Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 35

Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 35
ár til 2005: „Söngurinn lét snemma á sér kræla og eftir að ég flutti í Kópavoginn byrjaði ég strax í Skólakór Kársness. Það var svo eft- irminnilegur, spennandi og skemmtilegur tími er ég var valinn til að syngja hlutverk Olivers Twist í Þjóðleikhúsinu árið 1989. Þar fór boltinn að rúlla og ég smitaðist af leikhúsbakteríunni. Tveimur árum eftir Oliver tók ég svo þátt í Sound of Music í upp- færslu Þjóðleikhússins. Leikhúsið átti hug minn allan og ég ætlaði að læra leiklist við fyrsta mögulega tækifæri. Ég fór í inntökupróf í Leiklistarskóla Íslands og komst í gegnum tvær síur þar en datt þá út. Þá var ég 19 ára og ákvað að klára stúdentsprófið og reyna svo aftur. Í millitíðinni ákvað ég að skrá mig í Söngskólann í Reykjavík til að læra að beita röddinni vel. Til að gera langa sögu stutta fór ég ekki í leiklistarskólann heldur söngnám.“ Gissur hefur komið fram í upp- færslum og á tónleikum víða í Evr- ópu og í Japan. Hann hefur komið fram með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands, í Eurovision-keppni, söng í óperunum Ástrardrykknum, La Bo- hème og í Rakaranum frá Sevilla hjá Íslensku óperunni. Þá hefur hann sungið á fjölda tónleika og á ýmiss konar skemmtunum vítt um landið. Hann hefur gefið út þrjá geisladiska sem eru Fegursta rósin – jóladiskur ásamt Nýja kvart- ettinum; Ideale og loks Aria, diskur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Fjölskylda Eiginkona Gissurar er Sigrún Daníelsdóttur Flóvenz, f. 18.3. 1977, alþjóðastjórnmálafræðingur og stundakennari við HÍ. Foreldrar hennar eru Brynhildur Gunnars- dóttir Flóvenz, f. 12. 3. 1954, lög- fræðingur, og Daníel Gísli Friðriks- sonar, f. 27.4. 1952, skipatæknifræðingur. Þau búa í Kópavogi: „Ég kynntist Sigrúnu í gagnfræðaskóla og við fylgdumst að sem bestu vinir þar til að við felld- um hugi saman um tvítugsaldurinn og giftum okkur svo 2002.“ Dætur Gissurar og Sigrúnar eru Hildur Gissurardóttir Flóvenz, f. 19.10. 2006, og Hulda Gissurar- dóttir Flóvenz, f. 2.9. 2010. Bræður Gissurar, sammæðra, eru Gunnar Þorvarðarson, f. 24.10. 1982, löggiltur endurskoðandi, bú- settur í Kópavogi; Ragnar Þorvarð- arson, f. 2.11. 1984, viðskipta- og Asíufræðingur hjá utanríkisráðu- neytinu, búsettur í Reykjavík, og Jóhann Þorvarðarson, f. 8.2. 1991, lögfræðingur í Amsterdam. Fóst- urbróðir Gissurar er Garðar Þor- varðarson, f. 1.7. 1975, bygginga- tæknifræðingur í Danmörku. Systkini Gissurar, samfeðra, eru Guðbjörg Gissurardóttir, f. 27.5. 1968, grafískur hönnuður og blaða- útgefandi í Reykjavík; Jón Grétar Gissurarson, f. 9.11. 1981, kvik- myndagerðarmaður og klippari hjá 365 miðlum, búsettur í Reykjavík; Hrafnhildur Gissurardóttir, f. 4.5. 1983, myndlistarkona í Evrópu. Foreldrar Gissurar eru Þórlaug Ragnarsdóttir, f. 20.12. 1953, kjóla- meistari í Kópavogi, og Gissur Sig- urðsson, f. 7.12. 1947, fréttamaður í Reykjavík. Stjúpfaðir Gissurar er Þorvarður Gunnarsson, f. 14.5. 