Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 Hindberjajógúrt Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is NÝ AFURÐ FRÁ BIOBÚ! Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Erlendum ríkisborgurum á vinnu- markaði fjölgar jafnt og þétt og áætlar Vinnumálastofnun að fjöld- inn sé nú nálægt 21.500 á fyrstu mánuðum ársins, eða um 10,8% af vinnuaflinu. Þetta er fjölgun frá í fyrra en þá voru þeir yfir 20 þúsund að jafnaði á vinnumarkaðinum. Vinnumálastofnun hefur gefið út 312 atvinnuleyfi það sem af er árinu og hafa útlendingar frá 47 löndum fengið atvinnuleyfi frá áramótum. Þessar upplýsingar koma fram í nýju yfirliti Vinnumálastofnunar um atvinnuástandið. Þar segir að áframhaldandi vöxtur í ferðaþjón- ustu og byggingariðnaði bendi til að erlendum ríkisborgurum á vinnu- markaði muni fjölga með svipuðum hraða á þessu ári og í fyrra. Fram kemur að fjöldi starfs- manna á vegum erlendra þjónustu- fyrirtækja og starfsmannaleigna hefur margfaldast á milli ára og er- lendu fyrirtækjunum sem hér eru með starfsemi hefur einnig fjölgað. Í febrúar voru samtals 40 erlend fyrirtæki starfandi samkvæmt skráningu til Vinnumálastofnunar en þau voru níu í febrúar á síðasta ári. Fækkar hratt eftir lok verkfalls „Fjöldi starfsmanna á vegum þessara fyrirtækja var samtals 411. Þá voru starfsmenn starfsmanna- leigna, innlendra sem erlendra, samtals 974 í mánuðinum á vegum 26 starfsmannaleigna,“ segir í skýrslu Vinnumálastofnunar. Til samanburðar voru starfsmenn á vegum starfsmannaleigna 178 í febr- úar í fyrra. Starfsmannaleigunum hefur fjölgað frá febrúar í fyrra úr 13 í 26. Atvinnulausum á vinnumarkaði fækkaði hratt í lok febrúar eftir að sjómannaverkfallinu lauk og fisk- vinnslufólk sem var á atvinnuleys- isskrá var endurráðið. Skráð at- vinnuleysi á landinu var 2,9% í nýliðnum mánuði. Um seinustu mán- aðamót voru 4.587 einstaklingar á atvinnuleysisskrá. Um 1.760 manns fóru af skrá og í vinnu í febrúar. Sérfræðingar Vinnumálastofnunar gera nú ráð fyrir að atvinnuleysi verði á bilinu 2,1% til 2,4% í mars. Reiknað er með að störfum fjölgi á þessu ári í svipuðum mæli og í fyrra þegar hátt í 7.000 störf bættust við á vinnumarkaði. Atvinnuleysið mun því minnka áfram fram á sumar og má gera ráð fyrir að það fari niður undir 1,7% yfir sumarmánuðina. Morgunblaðið/Golli Við vinnu Störfum fjölgar og áfram dregur úr atvinnuleysi. Í fyrra bættust 7.000 störf við á vinnumarkaði. 21.500 útlendingar á vinnumarkaðinum  Spáð er mikilli fjölgun starfa  Mun fleiri erlend fyrirtæki Starfsmenn erlendra fyrirtækja og starfsmannaleiga Heimild: Vinnumálastofnun 1.200 1.000 800 600 400 200 0 212 411 178 974 Á vegum erlendra þjónustufyrirtækja Febrúar 2016 Febrúar 2017 Á vegum starfsmannaleiga Í lok síðasta árs voru 550 manns á boðunarlista Fangelsismálstofnunar eftir því að hefja afplánun fangelsis- dóma. Það er fjölgun frá 2015, þegar þeir voru 225. „Fangelsið á Hólmsheiði mun hafa jákvæð áhrif á boðunarlistann, en fangarýmum fjölgar um 30 þrátt fyrir lokun Hegningarhúss og Kvennafangelsisins,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að alls verði unnt að vista 56 fanga í nýja fangelsinu. Það muni hins vegar taka einhvern tíma að vinna á boð- unarlistanum, en lagabreytingar þar sem vægi samfélagsþjónustu og raf- ræns eftirlits var aukið muni einnig hafa jákvæð áhrif til lengri tíma. „Það er þolinmæðisverk að vinda ofan af boðunarlista sem hefur verið að myndast síðasta áratug,“ segir Páll. Hann segir að á síðasta ári hafi 34 dómar fyrnst