Morgunblaðið - 15.03.2017, Page 37

Morgunblaðið - 15.03.2017, Page 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er þung byrði að þurfa að gera alla hluti kórrétt. Til þess að ná árangri þarftu að kafa eftir þeim sannindum, sem hjálpa þér að skilja eðli hlutanna og leysa þá. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér tekst að sýnast glaður á yfirborð- inu þótt undir niðri eigir þú við erfið vanda- mál að stríða. Að öðrum kosti getur farið illa. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú mátt ekki taka öllu svona þung- lega. Slík framkoma kallar á harkaleg við- brögð, sem þú gætir átt erfitt með að ráða við. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu það ekki hvarfla að þér að láta aðra um að leysa þín mál. En þú vilt meira og reynir að redda þér pening til að hafa efni á því. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Stór til- boð berast, gakktu samt varlega fram því sígandi lukka er best og tryggir heill og hamingu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að gæta þess að ganga ekki fram af þér með vinnu. Kláraðu þau verkefni sem fyrir liggja, því annars áttu á hættu að fá á þig orð fyrir óáreiðanleika. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er ekki allt grænna í garði grann- ans þótt þér kunni að sýnast svo. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Kannski þarftu að takast á við erfiða manneskju, kannski við erfitt verkefni. Láttu það í ljós þegar þú er beðinn um það, haltu annars aftur af þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ef þú hefur ekki varann á þér gæti farið svo að gömul sár sem aldrei hafa gróið að fullu opnist á ný. Hafðu skipulagn- inguna í lagi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert mjög viðráðanlegur þegar þú lætur yfir þig ganga hluti sem þú hefur aldrei gert áður. Forgangsröðun er lausnin. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhver mun hugsanlega gefa þér gjöf eða gera þér greiða í dag. Mundu að öllum orðum fylgir ábyrgð og reyndu að leiða átökin sem mest hjá þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Leyfðu sköpunarþránni að fá útrás. Ef þú veist ekki hvað er þér mikilvægt er erfitt að forgangsraða. Sannkölluð furðumynd dúkkaðiupp á sjónvarpsdagskránni á sunnudag. Hefði ekki viljað svo til að myndin gerðist að stórum hluta á Ís- landi og í henni kæmi fram fjöldi ís- lenskra leikara hefði hún ekkert er- indi átt á skjáinn, hvað þá á besta úsendingartíma. Á íslensku nefnist myndin Skrímsli og er frá árinu 2001. Hún er eftir Hal Hartley, sem þótti nokkuð virtur í hópi óháðra leikstjóra um þær mundir. Þessi mynd var horfin úr huga Víkverja, en vakti reyndar nokkra athygli á sínum tíma. Sæbjörn Valdimarsson skrifaði um hana gagnrýni og gaf henni heilar tvær stjörnur. Kemur þar fram að þegar myndin var frumsýnd hafi Friðrik Þór Friðriksson, sem fram- leiddi myndina ásamt Francis Ford Coppola!, rifjað upp að hann hafi ver- ið staddur á kvikmyndahátíð ásamt Hartley. Hafi Friðrik skemmt Hart- ley með skrímslasögum yfir ballskák og heillaðist Bandaríkjamaðurinn svo af að úr varð kvikmynd. Sæbjörn segir myndina „afkáralega blöndu af Fríðu og dýrinu og Network“ og tal- ar um „furðuverk“ með „mörgum ill- skiljanlegum og tilgangslausum þátt- um“. x x x Skemmst er frá því að