Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 30

Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 ✝ Örbrún Hall-dórsdóttir læknaritari fæddist í Reykjavík hinn 29. mars 1933. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni 4. mars 2017. Foreldrar henn- ar voru Halldór Stefánsson, rithöf- undur og banka- gjaldkeri, f. 1892, d. 1979, og Gunnþórunn Ó. Karlsdóttir ritari, f. 1899, d. 1974. Örbrún giftist Guðmundi Georgssyni lækni, f. 1932, d. 2010, hinn 1. október 1955. For- eldrar hans voru Georg Júlíus Guðmundsson og Jónína Ingi- björg Magnúsdóttir. Börn Örbrúnar og Guðmund- ar eru: 1) Halldór, f. 1956, bók- menntafræðingur, kvæntur Önnu Vilborgu Dyrset bóka- verði, f. 1956. Dóttir Önnu er Kolbrún Ósk Ívarsdóttir, f. 1976, sem á þrjár dætur, Önnu blaðamanni og ljósmyndara. Sonur þeirra er Flóki, f. 2006. Örbrún var fædd og uppalin í Reykjavík og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1953. Hún stundaði um skeið nám í frönsku en starfaði síðan sem ritari á lögfræðistofu Ragn- ars Ólafssonar á sjötta áratugn- um. Hún fluttist til Þýskalands ásamt eiginmanni sínum og bjó þar 1963-1968. Þegar hún fór að vinna aftur var það fyrst á lög- fræðistofu Sigurðar Baldurs- sonar en síðan var hún ráðin læknaritari á barna- og ungl- ingageðdeild Landspítalans á Dalbraut og starfaði þar í 20 ár uns hún lét af störfum 1998. Örbrún hafði yndi af útivist og ferðalögum með eiginmanni sínum. Hún var hannyrðakona og áhugasöm um menningu og listir, einkum bókmenntir. Kær- ust voru henni barnabörnin sem hún sinnti af alúð alla tíð. Útför Örbrúnar fór fram frá Fossvogskirkju 10. mars 2017. Lenu, f. 1998, Silvíu Ósk, f. 2009, og Eddu Kristbjörgu, f. 2010, í sambúð með Aðalsteini Richter, f. 1969, sonur hans er Kristján Henry, f. 1996; börn Halldórs og Önnu eru Brynj- ar, f. 1980, Hrafn- hildur, f. 1983, Gunnar, f. 1991, og Guðmundur Óskar, f. 1995. 2) Örbrún, f. 1961, tónlistarþjálfi, gift Heinz Berger, f. 1961, sagn- fræðingi, börn þeirru eru Jakob Þórbergur, f. 1994, og Kathar- ina, f. 1999. 3) Hrafnhildur, f. 1963, frönskukennari, gift Magnúsi Haukssyni, f. 1959, raf- magnsverkfræðingi. Börn þeirra eru Ásrún, f. 1988, í sam- búð með Atla Bollasyni, f. 1985. Sonur þeirra er Huldar, f. 2015. Guðmundur, f. 1993, og Aðal- heiður, f. 1997. 4) Gunnþórunn, f. 1968, bókmenntafræðingur, gift Degi Gunnarssyni, f. 1967, Ég var fimmtán ára strák- skratti lítill og rýr, nýfluttur í annað hverfi og var í bekk þar sem ég þekkti fáa, en fann þá bekkjarbróður og jafnaldra og við fórum að halda hópinn. Og kom þá inn á heimili Guðmundar og Örbrúnar í Skeiðarvoginum og eftir situr sterk minning um endalausa gestrisni og elskusemi sem þar mætti manni. Sjálfur kom ég út af góðu fólki, en heima hjá mér voru þá mikil veikindi og erfiðleikar og ég held ég hafi ekki áttað mig á því fyrr en seinna hvað það dugði manni vel að kynnast Skeiðarvogsheim- ilinu. Þar var krakkaskari og líka gamalt skáld í kjallaranum; hjá Guðmundi og Örbrúnu voru bækur í hillum og myndir á veggjum og mikil tónlist. Við vin- irnir, ég og Halldór sonur þeirra, lágum töluvert í bókum og ýms- um pælingum, vorum auðvitað það sem nú heitir nörd, einhvers- konar ofvitar og vanvitar í bland, hvor á sinn hátt reyndar, þótt- umst til dæmis hafa miklu meira vit á flóknum hlutum eins og pólitík og samfélagsmálum en svona unglingar hafa forsendur til að skilja. En þótt við belgdum okkur út um slíkt og annað fleira þá var alltaf hlustað á okkur með