1954, löggiltur endurskoðandi og fyrrv. forstjóri Deloitte, búsettur í Kópavogi. Úr frændgarði Gissurar Páls Gissurarsonar Gissur Páll Gissurarson Þórlaug Valdimarsdóttir húsfreyja í Rvík Ólafur Sigurjón Dagfinnsson iðnverkam. í Rvík Unnur Ólafsdóttir húsfreyja í Rvík Ragnar Aðalsteinsson kaupmaður í Rvík Þórlaug Gyða Ragnarsdóttir Gyða Guðmundsdóttir húsfreyja í Rvík Aðalsteinn Guðmundsson sjóm. og b. í Stakkadal og trésmiður í Rvík Sigurður Sigurðarson víglsubiskup í Skálholti Sigurður Sigurðsson ráðun. og alþm. í Langholti Elías Kristján Dagfinnsson bryti í Rvík Þorsteinn Sigurðsson b. í Langholti í Flóa Stefán Ingimar Dagfinnsson skipstjóri í Rvík Sigurður S. Haukdal prófastur í Flatey á Breiða- firði og á Bergþórshvoli Alfreð Elíasson framkvæmdastj. Loftleiða Einar Þorsteinsson framkv.stj. Dagfinnur Stefánsson flugstjóri Ingibjörg Þorsteinsdóttir húsfreyja í Rvík Sigrún Stefánsdóttir Hafstein húsfr. í Rvík Sigurður Haukdal alþm. á Bergþórshvoli Markús Á. Einarsson veðurfræðingur Jón Dalbú Hróbjartsson sóknarpr. í Hallgrímskirkju Stefán Jón Hafstein fyrrv. fjölmiðlam., borgarfulltrúi og umdæmisstjóri Þróunarsamvinnu- stofnunar í Malaví Kristján Jóhann Kristjánsson forstjóri Kassa- gerðarinnar Ólafur Sigurðsson fyrrv. fréttam. Ingibjörg Sigurðardóttir húsfr. í Byggðarhorni Gissur Gunnarsson b. í Byggðarhorni í Flóa Stefanía Gissurardóttir húsfreyja á Selfossi Sigurður Pálsson víglsubiskup á Selfossi Gissur Sigurðsson fréttam. í Rvík Jóhanna Guðríður Björnsdóttir húsfreyja í Haukatungu Páll Sigurðsson b. í Haukatungu í Kolbeinsstaðahr., systur- sonur Páls, langafa Péturs Sigurgeirssonar biskups ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 90 ára Guðlaug Sigurgeirsdóttir Sigurlín Margrét Gunnarsdóttir 85 ára Stefán Már Ingólfsson Valdimar Bjarnfreðsson Þóra Guðmundsdóttir 80 ára Guðrún Einarsdóttir Gunnar Kolbeinsson Gunnar Þorsteinsson Jóhanna Kristbj. Guðmundsdóttir 75 ára Björn Möller Brynjólfur H. Björnsson Guðbergur Sigurðsson Jens Evertsson Pétur E. Lárusson Reynir Björgvinsson 70 ára Benoný Pétursson Bergljót Helga Jós- epsdóttir Eyrún Kjartansdóttir Herdís Jakobsdóttir Kristín Brynjólfsdóttir Leifur Gunnarsson Sigmundur Stefánsson Sigríður Jónsdóttir Tamara Busarova 60 ára Elvar Ólafsson Finnbogi I. Hallgrímsson Guðmundur Einarsson Guðmundur Þ. Sigurð- arson Jóna Oddný Njálsdóttir Lárus Pálmi Magnússon Ólöf Minny Guðmundsdóttir Svandís Jónsdóttir 50 ára Arnoddur Erlendsson Ásta Snorradóttir Emilía Sturludóttir Erlendur Kristinsson Guðný Ester Aðalsteinsdóttir Heimir Steinarsson Ingólfur Garðarsson Jolanta Kozlowska Jóhannes M. Erlendsson Sigurður Þormar 40 ára Anna Guðrún Jensdóttir Anný Gréta Þorgeirsdóttir Björgvin Jónsson Elzbieta Janina Mazur Gissur Páll Gissurarson Helgi Þór Þórsson Kristján Guðbrandsson Margrét Gunnhildur Gunnarsdóttir Maria Veronica Ganda Ólöf Birna Magnúsdóttir Róbert Sævar Sigurþórsson Ruby Gabríela Sæmundsson Sigurlilja Albertsdóttir Zekira Crnac 30 ára Andri Geir Elvarsson Arna Guðlaugsdóttir Ásta Kristín Guðrún- ardóttir Birgir Ólafur Guðlaugsson Guðrún West Karlsdóttir Nargessadat Emami Pawel Soltysiak Rebekka María Jóhannesdóttir Sam Alexander Barton Til hamingju með daginn 30 ára Rebekka stundar nám sem læknaritari við FÁ og er húsmóðir. Maki: Andrés S. Magn- ússon, f. 1982, vélvirki. Bræður og fóstursynir: Örn Ísak, f. 2002, og Arthur Lúkas, f. 2007. Börn: Jóhannes Örn, f. 2009, og Magnús Smári, f. 2012. Foreldrar: Jóhannes Örn Guðmundsson, f. 1966, d. 2007, og Soffía M. Arn- ardóttir, f. 1969, d. 2009. Rebekka María Jóhannesdóttir 30 ára Andri ólst upp í Borgarfirði eystra, býr í Reykjavík