Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA. ILMANDI HLUTI AF DEGINUM Íslenskt fjölskyldufyrirtæki og framleiðsla síðan 1984 Loftpressur - stórar sem smáar Price heilbrigðisráðherra og Mick Mulvaney, forstöðumaður fjárlaga- skrifstofu Hvíta hússins, sögðu að þeir væru ósammála mati hagfræð- inga fjárlagaskrifstofu þingsins. „Þetta er bara ekki trúverðugt,“ hef- ur The Wall Street Journal eftir Price sem er fyrrverandi bæklunar- skurðlæknir. Hann sagði að hag- fræðingarnir tækju ekki tillit til að- gerða sem heilbrigðisráðuneytið hygðist grípa til eða annarra frum- varpa sem lögð yrðu fram til að minnka kostnaðinn af sjúkratrygg- ingum. Paul Ryan, forseti fulltrúadeildar- innar, lagði hins vegar áherslu á þá niðurstöðu fjárlagaskrifstofu þings- ins að tillögurnar myndu minnka fjárlagahallann. Hann sagði niður- stöðuna „framar vonum“. „Þetta snýst um að veita fólki meira val og betri aðgang að sjúkratryggingum sem það vill og hefur efni á. Þegar fólk hefur meira val minnkar kostn- aðurinn. Það sýnir skýrslan.“ Hagfræðingar fjárlagaskrifstofu þingsins telja að nýju tillögurnar verði til þess að iðgjöld vegna sjúkratrygginga hækki að meðaltali um 15-20% til ársins 2020 en byrji þá að lækka. Meðaliðgjöldin verði um 10% lægri árið 2026 en nú. Koma verst niður á eldri borgurum Iðgjöldin hækka eða lækka mis- mikið eftir aldri og tekjum trygg- ingataka og frumvarpið kemur verst niður á eldri borgurum, að sögn fjár- lagaskrifstofunnar. Nái tillögurnar fram að ganga lækka iðgjöld 21 árs manns með 68.200 dollara (7,6 milljóna króna) árstekjur úr 5.100 dollurum í 1.450 dollara (úr 572.000 í 162.000 kr.). Ið- gjöld 64 ára manns með sömu árs- tekjur myndu haldast óbreytt. Ið- gjöld 64 ára manns með 26.500 dollara (þriggja milljóna króna) árs- tekjur myndu hins vegar hækka stórlega, eða úr 1.700 dollurum í 14.600 (úr 190.000 í 1,4 milljónir króna). AFP Hægara ort en gert Útlit er fyrir að erfitt verði fyrir Donald Trump, for- seta Bandaríkjanna, að efna kosningaloforðin í heilbrigðismálum. Sean Spicer, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, hefur dregið til baka full- yrðingar Donalds Trumps á Twitter um að Barack Obama hafi látið hlera síma hans fyrir kosningarnar í nóvember. Spicer sagði að ekki ætti að taka fullyrðingar Trumps um símahleranir bókstaflega. Trump tísti á Twitter fyrr í mán- uðinum að hann hefði komist að því að Obama hefði fyrirskipað símahleranirnar skömmu fyrir kosningarnar og lét m.a. þau orð falla að forsetinn fyrrverandi væri „sjúkur maður“. Tístið olli miklu fjaðrafoki í Bandaríkjunum en Spicer segir að fjölmiðlar eigi ekki að hafa hátt um þetta vegna þess að Trump hafi haft orðið „síma- hleranir“ innan gæsalappa. Fjölmiðlafulltrúinn segir að for- setinn hafi átt við „eftirlit og aðra starfsemi“ gegn Trump í kosninga- baráttunni. Ásökunin hafi ekki beinst að Barack Obama sér- staklega. Áður hafði leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar þingsins samþykkt beiðni Trumps um að rannsaka „símahleranirnar“ og óskað eftir upplýsingum frá dómsmálaráðu- neytinu um ásakanirnar. Meinti tístið ekki bókstaflega MEINTAR NJÓSNIR UM DONALD TRUMP Þúsundum flugferða var aflýst og mörgum skólum lokað vegna stór- hríðarinnar Stellu á norðaustur- strönd Bandaríkjanna í gær. Varað var við óveðri á svæðum í Connecti- cut, Massachusetts og upphéruðum New York-ríkis en í New York- borg, þar sem myndin var tekin, var hríðin ekki eins mikil og óttast hafði verið. Stella varð m.a. til þess að fresta þurfti fundi Donalds Trump forseta og Angelu Merkel, sem átti að fara fram í gær, til föstudagsins kemur. Stella olli usla AFP Francois Fillon, forsetaefni Lýð- veldisflokksins, var ákærður form- lega í gær fyrir að hafa misfarið með almannafé, aðeins sex vikum fyrir fyrri umferð forsetakosninga í Frakklandi. Fillon var lengi talinn sigur- stranglegastur í kosningunum en hefur átt undir högg að sækja síð- ustu vikur vegna ásakana um að eiginkona hans hafi fengið laun sem aðstoðarmaður hans án þess að hafa í raun starfað fyrir hann. Hermt er að eiginkonan hafi feng- ið hálfa milljón evra (62 milljónir króna) á árunum 1998 til 2012 þeg- ar hún var aðstoðarmaður hans. Tvö börn þeirra fengu einnig sam- tals 84.000 evrur fyrir aðstoð við hann sem þingmann. Franskir þingmenn mega ráða eiginkonu sína og börn sem aðstoðarmenn en kona Fillons er sökuð um að hafa fengið féð án þess að hafa starfað fyrir hann. Eiginkon- an er einnig sögð hafa fengið laun sem ráð- gjafi bókmennta- tímarits í eigu auðugs vinar Fil- lons án þess að hafa starfað fyrir það. Vandræði Fillons hafa orðið til þess að fylgi miðjumannsins Emm- anuels Macrons hefur aukist. Talið er að Macron og Marine Le Pen, forsetaefni þjóðernissinna, fái mest fylgi í fyrri umferðinni 23. apríl og kosið verði á milli þeirra tveggja í síðari umferðinni 7. maí. Ákæra á hendur Francois Fillon  Vandi franska forsetaefnisins eykst Francois Fillon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.