Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 34

Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Sigmundur Stefánsson viðskiptafræðingur á 70 ára afmæli í dag.Hann vann lengi hjá ríkisskattstjóra og hefur starfað að mál-efnum fatlaðra og var enn fremur framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna. Sigmundur hefur unnið mikið með Glímusambandi Ís- lands og fékk m.a. gullmerki ÍSÍ 2012 vegna mikils og góðs starfs í þágu íþróttahreyfingarinnar. Sigmundur er einnig mikill bridsspilari og tók m.a. þátt í Bridgehátíð sem var haldin í lok janúar síðastliðins. „Það gekk allvel, við lentum í 27. sæti af 122 pörum í tvímenningi og ég var ánægður með það en það gekk ekki eins vel í sveitakeppninni.“ Sigmundur fer mikið í gönguferðir og gengur nánast daglega á Úlf- arsfell. Hann hefur einnig verið duglegur að sækja námskeið í íslensku fornsögunum bæði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og Félagi eldri borgara. „Ég hef gaman af ýmsum pælingum um fornsögurnar og land- námið. Núna er ég að lesa Grettissögu uppi í Háskóla og Austfirðinga sögur hjá Félagi eldri borgara. Í tilefni afmælisins bjóðum við fjölskyldunni og nánu venslafólki heim til okkar á laugardagskvöld. Á afmælisdaginn sjálfan reikna ég með því að spila hjá Bridgefélagi Kópavogs um kvöldið og geng á Úlfarsfell eins og aðra daga.“ Eiginkona Sigmundar er Hafdís Sigurgeirsdóttir sérkennari. Börn þeirra eru Þröstur Freyr sem vinnur á Tryggingamiðstöðinni en hann er sonur Hafdísar af fyrra hjónabandi, Lára Inga viðskiptafræðingur og fjármálastjóri hjá Arctica, og Sigurgeir Atli sem vinnur á vinnustof- unni Ási. Sigmundur og Hafdís eiga þrjú barnabörn. Á Úlfarsfelli Sigmundur gengur nánast daglega upp á Úlfarsfell. Grúskar í fornsög- unum og spilar brids Sigmundur Stefánsson er sjötugur í dag G issur Páll Gissurarson fæddist í Reykjavík 16.2. 1977 og ólst upp á höfuðborgarsvæðinu fyrstu árin: „Foreldrar mínir skildu þegar ég var á þriðja árinu og nýr pabbi kom til sög- unnar þegar ég var fjögurra ára. Það er Þorvarður Gunnarsson, lög- giltur endurskoðandi, sonur Gunn- ars Þorvarðarsonar skipstjóra og Helgu Jónsdóttur húsfreyju. Við fluttum til Vestmannaeyja 1983 og áttum þar heima til 1987. Þá fluttum við í Vesturbæ Kópa- vogs og þaðan hleypti ég heimdrag- anum. Fyrsta heimili mitt utan for- eldrahúsa var í Siena á Ítalíu en þar bjuggum við Sigrún, eiginkona mín, í hálft ár. Við vorum síðan í Parma á Ítalíu til 2007. Þá lá leiðin til Íslands með viðkomu í Heidel- berg í Þýskalandi og eftir heim- komuna hefur fjölskyldan búið í Hlíðunum.“ Gissur var í Hamarsskóla í Vest- mannaeyjum, síðan í Kársnesskóla og Þinghólsskóla. Eftir grunnskóla var hann í MK og að loknu stúd- entsprófi fór Gissur í háfs árs nám við Università per stranieri di Siena þar sem hann lærði ítölsku. Eftir ítölskunámið lá svo leiðin í Conser- vatorio G.B. Martini di Bologna þar sem hann lærði óperusöng í fimm Gissur Páll Gissurarson óperusöngvari – 40 ára Fjölskyldan Gissur með Sigrúnu, eiginkonu sinni og æskuástinni, ásamt dætrum þeirra, Hildi og Huldu. Féll fyrir leiklist, eigin- konunni og söngnum Tenórarnir þrír Gissur, Garðar Thór og Kristján, ásamt Jónasi Þóri píanó- leikara. Þeir hafa oft sungið saman, t.d. sem Óperudraugarnir í Hörpu. Reyðarfjörður Daníel Máni Sigurðsson Mittelstein fæddist 16. febrúar 2016 kl. 6.38. Hann vó 4.352 g og var 56 cm langur. Foreldrar hans eru Poula Rós Mittel- stein og Sigurður Svavar Svavarsson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.