kurteisi og umburðarlyndi þar á heimilinu; það var með það eins og annað að örlætinu var alltaf nóg af. Svo óx maður úr grasi en sam- bandið hélst alltaf þótt lengra yrði á milli. Þau hjónin fylgdust alltaf með því sem maður var að gera, hvort sem það var að eign- ast börn eða gefa út bækur, og alltaf fann maður fyrir uppörvun. Og það var líka drjúgt fyrir bjartsýni og sjálfstraust að finna að þau þóttust alltaf eiga dálítið í manni. Og það sama átti við um dætur mínar þegar við vorum að koma í heimsókn og þær á barns- aldri: þeim fannst þarna bara vera nýtt sett af ömmu og afa, með öllum kostunum sem þannig fólki fylgja. Alltaf hélst þetta góða sam- band. Guðmundur kvaddi fyrir nokkrum árum, en Örbrún hélt áfram að bjóða í skötuveislur þótt hún væri orðin ein og gömul, og alltaf mætti manni sama elskusemin þegar við hittumst, og sami áhuginn frá hennar hendi um mína hagi og mína fjöl- skyldu. Hún var einstök mann- kostamanneskja sem ég kveð með virðingu og söknuði. Einar Kárason. Það var gæfa að eignast þau Örbrúnu Halldórsdóttur og Guð- mund Georgsson að vinum og samferðamönnum. Vart er hægt að minnast annars þeirra án þess að geta hins. Í hartnær fjóra ára- tugi höfum við fylgst að og fagn- að saman tyllidögum, hátíðum og ýmsum öðrum tækifæris- og gleðistundum með börnum okk- ar, barnabörnum og venslafólki. Þau hjón voru einstaklega sam- hent, hvort öðru gleðigjafi og samstiga í því að veita vinum sín- um vel. Án vafa einstakt hvernig vinir barna þeirra töldu þau hjónin allt eins sína vini sem jafnaldrana. Ungir sem aldnir flykktust til þeirra í annálaða áramótafagn- aði. Ekki síðri voru friðsældar- stundir við spjall og notalegheit og margur hélt léttfættari af þeirra fundi hvar sem þau voru stödd hverju sinni, heima eða heiman. Lát Guðmundar fyrir sjö ár- um var Örbrúnu afar þungbært, lífið tók stakkaskiptum og eftir það mun gleðisnauðara þótt börn hennar og allir hennar nánustu hafi lagt sig fram um að gera henni tilveruna sem bærilegasta. Heilsu hennar hrakaði og hafa síðustu árin því verið henni erfið og reynt á þolrifin. Örbrún var afar elsk að öllum sínum afkom- endum og bar barnabörnin á höndum sér eftir því sem við varð komið og nutu þau mann- gæsku hennar eins og svo margir aðrir. Guðmundur hafði alla tíð mörg járn í eldinum og gegndi ábyrgðarfullum og erilsömum störfum og margt á annasömu heimili kom því í hlut Örbrúnar að sinna um. Hún starfaði einnig til fjölmargra ára sem læknarit- ari við barna- og unglingageð- deild Landspítalans við Dalbraut og naut þar trausts og virðingar sinna samstarfsmanna. Hófsemd, gleði og ljúf- mennska einkenndi allt fas Ör- brúnar. Gengin er öndvegiskona að loknu farsælu ævistarfi. Fjöldi saknar nú vinar í stað. Að leiðarlokum þökkum við Hjalti allar ljúfar samverustundir. Edda Óskarsdóttir. Örbrún og Gumbur urðu skærar heillastjörnur á mínum lífshimni þegar ég fór strákling- ur fyrir ríflega fjörutíu árum að venja komur mínar í kjallarann á Skeiðarvoginum sem Halldór vinur minn deildi með móðurafa sínum, Halldóri Stefánssyni rit- höfundi. Þegar stundir liðu fjölg- aði heimsóknum á efri hæðina til þeirra hjóna sem voru einstak- lega samhent í umburðarlyndi og mannúð, tóku opnum örmum vin- um barna sinna fjögurra, ræddu þolinmóð við okkur þær bylting- arhugmyndir sem hæst bar hverju sinni, hversu vitlausar og afdráttarlausar sem þær nú ein- att voru, sýndu okkur örláta for- vitni og kærleiksríka umhyggju. Það varð snemma ófrávíkjan- leg regla okkar