Morgunblaðið - 16.02.2017, Síða 44
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 47. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Yfirheyrðu manninn í morgun
2. Eurovision í uppnámi vegna …
3. Áratuga gömul ráðgáta leyst?
4. Umdeild játning leiddi til …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Herbie Hancock, einn virtasti
djasstónlistarmaður samtímans,
heldur tónleika með Vinnie Colaiuta,
James Genus, Lionel Loueke og Ter-
race Martin í Eldborg í Hörpu 20. júlí
nk. Hancock á yfir 50 ára feril að baki
og hefur hlotið 14 Grammy-verðlaun,
síðast fyrir hljómplötuna River: The
Joni Letters.
„Tónlist hans heldur áfram að
heilla menn um heim allan og al-
kunna er að ungir djasspíanóleikarar
leita óspart í smiðju hans. Þeir eru
ekki margir sem hafa haft viðlíka
áhrif á djass og Herbie Hancock,“
segir m.a. á vef Hörpu um tónleikana,
en Hancock hefur sent frá sér meira
en 60 plötur á ferli sínum. Hann kom
fram á Listahátíð í Reykjavík árið
1986 og lék þá einn á órafmagnað
píanó. „Það er heldur óvanaleg
reynsla fyrir mig að halda tónleika
sem þessa, ég hef aðeins gert það
fimm sinnum áður. Ég er því mjög
spenntur sjálfur að sjá hvernig þeir
verða,“ sagði Hancock í samtali við
Morgunblaðið fyrir þá tónleika.
Herbie Hancock held-
ur tónleika í Hörpu
Vísnasveitin Spottarnir heldur ár-
lega vetrartónleika sína á Café Rosen-
berg í kvöld kl. 21. Að venju verða ljóð
og lög eftir Cornelis Vreeswijk mest
áberandi á lagalistanum. Söngkonan
Guðrún Gunnars-
dóttir syngur með
sveitinni, en hún
sendi frá sér
plötu með lög-
um eftir Vrees-
wijk fyrir
nokkrum
árum.
Guðrún syngur
með Spottunum
Á föstudag Gengur í austan 8-15 með rigningu, fyrst sunnantil, en
slyddu norðantil upp úr hádegi. Hiti yfirleitt 0 til 7 stig.
Á laugardag Norðaustan 5-10 og él norðantil fyrripartinn, en þurrt
að mestu fyrir sunnan. Hæglætisveður og víðast þurrt síðdegis.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað og
rigning með köflum, en úrkomulítið norðantil. Hiti 2 til 7 stig.
VEÐUR
Nýkrýndir bikarmeistarar
Keflavíkur máttu bíta í það
súra epli að tapa fyrir Ís-
landsmeisturum Snæfells,
62:57, í Dominos-deild
kvenna í körfuknattleik í
gærkvöldi. Snæfell komst
þar með upp að hlið Skalla-
gríms í efsta sæti deildar-
innar. Valur vann óvæntan
sigur á Skallagrími í Borgar-
nesi auk þess sem Njarðvík
og Stjarnan unnu sína leiki.
»4
Meistarar Kefla-
víkur töpuðu
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir,
fyrirliði Íslandsmeistara Stjörnunnar,
missir að öllum líkindum af
upphafi keppnistímabils-
ins í Pepsi-deildinni í
knattspyrnu. Ásgerður
fór í mjaðmaspeglun
í gær og að sögn
læknis verður
hún frá keppni
næstu 3-4
mánuðina af
þeim sökum.
Hún hefur þó
ekki gefið upp
vonina um að
vera tilbúin þegar
mótið hefst. »1
Án fyrirliðans í byrjun
Íslandsmótsins?
Valsmenn gerðu það gott í heimsókn
sinni til Aftureldingar í Mosfellsbæ í
gærkvöld. Þeir unnu leikinn með fjög-
urra marka mun, 29:25, og voru með
yfirhöndina í leiknum frá upphafi til
enda. Valur er þar með aðeins stigi á
eftir FH í fjórða sæti Olísdeildar karla
í handknattleik. Afturelding er enn
efst en hefur aðeins fengið eitt stig í
síðustu þremur leikjum. »4
Valsmenn skelltu topp-
liðinu að Varmá
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Flugið heillar á ýmsan hátt og Eirík-
ur Jón Líndal, sálfræðingur og for-
maður Myntsafnarafélags Íslands,
tengist því sérstaklega í gegnum
söfnun á íslenskum og skandinav-
ískum flugmerkjum. „Ég byrjaði á
þessari söfnun 1999 og á orðið hátt í
1.000 merki frá íslenskum og öðrum
norrænum flugfélögum,“ segir hann.