þar sem ekki tókst að útvega viðkomandi pláss til af- plánunar. Páll Winkel segir að ekki sé hægt að svara því með nákvæmum hætti hve margir dómþolar sem ekki hafa byrjað afplánun muni sinna sam- félagsþjónustu í stað þess að sitja af sér í fangelsi. „Í fyrra hófu 42% dómþola á boðunarlista afplánun með samfélagsþjónustu í stað af- plánunar í fangelsi,“ segir hann. Sigríður Andersen dómsmála- ráðherra sagði við umræður um stöðu fanga á Alþingi í síðustu viku að fjárveiting til fangelsismála undanfarin misseri hefði ekki staðið umbótum í fangelsismálum fyrir þrifum. Hafa yrði í huga að nú hefði nýtt fangelsi verið tekið í gagnið og hefði gríðarlega aukið fjármagn far- ið í málaflokkinn m.a. vegna þess. Væri það mikil réttarbót. Þá upplýsti ráðherra að það hefði verið sitt fyrsta formlega verk sem ráðherra að gefa út nýja reglugerð um þóknun til fanga. Í þeirri reglu- gerð væri námi gert hærra undir höfði en áður hefði verið. Nú væri greitt jafn mikið til fanga fyrir nám og vinnu. Verknám væri þar stór hluti. Samkvæmt nýrri samantekt Fangelsismálastofnunar hefur er- lendum föngum í afplánun á Íslandi fækkað töluvert á milli ára; úr 79 ár- ið 2015 í 64 árið 2016. Flestir fang- anna eru frá Póllandi, Hollandi, Alb- aníu, Þýskalandi og Íran. Fangar frá 32 þjóðlöndum afplánuðu á Íslandi árið 2016. gudmundur@mbl.is 550 dómþolar bíða eftir boðun í fangelsi  Föngum á boðunarlista fjölgað frá síðasta ári  34 dómar fyrndust í fyrra Morgunblaðið/Ófeigur Hólmsheiði Í nýja fangelsinu er unnt að vista alls 56 fanga. Dómþolar á boðunarlista til afplánunar 600 500 400 300 200 100 0 2010 300 360 446 455 486 498 525 550 2011 2012 2013 2014 2015 2016 14/3 ´17 Heimild: Fangelsismálastofnun Alls greiddi Fæðingarorlofs- sjóður rúmlega 787 milljónir króna til 3.709 foreldra í febr- úar samkvæmt yfirliti sem Vinnumálastofnun hefur birt. Fengu 2.741 konur og 968 karl- ar greiðslur í fæðingarorlofi en í ljós kom að körlum í fæðing- arorlofi fækkaði um tæplega 300 milli mánaða. „Alla jafna fækkar feðrum í fæðingarorlofi milli janúar og febrúar en fækkaði nú meira en búist var við.“ 300 færri karlar í orlofi FÆÐINGARORLOF „New York er nánast lömuð þó svo að þetta sem Bandaríkjamenn kalla snjókomu væri heima á Ís- landi kallað föl,“ segir Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, í samtali við Morg- unblaðið, en vetrarríki var á austurströnd Bandaríkj- anna í gær þegar stormurinn Stella gekk þar yfir. Spáð var allt að 60 cm snjókomu og vindhviðum upp í 27 m/sek. en svo vel blés þó aldrei. Þorsteinn er staddur í New York ásamt fjölda Ís- lendinga sem sækja kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Dagskrá hennar í gær var aflýst, rétt eins og flestu því sem var á dagskrá í borginni. Lokað var á opinberum stöðum og fólk hvatt til að vera heima enda neyðarástandi lýst yfir. Alls var 6.800 flug- ferðum aflýst og bæði Icelandair og WOW air blésu af ferðir sínar til New York og Boston í gær. „Auðvitað skilur maður vel að í stórborg, þar sem fólk þarf oft að ferðast um langan veg til og frá, geti snjókoma lamað samgöngur. Ferðir liggja niðri og það er fátt á götunum þegar maður lítur út um gluggann á hótelinu okkar hér á Manhattan,“ segir Þorsteinn. Hann vonast þó til að dagskrá ráðstefn- unnar komist í rétt ról í dag, áður en Íslendingarnir þurfa að snúa aftur heim. sbs@mbl.is Stórborgin nánast lömuð Ljósmynd/Þorsteinn Víglundsson Snjór Fáir voru á ferli við hótel ráðherrans í gærdag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.