Margrétar Þóru að sækja fagnað upp úr miðnætti á gamlárskvöld í Skeiðarvoginn; gestir skemmtileg blanda af vin- um húsráðenda og barna þeirra, allur vandi leystur í lifandi um- ræðum; húsbóndinn settist við píanóið og gestir sungu hver með sínu nefi, húsfreyja bar fram góðar veitingar sem aldrei þurru, og það vildi dragast að veislunni lyki. Böndin treystust svo enn þeg- ar Halldór og Anna Vilborg rugl- uðu saman reytum og við Hall- dór urðum svilar. Þá fjölgaði ánægjulegum fjölskyldufundum, ekki síst á merkisdögum í ævi barnabarnanna sem komu í heiminn eitt af öðru; stolt og augasteinar ömmu sinnar. Og það var alltaf gaman að hitta Ör- brúnu, hún var hlý og ræktarsöm en líka skörp og skoðanarík, gat verið hvöss í orðum og hittin. Hún var hláturmild og húmorinn ísmeygilegur, hafði litla þolin- mæði gagnvart tildri og skrumi en lifandi áhuga á fólki og menn- ingu í öllum sínum formum. Bernskuheimili hennar var menningarmiðja á sinni tíð, faðir hennar einn helsti áhrifamaður á vinstri menningarkantinum, meðal stofnenda Rauðra penna og Máls og menningar, og ekki síst einn fremsti smásagnahöf- undur sem við eigum í íslenskri bókmenntasögu. Örbrún var víð- sýn og víðförul, bjó lengi í Þýska- landi meðan Gumbur lauk sínu sérnámi og stundaði rannsóknir. Allt þetta setti á hana sitt mark og mótaði konu sem hafði rík áhrif á sína samtíðarmenn; all- tént stend ég í mikilli þakkar- skuld við hana fyrir samferðina síðustu áratugina og veisluna löngu sem nú er loks slitið. Við Margrét Þóra sendum Halldóri og Önnu Vilborgu, og systrunum, Örbrúnu, Hrafnhildi og Gunnþórunni, fjölskyldum þeirra og öllum afkomendum innilegar samúðarkveðjur. Örnólfur Thorsson. Örbrún Halldórsdóttir ✝ Hafsteinn Þor-bergsson fædd- ist í Reykjavík 18. nóvember 1934. Hann lést á öldr- unarheimilinu Hlíð 6. mars 2017. Foreldrar Haf- steins voru hjónin Þorbergur Ólafs- son rakarameistari, f. 9. maí 1891, d. 9. október 1981, og Jórunn Anna Jónsdóttir, f. 2. maí 1899, d.7. júlí 1947. Systur Hafsteins eru Stefanía Guðrún, f. 2. febrúar 1933, og tvíbura- systir hans Sigríður, f. 18. nóv- ember 1934. Hafsteinn kvæntist hinn 7. október 1961 Ingibjörgu J. Kristinsdóttur, f. 19. júní 1944 á Dalvík. Börn þeirra eru: 1) Hulda, f. 28. desember 1961, ur Nói. Hafsteinn ólst upp og bjó í Reykjavík fyrstu árin. Rúm- lega tvítugur fluttist hann til Akureyrar. Vann í stuttan tíma á bílaverkstæðinu Þórshamri og var kokkur á sjó. Hafsteinn var mikill söngmaður og söng bæði með Karlakórnum Geysi og Rúnarkórnum. Hafsteinn lærði til rakara í Iðnskólanum á Ak- ureyri og útskrifaðist 1960, árið 1994 tók hann sameiningarpróf í hárgreiðslu og hárskurði og útskrifaðist þá sem hársnyrti- meistari. Árið 1962 stofnaði hann Rakarastofu Hafsteins í Brekkugötu 13 á Akureyri og starfaði við sitt fag til ársins 2016 þar til hann fór á öldrunar- heimilið Hlíð. Útför Hafsteins fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 15. mars 2017, klukkan 13.30. maki Júlíus Jóns- son, f. 18. ágúst 1961, börn þeirra eru: Hildur Jana, f. 1982, Inga Dís, f. 1989, og Hafsteinn Ísar, f. 1998. 2) Helga, f. 5. júlí 1967, maki (skildu) Þorbjörn Guðrún- arson, f. 22. maí 1967, dætur þeirra eru: Guðrún Ósk, f. 1986, Hafdís, f. 1991, og Birta Júlía, f. 2000. 3) Kjartan Einar, f. 8. ágúst 1974, d. 30. júní 2002. 