Flugfélög hafa komið og farið í
gegnum tíðina, hvergi er til skrá yfir
merki þeirra fyrir utan lítinn bækl-
ing um flugmerki í Skandinavíu og
umfangið því ekki vitað. Eiríkur
segist því einkum hafa leitað fanga
hjá eldri flugmönnum, flugfreyjum
og öðrum starfsmönnum flugfélaga
um merki og að sér hafi verið mjög
vel tekið í gegnum árin. Eftir árás-
ina á Bandaríkin 2001 hafi hins veg-
ar orðið ákveðin vatnaskil varðandi
merki frá flugfélögum í Skandi-
navíu. „Þá urðu talsmenn flugfélaga
mun varkárari í öllum samskiptum
og tregari að láta hluti frá sér,“ seg-
ir hann. „Tortryggnin jókst og menn
voru á varðbergi gagnvart því að
þessir hlutir yrðu misnotaðir í hönd-
um annarra.“ Hann segir samt að
eftir því sem safnið hafi stækkað
hafi verið auðveldara að fá hluti á
ný. Hann kveðst vera í góðu sam-
bandi við innlend flugfélög og eigi
einnig í góðu samstarfi við mörg
flugfélög á Norðurlöndunum og þá
sérstaklega SAS.
Nær 20 ára áhugamál
Eiríkur segir að fyrir tæplega
20 árum hafi hann byrjað að velta
fyrir sér flugsögunni. Hann hafi
kynnst manni sem hafi átt í flug-
félaginu Íscargo. Það hafi verið
nokkuð umsvifamikið en síðan horfið
af sjónarsviðinu. „Þá velti ég því fyr-
ir mér hvort það væri hreinlega að
gleymast og spurði hann hvort hann
ætti eitthvað til minningar um félag-
ið. Þá lét hann mig hafa bréfsefni fé-
lagsins og lítið starfsmannaspjald.
Það var það eina sem hann átti frá
félaginu.“ Í kjölfarið hafi hann leitt
hugann að öðrum flugfélögum, sem
hafi hætt starfsemi, og byrjað að
safna merkjum þeirra sem og ann-
arra sem voru í rekstri, í þeim til-
gangi að þessir hlutir glötuðust ekki.
„Fljótlega vatt þetta upp á sig og ég
byrjaði líka að eignast aðra hluti
sem voru merktir þessum félögum.“
Samfara söfnuninni hefur Ei-
ríkur kynnt sér flugsöguna vel, safn-
að bókum um flugfélög og einstak-
linga tengda þeim og orðið sér úti
um annan fróðleik til þess að reyna
að átta sig sem best á stöðunni.
„Þannig hef ég fengið nánari upplýs-
ingar en þær eru langt því frá tæm-
andi,“ segir hann.
Vantar elstu merkin
Sem fyrr er erfiðast að nálgast
elstu taumerki Flugfélags Íslands,
sem voru í ýmsum stærðum og út-
færslum, og svo sérmerki Loftleiða
sem voru á ermum búninga. Eiríkur
segir að þau hafi oft verið tekin af
búningunum, þegar þeir hafi verið
settir í hreinsun, og gömlum merkj-
um hent þegar ný hafi verið tekin í
notkun. „Mikill og ánægjulegur tími
hefur farið í að eltast við merki og
muni frá flugfélögum fyrri tíða og
hef ég á þeirri leið kynnst mörgum
mjög áhugaverðum einstaklingum
sem hafa aðstoðað mig með einum
eða öðrum hætti við söfnunina. Er
ég þeim öllum afar þakklátur.“
Hann vonar að safnið muni með
tímanum geta sýnt yfirlit yfir þau
flugfélög sem hafa verið til á landinu
í gegnum árin, í gegnum merkin
sem þau notuðu, og það sama eigi
við um félögin frá hinum Norður-
landaríkjunum.
Safnið er mjög vel skipulagt og
skráð í Excel. Eiríkur segir hvert
einstakt merki eiga sína sögu og
skrásetur hann vandlega það sem
hann veit um sögu þess og eiganda.
Öll merkin eru aðgengileg og
uppröðuð á púðum í skápum en aðrir
og stærri munir eru í möppum og
kössum. „Áhugi minn á merkjunum
leiddi mig í Myntsafnarafélag Ís-
lands, þar sem mikill áhugi er á
mynt-, seðla- og merkjasöfnun,“
segir hann.
Eiríkur hefur sýnt hluta safns-
ins á sérstökum sýningum en hefur
ekki ákveðið hvað hann geri að lok-
um við það. „Ég er ekki enn kominn
á þann aldur að ég sé farinn að
hugsa um að láta þetta frá mér,“
segir hann.
Morgunblaðið/Golli
Safnari Eiríkur Líndal sálfræðingur heldur nákvæma skrá um safnið. Öll
flugmerkin eru aðgengileg og uppröðuð á púðum í skápum.
Á hátt í 1.000
flugmerki
Eiríkur Líndal á sérstakt safn