Morgunblaðið - 16.02.2017, Side 33
einhver klassi yfir honum sem ég
hafði ekki séð í manneskju áður.
Enda lærði ég mikið af honum, og
þeim hjónum, sérstaklega þegar
kom að matargerð og ferðalögum.
Hjá þeim lærði ég að drekka sóda-
vatn og borða ólívur, ég kynntist
ítalskri og spænskri matargerð
sem hefur fylgt okkur hjónum æ
síðan.
Helgi sló ekki slöku við í lífinu.
Þegar hann talaði þá gekk hann
um gólf með hendur í vösum og
hristi klinkið, og var alltaf eitthvað
að pæla. Viðskipti, og þá helst
ferðabransinn, voru mjög ofarlega
í huga hans enda átti hann farsæl-
an feril í ferðaskrifstofubransan-
um. Það eru ekki margir Íslend-
ingar sem ekki hafa ferðast með
honum Helga. Við fórum ekki
saman í ferðalög nema hann væri
að skoða hótel eða aðra staði til að
bjóða Íslendingum upp á, hver
ferð var nýtt til hins ýtrasta.
Markmiðið hjá honum var að allir
gætu ferðast til útlanda á sem
hagstæðastan máta og það tókst
honum svo sannarlega.
Fjölskyldan var honum allt og
átti hann einstaklega fallegt sam-
band við syni sína. Hann var bæði
einstaklega góður vinur þeirra og
frábær leiðbeinandi og fyrirmynd.
Afahlutverkið tók hann alveg með
trompi, þar fékk litli kennarinn í
honum Helga að njóta sín. Hann
var alltaf að kenna þeim eitthvað,
fótbolta, golfsveifluna eða al-
mennt um lífið. Hann var óþreyt-
andi að mæta á fótboltaæfingar og
leiki svo að eftir var tekið. Heim-
ilið hans var hans griðastaður og
áttu þau hjónin fallegt heimili. Þar
voru bornar fram dásamlegar
máltíðir, þau umkringd góðum
vinum og fjölskyldu og mikið
skrafað og hlegið.
Það má margt af honum Helga
læra og þá sérstaklega að hann
leit aldrei á vandamál eða fyrir-
stöður sem ógn, heldur verkefni
eða áskorun sem þyrfti að leysa og
henti sér í það á fullum krafti með
jákvæðnina að leiðarljósi en þetta
viðhorf hans kom glöggt fram í
veikindum seinustu ára. Helgi bar
virðingu fyrir öllu mannfólkinu,
vildi allt fyrir alla gera og var allt-
af til staðar fyrir fólkið sitt.
Með þessum orðum kveð ég
yndislega tengdapabba minn.
Hans verður sárt saknað. Mín síð-
ustu orð til hans var loforð um að
ég mundi hugsa vel um Hjördísi
hans.
Stelpan þín,
Kristrún.
örugglega alla tíð innra með hon-
um. Tæpast hefur þessum kar-
akterum alltaf lynt fullkomlega í
hugarsambýlinu – en þó furðan-
lega.
Hugsanagangur hans var
skemmtilega óhefðbundinn, bæði
gat hann virkað seinn til svars, en
sagði alltaf eitthvað, er hann tal-
aði. Hann átti til mjög óvænt inn-
skot, í senn eða ýmist djúp og tor-
skilin í fyrstu eða gamansöm.
Hann fór ekki út fyrir efnið, en
var í raun að kippa því í sinn rétta
farveg, dýpka hann og víkka. Ein-
faldar lausnir blöstu skjótt við á
flestum þeim stórmálum sem
kerfið spólar hvað lengst í. Aðra
gerð stórmála fannst Jóni ekki
síður brýnt að minna á, sitthvað
„smálegt“, nógu „stórt“ þó til að
skipta sköpum í mannlegum sam-
skiptum, menningu og þroska-
stigi heilla samfélaga. Húmor
hans fólst í næmu skyni á hið
kímilega í hversdagsleikanum –
húmorinn lá í stemningunni
sjálfri, svo loftið gat mettast
ærslafenginni skapandi kátínu.
Alvörumál er tilgangslaust að
glíma við nema gamansemin sé
skammt undan.
