Morgunblaðið - 16.02.2017, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú nýtur þess að láta þig dreyma um
einhvern á rómantískan hátt í dag. Kannski
þarf hann að hætta að telja sér trú um að bara
þeir vinnusömu eigi skilið að vera elskaðir.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur unun af fallegum hlutum en
ættir þó að bíða með að kaupa nokkuð. Tíma-
bundið starf gætið orðið að fastráðningu og al-
vara gæti færst í rómantískt samband.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er vitanlega betra að vera frjáls
en bundinn væntingum einhvers annars. Störf
þín standa fyrir sínu og þú þarft ekki að rétt-
læta þig með leikaraskap.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú finnur hugsanlega til aukinnar
ábyrgðar vegna barna í dag. Láttu vita að þú
takir því sem að höndum ber. Nýtt og spenn-
andi tækifæri gerir vart við sig í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú leggur grunninn að vinskap núna og
hann reynist traustur. Gefðu þér því góðan
tíma svo þú komist hjá mistökum, sem kunna
að verða þér alltof dýr.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt þér lítist ekkert á að fá aðstoð við
ákveðið verkefni skaltu hugsa málið. Viltu njóta
þeirra eða vita sannleikann? Allt kemur í ljós ef
þú leita beint í uppsprettuna – og ekkert ann-
að.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það vantar ekki mikið upp á að þér takist
að klára það verkefni sem þér hefur verið falið.
Kannski að þú lánir eitthvað sem annar neitar
að skila.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ykkur finnst að ykkur sótt úr öll-
um áttum. Hugur þinn flýgur hátt og sér frá-
bær tækifæri. Vertu bara sátt/ur við sjálfan þig
og undirbúðu þig vel og vandlega.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn hentar vel til að koma
hlutunum á hreint við maka og nána vini.
Næstu vikurnar er tilvalið að sækja um lán eða
styrki.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Systkini, ættingjar eða nágrannar
koma þér á óvart með einhverjum hætti í dag.
Hertu upp hugann því nú hefurðu allt að vinna
og engu að tapa.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er alltaf ánægjulegt þegar góð-
ir vinir reka inn nefið. Samræður geta orðið
áreynslulausar og gefandi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gætir staðið frammi fyrir erfiðum
málum á vinnustað en þú hefur alla burði til að
takast á við þau. Stattu af þér storminn og þá
munt þú standa uppi sem sigurvegari.
Það var fjörugt á Leirnum ogbyrjaði með því að Ármann
Þorgrímsson skrifaði „Síðasta ferð-
in …“ og síðan:
Er ég flyt í annan heim
andans kaunum sleginn
finnst mér best að fylgja þeim
sem fara breiða veginn.
Gústi Mar svaraði:
Vegferð þína vel ég styð
en víst er efakliður.
Hann liggi öruggt uppávið?
Eða lóðbeint niður?
Ingólfur Ómar bætti við:
Vinur er þú fellur frá
fá því margir kviðið.
Góða vísu gerðu þá
er gengur þú um hliðið
Nú var Ármann orðinn „Bjart-
sýnn á framtíðina …“:
Ein er gröfin öðrum lík
upp mun rísa glaður
Ég held að Jón frá Húsavík
sé harður vinstri maður.
Fía á Sandi blandaði sér í málið:
Æfina við þumbumst þreytt
þolinmóð og iðin.
Á endanum bíður ekki neitt
okkar tími liðinn.
Ingólfur Ómar sér björtu hlið-
arnar á vegferðinni:
Þegar endar ævistund
ósköp verð ég feginn.
Fæ ég eflaust friðarblund
og frelsi hinumegin.
Og nú fór Fía í heimspekilegar
hugleiðingar:
Hvernig vildir þú hafa í himnaríki?
Ég held það sé mál sem bara er gaman
að ræða.
Einhverjir veldu, efalaust pöbba og Ríki
aðrir sólarhrings púl til að hamstra og
græða.
Ósjálfrátt kom „Sjötta ferð Sind-
baðs“ eftir Einar H. Kvaran upp í
hugann:
Yggldan skolaðist Sindbað um sjá,
unz síðasta skipbrotið leið hann.
