Morgunblaðið - 16.02.2017, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 16.02.2017, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2017 Menningarkvöld Kvennakórs Garðabæjar, sem að þessu sinni ber yfirskriftina Þorravaka, verður í kvöld, fimmtudag, í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju og hefst kl. 20. Þar stíga á stokk lista- menn úr Garðabæ, auk Kvenna- kórsins, og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá í tali og tónum. Andrea Magnúsdóttir, fatahönn- uður og bæjarlistamaður Garða- bæjar, mun kynna sig og verk sín en í tilkynningu segir að umsvif og hróður Andreu hafi aukist hratt samhliða eftirspurn eftir hönnun hennar og fatnaði. Nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar stíga á svið og leika af fingrum fram fal- lega tónlist. Þá mun rithöfundurinn og sagnamaðurinn Guðmundur Andri Thorsson slá á létta strengi og segja frá og Kvennakór Garða- bæjar syngur fyrir gesti, bæði í upphafi dagskrár og í lokin en Ingibjörg Guðjónsdóttir er stjórn- andi hans. Þetta er í sextánda árið sem Kvennakór Garðabæjar og menn- ingar- og safnanefnd Garðabæjar standa að menningarkvöldi. Ljósmynd/Ragnheiður Arngrímsdóttir Glaðhlakkalegar Kvennakór Garðabæjar kemur fram og syngur. Menningarkvöld í Kirkjuhvoli í Garðabæ Bandaríski sýningarstjórinn Mar- got Norton flytur erindi í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, í kvöld, fimmtudag klukkan 20. Erindið er liður í fyrirlestraröðinni „Umræðu- þræðir“. Norton mun segja frá sýningum sem hún hefur skipulagt í samtíma- listasafninu New Museum í New York og veitir innsýn í ferli og vinnu sýningarstjórans. Hún segir einnig frá nokkrum af þeim hug- myndum og listaverkum sem móta dagskrá myndlistarhátíðarinnar Sequences VIII sem sett verður í Reykjavík haustið 2017 en hún verður sýningarstjóri hátíðarinnar. Margot Norton er aðstoðarsýn- ingarstjóri við New Museum. Þar hefur hún stýrt einkasýningum með listamönnum á borð við Judith Bernstein, Sarah Charlesworth, Tacita Dean, Erika Vogt og Ragnar Kjartansson. Norton hefur unnið víðar og meðal annars sett upp sýn- ingu í Hammer Museum í Los Ang- eles og var aðstoðarsýningarstjóri á Whitney-tvíæringnum árið 2010. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er opinn öllum. Sýningarstjóri New Museum segir frá Reynd Margot Newton segir frá sýn- ingum sem hún hefur unnið að. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarhátíðin Sónar hefst í Hörpu í dag og meðal þeirra sem troða upp í kvöld er tónlistarkonan Sigrún Jónsdóttir, sem gengur undir lista- mannsnafninu SiGRÚN en hún kemur fram í Kaldalóni kl. 21.30. Sigrún gaf í ágúst í fyrra út fyrstu sólóplötuna sína, fjögurra laga plötuna Hringsjá og í desember kom svo önnur fjögurra laga út, platan Tog. En þó sólóferillinn sé stutt á veg kominn hefur Sigrún verið nokkuð lengi að í tónlist, hefur m.a. leikið með Björk, Florence & the Machines og Sigur Rós á tón- leikaferðum. „Ég er búin að vera hljóðfæra- leikari bara frá því ég man eftir mér og hef þess vegna verið að spila úti um allt. Það er svolítið bara „eitt leiddi af öðru“ hvernig það þróaðist en síðan langaði mig að gera verk- efni þar sem ég fengi að ráða, fengi að gera það sem mig langaði að gera þannig að ég byrjaði bara á fullu í því undir lok síðasta sumars,“ segir Sigrún. Hún segist hafa lært á klarínett þegar hún var á barnsaldri og einn- ig á básúnu. Á tónleikaferðum hafi hún þó oftar leikið á básúnu en klar- ínett. Spurð að því hvort hún hafi lengi stundað tónsmíðar segir Sigrún að hún hafi farið í tónsmíðanám í Listaháskóla Íslands árið 2011 og þurft að taka sér hlé í eitt ár frá námi vegna tónleikaferðar sem hún fór í með Sigur Rós. „Svo rétt náði ég að klára námið áður en túrinn með Florence and the Machines byrjaði vorið 2015,“ segir Sigrún. Leikur sér með mannsröddina – Þú gengur undir listamanns- nafninu SiGRÚN. Hvers vegna er i- ið lítið en hinir stafirnir hástafir? Sigrún hlær. „Ég veit það ekki, þetta er bara eitthvert grín, engin sérstök ástæða fyrir því.“ – Geturðu lýst tónlistinni þinni? „Það er svolítið sterkt kór- element í henni, ég er mjög mikið að leika mér með röddina, blanda rödd- um og svo myndi ég segja svolítið dramatísk partítónlist. Klassísk tón- list mætir klúbbatónlist, eitthvað svoleiðis. Það er erfitt að lýsa tón- listinni en ég held að þetta sé nærri lagi,“ segir Sigrún. – Hafði það ekki mikil áhrif á þig að vinna með Björk, Florence and the Machines og Sigur Rós? „Jú, alveg heilmikil. Maður lærir ótrúlega mikið af því, bæði vinnuað- ferðir og þetta er mikill skóli í mannlegum samskiptum. Maður er tekinn úr sínu vanalega umhverfi og þarf að eiga að heima í ferðatösku í langan tíma, allir þurfa að geta unn- ið saman og spilað saman“ – Þú ert að fara að halda tónleika í Kaldalóni, verða það fyrstu tón- leikar þínir í Hörpu? „Já, þetta er í fyrsta sinn,“ segir Sigrún og bætir við að þrír vinir hennar verði með henni á sviðinu. Hilma Kristín Sveinsdóttir syngur með henni og Kjartan Dagur Hólm og Andri Freyr Þorgeirsson leika á trommupad og slagverk. – Hlakkarðu til tónleikanna? „Já, ég er mjög spennt. Við héld- um tónleika í síðustu viku, vorum að hita upp fyrir Tanyu Tagaq sem er barkasöngkona frá Kanada, þannig að við erum í gírnum og til í meira.“ Hlusta má á lög Sigrúnar á soundcloud.com/beinteins89. Klassík mætir klúbbatónlist  SiGRÚN heldur tónleika á Sónar í Hörpu í kvöld Spennt SiGRÚN hlakkar til tónleikanna sem hún heldur í Kaldalóni í kvöld kl. 21.30 með þremur vinum sínum, á tónlistarhátíðinni Sónar. )553 1620 Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Veisluþjónusta Lauga-ás Afmæli Árshátíð Gifting Ferming Hvataferðir Kvikmyndir Íþróttafélög Við tökum að okkur að skipuleggja smáar sem stórar veislur. Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta gæðaflokki og getur komið hvert sem er á landinu og sett upp gæða veislu. Er veisla framundan hjá þér? Hafðu samband við okkur og við gerum þér tilboð. Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 8 SÝND KL. 5.30, 8, 10.30 SÝND KL. 8, 10.15 SÝND KL. 5.40 SÝND KL. 10.40 SÝND KL. 5.40

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.