Morgunblaðið - 15.03.2017, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017
Mýrdalsjökull Sunnanverður jökullinn var sakleysislegur að sjá á dögunum. Undir jöklinum er eldstöðin Katla, sem sýnt hefur merki þess undanfarið að hún sé ekki dauð úr öllum æðum.
RAX
Í upphafi áttu gjaldeyr-
ishöftin að vera tímabundin –
tvö ár eða svo. Flestir virtust
sannfærðir um að haftatímabilið
yrði því örstutt en þá kom
vinstristjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna. Tökin voru
hert, ekki slakað á klónni og
umfangsmikið gjaldeyriseftirlit
tók við.
Engin frjáls þjóð getur búið
til lengdar við fjármagnshöft.
En það tók liðlega átta ár – fjór-
um sinnum lengri tíma en stóð til – að afnema
þau. Mikilsverðum áfanga var náð í gær,
þriðjudag, þegar höftin voru felld úr gildi,
þótt eftir standi varúðarreglur sem Seðla-
bankinn getur nýtt til að hamla vaxtamuna-
viðskiptum og afleiðum spákaupmanna. Tak-
markanir eru enn í gildi á innflæði fjármagns.
Auðvitað er það nokkur einföldun að þakka
ákveðnum einstaklingum þegar mikilsverðum
áfanga er náð – áfanga sem markar upphaf að
nýjum tímum og sagt er skilið við fortíðina.
En ef nefna á einhverja sem lagt hafa þyngri
lóð á vogarskálarnar en aðrir, þá eru það Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra og fyrrverandi fjármála-
ráðherra. Einörð stefna ríkisstjórnar
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks frá
2013 gagnvart þrotabúum bankanna gjör-
breytti stöðunni. Stöðugleikaframlög og skyn-
samleg áætlun um losun fjármagnshafta skil-
uðu áfangasigrum á liðnu ári og gerðu kleift
að afnema höftin að fullu gagnvart einstakl-
ingum, fyrirtækjum og lífeyrissjóðum. Með
þessu verður til heilbrigðari umgjörð um ís-
lenskt atvinnulíf.
Lamandi eitur
Höftin hafa verið lamandi fyrir
íslenskt viðskiptalíf, dregið þrótt
úr fyrirtækjum og hamlað vexti
þeirra. Þannig hefur undirstaða
bættra lífskjara til langrar fram-
tíðar orðið veikari en ella. Lam-
andi hönd haftanna hefur gert
nýsköpunar- og sprotafyrir-
tækjum erfitt fyrir, ekki síst þeg-
ar þau hafa reynt að hasla sér
völl á erlendum mörkuðum.
Fjöldi fyrirtækja hefur neyðst til
að leita óhagkvæmari leiða til að
ná markmiðum og sinna því sem til var stofn-
að. Og um það verður ekki deilt að höftin hafa
eitrað andrúmsloftið og búið til eftirlitskerfi
sem hefur verið ofan í hvers manns koppi til
að fylgjast með viðskiptum sem í frjálsu hag-
kerfi eru ekki aðeins lögleg, heldur eðlileg og
sanngjörn. Allt hefur þetta skaðað sam-
keppnishæfni Íslands. Þessi tími er sem betur
fer að baki.
Íslendingar geta horft bjartsýnir fram á
veginn. Hagvöxtur er mikill – meiri en í flest-
um löndum heims, verðbólga er lítil og hefur
verið undir verðbólgumarkmiðum Seðlabank-
ans í þrjú ár. Síðustu 12 mánuði hefur verið
verðhjöðnun ef litið er á vísitölu neysluverðs
án húsnæðis. Kaupmáttur hefur aukist veru-
lega og skuldir ríkissjóðs hafa lækkað umtals-
vert og lækka enn frekar á komandi árum, ef
rétt er á málum haldið.