4) Þórunn (Todda), f. 3. ágúst 1976, maki Guðni Þór Jóseps- son, f. 21. ágúst 1984, börn þeirra eru: Kjartan Logi, f. 2010, og Katrín Helga, f. 2013. Langafabörnin eru fjögur: Ylfa Dís, Júlíus, Frosti Snær og Bald- Ég vil kveðja þig, elskulegi eiginmaður minn, með eftirfar- andi ljóði: Við áttum saman eitt sinn vor þá æskan kynnti líf og þor, við lögðum saman lífs á veg og leiðin sýndist yndisleg. Og lífið gaf og lífið tók það okkur saman reynslu jók, við bæði saman áttum allt var oftast hlýtt en stundum kalt. En nú er komin stundin sú á burtu farinn ert þú nú, þú vinur kær sem varst mér allt mitt lífsins ljós, mitt sálar skart. Nú gengin ertu á Guðs þíns veg ég græt svo harmi slegin treg, en ætíð mun ég muna þann sem gaf mér þennan góða mann. Ég þakka vinur, þakka allt sem gæfan okkur báðum galt. Það er mín trú, mitt trausta skor að aftur finnumst annað vor. (Höf. ók.) þín Ingibjörg (Inga). Elsku pabbi okkar. Það var svo dýrmætt að við fengum allar að vera hjá þér þegar þú kvaddir. Alla þína tíð varstu einstakt ljúfmenni, þægi- legur í umgengni, kærleiksríkt hörkutól og auðvitað langflott- astur og langbestur. Við ólumst upp við pabba sem gat ekki sagt nei. Ef við báðum þig um eitthvað sem þú vissir að væri ekki sniðugt þá sagðir þú: „Spurðu mömmu þína.“ Þú hafðir ótrúlegt jafnaðargeð, varst mikill dýravinur og alger barnagæla. Frábær afi og langafi. Söngelskur varstu og fengum við að njóta þess. Þú gast spilað á gítar, munnhörpu, teskeiðar og greiðu. Matmaður mikill og voru kótelettur í al- gjöru uppáhaldi. Þú varst hvat- vís og bóngóður og vildir allt fyrir alla gera. Ef minnst var á eitthvað við þig þá framkvæmdir þú það áður en maður vissi af og reddaðir því. Enda aðalreddar- inn. Kímnigáfa þín var einstök, svartur húmor og áttir auðvelt með að sjá spaugilegar hliðar á lífinu og tilverunni. Þú varst uppátækjasamur og fram- kvæmdir stundum án þess að hugsa og eru til margar skemmtilegar sögur af þér sem ekki eru prenthæfar en ylja okkur um hjartarætur. Þvílík forréttindi að fá að vera dætur þínar. Þú hafðir ein- stakt lag á að koma væntum- þykju frá þér og láta hverjum og einum finnast hann svo mik- ils virði og vera langflottastur. Þú sagðir reglulega við okkur allar í einrúmi að við værum uppáhaldsdóttir þín og við trú- um því hver og ein að við höfum verið hin eina sanna uppáhalds- dóttir. Notalegt er að hugsa til baka og rifja upp allar frábæru minn- ingarnar um þig, við eigum sko nóg af þeim. Við vitum að Kjarri bróðir hefur tekið vel á móti þér og þið getið hlegið saman af heimskupörum okkar systra. Elsku pabbi, þú varst með hjarta úr gulli. Takk fyrir að vera pabbi okkar. Fyrst mér auðnast ekki að sjá ævi éljum linna. Hrifinn get ég hlustað á hlátur vona minna. (Þorbergur Ólafsson.) Þínar uppáhaldsdætur Hulda, Helga og Þórunn (Todda). Elsku Haddi minn. Fyrst eftir að ég kynntist þér gastu ómögulega kallað mig mínu rétta nafni, en það klikkaði ekki hjá þér síðustu árin, þó hefði mátt búast við því. Alltaf tilbúinn að hjálpa fólk- inu í kringum þig, ég tala nú ekki um hvað þú varst góður við stelpurnar þínar og afkomend- ur, ekki er ég hissa á hvað stelp- urnar elska þig mikið. Reddaðir öllu, stundum reyndar á undan áætlun. Með þínum samböndum komstu mér, stráknum að austan í vinnu hér eftir að ég flutti norður. Mikið er ég heppinn að hafa fengið að kynnast þér. Síðan ég kvaddi þig á mánu- daginn hefur Johnny Cash ómað í hausnum á mér, líklega er það engin tilviljun því oftar en ekki var hann í botni í bílnum hjá þér þegar ég settist inn í hann. Ég á alltaf eftir að tengja hann við þig. Ég passa upp á fólkið okkar og býst reyndar við því að þú hjálpir til