Kynnin af Jóni benda til þess
að einhver djúp og sterk eðlislæg
tengsl leynist milli þessara þátta í
lífi og athöfnun mannanna, sem
e.t.v. mætti styrkja.
Þakklátur er ég vináttu Jóns,
og votta konu hans og vanda-
mönnum einlæga hluttekningu
nú, er komið er að kveðjustund.
Magnús Skúlason.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Heima er bezt tímarit
Þjóðlegt og fróðlegt
Sími 553 8200
www.heimaerbezt.net
Þjónusta
ALHLIÐA
FASTEIGNAVIÐHALD
Uppl. í s: 788 8870 eða
murumogsmidum@murumogsmidum.is
Múrum og smíðum ehf
Byggingavörur
Lóð undir smáhýsi
Lítil (100m2+) lóð óskast fyrir 30 fer-
metra smáhýsi. Mosfellsbær, Reykja-
vík, Seltjarnarnes, Kópavogur,
Garðabær, Hafnarfjörður og fleiri
staðir koma til greina.
Uppl. sendist: magnus@vidur.is eða
gsm. 660 0230, Magnús
Ýmislegt
LAGERHREINSUN !!!
herraskór á kr. 4.900,-
ATH stakar stærðir
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
opið 10–14 laugardaga.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Íslenskar handsmíðaðar
barnaskeiðar
Silfur táknar velsæld og góða heilsu
enda er silfur verðmætt og sótt-
hreinsandi efni. Silfurborðbúnaður,
skart og fl.
ERNA, Skipholti 3,
sími 552 0775,
www.erna.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
Viðhalds-
menn
Tilboð/tímavinna
s. 897 3006
vidhaldsmenn.is
vidhaldsmenn@gmail.com
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér ýmis
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hvammsgerði 12, 203-3656, Reykjavík, þingl. eig. Erlingur Þorsteins-
son og Kristín Pálsdóttir, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Íbúðalána-
sjóður og Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild, mánudaginn 20. febrúar nk.
kl. 10:00.
Rangársel 6, Reykjavík, fnr. 205-5001, þingl. eig. Hljóðfæraverslun
Pálmars Á ehf, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg ogTollstjóri, mánu-
daginn 20. febrúar nk. kl. 14:00.
Strandasel 8, Reykjavík, fnr. 205-4679, þingl. eig. Elfa Björk Ásmunds-
dóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., mánudaginn 20. febrúar nk. kl.
13:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
15. febrúar 2017
Til sölu
Til sölu
Þrotabú GMR Endurvinnslunnar ehf. á Grundar-
tanga auglýsir til sölu stálbræðsluverksmiðju
fyrirtækisins, nánar tiltekið fasteign og
tækjabúnað.
Þeir er kunna að hafa áhuga eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við undirritaðan
skiptastjóra þrotabúsins, í síma 516-4072
eða á netfangið marteinn@logvangur.is
Marteinn Másson, hrl.
skiptastjóri
Lágmúla 7, Reykjavík
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, gönguhópur kl. 10.15, vatnsleik-
fimi kl. 10.50, myndlist kl. 13, prjónakaffi kl. 13, bókmenntaklúbbur kl.
13.15, jóga kl. 18.
Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16, leikfimi
með Maríu kl. 9-9.45, helgistund Seljakirkju kl. 10.30-11, handavinna
með leiðbeinanda kl. 12.30-16.30, spilað kanasta kl. 13-15, myndlist
með Elsu kl. 14.15-18.
Boðinn Botsía kl. 10.30, brids og kanasta kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16, morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40, bókband kl. 13-16, bókabíllinn á staðnum frá kl.
14.30-15.30, opið kaffihús kl. 14.30-15.30. Verið öll velkomin.
Dalbraut 18-20 Bókabíllinn kl. 11.30.
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, stólajóga kl.10.30, prjónakaffi
kl.14, Óli og Embla kl. 14.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverksstofa kl. 9, upplestur
kl.10.15, botsía kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30. Nánari upplýsingar í
síma 411-2550. Verið öll velkomin.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi / Lindargata 59 Bókband kl. 9-13.