og er flug- umferðarstjóri hjá Isavia. Maki: Anna Ragnhildur Karlsdóttir, f. 1991, nemi við Listaháskólann. Dóttir: Eva Sigríður, f. 2016. Foreldrar: Ásta Stein- gerður Geirsdóttir, f. 1953, húsfreyja í Reykja- vík, og Elvar Hjaltason, f. 1946, sjómaður á Egils- stöðum. Andri Geir Elvarsson 40 ára Margrét ólst upp á Vopnafirði, býr á Ak- ureyri, lauk BA-prófi í þroskaþjálfun og BEd- prófi frá KHÍ og kennir við Oddeyrarskóla á Akureyri. Börn: Jóna Guðný Páls- dóttir, f. 2000, og Tryggvi Gunnar Rolfsson, f. 2009. Foreldrar: Gunnar Smári Guðmundsson, f. 1954, starfar hjá AFLI, og Jóna Kristín Halldórsdóttir, f. 1955, húsfreyja og handa- vinnukona. Margrét Gunnh. Gunnarsdóttir  Valborg Guðmundsdóttir hefur var- ið doktorsritgerð sína í kerfislíffræði við Tækniháskólann í Danmörku. Rit- gerðin ber heitið „Multi-omics net- work biology of type 2 diabetes“. Leið- beinandi var prófessor Søren Brunak og andmælendur við doktorsvörnina voru dr. Eleftheria Zeggini, dr. Thomas Skøt Jensen og prófessor Anders Gorm Pedersen. Markmið doktorsverkefnisins var að þróa nýjar lífupplýsingafræðilegar nálganir til að gefa heildstæða mynd af þeim ferlum sem geta leitt til sykur- sýki 2. Hluti verkefnisins sneri að því að skoða saman mismunandi tegundir líffræðilegra gagna til að geta for- gangsraðað genum sem gætu tengst sykursýki 2 betur en með hverri teg- und gagna einni og sér. Því næst var kannað hvernig þessi gen tengjast í vefjasértækum prótein-tengslanetum sem þróuð voru í rannsókninni, en nið- urstöðurnar varpa nýju ljósi á þá flóknu ferla sem undirliggja sjúkdóms- myndun sykursýki 2 í mismunandi vefjum. Betafrumu-sértækt prótein- tengslanet var einnig notað til að ákvarða mikilvægi erfðabreytileika og frumuferla fyrir svörun ein- staklinga við hormóninu GLP-1, en GLP-1 hlið- stæður og GLP-1 viðtaka örvar eru notaðir við með- höndlun á syk- ursýki 2. Í öðrum hluta verkefnisins var sam- band bakteríuflóru í görn við hvarf- og myndefni efnaskiptaferla (e. metaboli- tes) í blóði kannað og jafnframt hvern- ig þessir þættir tengjast insúlínnæmi í mönnum. Niðurstöðurnar sýndu að ójafnvægi milli framleiðslu og upptöku baktería (þá sérstaklega Prevotella copri) á ákveðnum amínósýrum í görn- inni tengdist auknu magni þeirra í blóði og verra insúlínnæmi. Niður- stöður þessa verkefnis voru birtar í tímaritinu Nature í júlí 2016. Valborg hlaut verðlaunin „Young Researcher Award“ við doktorsút- skriftarathöfn háskólans árið 2016 sem veitt eru þeim ungu vísinda- mönnum sem þykja hafa skarað fram úr. Valborg Guðmundsdóttir Valborg Guðmundsdóttir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2006, BS prófi í lífefnafræði frá Raunvísindadeild HÍ (2010) og MS prófi í líf- og læknavísindum frá Heilbrigðisvísindadeild HÍ (2012). Valborg starfar nú sem nýdoktor við Tækniháskólann í Danmörku. Sambýlismaður Valborgar er Jón Otti Sigurðsson og eiga þau dæturnar Iðunni Brynju og Signýju Öldu. Foreldrar Val- borgar eru dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson og dr. Brynja Ingadóttir (sjá doktorstilkynningu á morgun). Doktor NÝ OG GLÆSILEG BLÖNDUNARTÆKJALÍNA Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Sturtutæki með stút niður 31.500 kr. FMM SILJAN Eldhúsblöndunar- tæki hásveifla 27.895 kr. FMM SILJAN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.