Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. M A R S 2 0 1 7 Stofnað 1913  63. tölublað  105. árgangur  www.lyfja.is Dekurtjútt Frábær tilboðá dekurvörum ÚRSLITALEIKUR Í ÍSHOKKÍ Á FIMMTUDAG NÝLISTASAFNIÐ Á NÝJUM STAÐ EYJAPEYI FLYTUR INN ÍTALSKAR TRUFFLUR MENNING 38-39 DAGLEGT LÍF 12-13ÍÞRÓTTIR Félög í eigu Ingibjargar Pálmadóttur verða samanlagt þriðji stærsti hlut- hafinn í Fjarskiptum hf. (Vodafone) eftir kaup Fjarskipta á öllum eignum 365 miðla hf. nema Fréttablaðinu. Fé- lögin Moon Capital S.á.r.l. og ML 102 ehf., sem áttu 74% hlut í 365 miðlum, munu eftir hlutafjáraukningu eiga 8,1% hlut í Vodafone ef miðað er við útistandandi hluti í félaginu. Kaup Fjarskipta hf. voru m.a. greidd með hlutum í Fjarskiptum að andvirði 1,7 milljarðar króna. Gildi lífeyrissjóður verður áfram stærsti hluthafinn með rúmlega 12,2% hlut og Lífeyrissjóður verslunarmanna verður áfram annar stærsti hluthafinn með 10,9% hlut. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, A-deild, lækkar í fjórða sæti yfir hlut- hafa og mun eiga 6,5% eftir hlutafjár- aukningu. Ursus ehf., félag í eigu Heiðars Guðjónssonar, lækkar niður í 6. sæti á hluthafalistanum og verður eftir aukningu með 5,9% hlut í félag- inu. »16 Ingibjörg verður 3. stærst í Vodafone Fjárfesting Arwen » Jarðirnar Markholt, Eini- holtsás og Kistutjarnir keyptar » Samtals 76 hektarar og búið að skipuleggja 8.000 fermetra byggð „Við höfum fest kaup á þremur sam- liggjandi jörðum sem eru í sjónlínu við Geysi og með útsýni yfir Lang- jökul í allar áttir,“ segir Birgir Örn Arnarson, stjórnarformaður fast- eignaþróunarfélagsins Arwen. Félagið hyggst byggja þúsund manna ferðaþjónustuþorp á jörðun- um á næstu fjórum til fimm árum. Birgir Örn segir þjónustumiðstöðina henta ferðamönnum sem fari Gullna hringinn. Notast verður við nýjar byggingaraðferðir svo þorpið muni rísa á sem skemmstum tíma. Mörg járn í eldi Arwen Fasteignaþróunarfélagið Arwen hefur í nægu að snúast um þessar mundir. Félagið er að ljúka við ný- byggingu undir bjórspa og veitinga- stað fyrir Bruggsmiðju Kalda á Ár- skógssandi þar sem gestir njóta meðal annars útsýnis yfir Eyjafjörð, Hrísey og Kaldbak. Félagið er einn- ig að byggja 1.450 fermetra hús við Seljaveg í Reykjavík undir íbúðir og þjónustu. Birgir Örn segir eftir- spurnina eftir nýjum íbúðum í mið- borginni slíka að selja mætti hverja íbúð á Seljaveginum þrisvar til fjór- um sinnum til að mæta eftirspurn. Ferðaþjónustuþorp við Geysi  Fjárfestar ætla að reisa þúsund manna ferðaþjónustuþorp á Íslandi  Verk- efnið tímamót í íslenskri ferðaþjónustu  Nýjar byggingaraðferðir verða notaðar MÁforma þúsund manna þorp »6 Morgunblaðið/Árni Sæberg Byggt Spáð er frekari fjölgun starfa í byggingariðnaði. Fjöldi starfsmanna sem eru á ís- lenskum vinnumarkaði á vegum er- lendra þjónustufyrirtækja og starfsmannaleigna hefur margfald- ast á milli ára. Þetta kemur fram í skýrslu Vinnumálastofnunar um ástandið á vinnumarkaði. Í seinasta mánuði voru 40 erlend þjónustu- fyrirtæki starfandi hér á landi en þau voru níu talsins í sama mánuði í fyrra. Alls voru 411 starfsmenn á vegum þessara fyrirtækja í febrúar, nálega tvöfalt fleiri en í sama mán- uði í fyrra. Þá voru starfsmenn starfsmanna- leigna, innlendra sem erlendra, samtals 974 í seinasta mánuði á vegum 26 starfsmannaleigna á vinnumarkaðinum og hafði þeim fjölgað úr 178 á einu ári. Úttekt Vinnumálastofnunar sýnir að alls voru yfir 20.000 erlendir ríkisborgarar að jafnaði á íslensk- um vinnumarkaði á seinasta ári. „Erlendum ríkisborgurum á vinnu- markaði fjölgar jafnt og þétt og má ætla að fjöldinn sé nálægt 21.500 nú á fyrstu mánuðum ársins 2017, eða um 10,8% af vinnuaflinu,“ segir í skýrslunni. omfr@mbl.is »4 Fjöldinn margfaldast milli ára  40 erlend þjónustufyrirtæki og 26 starfsmannaleigur „Við gerum þetta stöku sinnum og förum út hjá Gróttu þegar það er brim,“ segir Eymundur Ingimundarson í Kayakklúbbi Reykjavíkur. Óreyndir nemendur úr kajakskóla á vegum Gísla Friðgeirssonar voru með í för í gær. Eymundur segir Gísla hafa beðið sig og aðra vana menn um að aðstoða nemendur skólans í briminu, en eins og myndin sýnir var nóg um öldur og gekk nem- endum því misvel. mhj@mbl.is Kaldir kappar léku sér í brimrótinu við Gróttu Morgunblaðið/Eggert  Samkvæmt tölum frá embætti landlæknis hafa heilsugæslu- stöðvar og bráðamóttökur fengið til sín vikulega frá áramótum yfir 100 tilfelli um niðurgang. Þegar nánar er rýnt í skráning- una á ársgrundvelli kemur glöggt í ljós hve tíðni niðurgangs eykst um jól og áramót og aftur að vori eða í byrjun sumars þegar grillvertíðin hefst af krafti. „Við höfum velt fyr- ir okkur hvernig á þessu stendur með niðurgangspestar. Sumir hafa nefnt jólahlaðborðin í nóvember og desember. Það er svolítið sláandi hvað þetta er svipuð þróun frá ári til árs,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. »11 Jóla- og grillmatur eykur niðurganginn  „Það er þolinmæðisverk að vinda ofan af boðunarlista sem hefur ver- ið að myndast síðasta áratug,“ segir Páll Winkel fangelsismála- stjóri í samtali við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til þess að í lok síðasta árs voru 550 manns á boðunarlista Fangelsismálastofn- unar eftir því að hefja afplánun fangelsisdóma. Er það fjölgun frá 2015, þegar þeir voru 225. Erlendum föngum í afplánun hér á landi hefur fækkað töluvert á milli ára, en flestir eru þeir frá Pól- landi, Hollandi, Albaníu, Þýska- landi og Íran. »4 Föngum á boðunar- lista fjölgað milli ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.