Morgunblaðið - 16.02.2017, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ég var í pönkhljómsveit í skóla en
hætti að búa til tónlist í um tíu ár til
að geta einbeitt mér að námi og
starfi sem grafískur hönnuður. Þeg-
ar mér var sagt upp störfum fór ég
að gera tilraunir í fartölvu með hljóð
og setti tónlist á netið til að sjá hvort
einhver hefði áhuga á henni. Þetta
var s.s. allt frekar tilviljanakennt,“
segir enski tónlistarmaðurinn Matt-
hew Barnes, sem gengur undir lista-
mannsnafninu Forest Swords, þegar
hann er spurður að því hverjar ræt-
ur hans séu í tónlist og hvað hafi
valdið því að hann gerðist tónlistar-
maður.
Barnes heldur tónleika á Sónar
tónlistarhátíðinni í Hörpu annað
kvöld kl. 21.20, í Norðurljósasal.
Barnes vakti fyrst athygli árið 2009
með sex laga skífu, Dagger Paths,
sem náði yfir svo vítt svið, skv. lýs-
ingu á vef Sónar, að tengja mátti við
tónlist Ennio Morricone og tónlist
Massive Attack á upphafsárum
þeirrar sveitar, en var samt sem áð-
ur algjörlega einstök. Platan hlaut
prýðilegar viðtökur og ekki voru við-
tökurnar síðri við fyrstu breiðskíf-
unni, Engravings, sem kom út árið
2013 og var valin ein af bestu plötum
ársins af tónlistartímaritinu Clash
og hlaut þar í gagnrýni einkunnina 9
af 10 mögulegum. Mátti þar greina
hljóm frá heimabyggð Barnes á
skaganum Wirral og vakti hún m.a.
athygli fyrir að vera hljóðblönduð
undir berum himni þar í sveit, á
Thurstaston-hæð.
Tilkomumikið landslag
Barnes er beðinn um að lýsa tón-
list sinni og segir hann hana án efa
raftónlist í grunninn sem með að-
dráttarafli sínu dragi til sín alls kon-
ar hljóð og hljómáferðir. Hann er í
kjölfarið spurður að því hvort nátt-
úran sé stærsti áhrifavaldurinn, í
ljósi þess að hann kaus að hljóð-
blanda plötuna á fyrrnefndri hæð.
„Landslagið á æskuslóðum mín-
um er mjög tilkomumikið – sterkir
vindar, rauður sandsteinn, háir
klettar og sandstrendur. Slík svæði
geta haft áhugaverð áhrif á þau
hljóð sem ég kýs að hafa með eða
geta haft áhrif á þá áferð sem ég vel
tónlistinni. En almennt séð er nátt-
úran hvíldarstaður fyrir mér frekar
en stöðug uppspretta innblásturs.
Ég ver það stórum hluta lífs míns
innandyra að það er léttir að komast
út og minna sig á að lífið snýst ekki
um að svara tölvupóstum eða hlusta
á bassatrommur allan daginn,“ segir
Barnes.
Lag á lag ofan
– En hvaðan kemur þetta nafn,
Forest Swords, og til hvers vísar
það?
„Mér fannst það passa vel við
fyrstu lögin sem ég gerði, þann
hljóðheim sem ég var að skapa og
myndefnið sem honum fylgdi. Ég
kunni vel við þessi tvö orð, hvernig
þau hljómuðu og litu út. Þetta small
mjög vel við það sem ég var að
gera,“ svarar Barnes.
– Í verkum þínum blandarðu sam-
an margs konar tónlist og hljóðum,
t.d. döbb- og drone-tónlist, tali og
gítarleik en þú hlýtur að vinna út frá
einföldum grunni. Geturðu lýst
sköpunarferlinu, hvernig þróast lög-
in? Ertu með ákveðið markmið í
huga?
„Ég hleð upp mörgum lögum,
melódíum og töktum, búta heildina
svo niður og set saman í eitt lag. Síð-
an eyði ég út mörgum bútum. Ég
nýt þess að eyða þeim því maður átt-
ar sig fljótlega á því hvað er gott og
hvað ekki. Þetta hefur kennt mér að
þykja ekki of vænt um verkin mín,“
segir Barnes. Lögin verði að vekja
með honum tilfinningar, andlegar og
líkamlegar og ef þau geri það hafi
þau vonandi sömu áhrif á hlust-
endur. „Ef þú reynir ekki að gera
tónlist sem kallar fram sterkar til-
finningar eða vekur spurningar get-
urðu alveg eins sleppt því,“ bætir
Barnes við.
Röddin sem akkeri
– Mannsröddin er meira áberandi
á Engravings en í eldri lögunum þín-
um. Hvað varð til þess að þú ákvaðst
að leggja meiri áherslu á hana?
„Ég hlusta mikið á tónlist þar sem
lögin eru borin uppi af söng, allt frá
meginstraumspoppi til gospeltón-
listar frá sjöunda áratugnum. Ég hef
lítinn áhuga á texta, vil heldur hafa
mannsröddina nálæga sem einhvers
konar akkeri sem rís og hnígur. Fólk
tengir við raddir, þær eru kunnug-
legar og maður getur leikið sér með
væntingarnar sem gerðar eru til
þeirra. Í mörgum þeim bútum sem
ég nota er búið að bjaga raddirnar
svo mikið að þær verða aldurs- og
kynlausar og orðin verða óskiljan-
leg. Þú getur því túlkað það sem þú
heyrir eins og þér sýnist.“
– Notarðu aðallega þína eigin
rödd og þá hvernig?