segja aðekki hefur myndin elst vel. Hún hélt engan veginn athygli, en þó var erfitt að slíta sig frá henni. Meg- inástæðan var allur sá fjöldi ís- lenskra leikara, sem birtist á skján- um í kompaníi við stórleikarana Helen Mirren og Julie Christie. Þarna voru Baltasar Kormákur í hlutverki furðulegs vísindamanns, Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki læknis og Kristbjörg Kjeld sem hjúkrunarkona. Brynhildur Guðjóns- dóttir og María Ellingsen eru starfs- menn á flugvelli. Bessi Bjarnason og Þröstur Leó Gunnarsson eru skip- verjar á báti. Helgi Björnsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson leika afdalamenn, sem vitaskuld eru flug- mæltir á ensku, rétt eins og skrímsl- ið, sem virðist hafa verið til að minnsta kosti frá því líf kviknaði á jörðinni og fylgst með allri þróun- arsögunni, og talar því með banda- rískum framburði líkt og það hafi alið manninn á Manhattan alla tíð. vikverji@mbl.is Víkverji Innan skamms mun heimurinn ekki sjá mig framar. Þér munuð sjá mig því ég lifi og þér munuð lifa. (Jóh. 14:19) Ásunnudaginn heilsaði Sig-mundur Benediktsson Leir- verjum með afhendingu: Heil og sæl og haldið gælum hlýtt að barmi. Glæðið sól á gleðihvarmi. Og bætti við: „Reyni að græða styrk í selskapinn með smá brag- hendubulli, tvær þær fyrstu eru eins, en svo breyta þær um gerð hver á eftir annarri. Má vera að ég hafi farið fram úr mér í þeirri síð- ustu og hún standist ekki ísl. rímna- hætti. Þigg gjarnan athugasemdir! Það er andleg þurrabúð að þessu sinni, enginn skolast upp úr minni óður til að glæða kynni. Sjóli hæða setti víst á Suttungs kvóta, sem að virðist síst til bóta; svei mér ef ég næ að blóta. Upp úr doða oft þó langar aka geði. Berja ögn í bresti mína betri lauf svo nái tína. Braghenduna bæta munu bændur lengi, hún á spunahljóm í strengi, hefur grun um betra mengi. Sólin blíða senn vill skrýða svip á foldu. Gætin tíð með gleðitóni gefur prýðisvonir Fróni. Fjöllin blána, fannir þána, frískast máttur. Enn í styttist afl og hlýju og í glitti vor að nýju.“ Nú skal hætta hér við mætta háttaþætti. Leggja kættum ljóðaslætti lið, ef bætti hug og sætti. Í Bragfræði síra Helga Sigurðs- sonar er braghenda undir þessu af- brigði þannig skilgreind: Brag- henda skjálfhend, rím- og hendinga-samhend. Skjálfhenda meiri – og tekið dæmi úr Marons rímum sterka eftir Þórð Einarsson á Ytra-Lágafelli: Var svo óður örva rjóður Yggs um móður, enginn stóð við álma bjóður, aular sóðast hels í tjóður. Þessi er frumbragur Braghendu samkvæmt síra Helga – úr Tíðavís- um Jóns Oddssonar Hjaltalín á Breiðabólsstað: Tíminn, lífið, lestir, dygðir, löður fjara, þraut og heill hjá þjóða skara, það er allt að koma og fara. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Skjálfhenda meiri er afbrigði braghendu Í klípu EFTIR-LÍFS-PARTÍ. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HANN MÁLAÐI ÞESSA ÞEGAR HANN VAR ÞRIGGJA ÁRA GAMALL.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sjá einhvern í nýju ljósi. KJÚKLINGALOKAN MÍN ER EKKI MEÐ NEINUM KJÚKLINGI EF ÉG VÆRI ÞÚ VÆRI ÉG BRJÁLAÐUR SEM BETUR FER ER ÉG EKKI ÞÚ HÉRNA ERU NÝLIÐARNIR, SEM VITA EKKI HVAÐ ORÐIÐ „AÐ TAPA“ ÞÝÐIR! ÞEIR TALA BARA PORTÚGÖLSKU… VELKOMNIR!! …ÞEIR VITA EKKI HELDUR HVAÐ ÞAÐ ÞÝÐIR!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.