Hann molaði fleyið sitt Feigsbjargi á,
og fádæma hörmungar beið hann.
Svo lagði hann inn í ægileg göng,
er af tók að draga þróttinn;
þar drjúptu gljúfrin svo dauðans þröng
og dimm eins og svartasta nóttin.
Þá förlaðist kraftur og féll á hann dá
í ferlegum dauðans helli.
– En hinumegin var himin að sjá
og hlæjandi blómskrýdda velli.
– Svo brýt eg og sjálfur bátinn minn
og berst inn í gljúfra-veginn. –
Við förum þar loksins allir inn. –
En er nokkuð hinumegin?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
En er nokkuð hinum megin?
Í klípu
„SORRÍ, EN ÉG VERÐ AÐ TAKA ÞETTA
SÍMTAL. ÞETTA ER EIGANDINN MINN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ERTU VISS UM AÐ ÞETTA
SÉ NAUTAKJÖT?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skipuleggja
saman rómantíska
skemmtiferð.
VERTU BLESSAÐUR!
EIGÐU FRÁBÆRAN DAG!
PÍTSU-GAURINN FÆR
BETRI KVEÐJUR EN ÉG
ÉG MUN
SAKNA ÞÍN!
ÞÚ FÆRIR
MÉR EKKI
PEPPERÓNI
ÉG ER MEÐ
BRENGLAÐA SJÓN!
ÞVÍ MIÐUR
GETUR
LÆKNIRINN EKKI
SÉÐ ÞIG Í DAG
ÞETTA
HLÝTUR AÐ VERA
SMITANDI!
Víkverji og frú brugðu sér í kvik-myndahús á dögunum, sem er
svo sem ekki í frásögur færandi. Áð-
ur en myndin hins vegar var sýnd
þurftu Víkverjahjónin að sitja undir
aragrúa auglýsinga og hélt Víkverji
að sýningartími þeirra yrði lengri en
myndin.
x x x
Víkverji verður að segja að fæstarauglýsinganna virtust sniðnar
að sama markhópi og bíómyndin
sjálf. Eða hver veit, kannski eru
unnendur hasarmynda mikið að spá
í tryggingarnar sínar, eða það hvar
best sé að kaupa steinsteypu fyrir
húsbyggingar, milli þess sem þeir
skella sér í spa í World Class.
x x x
Ein auglýsingin vakti þó sérstakaathygli Víkverjahjóna. Þar var
eitt súkkulaðistykki auglýst, sem
átti að vera svo „brakandi ferskt“,
og svo „krispí“ og „kröntsjí“. Vík-
verji og frú leituðu í Orðabók Menn-
ingarsjóðs að því hver merking
orðanna „krispí“ og „kröntsjí“ væri,
en fann ekki. Og kom svo sem ekki á
óvart, þar sem þarna var búið að
hnupla tveimur enskum orðum, sem
merkja „stökkt“ og „brakandi“. Þess
má geta í framhjáhlaupi að Víkverja
hefur sjaldnast liðið jafn-miðaldra
og þegar hann skrifaði þessar línur.
x x x
Annað sem Víkverji vill kvarta yfirvegna bíósýningarinnar var það
að eftir þetta auglýsingaflóð voru
sýndar tvær stiklur úr væntanlegum
myndum. Tvær heilar stiklur. Í þá
gömlu góðu daga, þegar Víkverji
hafði meira hár, voru stiklurnar
stundum jafnskemmtilegar og sjálf
bíómyndin, þar sem djúpraddaður
karlmaður lét áhorfendur vita, hvað
myndin snerist um. Nú var engin
djúp rödd. Að öllu gamni slepptu, þá
hefði verið skemmtilegra að fá ögn
meira að sjá af þeim myndum sem
eru á leiðinni í bíó, og ögn minna af
hinum auglýsingunum.
x x x
Víkverji ætlar að skunda út núna,og fara að hrópa á ský um það
hvað allt var betra í gamla daga.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Játið að Drottinn er Guð, hann hefur
skapað oss og hans erum vér, lýður
hans og gæsluhjörð
(Sálm. 100:3)
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á fi
skinn