Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Uppsetning nýja stigans á milli þjónustumið-
stöðvarinnar og neðra bílaplansins við Gullfoss
þokast áfram. Þetta er mikið mannvirki og verður
áberandi. Eftir er að setja upp handrið og bekki á
útsýnispallana. Taka á stigann í notkun í lok
næsta mánaðar. Þá verður gengið í að laga um-
hverfið og græða upp sárin eftir jarðraskið og
rífa gamla stigann, sem kominn er á síðasta snún-
ing eftir að hafa þjónað ferðamönnum í aldar-
fjórðung. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun
vonar að mannvirkið verði minna áberandi þegar
gengið hefur verið frá því og umhverfinu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Galvaníseraður járnstigi
settur upp við Gullfoss
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson var í gær
kjörinn nýr formaður VR til næstu
tveggja ára. Hann sigraði Ólafíu B.
Rafnsdóttur í formannsbaráttu og
fékk 62,98% greiddra atkvæða, en
Ólafía fékk 37,02%.
Allsherjaratkvæðagreiðsla vegna
kosninga til formanns og stjórnar
VR stóð frá 7. mars til hádegis í gær,
en alls greiddu 5.706 atkvæði. Á
kjörskrá voru 33.383 félagsmenn og
var þátttaka því 17,09%.
Ragnar Þór segir kjör sitt lýsa
vantrausti á Gylfa Arnbjörnsson,
forseta Alþýðusambands Íslands
(ASÍ).
„Ég fór fram með ákveðin bar-
áttumál og var þessi kosning því auð-
vitað vantraust á forseta ASÍ og
stefnu þess,“ segir Ragnar Þór í
samtali við Morgunblaðið. Hann seg-
ir ekki stefnt að breytingum á innra
starfi VR. „Skrifstofan og allt innra
starf félagsins er mjög traust,“ segir
hann.
Ágreiningur um SALEK
Aðspurður segir Ragnar Þór eng-
an grundvöll vera hér á landi fyrir
SALEK-samkomulaginu svonefnda,
þ.e. rammasamkomulagi um launa-
upplýsingar og efnahagsforsendur
kjarasamninga, en samkomulagið er
byggt á umhverfi kjarasamninga í
hinum Norðurlandaríkjunum.
„Það eru engar forsendur eða
traust í þjóðfélaginu fyrir þessu nor-
ræna módeli eða SALEK-samkomu-
laginu. Í því samhengi er hægt að
nefna húsnæðisvandann, vaxtastigið,
verðtrygginguna, stöðuna í heil-
brigðismálum og grunnþjónustu. Við
eigum svo langt í land með að ná ein-
hverri sátt um velferð og kjör,“ segir
Ragnar Þór enn fremur.
Spurður út í afstöðu Ragnars Þórs
gagnvart SALEK segir Gylfi marg-
ar hindranir standa í vegi fyrir því að
samkomulaginu verði breytt. „Það
eru margir þröskuldar sem standa í
vegi fyrir því að tekið verði upp nýtt
og breytt samningslíkan. Við erum í
deilu við stjórnvöld vegna kjararáðs-
úrskurðar, stöðu velferðarmála og
heilbrigðismála,“ segir Gylfi og held-
ur áfram:
„Í augnablikinu er ekki vinna í
gangi við að breyta um samnings-
líkan vegna ágreinings við stjórn-
völd. Með hvaða hætti VR vill koma
að því máli með nýrri forystu verður
bara stjórn samninganefndar VR að
fjalla um. Ég get hins vegar ekki tjáð
mig um það,“ segir Gylfi.
Mun ekki taka sæti í miðstjórn
Ragnar Þór segist ekki ætla að
sitja í miðstjórn Alþýðusambands Ís-
lands á meðan núverandi forseti
sambandsins er enn í starfi, en venja
hefur verið að bjóða formanni VR
sæti í miðstjórn og hafa tveir síðustu
formenn setið þar.
„Það er bara uppi of mikill hug-
myndafræðilegur ágreiningur og ég
sé ekki hvernig í ósköpunum það á að
ganga. Ég sagði það í kosningabar-
áttunni að ég væri búinn að lýsa yfir
vantrausti á forsetann og ég verð
bara að praktísera það sem ég pred-
ika – ég dreg ekkert úr því,“ segir
Ragnar Þór.