„Þetta er blanda mikið unninna
hljóðbúta og stundum nota ég mína
rödd. Mér finnst skemmtilegt að
leika mér að því að hlustandinn veit
ekki hvaðan röddin kemur.“
Andardráttur og líkamshljóð
Barnes hefur komið víða við í list-
sköpun, m.a. unnið hljóðverk fyrir
listahátíðir, unnið með bandaríska
rapparanum Haleek Maul og gefið
út lög í samstarfi við þýska mynd-
listarmanninn Otto Baerst.
Eitt af forvitnilegri verkefnum
hans er hins vegar tónlist sem hann
samdi við dansverkið Shrine sem
var frumsýnt í janúar í fyrra í Liver-
pool. Í það notaði Barnes líkams-
hljóð og má heyra útkomuna á
Bandcamp-síðu hans, á slóðinni
forestswords.bandcamp.com.
Barnes er beðinn um að segja
nánar frá þessu merkilega verkefni
og líkamshljóðunum sem hann not-
aði.
„Mig hafði lengi langað að semja
tónlist við samtímadansverk og
hafði mikinn áhuga á því að búa til
verk úr andardrætti og líkams-
hljóðum. Ég safnaði hljóðum úr
ýmsum áttum – frá vinum, úr kvik-
myndum, af YouTube – og raðaði
þeim upp í takta og melódíur í far-
tölvunni minni. Okkur mönnunum
finnst afskaplega óþægilegt þegar
slík hljóð eru mögnuð upp af miklum
krafti í hljóðkerfi, þau minna okkur
kannski á eigin dauðleika. Þessi
hljóð eru ógeðsleg og skrítin,“ segir
Barnes og bætir við að hugsunin að
baki verkinu hafi verið að þó svo þér
líði illa í eigin líkama þá sé hann
engu að síður kraftmikill og að
fagna beri hinu flókna gangverki
hans.
Leikur lög af næstu plötu
– Að lokum, hvað ætlarðu að spila
fyrir gesti Sónar?
„Ég ætla að frumflytja sér-
staklega fyrir hátíðargesti nokkur
ný lög af næstu plötu minni sem
kemur út í vor og líka nokkur lög af
Engravings. Ég hlakka til.“
Tilfinningar „Ef þú reynir ekki að gera tónlist sem kallar fram sterkar tilfinningar eða vekur spurningar geturðu
alveg eins sleppt því,“ segir Matthew Barnes sem gengur undir listamannsnafninu Forest Swords.
Náttúran hvíldarstað-
ur frekar en innblástur
Forest Swords leikur fyrir gesti Sónar annað kvöld
Allar upplýsingar um Sónar má
finna á sonarreykjavik.com.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s Mið 19/4 kl. 20:00 160. s
Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s
Sun 19/2 kl. 20:00 154. s Lau 8/4 kl. 20:00 158. s Fös 28/4 kl. 20:00 162. s
Fim 23/2 kl. 20:00 155. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s Lau 6/5 kl. 20:00 163. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn.
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s
Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s
Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s Sun 23/4 kl. 13:00 41. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn Lau 25/2 kl. 13:00 7. sýn Lau 4/3 kl. 13:00
Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn Sun 26/2 kl. 13:00 8. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls.
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Fórn (Allt húsið)
Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið
Salka Valka (Stóra svið)
Fim 16/2 kl. 20:00 17.sýn Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar. Síðustu sýningar.
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Þri 21/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 18/2 kl. 19:30 Fös 24/2 kl. 19:30 Lau 4/3 kl. 19:30
Síðustu sýningar!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 17/2 kl. 19:30 Sun 19/2 kl. 19:30 Fös 24/2 kl. 19:30
Lau 18/2 kl. 19:30 Fim 23/2 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fim 16/2 kl. 19:30 Lau 25/2 kl. 19:30 Fös 17/3 kl. 19:30
Fös 17/2 kl. 19:30 Fös 3/3 kl. 19:30
Sýningum lýkur í mars!
Gott fólk (Kassinn)
Fim 16/2 kl. 19:30 Lau 25/2 kl. 19:30
Síðustu sýningar!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 19/2 kl. 13:00 Sun 5/3 kl. 13:00 Sun 19/3 kl. 13:00
Sun 19/2 kl. 16:00 Sun 5/3 kl. 16:00 Sun 19/3 kl. 16:00
Sun 26/2 kl. 13:00 Sun 12/3 kl. 13:00 Sun 26/3 kl. 13:00
Sun 26/2 kl. 16:00 Sun 12/3 kl. 16:00 Sun 26/3 kl. 16:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 18/2 kl. 17:00 Sun 19/2 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 16/2 kl. 20:00 Fös 24/2 kl. 20:00 Lau 4/3 kl. 20:00
Fös 17/2 kl. 20:00 Fös 24/2 kl. 22:30 Lau 4/3 kl. 22:30
Fös 17/2 kl. 22:30 Lau 25/2 kl. 20:00 Fim 9/3 kl. 20:00
Lau 18/2 kl. 20:00 Lau 25/2 kl. 22:30 Fös 10/3 kl. 20:00
Lau 18/2 kl. 22:30 Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 22:30
Sun 19/2 kl. 21:00 Fös 3/3 kl. 20:00
Fim 23/2 kl. 20:00 Fös 3/3 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 27/4 kl. 19:30 13.sýn
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn Fös 28/4 kl. 19:30 14.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 18/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Aukasýningar - aðeins þessar sýningar