Morgunblaðið - 16.02.2017, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 16.02.2017, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 ✝ Högna Sigurð-ardóttir fæddist 6. júlí 1929 í Birt- ingaholti í Vest- mannaeyjum. Hún lést í Reykjavík 10. febrúar 2017. Foreldrar hennar voru Sigurður Frið- riksson, f. 22. ágúst 1898 á Ytri- Sólheimum, Dyr- hólahreppi, V- Skaftafellssýslu, d. 7. maí 1980, útgerðarmaður í Vestmanna- eyjum, og Ísleif Elísabet Hall- grímsdóttir, f. 4. apríl 1905 á Felli í Mýrdal, V-Skaftafellssýslu, hús- móðir, d. 30. mars 2004. Systir Högnu er Móeiður húsmóðir, f. 20. apríl 1944 í Vestmannaeyjum. Hálfbróðir samfeðra er Sigurður forstjóri, f. 28. apríl 1926 í Reykjavík, d. 31. janúar 2003. Högna ólst upp í Eyjum en fór tólf ára gömul til náms í Reykja- vík, fyrst í Ingimarsskóla og síð- an við Menntaskólann í Reykja- vík. Högna lauk stúdentsprófi úr máladeild Menntaskólans í Reykjavík 1948 og úr stærð- fræðideild sama skóla 1949. Hún stundaði nám í við École Nation- ale Superieure des Beaux Arts í ingarsögu fyrir framsækna hönn- un og óvenjulega efnisnotkun. Ár- ið 2000 var eitt þessara húsa, Bakkaflöt 1 í Garðabæ, valið ein af eitt hundrað merkustu bygg- ingum 20. aldar í norður- og mið- hluta Evrópu, í tengslum við út- gáfu alþjóðlegs yfirlitsrits um byggingarlist 20. aldar. Árið 1992 tók Högna Sigurðardóttir sæti í akademíu franskra arkitekta. Högna hlaut heiðursorðu Sjón- listar árið 2007 fyrir einstakt framlag sitt til íslenskrar nútíma- byggingarlistar og var kjörin heiðursfélagi Arkitektafélags Ís- lands árið 2008. Högna giftist árið 1953 Gerald Anspach listaverka- sala, f. 10. nóvember 1922 í Berl- ín. Þau skildu. Dætur þeirra eru: 1) Sólveig Anspach, f. 8. desem- ber 1960, í Vestmannaeyjum, d. 7. ágúst 2015, kvikmyndaleikstjóri í Frakklandi. Dóttir Sólveigar og Stephan Lemaire er Clara Ljúfa, f. 1996. 2) Þórunn Edda Anspach, f. 6. ágúst 1964 í Vestmanna- eyjum, verslunareigandi, búsett í New York. Eiginmaður hennar er Olivier Brémond. Börn þeirra eru Alma, Leo og Dóra. Útför Högnu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 16. febrúar 2017, klukkan 15. París, Frakklandi, á árunum 1949-1960. Högna lauk loka- prófi í arkitektúr 1960 og hlaut sér- staka viðurkenningu fyrir fyrir bestu prófteikninguna, svonefnd Guadet- verðlaun, ásamt heiðursverðlaunum Félags franskra arkitekta. Verðlaun arkitektafélagsins veittu henni starfsréttindi í Frakklandi. Um líkt leyti lauk hún við teikningar af fyrsta verki sínu, íbúðarhúsi í Vestmannaeyjum. Með því varð hún fyrsta konan í stétt arkitekta til að teikna hús hér á landi. Högna var lengstum búsett í Par- ís og starfaði þar sem arkitekt en vann einnig að verkefnum hér á landi. Hún rak eigin teiknistofu í París frá 1961 fram til 1972, er stofan var rekin sameiginlega með arkitektunum Andre Crespel og Jean Pierre Humbaire. Frá 1988 bættist Bernard Ropa, arki- tekt, í félag um rekstur stofunnar. Á 7. áratug 20. aldar teiknaði Högna fjögur íbúðarhús í Reykja- vík, Kópavogi og Garðabæ sem sættu tíðindum í íslenskri bygg- Veiztu ef þú vin átt Þann er þú vel trúir Og vilt þú af honum gott geta Geði skaltu við þann blanda Og gjöfum skipta Fara að finna oft. (Úr Hávamálum). Mín ljúfasta vina er nú horfin mér og langar mig að minnast hennar: Við sitjum saman að vori, í byrjun sjötta áratugarins, á bekk í Cimetière Montparnasse og syngjum „Nú andar suðrið …“ með tár í