðun um málefni sem heyri undir handhafa löggjafarvaldsins. Bætur eru langt undir velferðarvið- miði en það virðist bara sem öllum sé sama! Svona er þetta bara, óheppin/n þú. Já, þeir voru sannarlega óheppn- ir sem þurftu að vistast á Kópa- vogshælinu. Tíðarandinn var ekki þeim í hag. En nú skulum við horfa til ársins 2040 eða 2050. Þurfa stjórnvöld þess tíma að biðja ör- yrkja afsökunar og greiða þeim sanngirnisbætur vegna ónógrar framfærslu? Vegna þess að tíðar- andinn árið 2017 var bara svoleiðis? Hvað haldið þið frændur, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Benedikt Jóhannesson, fjármála- ráðherra? Þið hafið valdið. Ég bíð eftir svari. Tíðarandinn Eftir Unni H. Jóhannsdóttur » Tölum að- eins meira um tíðarandann, hann getur falið í sér gæfu og gleði fyrir suma en harmleiki og hörmungar fyrir aðra. Unnur H. Jóhannsdóttir Höfundur er kennari, blaðamaður og diploma í fötlunarfræði. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.