Postulínsmálun kl. 9-12, upplestur framhaldssögu kl. 12.30-13. Handa-
vinna með leiðsögn kl. 13.30-16, brids, frjálst kl. 13-16.30. Stólaleik-
fimi kl. 13-13.30, prjónaklúbbur kl. 13.30-16, helgistund, prestar Hall-
grímskirkju kl. 13.30-14, fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16. Qi-
gong í Sjálandsskóla kl. 9.10, karlaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 13 og
botsía kl. 13.45, stólajóga í Jónshúsi kl. 11, vatnsleikfimi kl. 15, handa-
vinnuhorn í Jónshúsi kl. 13, málun í Kirkjuhvoli kl. 13, saumanám-
skeið í Jónshúsi kl. 13, vöfflukaffi í Jónshúsi kl. 14, Garðakór, æfing í
Vídalínskirkju kl. 16.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, leikfimi Maríu kl.
10-10.45, samverustund kl. 10.30-11.30, starf Félags heyrnarlausra kl.
12-16, perlusaumur kl. 13-16, bútasaumur kl. 13-16, myndlist kl. 13-16.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.15 tréskurður, kl. 9.45 stólaleikfimi,
kl. 10.50 jóga, kl. 13 bókband, kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl.
13.30 bingó, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 16.10 myndlist.
Gullsmári Handavinna kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handavinna
og brids kl. 13, jóga kl. 17.15, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á
staðnum, allir velkomnir!
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14, hjúkrunarfræðingur kl. 9-
10.30, opið hús í Árseli við Rofabæ 30, billiard, borðtennis og heitt
kaffi á könnunni kl. 10.30–12, jóga kl. 10.10-11.10, hádegismatur kl.
11.30. Ármann Reynisson les Vinjettur kl. 13.30, kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, opin vinnustofa frá
kl. 9, botsía kl. 10, matur kl. 11.30. Spiluð félagsvist kl. 13.15, kaffisala í
hléi. Félagsmiðstöðin er öllum opin óháð aldri og búsetu og allir vel-
komnir, nánari upplýsingar á staðnum eða í síma 535-2720. Fótaað-
gerðir 588-2320, hársnyrting 517-3005.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, leikfimi kl. 10, lífssögu-
hópur kl. 10.50, prjónahópur kl. 13, sönghópur Hæðargarðs kl. 13.30,
línudans kl. 15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð
óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, bókabíllinn kl. 10.30 - 11, upplestur kl. 11, opin listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-16, ganga með starfsmanni kl. 14, tölvu- og
snjalltækjakennsla kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Leikfimi hjá Guðnýju kl. 9, kaffi, spjall og
blöðin kl. 10, hádegismatur kl. 11.30, bíó kl. 13 og kaffi og meðlæti kl.
14.30.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlaug kl. 7.15, bókband Skólabraut
kl. 9. Billjard Selinu kl. 10, kaffispjall í króknum kl. 10.30, jóga salnum
Skólabraut kl. 11, karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. Ath.
Gaman saman í salnum í kvöld kl. 20. Allir mæti með höfuðfat eða
skraut í hárinu, skráning 3.500 kr. Skráning og upplýsingar varðandi
almenna dagskrá í síma 8939800.
Sléttuvegi 11-13 Leikfimi kl. 9, kaffi, spjall og blöðin kl. 10, hádegis-
matur kl. 11.30-12:30, botsía kl. 13, kaffi og meðlæti kl. 14.30-15.30.
Stangarhylur 4, Zumba Gold námskeið kl. 10.30, leiðbeinandiTanya.
Ljóðahópur kl. 14, umsjón Jónína Guðmundsdóttir. Aðalfundur
félagsins verður haldinn í dag kl. 15.30, fundarstaður Ásgarður,
Stangarhyl 4.
Fundir/Mannfagnaðir
Félag sjálfstæðismanna í
Skóga- og Seljahverfi
Eru ferðamenn
aðalvandamálið?
Boðað er til almenns fundar með ráðherra
iðnaðar, ferðamála og nýsköpunar.
Sjálfstæðisfélag Skóga- og Seljahverfis og
Vörður boða til almenns fundar laugarda-
ginn 18. febrúar kl. 10:30 í félagsheimili
sjálfstæðisfélaganna í Mjódd.
Frummælandi er: Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ráðherra iðnaðar, ferðamála og
nýsköpunar .
Allir áhugamenn um þessi málefni
velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin í Breiðholti .