Gylfi bendir á að það sé valkvætt
að taka sæti í miðstjórn sambands-
ins. „Hann á ekki sjálfkrafa sæti í
miðstjórn ASÍ, en við höfum haft það
vinnulag að formaður svona stórs fé-
lags á borð við VR eigi rétt á að sitja
á fundunum. Ef hann vill það ekki þá
er það bara hans mál.“
Lýsir vantrausti á forseta ASÍ
Nýkjörinn formaður VR segir kosninganiðurstöðuna vantraust á forseta Alþýðusambands Íslands og
segist ekki ætla að taka sæti í miðstjórn Það er bara hans mál, segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
Ragnar Þór
Ingólfsson
Gylfi
Arnbjörnsson
Þó að losun
koltvísýrings á
Íslandi sé aðeins
að litlu rakin til
einkabíla þarf
bílgreinin að
vera meðvituð og
bregðast hratt
við þróun um-
hverfismála. Því
þarf að yngja
bílaflotann og
auka hlutdeild umhverfisvænna
ökutækja, svo sem rafbíla, enda er
það líklegra til ávinnings en efling
almenningssamgangna, segir Jón
Trausti Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Öskju og formaður Bílgreina-
sambandsins, sem á fundi Við-
reisnar í gær ræddi um orkuskipti
íslenska bílaflotans.
„Það er mikilvægt að Ísland
dragi úr losun CO2 og auki hlut-
deild umhverfisvænni ökutækja.
Neytendur virðast tilbúnir í orku-
skiptin,“ segir Jón Trausti.
Í síðustu könnun Gallup á áform-
um neytenda kom fram að neyt-
endur segjast líklegri en áður til að
kaupa rafmagns- en bensínbíla.
Þeir sem telja ólíklegt að þeir kaupi
rafbíl hafa þar ýmsar viðbárur, svo
sem að þeir séu dýrir, hleðslu-
stöðvar fáar og hver hleðsla á bíl
dragi skammt. Á móti kemur, segir
Jón Trausti, að ýmsar nýjungar eru
að koma fram sem gera rafbíla
betri kost en nú er. sbs@mbl.is
Neytendur eru til-
búnir í orkuskipti
íslenska bílaflotans
Jón Trausti
Ólafsson
Ísland er í 40. sæti á lista hjá ráð-
gjafarfyrirtækinu Bloom Consulting
yfir þau 243 lönd og svæði sem fólk
aflar sér upplýsinga um á netinu.
Þegar kemur að ferðamálum er Ís-
land í 26. sæti, en 49% þeirra sem
afla sér upplýsinga um Ísland á net-
inu skoða landið sem hugsanlegan
áfangastað.
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðu-
maður ferðaþjónustu og skapandi
greina hjá Íslandsstofu, segir að
niðurstöðurnar sýni áhuga á Íslandi
en skoða þurfi mun ýtarlegri upplýs-
ingar til þess að sjá hvort leitin skili
sér í kaupum á ferð. Íslandsstofa
starfi með Google til að finna svo-
kallaða áfangastaðavísitölu (e. Dest-
ination Index) og sé fylgst með því
hvort fólk leiti að flugi, hótelum og
afþreyingu. Hún leggur áherslu á að
áhugi á Íslandi í leitarvélum hafi
aukist undanfarin ár, í samræmi við
aðrar mælingar sem þau hafi séð.
Nýlega hafi viðhorfskannanir ver-
ið gerðar fyrir tilstuðlan Íslands-
stofu á fjórum helstu mörkuðunum, í
Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi
og Frakklandi, og þá hafi verið mælt
viðhorf til Íslands sem áfangastaðar
á viðkomandi markaði. Þar komi
fram að áhugi á Íslandi hafi aukist
stöðugt og fólk hafi mikinn áhuga á
því að koma til landsins.
„Áhuginn er því gríðarlegur en
verkefnið okkar er að vekja áhuga
markhóps okkar og fá hann í lokin til
að heimsækja landið,“ segir hún.
Efst Norðurlandaríkja
Fyrir ofan Ísland á listanum eru
Spánn í 1. sæti, Ítalía, Frakkland,
Bretland, Japan, Taíland, Þýska-
land, Ástralía, Mexíkó, Tyrkland,
Singapúr, Kína, Grikkland, Kanada,
Bandaríkin, Írland, Indland, Kosta-
ríka, Portúgal, Hong Kong, Nýja-
Sjáland, Króatía, Víetnam, Kúba og
Brasilía í 25. sæti. Inga Hlín bendir
á að Ísland standi ágætlega gagn-
vart hinum Norðurlandaríkjunum,
en Noregur er í 44. sæti, Svíþjóð 45.
sæti, Danmörk 52. sæti og Finnland
í 64. sæti. steinthor@mbl.is
Mikill áhugi erlendis á Íslandi á netinu
Ísland er í 40. sæti á lista hjá ráðgjafarfyrirtækinu Bloom Consulting yfir þau 243 lönd og svæði sem
fólk aflar sér upplýsinga um á netinu Í 26. sæti sem hugsanlegur áfangastaður, efst Norðurlandaríkja
Morgunblaðið/RAX
Jökulsárlón Ferðamenn sækja í náttúruperlur allt árið um kring.