augum, ættjarðarástina í hjörtum okkar og vináttu sem fæðist og endist ævilangt. Síðar höguðu örlögin því þann- ig til, að við áttum báðar eftir að eyða mestum hluta ævi okkar fjarri fósturjörðinni – Högna í Frakklandi – ég í Mexíkó. Aldrei rofnaði þó vináttan og okkar góða samband. Hún eignaðist dætur sínar tvær, Sólveigu og Þórunni Eddu og helgaði sig þeim og ævistarf sitt, húsagerðarlistinni. Arkítekt- úrinn átti hug hennar og hjarta og árangurinn eftir því, enda var það sem hún tók sér fyrir hendur alltaf fullkomið. Ég var líka upptekin með börn- in mín fjögur, en átti mann sem elskaði að ferðast. Því var það svo að þegar ég hringdi í Högnu, sagði hún alltaf: „Ertu að koma?“ Það voru ófá skiptin, sem við náðum að hittast í París og þá var alltaf jafn- gaman að vera saman í þessari fögru borg. Við nutum arkítektúrs og listasýninga, tónleika í hinum fornu kirkjum, eða fórum í bíó í einhverju hinna óteljandi bíóhúsa Parísarborgar. Hún var auðvitað Parísardaman „par excellence“ sem ég dáði og fannst ég alltaf læra eitthvað nýtt af. Högna var líka gædd ein- stökum persónutöfrun og útgeisl- un sem allir löðuðust að og elsk- uðu. Mín gæfa var að börnin mín fjögur og báðir eiginmenn urðu einnig vinir hennar, enda var hún manneskja sem alltaf var sjálf- sagt að hafa með og taka tillit til. Hún kom aðeins einu sinni til Mexíkó, í brúðkaup dóttur okkar árið 1990. Þetta voru gleðitímar og vin- kona mín fór á kostum. Alfonso Ara syni mínum, 25 ára gömlum þá, fannst hún svo skemmtileg að hann hafði á orði að hann gæti bara orðið skotinn í henni sex- tugri konunni! Hún hreifst af landinu og við ferðuðumst víða, heimsóttum nýlendubæi Mið-Mexíkó og Mexíkóborg. Við, ásamt Ernu Steinu frænku minni, keyrðum um allan Yucatan-skaga að skoða fornar rústir Maya og auðvitað sungum við þá líka fullum hálsi ís- lenzka ættjarðarsöngva! Við vinkonur snerum aftur til heimalandsins, bjuggum um tíma báðar í Þingholtunum og áttum falleg og sólrík sumur saman með fjölskyldum og vinum á fyrri hluta þessarar aldar. Síðustu árin tók það mig sárt að sjá hana glíma við erfiðan sjúk- dóm og verða síðan fyrir því mikla áfalli að missa Sólveigu, dóttur sína, en það er huggun harmi gegn að Sólveig átti ynd- islega dóttur og Þórunn fallega fjölskyldu og þannig lifir Högna áfram með okkur. Ég á minninguna um mína yndislegu og hæfileikaríku vin- konu og vona að kapellan hennar verði reist í Vestmannaeyjum. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr, en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Ég votta Þórunni, barnabörn- unum, fjölskyldu og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Erna Geirdal. Íslendingar eiga Högnu Sig- urðardóttur arkitekt að þakka stuttan en dýrmætan kafla í sögu byggingarlistar sinnar. Þó að hús Högnu hér á landi séu hvorki mörg né stór í fermetrum talið mælast þau þeim mun stærri í listrænum víddum. Högna varð fyrst Íslendinga til að ljúka námi frá listaakademíunni í París, ein- um virtasta arkitektaskóla heims. Frábær árangur hennar á loka- prófi árið 1960 tyggði henni rétt- indi til að starfa sem arkitekt í Frakklandi. Um líkt leyti lauk hún við teikningar af fyrsta verki sínu, íbúðarhúsi í Vestmannaeyj- um. Með því varð hún fyrsta kon- an í stétt arkitekta til að teikna hús hér á landi. Högna var lengst- um búsett í París og starfaði þar sem arkitekt en vann einnig að verkefnum hér á landi. Nýútskrifuð skipaði Högna sér í framvarðarsveit