Morgunblaðið - 16.02.2017, Side 24

Morgunblaðið - 16.02.2017, Side 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 KONU DAGUR í Blómavali Glæsilegir kaupaukar fylgja öllum vöndum meðan birgðir endast 4.990kr Konudags- vöndur IN CINEMAS FEBR2fyrir1Þessi miði gildir 2 fyrir 1 á kvik Fifty Shades Darker. Miðinn gildir Háskólabíó, Borgarbíó Akureyri, Se Sambíóin Egilshöll og Kringlun Gildir aðeins Sunnudag 19. febrúar 20 í eftirfarandi k UARY 10 í myndinaí Smárabíó,lfossbíó,ni. Með því að velja hráefnið af kostgæfni, nota engin aukaefni og hafa verkhefðir fyrri tíma í hávegum, framleiðum við heilnæmar og bragðgóðar sjávarafurðir. Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Kostur, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin. Hvað þarf eldri borg- ari mikið sér til fram- færslu? Í dag hefur sá sem þarf að treysta eingöngu á almanna- tryggingar 197 þúsund krónur á mánuði eftir skatt. (Þeir sem eru í hjónabandi eða sam- búð.) Þetta er ekki prentvilla. Lífeyrir þessa fólks nær ekki 200 þúsund krónum á mánuði eftir skatt á sama tíma og sagt er að góðæri sé á Íslandi og meðaltekjur í þjóðfélaginu eru 620 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt. Miklar launahækkanir sl. tvö ár Undanfarin tvö ár hafa orðið gífurlega miklar launahækkanir í landinu. Launafólk, faglært og ófag- lært, hefur fengið hækkanir á bilinu 14,5-55%. Alþingismenn fengu 55% launahækkun á síðasta ári, ráð- herrar fengu 44% hækkun og æðstu embættismenn fengu allt að 48% hækkun á síðasta ári, sem gilti aftur- virkt í 18 mánuði. Á meðan þessar miklu hækkanir áttu sér stað voru aldraðir og öryrkjar skildir eftir. Þeir fengu mjög litla hækkun á líf- eyri sínum. Um áramótin fengu þeir eldri borgarar, sem nú hafa 197 þús- und krónur á mánuði, 12 þúsund króna hækkun á mánuði. Það voru öll ósköpin. Lífeyrir dugar ekki fyrir öllum útgjöldum Það er engin leið að lifa sómasamlegu lífi af 197 þúsund krónum á mánuði. Húsaleiga hef- ur stórhækkað, svo og allur húsnæðis- kostnaður. Algeng húsaleiga fyrir 2ja-3ja herbergja íbúð er í dag 130-200 þúsund kr. á mánuði. Þegar búið er að borga húsaleigu, rafmagn og hita er lítið eftir fyrir öllum öðrum út- gjöldum, mat, fatnaði, hreinlætis- vörum, síma, sjónvarpi og rekstri tölvu. Erfitt eða ókleift er að reka bíl af þessum lága lífeyri. Ef ekki er um bíl að ræða þarf að borga í strætis- vagnagjöld eða annan samgöngu- kostnað. Lífeyrir er svo naumt skammtaður til aldraðra að algengt er að hann dugi ekki fyrir öllum brýnustu útgjöldum. Læknishjálp og lyf verða oftast út undan og stundum matur. Slík meðferð á öldr- Eftir Björgvin Guðmundsson » Lífeyrir er svo naumt skammtaður til aldraðra að algengt er að hann dugi ekki fyrir öllum brýnustu útgjöldum. Björgvin Guðmundsson Góðærið ekki komið til aldraðra Grínistinn Laddi hefur skapað marga ógleymanlega karakt- era á litríkum ferli sínum okkur flestum til ánægjuauka. Það er þó ekki víst. Ein fígúran er Marteinn Mosdal, sem er tákn- mynd hins allsráð- andi ríkis, og með honum var skopast að þeim hugmyndum að ekkert mætti vera eða gera nema undir alsjáandi ríkisforsjá. Eitt dæmi Mosdals var sú fásinna að einhver andskotans einkafyrir- tæki úti í bæ væru eins og asnar að framleiða í fullri samkeppni margar tegundir af gosdrykkjum, heldur ætti auðvitað að vera hér eitt ríkislímonaði. En fyrir okkur sem aðhyllumst frelsi fólksins til orðs og æðis er ekki hægt að hlæja að þeim aftur sívaxandi hug- myndum um alræði ríkisins sem koma nú fram svo víða í stóru sem smáu. Það er bannað Nýjasta dæmið er sú hugmynd nýs fjármálaráðherra að ríkið eigi að skipta sér af og stýra því hvernig almenningur notar pen- ingana sína; að koma t.d. í veg fyr- ir að reiðufé sé notað nema að því marki sem ríkið setur. Skattaund- anskot eiga sér stað en ekki líst mér á þessa aðferð til þess að vinna gegn slíku og gefið er í skyn að Stóri bróðir ætli vakandi og sofandi að fylgjast enn betur með peningahreyfingum landsmanna en nú þegar er gert. Fólk mun aug- ljóslega bera kostnaðinn af milli- færslunum og getur þá ekki valið sér það að nota ekki greiðslukort t.d. í sparnaðarskyni ef það vill hafa það þannig, sem er ekki nógu hagstætt fyrir fjármálafyrirtækin sem ríkið vill alltaf hlaða sem mest undir