með það eins og fyrri daginn, elsku vinur. Takk fyrir allt. Þinn tengdasonur, Guðni Þór Jósepsson. Í dag kveð ég góðan vin og þakka fyrir alla þá hjálpsemi og stuðning sem hann hefur veitt mér á sinni lífsins leið. Haddi var ávallt til í að liðsinna og veita aðstoð sína og mátti hvergi aumt sjá. Hann var gefandi per- sóna, yndislegur tengdapabbi og dásamlegur afi barnanna minna. Hann þekkti alla og kallaði ég hann oft reddarann. Það var ekkert sem Haddi gat ekki redd- að og ef hann gat það ekki sjálf- ur þá átti hann ógrynni af vinum og kunningjum sem voru boðnir og búnir að græja allt fyrir hann. Það var nefnilega þessi endalausa hjálpsemi og hlýja sem hann gaf frá sér sem gerði hann svo mikils metinn meðal sinna. Hann var útsjónarsamur og ávallt að hugsa um börnin sín svo þau gætu haft húsaskjól, fæði og klæði. Tækifærin voru alls staðar, á rúntinum með hon- um gat dottið upp úr honum: „Tobbi þetta hús er til sölu. Get- um við ekki gert eitthvað úr þessu?“ Þegar ég lít til baka þá tókst Hadda að gera það sem er skylda og hlutverk okkar allra hér á jörð, að búa til minningar. Já, minningar það er það sem við skiljum eftir okkur þegar við kveðjum jarðvistina. Ég á enda- laust af góðum minningum um minn góða vin. Ég vil þakka þér, kæri Haddi, fyrir að vera til staðar fyrir mig og vera börnum mínum svona dásamlegur afi. Þinnar skemmtilegu nærveru er sárt saknað, megi Guð á himnum geyma þig og þína. Átti með þér ótal stundir, æviminning þín er sterk. Eftir jarðvist endurfundir, einstök lífs þíns góðu verk. (Þ.G.) Þorbjörn Guðrúnarson. Elsku Haddi afi. Ég vona að þú heyrir í okkur þó að þú sért dáinn. Þú varst alltaf að raula. Þú varst alltaf að gefa okkur Katrínu mola. Þú spilaðir á munnhörpuna og við dönsuðum. Ég spilaði oft við þið ólsen og veiðimann og stundum vann ég. Þú varst fyndinn og knúsaðir okkur alltaf. En núna getum við ekki lengur farið í heimsókn til þín og það er mjög sorglegt. Ég sakna þín og örugglega allir hinir líka. Elsku Haddi afi, þú varst flottastur. Þinn afastrákur Kjartan Logi. Elsku Haddi afi. Mig langar að halda í höndina á þér og mig langar að knúsa þig. Þú gafst okkur mola og sagðir alltaf Bína við mig þó að ég heiti ekki Bína. Þú varst allt- af í góðu skapi. Þú varst alltaf að raula og klappa mér á kinnina. En núna er pabbi hans Kjarra hjá honum. Ég sakna þín. Þín afastelpa, Katrín Helga. Elsku afi. Þú varst besti afi í heimi. Mikið erum við lánsamar að hafa átt þig að. Við verðum æv- inlega þakklátar fyrir umhyggju þína og hlýju, þú kenndir okkur svo margt með góðvild þinni og kærleik. Þú varst sá sem redd- aði öllu, ef eitthvað bjátaði á gát- um við alltaf hringt í afa og mál- unum var bjargað á svipstundu. Elsku afi, þú varst einstakur. Takk fyrir allar góðu minn- ingarnar, það er yndislegt að eiga þær að. Það var alltaf svo gott að koma í ömmu og afa hús. Þú passaðir ávallt upp á að eiga upptökur af öllu barnaefni vik- unnar og ferðir í bakaríið voru ansi margar. Við komumst fljótt upp á lagið með að spyrja bara afa, enda sagðir þú alltaf já. Þú kunnir svo sannarlega að dekra við okkur. Takk fyrir að vera ætíð til staðar fyrir okkur. Þú verður alltaf langflottast- ur! Við söknum þín. Fel þú, Guð, í faðminn þinn, fúslega hann afa minn. Ljáðu honum ljósið bjarta, lofaðu hann af öllu hjarta. Leggðu yfir hann blessun þína, berðu honum kveðju mína. (L.E.K) Þínar afastelpur, Guðrún, Hafdís og Birta. Hafsteinn Þorbergsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.