arkitekta með ný og róttæk viðhorf. Alla tíð síð- an hefur nafn hennar verið tengt framsækinni byggingarlist. Snemma á 7. áratugnum teiknaði hún íbúðarhús í Reykjavík, Kópa- vogi og Garðabæ sem þóttu og þykja enn tíðindum sæta. Þar fléttast saman í heilsteyptu verki nýjasta hugsun þess tíma í arki- tektúr og næm tilfinning höfund- arins fyrir félagslegum þörfum, staðháttum og veðurfari, birtu og formi, efni og áferð. Borð, bekkir og rúm eru hluti af sjálfu húsinu líkt og rúmstæðin í gömlu bað- stofunum. Garðar á þaki og gróð- urreitir innan dyra árétta tengsl hússins við land og náttúru. Hrá, ómáluð steypa er notuð til að draga fram fágun annarra bygg- ingarefna. Sjálf notaði Högna orðið hreiður til að lýsa sínu kunnasta verki, húsinu við Bakkaflöt 1 í Garðabæ, sem byggt er inn í landið en opnar um leið faðm sinn á móti rísandi sól. Persónuleg túlkun Högnu á fornri byggingarhefð landsins gerir Bakkaflöt 1 að einu mikil- vægasta verki íslenskrar bygg- ingarlistar á 20. öld. Með áræðni sinni og listræn- um metnaði varð Högna snemma mikilvæg fyrirmynd yngra fólks í arkitektafaginu, ekki síst fyrir þær konur sem kusu að hasla sér völl í rótgróinni karlastétt. Fyrstu kynni af verkum Högnu urðu mér og mörgum fleiri list- ræn opinberun sem seint gleym- ist. Með list sinni auðgaði hún líf okkar og styrkti okkur í trúnni á arkitektúr sem mikilvægt um- bótaafl. Við sem urðum svo lán- söm að kynnast Högnu í eigin persónu eigum dýrmæta minn- ingu um yndislega manneskju sem var sönn og heil í orði og verki, stór í hugsun og næm á allt sem máli skipti. Hún hafði lifandi áhuga á öllu nýju, hugur hennar var opinn fyrir skapandi hugsun á öllum sviðum. Einmitt þess vegna gat verið erfitt að fá Högnu til að tala um fortíð og fyrri verk. Hún vildi miklu heldur ræða nýjustu bygginguna eftir þennan eða hinn arkitektinn, bókina, sýn- inguna, geisladiskinn eða kvik- myndina sem hún var nýbúin að sjá. Á kveðjustund á ég enga betri ósk en að hugmynd Högnu um lif- andi samband náttúru og bygg- ingarlistar sem hún lýsti svo vel í orðum sínum og byggingum fái að vaxa og dafna í verkum kom- andi kynslóða. Fjölskyldu hennar votta ég innilega samúð. Pétur H. Ármannsson. Það var á mildum haustdegi ár- ið 2010 að Högna kom gangandi utan af Seltjarnarnesi til okkar á teiknistofuna. Hún hafði hringt á undan sér og átti við okkur erindi. Hún óskaði eftir aðstoð við að koma hugmyndum sínum um út- færslu Ofanleitiskapellu í Vest- mannaeyjum á blað. Tillögu að kapellunni gerði Högna árið 1981 til minningar um horfna sjómenn. Þessi fundur okkar í Vesturbæn- um var upphafið af stórkostlegu ferðalagi þar sem við í sameiningu skrásettum alla listræna ákvarð- anatöku hennar varðandi kapell- una. Sama haust sigldum við frá Landeyjahöfn til Heimaeyjar. Leiðin lá í átt að Stórhöfða. Það var blíðskaparveður og fagurt út- sýni þegar við skoðuðum aðstæð- ur að Ofanleiti, þar sem til forna stóð prestssetur og kapella. Við vorum komin á staðinn þar sem Högna sá fyrir sé að kapellan yrði byggð. Tillaga Högnu gerir ráð fyrir að skáhallandi grasi vaxnar manir umlyki útveggi og upp úr sléttum þökum rísi þrír ljósturnar sem kallast á við smáeyjarnar Hana, Hænu og Hrauney. Eyj- arnar þrjár og skerið Grasleysa mynda altarismynd útikapellu. Frá útikapellunni er gengið inn í rökkvað anddyrið og þaðan um þröng göng að kapellurýminu þar sem birta frá ljósturni flæðir niður að altari og á krossinn sem stend- ur „léttur og stjörnuskær“ til hlið- ar við altarið – sannkallað ferðalag úr myrkri að ljósi, frá missi til von- ar. Högna var fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og Ofanleitiska- pella er án efa persónulegasta verk hennar. Hún hafði sterkar rætur í náttúru og mannlífi í Eyj- um og að þeim rótum snýr hún aft- ur í kapellunni með allan sinn fag- lega styrk og reynslu. Það eru forréttindi að hafa fengið að vinna með henni og læra af henni enda hafði hún til að bera faglegt innsæi og næmi allt fram á síðasta fund okkar í byrjun aðventu. Það var eins og hún vísaði ávallt leiðina að kjarnanum og við snerum breytt- ar, sterkari og dýpri frá hverjum fundi. Högnu þökkum við ljúfa og lærdómsríka samveru um leið og við vottum fjölskyldu hennar og vinum okkar dýpstu samúð. Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir. Högna Sigurðardóttir ✝ Kristján Sig-fússon fædd- ist á Arnarhóli 21. október 1926. Hann lést 16. jan- úar 2017. Foreldrar hans voru Sigurlína Sigmundsdóttir, fædd 21. mars 1904, d. 16. ágúst 1951, og Sigfús Helgi Hallgríms- son, fæddur 2. október 1898, d. 21. nóvember 1987. Sigurlína og Sigfús eignuð- ust sex börn. Elstur var Krist- ján. Systkini Kristjáns eru Hreiðar Kristinn, áður bóndi á Ytra-Hóli II nú til heimilis að Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, dórssyni. Kristján var einn af stofnendum leikfélags Öngul- staðahrepps og vann mikið fyr- ir það. Hann söng í samkór Öngulsstaðarhrepps, var um tíma í hreppsnefndinni og sá um sjúkrasamlag hreppsins. Þá vann hann að efnissöfnun í Byggðir Eyjafjarðar og var í ritnefnd óútgefins verks í sex bindum sem mun bera nafnið Eyfirðingar framan Varðgjár og Glerár. Hann lék bæði á orgel og harmonikku, og á yngri árum lék hann ásamt Jóni Árnasyni frá Þverá fyrir dansi í gamla þinghúsinu á Þverá. Síðustu árin dvaldi Kristján á dvalarheimili, fyrst í Kjarnalundi og síðar í Lög- mannshlíð. Kristján var ókvæntur og barnlaus. Útför Kristjáns fór fram í kyrrþey frá Höfðakapellu Akureyri 27. janúar 2017. Hreinn, d. 22. nóv- ember 1970, Her- mann, búsettur í Þorlákshöfn, Mar- grét, Þórustöðum 2, Eyjafjarðarsveit og Helgi búsettur á Akureyri. Kristján flutti með foreldrum sínum að Ytra-Hóli í Kaupvangssveit árið 1931 og var heim- ilisfastur þar æ síð- an. Tvo vetur sótti hann skóla að Héraðsskólanum á Lauga- vatni, og var um tíma í Menntaskólanum á Akureyri. Hann rak búskap á Ytra-Hóli 1956-1964. Mjólkurbílstjóri var hann um árabil og vann víða við smíðar ásamt Þórhalli Hall- Kristjáni Sigfússyni var fjöl- margt vel gefið, handlaginn og út- sjónarsamur í vinnu. Hann var bókhneigður og gaf sig snemma að ættfræði. Er ekki ofsagt að hann hafi með tímanum orðið með fróðari mönnum á því sviði. Krist- ján var meðal annars fenginn í rit- nefnd Byggða Eyjafjarðar en stærsta verkefni hans í ættfræði var þó starf hans við ritið Eyfirð- ingar – Framan Glerár og Varð- gjár, sem Sögufélag Eyfirðinga hyggst gefa út. Í Eyfirðingum er í ítarlegu máli (á þriðja þúsund síðum) fjallað um ábúendur í hinum gömlu hreppum Eyjafjarðar- sveitar, frá fyrstu heimildum til ársloka 2000. Aðalhöfundur þess rits lést áður en verkinu var lokið og var þá eftir að fjalla um hluta svæðisins og koma því nær nútím- anum. Var það sérstakt verkefni Kristjáns að bæta þar í eyður, auk þess sem hann starfaði í ritnefnd við frekari frágang. Rit þetta er enn ekki komið út en er um þess- ar mundir verið að búa til