á kostnað almennings. Fólk verður auðvitað að átta sig á því að sjálfsval er auðvitað af hinu illa. Allt til ríkisins Fyrst ég er byrj- aður og þessi stjórn- málamaður er kominn hér á blað þá get ég ekki stillt mig um að minna á að stefna hans og flokks hans er að koma Íslandi undir ESB og afsala þar með miklu af því sjálf- stæði okkar sem eftir er eftir aðildina að EES. Það er auðvitað slæmt fyrir íslensku ríkisforsjána að flokkur- inn vilji m.a. afhenda frá okkur sjávarauðlindina, en til betrumbóta vill flokkurinn að þangað til að hún verður komin undir yfirstjórn út- lendra alríkiskontórista vill hann setja allar veiðiheimildir á opinber uppboð til þess að ná sem mestu til ríkisins. Í skrumskælingu popúlismans er þetta kallað að ná markaðsverði til þess að fela til- ganginn. Ekki hefur heyrst um það að jafnhliða eigi að afnema eða lækka sérsköttun á atvinnugrein- ina og er ólíklegt að svo skelfilega langt verði gengið. Með þessu fá aðeins þeir sem best eru fjár- magnaðir og veiðiheimildirnar fær- ast á enn færri hendur. Ekki er hirt um hvað verður þá um það sem eftir verður í sjávarþorpunum í kringum landið, en líklega verður það tryggt að menn muni ekki lengur vera svo vitlausir að hætta sér og fjármunum sínum í fjárfest- ingar í sjávarútvegi og helst ekki einu eða neinu og þannig verði komið í veg fyrir að arður skapist nokkurs staðar og þar með arð- greiðslur til einstaklinga, sem er alls ólíðandi, jafnvel þótt skatt- lagðar séu. Veikindi eru einkamál ríkisins Því miður er mjög góð reynsla af einkarekstri á heilbrigðissviði þar sem hann er leyfður af hinu opinbera, en þúsundirnar hafa not- ið aðgerða hjá slíkum, undirritaður þar á meðal. Það tókst sem betur fer að stoppa það að einhverjir einstaklingar fengju að leigja fullbúið sjúkrahús á Keflavíkur- flugvelli sem varnarliðið skildi eft- ir og stendur enn autt og ónotað, en ætlunin var að nýta það til þess að selja borgandi útlendingum læknisþjónustu og hafa eitthvað upp úr því og á sama tíma skapa hvatningu til íslenskra lækna sem starfandi erlendis að koma heim. Það sama var um þær fyrirætlanir að reisa stórt nýtt og nútíma- sjúkrahús og endurhæfingarhótel í Mosfellsbæ. Samkvæmt fréttum átti víst að gera út á útlend trygg- ingarfélög og vel borgandi sjúk- linga erlendis frá með því að bjóða upp á sérhæfðar aðgerðir og skapa gjaldeyristekjur, þekkingu og auk- in sambönd við sjúkrastofnanir víða um lönd. Hættan var og er alltaf talin sú að að einhver veikur Íslendingur mundi vilja troða sér inn á slíkt og tækist að fara fram fyrir biðraðir og ríkislista á ís- lenskum ríkisstofnunum og læknast. Frjálsir valkostir væru slæmir og betra að ríkir Íslend- ingar færu til útlanda og fengju sér borgið þar. Erfitt mál Nýr heilbrigðisráðherra, sam- spyrðingur fjármálaráðherrans, er sagður standa frammi fyrir mikl- um vanda. Fyrirbærið Klíníkin í Ármúla, sem ekki er ríkisfyrir- tæki, hefur leyft sér að bjóða upp á sérhæfða sjúkrahúsþjónustu með fimm daga legudeild, sem hún hef- ur leyfi frá landlækni til að veita. Sérhagsmunafélagið BSRB setur Allt eins og það á að vera Eftir Kjartan Örn Kjartansson Kjartan Örn Kjartansson » Auðvitað er ekki minnst á aukaatriði eins og velferð sjúkling- anna heldur sé um all- svakalega einkavæðingu að ræða sem sé það versta sem til er. Gæfulega byrjar ný ríkisstjórn. Við- reisnarforinginn ætlar að taka af okkur almenningi peningana til að bankarnir geti kortlagt okkur al- gjörlega og grætt enn meira. Þor- steinn ætlar að láta fyrirtækin borga skitin fimm hundr- uð þúsund til að byrja með fyrir jafnlaunavottun. Forræðishyggjan í fyrirrúmi. Þorgerður þyrfti kannski að læra meira, eins og hún sagði í frægri hrunbíómynd. Sjálfstæðisflokkurinn lofaði að hækka ekki skattana, þeir ætla bara að búa til nýja skatta. Jón ætlar að láta okkur borga fyrir að komast úr höfuðborginni og ber það saman við Hvalfjarðargöng sem voru fjár- mögnuð af einkaaðilum. Ótrúlegt. Ég verð að viðurkenna að ég kaus þenn- an mann í síðustu kosningum. Ég biðst innilegrar afsökunar á því og lofa að gera það aldrei aftur. Einar Pétursson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Afsökun Reiðufé Mörgum þykir gott að eiga reiðufé. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.