Á síðustu árum hefur efnahagskerfi lands-
ins tekið stakkaskiptum eins og sést best á
gríðarlegum vexti í útflutningi þjónustu. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar námu
heildartekjur af þjónustuútflutningi um 649
milljörðum króna á síðasta ári. Þjónustujöfn-
uður við útlönd var jákvæður um rúmlega 260
milljarða. Á síðustu tveimur árum hefur þjón-
ustujöfnuðurinn verið jákvæður um 462 millj-
arða króna. Frá 2013 hefur þjónustujöfnuður-
inn verið jákvæður um 741 milljarð króna sem
er litlu lægri fjárhæð en heildargjöld ríkis-
sjóðs eru áætluð á þessu ári samkvæmt fjár-
lögum.
Endurskoðun peningastefnunnar
Verkefninu er hins vegar langt í frá lokið.
Endurskoðun peningastefnunnar er fram-
undan. Ný stefna getur ekki aðeins tekið mið
af verðbólgu heldur verður verkefni Seðla-
bankans ekki síst að stuðla að jafnvægi í
gengi krónunnar, draga úr sveiflum og
tryggja fjármálalegan stöðugleika.
Til lengri tíma verður ekki hægt að tryggja
samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja ef
vextir hér á landi er margfalt hærri en í
helstu viðskiptalöndum. Raunvaxtamunur hér
á landi og í helstu samkeppnislöndum er
óeðlilega hár og hefur verið um langt skeið.
Það eru allar efnahagslegar forsendur fyrir
því að vextir lækki hér á landi á komandi vik-
um og mánuðum. Lægri vextir eiga að öðru
óbreyttu að vinna gegn óeðlilegri hækkun
krónunnar en um leið létta undir með heim-
ilum og fyrirtækjum – ekki síst sprotafyr-
irtækjum.
Afnám hafta býr ekki aðeins til heilbrigðara
umhverfi fyrir efnahagslífið heldur veitir ein-
staklingum og fyrirtækjum, en þó ekki síst líf-
eyrissjóðum, tækifæri til að dreifa áhættunni
með því að ávaxta hluta af sparnaði í öðrum
löndum. Fjárfestingar á erlendum mörkuðum
draga úr efnahagslegri áhættu og eru því ekki
aðeins skynsamlegar heldur nauðsynlegar.
Þvingaður sparnaður í fjötrum fjármagns-
hafta eykur hættu á eignabólu sem fyrr eða
síðar springur. Merki um eignabólu eru þegar
farin að sjást. Frelsi í fjármagnsflutningum
vinnur gegn eignabólu og kemur jafnvægi á
innlenda eignamarkaði, a.m.k. þá sem ekki
búa við heimatilbúinn skort.
Fyrir eigendur lífeyrissjóðanna – launafólk
– skiptir mestu að áhættunni sé dreift með
skynsamlegum hætti. Nú eru aðeins um 22%
eigna sjóðanna í erlendum eignum, sem er allt
of lítið til lengri tíma litið. Heildareignir líf-
eyrissjóðanna nema alls 3.500 milljörðum
króna eða 145% af vergri landsframleiðslu. Á
næstu 12-15 árum munu heildareignir lífeyr-
issjóðanna nær tvöfaldast. Stóran hluta aukn-
ingarinnar verður að fjárfesta í erlendum
eignum.
Fullveldið er mikilvægt
Þegar bankarnir féllu í október 2008 kom í
ljós hversu mikilvægt það er fyrir þjóðir að
vera fullvalda í peningamálum. Aðrar þjóðir
sem lentu einnig í gríðarlegum efnahags-
legum þrengingum kynntust því með sárs-
aukafullum hætti hve dýrkeypt það getur ver-
ið að framselja fullveldið. Nú hefur fullveldið
verið áréttað með afnámi haftanna. Framtíðin
er björt að minnsta kosti svo lengi sem við
berum gæfu til þess að standa vörð um full-
veldið, hvort heldur er í peningamálum eða í
öðrum ákvörðunum um stjórnskipan, lög og
reglur.
Eftir Óla Björn Kárason » Frá 2013 hefur þjónustu-
jöfnuðurinn verið jákvæður
um 741 milljarð króna sem
er litlu lægri fjárhæð en
heildargjöld ríkissjóðs
eru áætluð á þessu ári.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Úr lamandi höftum í heilbrigða umgjörð