prent- unar sem er ekki síst Kristjáni að þakka en aðalstarf hans, síðustu árin sem hann dvaldi á Ytra-Hóli, snerist um þetta mikla ritverk sem Eyfirðingar – Framan Gler- ár og Varðgjár er. Með þessum fátæklegu orðum þakkar stjórn Sögufélags Eyfirð- inga Kristjáni af heilum hug sam- starfið. Við minnumst góðs drengs. Stjórn Sögufélags Eyfirðinga, Jón Hjaltason. Nú hefur Kristján Sigfússon lokið sinni jarðnesku tilveru, og eftir verður aðeins endurminn- ingin um samstarf okkar og sam- veru um áratuga skeið, sem verð- ur okkur hugstæð, og fær okkur til að kveðja hann með nokkrum orðum og þakka honum öll okkar nánu samskipti á liðnum árum. Kristján hafði mörg áhugamál, og stundaði margskonar starf- semi um sína daga, án þess þó að hafa stundað sérnám á ákveðnu sviði. Hann ólst upp á Ytra-Hóli, með foreldrum sínum og systkin- um, og átti þar heimili meðan heilsan leyfði. Hann tók þar þátt í búrekstri um skeið, en fór þó fljótlega að sinna ýmsum störf- um, sem hentuðu áhugamálum hans. Hann var mjög laginn við ýmiskonar handverk, eins og hann átti ættir til, og var mikið til hans leitað um allskonar bygging- arvinnu, ekki síst um viðhald og viðgerðir á húsum. Þá var hann um tíma í hlutastarfi sem mjólk- urbílstjóri. Um skeið starfaði hann tals- vert í félagsmálum, var í hrepps- nefnd, var einn af stofnendum Leikfélags Öngulsstaðahrepps, og var í Samkór Öngulsstaða- hrepps. Aðaláhugamál hans voru þó líklega frekar á andlega sviðinu. Hann kom sér upp miklu bóka- safni og var sífellt að bæta við það. Ekki síst beindist áhugi hans að ritum um ættfræði, og varð hann með tímanum með fróðari mönnum á því sviði. Starfaði hann á þeim vettvangi alllengi á vegum Sögufélags Eyfirðinga. Var þetta aðalstarf hans síðustu árin sem hann dvaldi á Ytra-Hóli. Hafði hann þá náið samband við aðra ættfræðinga. Fyrir allmörgum árum fórum við félagar að hittast á fárra vikna fresti hver hjá öðrum, til að ræða um bækur og skoða bókaeign hinna í hópnum. Það vorum við tveir er þessar línur rita, og Hörð- ur heitinn frá Garðsá, og svo síð- ast en ekki síst Kristján, sem við erum nú að kveðja. Við fórum saman í skoðunar- ferðir í fornbókaverslanir og aðra áhugaverða staði fyrir bókasafn- ara. Varð þetta samstarf okkur öllum til mikillar ánægju. Eftir að Kristján varð að flytja frá Ytra-Hóli vegna erfiðleika með heilsufarið, var hann um tíma á á Kjarna, en síðar í Lög- mannshlíð, þar sem honum fannst gott að vera. Síðust árin hafa þó orðið honum erfið, þar sem hann gat ekki lengur farið úr húsi, og hefur alfarið orðið að nota hjóla- stólinn til að færa sig til innan- húss. Þrátt fyrir þetta hélt hann sínu rólega skaplyndi og hafði gaman af að fá heimsóknir vina og kunningja og ræddi við þá um heima og geima og þá sérstaklega ættfræði og bókmenntir Engu að síður var þetta orðið erfitt líf hjá honum, ekki síst að vera svo mikið þurfandi fyrir að- stoð annarra. Ef til vill hefur hann þá velt fyrir sér eftirfarandi vísu: Nú er ég aldin að árum. Um sig meinin grafa. Senn er sólarlag. Svíður í gömlum sárum. Samt er gaman að hafa lifað svo langan dag. Er syrtir af nótt, til sængur er mál að ganga, – sæt mun hvíldin eftir vegferð stranga, – þá vildi ég, móðir mín, að mildin þín svæfði mig svefninum langa. (Örn Arnarson) Með þessum orðum kveðjum við kæran vin okkar, Kristján Sigfússon. Birgir Þórðarson og Karl Gunnlaugsson. Kristján Sigfússon Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.